Fréttablaðið - 06.01.2005, Page 62

Fréttablaðið - 06.01.2005, Page 62
„So this is the new year / and I have no resolutions for self assigned penance / for problems with easy solutions“ - Hljómsveitin Death Cab for Cutie söng um nýársdag á síðustu plötu sinni Transatlantism sem endaði á listanum yfir bestu uppgötvanir síðasta árs í Fréttablaðinu. 30 6. janúar 2005 FIMMTUDAGUR Í spilaranum hjá ritstjórninni The Futureheads: The Futureheads, Hot Chip: Coming On Strong, Pinback: Summer in Abbadon, Cex: Maryland Mansions og Jan Mayen: Home of the Free Indeed. MODEST MOUSE Tróna á toppnum eftir árið 2004 með lagið „Float On“. [ ÁRSLISTI Xins 977 ] BESTU LÖGIN 2004 MODEST MOUSE FLOAT ON KORN Y’ALL WANT A SINGLE THE KILLERS MR. BRIGHTSIDE FRANZ FERDINAND TAKE ME OUT BEASTIE BOYS CH CHECK IT OUT MINUS ANGEL IN DISGUISE INCUBUS MEGALOMANIAC LOSTPROPHETS LAST TRAIN HOME SNOW PATROL RUN VELVET REVOLVER FALL TO PIECES BLINK 182 MISS YOU HIVES WALK IDIOT WALK DÁÐADRENGIR BARA SMÁ MÍNUS NICE BOYS THE DARKNESS LOVE IS ONLY A FEELING JET COLD HARD BITCH SLIPKNOT DUALITY PAPA ROACH GETTING AWAY WITH MURDER JAN MAYEN ON A MISSION STROKES REPTILIA * Listanum er raðað af umsjónar- mönnum stöðvarinnar 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 Síðumúla 13 Opið 10 - 18 Sími 568-2870 ÚTSALA ÚTSALA 50 – 80 % Ótrúlega lágt verð Dæmi um verð: Áður Núna Mohair peysa 6.000.- 1.900.- Riffluð peysa 6.500.- 1.900.- Rennd peysa 5.900.- 1.900.- Rúllukragapeysa 6.200.- 1.900.- Vafin peysa 4.800.- 1.900.- Satín toppur 5.300.- 1.900.- Bolur m/perlum 6.600.- 1.900.- Bolur m/áprentun 3.700.- 900.- Skyrta 4.000.- 1.800.- Viskósblússa 4.700.- 900.- Hettupeysa 4.900.- 1.900 Sítt pils 6.300.- 900.- Flauelsjakki 6.400.- 1.900.- Dömujakki 6.500.- 1.900.- Vatteruð úlpa 6.800.- 2.900.- Íþróttagalli 8.900.- 2.900.- Leðurbuxur 11.200.- 2.900.- Kvartbuxur 4.900.- 900.- Dömubuxur 5.800.- 900.- Og margt margt fleira 5 690691 2000 08 Lífsreynslusagan • Heilsa • • Matur • Krossgátur 1. tbl. 67. árg., 4. janú ar 2005. g•á~t Persónuleikaprófið Aðeins 599 kr. Sigurbjörg og Guðr ún fundu góða leið til betra lí fs 65 kílóum Ä°ààtÜ| Bjó til engla - úr Sveppa, Audda og Pétri Flutti til Íslands til að leika í Latabæ Að grennast með réttu hugarfari! Heilsuátak fræga fólksins Sjötugur og á fullu í ræktinni Sjö da ga kúr sem vi rkar 00 Vikan01. tbl.'05-1 17.12.2004 11:51 Pag e 1 ný og fersk í hverri viku Aðeins 599 kr. Náðu í eintak á næsta sölustað Útgáfusamningur í jólagjöf Hljómsveitin Tender- foot tryggði sér útgáfu- samning við One Little Indian rétt fyrir jól. Enn ein íslenska sveitin sem kemst yfir þrösk- uldinn, en hvaða sveit er þetta eiginlega? Liðsmenn Tenderfoot fengu góða jólagjöf í ár þegar þeir bættust í hóp íslenskra tónlistarmanna sem eru á málum hjá erlendri plötuút- gáfu. Það var fyrirtækið One Little Indian, sem hefur séð um útgáfu platna Sykurmolanna og svo Bjarkar á erlendri grundu, sem tryggði sér útgáfuréttinn á plötum sveitarinnar næstu árin. Það hafði legið lengi í loftinu að Tenderfoot myndu ná samningi úti, enda hefur þeim gengið allt í haginn frá því að hljómsveitin spilaði fyrst á Iceland Airwaves- hátíðinni í hittifyrra. Þeir tónleik- ar tryggðu sveitinni för til New York þar sem hún kom fram á nokkrum af álitlegri tónleikastöð- um stórborgarinnar. Þessi vel- gengni Tenderfoot er engin heppni, og vel verðskulduð enda berstrípaðir tónar sveitarinnar með eindæmum fallegir. Flutning- ur og tjáning eru svo í hæsta gæðaflokki. Í viðtali í skurðgröfunni Hallgrímur trommuleikari, eða Grímsi eins og hann er kallaður, var að stjórna skurðgröfu í vinnu sinni þegar Fréttablaðið hringdi. Hann drap á vélinni og gaf sér nokkrar mínútur til þess að spjalla við blaðamann. „Konni gítarleikari og Kalli söngvari og gítarleikari voru sam- an í hjómsveitinni Útópíu. Þegar sú sveit hætti, árið 2002, ákváðu þeir að fara að dunda sér saman. Þeir byrjuðu inni í stofu hjá Konna, bara með kassagítara,“ segir Grímsi og það ætti því ekki að vera fjarri lagi að kalla tónlist þeirra stofukassagítarsrokk. „Síð- an hafði Konni samband við mig og ég bættist í hópinn. Hann býr í kjallaraíbúð og þess vegna gátum við ekki verið með neinn míkra- fón eða magnara. Ég mætti með lítið trommusett sem að sonur minn á af því að það mátti ekki vera neinn hávaði. Þess vegna notaði ég burstana. Þannig þróað- ist stíll sveitarinnar.“ Kalli og Konni voru búnir að safna upp nokkrum lögum áður, en þegar Grímsi bættist í hópinn opnuðust allar flóðgáttir og ný lög fæddust nánast á hverri æfingu. Á fyrstu tónleikunum var sveitin tríó en ári eftir stofnun hennar bættist bassaleikarinn Helgi í hópinn. Hann fór og verslaði sér kontrabassa til þess að fullkomna hljóm sveitarinnar. „Við vorum alveg í heilt ár í stofunni. Fyrstu tónleikarnir voru á litlum stöðum eins og Kaffi Vín og Sirkús. Svo spiluðum við á Listasafni Reykjavíkur á Air- waves í hittifyrra. Þar sá okkur ljósmyndari sem starfar líka sem bókari á stöðum í New York. Hann vildi endilega fá okkur út og við fórum.“ Kósý og heimilisleg stemning Tenderfoot komst fyrst á plast þegar hún tók þátt á safnplötunni Sándtékk sem kom út í nóvember 2003. Þar eru lögin Country og While This River Flows. Það fyrra endaði einnig á nýju breiðskífunni þeirra, en það seinna hefur ein- ungis heyrst þar. Á þeirri safnplötu kristallaðist órafmögnuð „americana“ sena, sem Tenderfoot hefur leitt frá upphafi. „Einhver hluti af þessum sveit- um eru kunningjar okkar og vinir. Margir þeirra hafa verið bara einir með gítarinn lengi. Okkur finnst mjög notarlegt að vera svona á rólegu nótunum. Stilltum meira að segja upp kertaljósum og teppum á útgáfutónleikunum til þess að gera hluti meira heim- ilislegri og kósý. Þannig hefur það nefnilega verið á æfingum, þar er meira að segja hundur á vappi, sjónvarpið í gangi, kaffi á könn- unni og allir sitja í sófum með hljóðfærin sín, nema ég. Við höf- um aldrei verið með hið týpíska æfingahúsnæði.“ Hjólin byrjuðu svo almenni- lega að snúast hjá sveitinni þegar Árni Benediktson, umboðsmaður Leaves, bauð fram þjónustu sína eftir að hafa séð til sveitarinnar á tónleikum. Frumraun sveitarinnar, sem kom út hér fyrir jól og ber nafn sveitarinnar, fær útgáfu í Evrópu og Japan í næsta mánuði. Sveitin heldur út í kjölfarið til þess að fylgja útgáfunni eftir. Fylgist með, því lauflétt ganga Tender- foot er rétt að byrja. biggi@frettabladid.is TENDERFOOT Hljómsveitin Tenderfoot hefur skrifað undir samning við útgáfufyrirtækið One Little Indian, sem hefur meðal annars gefið út plötur Sykurmolanna og Bjarkar.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.