Fréttablaðið - 18.01.2005, Qupperneq 4
KAUP
Gengisvísitala krónunnar
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
USD
GBP
EUR
DKK
NOK
SEK
JPY
XDR
62,45 62,75
116,76 117,32
81,80 82,26
1,00 11,06
9,98 10,04
9,04 9,09
0,61 0,61
95,20 95,76
GENGI GJALDMIÐLA 17.1.2005
GENGIÐ
Heimild: Seðlabanki Íslands
SALA
Króna 112,36 -0,10%
4 18. janúar 2005 ÞRIÐJUDAGUR
HEILBRIGÐISMÁL Enn er lítið lát á
fárveiku fólki sem streymt hefur
inn á Landspítala - háskólasjúkra-
hús undanfarna daga af völdum
inflúensu og annarra um-
gangspesta. Guðlaug Rakel Guð-
jónsdóttir, sviðsstjóri á lyflækn-
ingasviði, sagði, að opnuð hefði
verið sérstök legudeild fyrir þetta
fólk á Hringbraut og yrði hún
væntanlega opin fram eftir vik-
unni eða svo lengi sem þyrfti.
„Þessi deild er skráð fyrir 13
sjúklinga,“ sagði Guðlaug Rakel.
„Þá bættum við einnig við rúmum
í gæsludeildinni í Fossvoginum.
Nú eru á spítalanum 35 sjúklingar
umfram venjulegan dag. Það hafa
verið óvenjulega mikil veikindi.
Það hafa verið miklar innlagnir
bæði í gegnum bráðamóttökuna
og hjartadeildina á Hringbraut.
Fólk sem er veikt fyrir þolir illa
að fá umgangspestir. Þetta leggst
allt hvað á annað, en flensan topp-
ar það alveg.“
Guðlaug Rakel sagði það
tilfinningu fólks að álagið á
spítalanum væri heldur í rénun,
miðað við það sem hefði verið
fyrir helgi.
- jss
KJARAMÁL Nú er að birtast sá veru-
leiki sem margir sáu fyrir þegar
lífeyrisfrumvarpið var samþykkt
að mati Ögmundar Jónassonar,
þingmanns Vinstri-grænna. Komið
er í ljós að sjö fyrrverandi ráð-
herrar fengu samtals rúmar
sautján milljónir króna í eftirlaun
á liðnu ári þrátt fyrir að vera enn í
fullu starfi á vegum hins opinbera.
Með lögum um eftirlaun þing-
manna og ráðherra, sem voru sam-
þykkt á Alþingi í desember árið
2003, voru heimildir til töku eftir-
launa rýmkaðar og aðeins einn
þeirra sjö sem nú þiggja eftirlaun
hafði öðlast réttindi til þeirra fyrir
gildistöku nýju
laganna.
„Auðvitað var það regin-
hneyksli að sníða sérstök lög að
þörfum þessa hóps,“ segir Ög-
mundur. „Nær hefði verið að
þingmenn og ráðherrar færu inn
í almennan lífeyrissjóð.“
Halldór Blöndal, forseti Al-
þings, mælti fyrir frumvarpinu á
sínum tíma og sagði að eitt af
markmiðum þess væri að draga
úr sókn gamalla þingmanna í
embætti í stjórnkerfinu og
tryggja afkomu þeirra sem ekki
kæmust í önnur störf að lokinni
þingmennsku. Ögmundur segir
að nú komi í ljós að það hafi ver-
ið meginfirra. „Tilgangur frum-
varpsins var að annars vegar að
búa þingmönnum og ráðherrum
betri lífeyriskjör en almennt
gerist og hins vegar að
gefa þeim kost á að fara
fyrr á lífeyri en fólk al-
mennt á rétt á.
Bjarni Benediktsson,
þingmaður Sjálfstæðis-
flokksins, segir að þessi veru-
leiki hafi legið fyrir þegar lög-
ið voru samþykkt á þingi. „Það
var tekin umræða um að það
væri ekki girt fyrir að
þessi staða gæti komið
upp. Í þessum tilvikum
geta menn öðlast lífeyris-
réttindi áður en að hefð-
bundnum starfsloka-
aldri er náð.“ Bjarni
segir þetta einkum eiga
við þá sem hafa starf-
að mjög lengi í stjórn-
málum og hafa náð
því að vera ráðherrar
eða forsætisráðherrar. „Ég hef
engar athugasemdir við að þeir
sem gegnt hafa forsætisráð-
herraembætti njóti góðra lífeyr-
iskjara. Viðkomandi hafa gegnt
miklum trúnaðarstörfum fyrir
þjóðina.“
ghg@frettabladid.is
Breskir hermenn:
Herdómstól
frestað
ÞÝSKALAND, AP Dómari ákvað í gær
að fresta máli þriggja hermanna
sem ásakaðir hafa verið um að
misþyrma föngum í Írak.
Upphaflega átti herrétturinn
að taka mál þeirra þriggja fyrir í
gær, í breskri herstöð í þýsku
borginni Osnabrueck. Dómarinn
ákvað hins vegar að fresta mál-
inu, þar sem hann þyrfti meiri
tíma til að hlýða á kröfur lög-
manna.
Myndir af meintri misþyrm-
ingu birtust í breskum blöðum
vorið 2003, leiddu til rannsókna
málsins. Misþyrmingin á að hafa
átt sér stað í maí 2003, þegar her-
mennirnir gættu vörugeymslu
þar sem hjálpargögn voru geymd
fyrir utan borgina Basra í suður-
hluta Írak. ■
... og mundu eftir ostinum!
RÚMUM FJÖLGAÐ
Gæsludeild A – 2 í Fossvogi var stækkuð fyrir helgina og herbergjum sem hafa verið til
annarra nota hefur verið breytt í sjúkrastofur.
Flensuhrinan á Landspítalanum:
Sérstök legudeild opin
fram eftir vikunni
LAUN SENDIHERRA
Nokkrir fyrrverandi ráðherrar starfa sem
sendiherrar erlendis og hafa þegar hafið
töku eftirlauna. Laun sendiherra eru eftir-
farandi:
Grunnlaun: 427 þúsund
Skattfrjáls staðaruppbót: 562 þúsund
Alls: 989 þúsund (hluti skattfrjáls)
Sérsniðin lífeyrislög
þingmanna hneyksli
Þingmaður Vinstri-grænna segir að það hafi verið vitað þegar eftirlaunafrumvarpið var samþykkt að fyrr-
verandi ráðherrar kæmust á eftirlaun á sama tíma og þeir gegndu opinberu starfi. Þingmaður Sjálfstæðis-
flokks gerir ekki athugasemdir. Þeir sem gegnt hafi trúnaðarstörfum fyrir þjóðina eigi að njóta þess.
MÓTMÆLI VIÐ ALÞINGI
Eggjum var kastað í Alþingishúsið til að mótmæla eftirlaunalögunum og fjöldi fólks tók þátt
í mótmælum Alþýðusambands Íslands. Forysta sambandsins taldi aukin réttindi ráðherra og
þingmanna ekki í réttu hlutfalli við það sem almenningur ætti að venjast.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
JE
TU
R
DÆMDIR FYRIR STRÍÐSGLÆPI
Tveir fyrrum herforingjar í her
Bosníu-Serba í júgóslavneska
borgarastríðinu hafa verið
dæmdir til níu og átján ára fang-
elsis fyrir þátt sinn í fjöldamorð-
um á múslimum í Srebrenica.
Meira en sjö þúsund manns voru
myrtir í fjöldamorðunum.
MESIC ENDURKJÖRINN Stipe
Mesic var endurkjörinn forseti
Króatíu og hlaut tvö af hverjum
þremur gildum atkvæðum í for-
setakosningum sem fram fóru á
sunnudag. Andstæðingur hans,
hægrimaðurinn Jadranka Kosor,
fékk 34 prósent atkvæða.
RÉTTAÐ Á NÝ Mál fjögurra Serba
var tekið fyrir á ný fyrir dóm-
stólum í gær. Þeir voru í fyrra
dæmdir í allt að 20 ára fangelsis-
vist fyrir pyntingar og morð á
sextán múslimum í júgóslav-
neska borgarastríðinu en hæsti-
réttur ógilti dóminn og fyrirskip-
aði að málið yrði tekið fyrir aftur.
■ EVRÓPA