Fréttablaðið - 18.01.2005, Síða 1
SNJÓFLÓÐAHÆTTA 49 íbúar úr
fimmtán húsum við Urðarstíg,
Mýrar og Hóla á Patreksfirði
þurftu að yfirgefa heimili sín
vegna snjóflóðahættu og leituðu
íbúar til ættingja og vina í bæn-
um. Í Bolungarvík voru sjö hús
rýmd auk eins sveitabæjar og
fimmtán hús voru rýmd í Ísafjarð-
arbæ. Þrjú snjóflóð féllu fyrir
ofan byggð í Bolungarvík í fyrr-
inótt og gærmorgun og stöðvaðist
eitt þeirra tíu metra frá íbúðar-
húsi við Dísarland.
Hörður Þór Sigurðsson, á snjó-
flóðavakt Veðurstofu Íslands, seg-
ir snjóflóðið sem stöðvaðist
skammt frá húsi við Dísarland
hafa verið þunnt þar sem nýr
snjór hafi runnið ofan á eldri og
harðari snjó. Flóðið hafi því ekki
verið sérstaklega hættulegt en
hafi þó gefið fulla ástæðu til rým-
ingar. Rýmd voru nokkur hús við
Dísarland og Traðarland auk þess
sem bæirnir Tröð og Geirastaðir
voru rýmdir. Hörður segir rým-
ingu hafi verið ákveðna á Patreks-
firði þar sem mikið hafi snjóað í
gærmorgun auk þess sem spáin
fyrir síðustu nótt hafi hljóðað upp
á norðanátt. Þá hafi nokkuð víð-
feðmt flóð fallið fyrir ofan Pat-
reksfjörð í síðustu viku en stöðv-
aðist á veginum á milli Urðargötu
og Mýra.
Viðbúnaðarstig var á öllum
Vestfjörðum í gær fyrir utan
svæðin þar sem var hættuástand
og gripið var til rýminga. Fundir
hjá almannavarnanefndum á
Vestfjörðum verða haldnir í dag í
samráði við Veðurstofuna þar
sem staðan verður metin að nýju
og athugað hvort hægt verði að
hleypa fólki til síns heima.
- hrs
Sjá nánar á bls. 2
Rúmlega hundrað
íbúar rýmdu hús sín
38 hús í Ísafjarðarbæ, Bolungarvík og á Patreksfirði voru rýmd í gær. 102 íbúar þurftu að yfir-
gefa heimili sín. Þunnt snjóflóð stöðvaðist tíu metra frá íbúðarhúsi í Bolungarvík.
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
ÞRIÐJUDAGUR
SKÁLDASPÍRUR Rithöfundar lesa upp
úr verkum sínum á Skáldaspírukvöldi á Kaffi
Reykjavík í kvöld. Pétur Gunnarsson, Her-
mann Stefánsson, Þorsteinn Guðmundsson
og Árni Larsson lesa úr nýútgefnum verkum
en Kristín Svava Tómasdóttir les óútgefið
efni. Lesturinn hefst klukkan 21.00.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
18. janúar 2005 – 16. tölublað – 5. árgangur
REGINHNEYKSLI Ögmundur Jónasson
segir lífeyrisgreiðslur til fyrrverandi ráðherra
sem enn vinna hjá hinu opinbera vera birt-
ingarmynd hins umdeilda eftirlaunafrumvarps
sem Alþingi samþykkti undir lok árs 2003.
Hann segir reginhneyksli að sérsníða lög að
þörfum þingmanna og ráðherra. Sjá síðu 4
HVIKAR HVERGI FRÁ Halldór Ás-
grímsson segir að hann og Davíð Oddsson
hafi tekið ákvörðun um að styðja innrás
Bandaríkjanna og bandamanna þeirra í Írak
eftir að Íraksmálið var rætt á ríkisstjórnar-
fundi sama dag. Guðni Ágústsson segir Írak
hafa verið rætt en ákvörðun um stuðning
ekki. Sjá síðu 6
OPNUÐU FLENSUDEILD Flensan og
skyldir sjúkdómar hafa lagst svo harkalega á
landsmenn að Landspítalinn sá sitt óvænna
og setti upp sérstaka legudeild fyrir flensu-
sjúklinga. Sjá síðu 4
Kvikmyndir 26
Tónlist 26
Leikhús 26
Myndlist 26
Íþróttir 22
Sjónvarp 28
HVASSAST SUÐAUSTAN TIL
Él á Norður- og Austurlandi annars
bjartviðri. Frost 2-8 stig. Sjá síðu 4.
Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
LÖGREGLURANNSÓKN Jón H. Snorra-
son segir fyrst og fremst stjórn-
endur hjá Frjálsri fjölmiðlun og
öðrum félögum tengdum fyrir-
tækinu vera til rannsóknar hjá
embættinu.
Í yfirlýsingu frá Sveini R. Eyj-
ólfssyni, fyrrverandi eiganda
Frjálsrar fjölmiðlunar, segir að
þau mál sem eru til skoðunar hjá
ríkislögreglustjóra lúti að með-
ferð vörslufjár einstakra dóttur-
félaga fyrirtækisins og aðgerðum
starfsmanna í aðdraganda gjald-
þrotsins. Heimildir blaðsins segja
málið þó vera víðtækara en svo.
Jón H. Snorrason segir stjórn-
armenn aðeins geta borið ábyrgð
á þeim ákvörðunum sem þeir
standa sjálfir að. Rannsóknir
embættisins snúa að ætluðum
auðgunarbrotum og skattalaga-
brotum. Jón segir augu embættis-
ins beinast að hinum og þessum
aðgerðum og athöfnum sem
stjórnendur tengdir Frjálsri fjöl-
miðlun gætu borið refsiábyrgð á.
Embættið taldi ekki nægilega rök-
studdan grun vera til að óska eftir
gögnum um fyrirtækið Time In-
vest í Lúxemborg eins og skipta-
stjóri Frjálsrar fjölmiðlunar
óskaði eftir. „Það kom mér á óvart
að skiptastjóri hafði ekki komið
því í verk að láta klára að færa
bókhald Frjálsrar fjölmiðlunar
sem myndi gefa yfirsýn yfir mál-
ið,“ segir Jón.
Eftirlitsskylda stjórnarmanna
fyrirtækja felst aðallega í því að
stöðva rekstur fyrirtækis ef það
greiðir ekki skatta eða opinber
gjöld.
- hrs
Sjá nánar á bls. 2
18-40 ára
Me›allestur dagblaða
Samkvæmt fjölmi›lakönnun Gallups nóvember 2004
MorgunblaðiðFréttablaðið
62%
38%
VEGIR LOKAÐIR OG UMFERÐ TAKMÖRKUÐ Á VESTFJÖRÐUM Loka þurfti ýmsum vegum á norðanverðum Vestfjörðum í gær. Veg-
unum um Óshlíð og Súðavíkurhlíð var lokað. Einnig var umferð takmörkuð á Hnífsdalsvegi, Kirkjubólshlíð, Hvilftarströnd, Breiðdal og í
Súgandafirði stóran hluta dagsins og var síðan lokað klukkan sex í gærkvöld.
Fróðárheiði:
Festi bíl í skafli
HJÁLPARSTARF Björgunarsveitar-
menn og lögregla frá Ólafsvík komu
ökumanni til aðstoðar eftir að hann
festi bíl sinn í skafli á Fróðárheiði.
Mikill skafrenningur var á heið-
inni og fennti í mikla skafla, öku-
maðurinn lenti í einum slíkum á
jeppa sínum og komst ekki lengra.
Hann þurfti að ganga nokkra vega-
lengd áður en hann komst í síma-
samband til að óska eftir aðstoð.
Björgunarsveitarmenn úr Sæ-
björgu héldu til aðstoðar manninum
og tóku hann upp í bíl sinn þar sem
hann var á leið aftur í bílinn. -bþg
Sveinn R. Eyjólfsson segir meðferð vörslufjár vera til skoðunar:
Rannsóknir beinast að
verkum stjórnenda
Ísleifur Þórhallsson:
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
Nýr heimur í
baðstofu
● heilsa
Kristján Magnússon:
▲
SÍÐA 30
Fann linsu í
sundlaug
● fundvís sundlaugarvörður
Golden Globe-verðlaunin:
▲
SÍÐA 27
The Aviator
sigursælust
● í leikstjórn martins scorsese
Geir Sveinsson:
▲
SÍÐA 22
Ísland ekki meðal
sex efstu í Túnis
● deilir ekki bjartýni viggós
Árásir vígamanna:
Á þriðja tug
myrtir
ÍRAK, AP Á þriðja tug manna létust í
árásum vígamanna í Írak í gær. Of-
beldisverk vígamanna eru nú í al-
gleymingi, tæpum tveimur vikum
áður en Írakar ganga að kjörborð-
inu og velja stjórnlagaþing sem
semur nýja stjórnarskrá Íraks.
Vígamenn skutu átta íraska
þjóðvarðliða til bana við vegatálma
og átta manns létust í bílsprengju-
árás á lögreglustöð norður af
Bagdad. Vígamenn tóku tvo
sjíamúslima þegar þeir komu frá
bandarískri herstöð nærri Ramadi
og myrtu þá með því að skera haus-
inn af þeim. Þá fundust lík fjögurra
manna, þriggja óbreyttra borgara
og írasks hermanns í borginni. Öll
voru sökuð um samstarf við her-
námsliðið. ■
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
B
Í BAGDAD
Tæpum tveimur árum eftir innrásina í Írak
eru enn að finna ummerki bardaga, þeirra
á meðal þennan skriðdrekaturn liggjandi á
gangstétt í Bagdad.