Fréttablaðið - 06.01.2005, Page 72

Fréttablaðið - 06.01.2005, Page 72
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is Dreifing: 515 7520 Auglýsinga- og markaðsdeild: 550 5010 – fax 550 2727, auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000 Bílaólán Ég hef aldrei átt bíl. Ég hef rekiðbíla og haft þá í minni umsjá en ég hef aldrei raunverulega átt þá. Ég hef yfirleitt tekið lán fyrir þeim og bílalán núna í seinni tíð. Oftar en ekki hafa bílarnir verið ónýtir áður en ég hef náð að greiða upp lánið af þeim. Oft hafa þessir bílar verið ónýtar druslur frá upphafi, gamlir og út- keyrðir. En ekki alltaf. Ég hef nokkrum sinnum slysast til að kaupa bílategundir sem hafa ekki notið almennrar hylli. Ég hef meðal annars átt Simca Talbot, Renault Nevada og Mercury Topas. Þeir eiga það allir sameiginlegt þessir bílar að þeir hafa fært mér mikla óhamingju. Ég keypti þessa bíla vegna þess að þeir voru ódýrir miðað við útlit. Þeir litu vel út og virtust í góðu lagi. Yfir- leitt hefur líka bílasalinn mælt sterk- lega með þessum bílum. Ég hef síðan komist að því síðar að hann gerði það fyrst og fremst til að losna við við- komandi bíl í fangið á einhverjum auðtrúa fáráðlingi eins og mér. Þegar ég keypti Simca Talbotinn hélt ég að ég væri heppnasti maður í heimi. Mér leið eins og ég hefði unnið í happdrætti. Bílasalinn fullyrti að ég hefði dottið í lukkupott og gert bestu bílakaup lífs míns. Mánuði seinna var bíllinn orðinn að ryðhrúgu. Það var eins og ég hefði keypt mér ís í hita- bylgju. Bíllinn hreinlega bráðnaði sundur í höndunum á mér. Ég komst líka að því að nákvæmlega enginn flutti inn varahluti fyrir Simca Tal- bot. Það var því tilgangslaust að láta gera við hann. Afturdempararnir ryðguðu undan honum og hann var fastur í fyrsta gír. Ég keyrði um bæ- inn á 10-15 km. hraða með afturend- ann hoppandi í allar áttir. Á endanum hoppaði hann í sundur og ég fór með hann á haugana. Ég var enn þá að borga lánið af Tal- botinum þegar ég keypti Topasinn. Einhver hafði sagt mér að amerískir bílar væru frábærir. Ég veit ekkert um það, en Tópasinn bræddi úr sér eftir nokkra mánuði en ekki fyrr en ég var búinn að eyða meiru í viðgerð- ir á honum en ég hafði keypt hann á. Ég var heppinn að losna við hann mér að kostnaðarlausu. Þá keypti ég Nevöduna en sá bíll átti eftir að græta mig. Í dag á ég Fiat Weekend sem er bíll sem enginn þekkir. Ég fékk hann á mjög góðu verði. Ég skulda hann all- an. Ef hann bregst mér þá skila ég inn ökuskírteininu mínu og tek upp rösklegar göngur. JÓNS GNARR BAKÞANKAR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.