Fréttablaðið - 18.01.2005, Síða 13

Fréttablaðið - 18.01.2005, Síða 13
ÞRIÐJUDAGUR 18. janúar 2005 13 ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S F LU 2 57 71 09 /2 00 4 Komdu hópnum þínum á óvart! Við gerum hópnum þínum frábær ferðatilboð til allra áfangastaða okkar innanlands, hvort sem ferðinni er heitið norður, suður, austur eða vestur, og til Færeyja að auki. Þið njótið þeirrar fjölbreyttu afþreyingar sem í boði er vítt um land í skemmtun, menningu, ævintýrum og upplifun. Kannaðu hópafargjöldin fyrir þinn hóp og þá möguleika sem í boði eru á hverjum stað í síma 570 3075. (Lágmarksfjöldi er 10 manns.) árshátíð - menning - áskorun - hópefli - hvíld - djamm - samstaða - óvissa - upplifun - ævintýri - félög - klúbbar - vinir - samtök - konur - karlar - stelpur - strákar flugfelag.is | 570 3075 Taktu flugið LANGTÍMASPÁR Norska veður- stofan mun nú birta veðurspár þrjá mánuði fram í tímann. Sam- kvæmt norska ríkisútvarpinu hefur stofnunin haft tæknina til að gera slíkar spár í áratug, en haft efasemdir um hversu góðar þær eru. Efasemdaraddir hafa heyrst um getu stofnunarinnar að spá fyrir um veðrið þetta langt fram í tímann, ekki síst þegar þeir virðast oft eiga í vandræðum með að spá fyrir um veðurhorfur þrjá daga fram í tímann. STAVANGER-HÁSKÓLI Hákon Nor- egskonungur hefur í Stavangri opnað fimmta háskóla Noregs. Þetta er fyrsti háskólinn sem staðsettur er í Stavangri. YFIRDRIFIN VIÐBRÖGÐ Karl Gústaf, konungur Svíþjóðar, seg- ir deilurnar um sig orðnar yfir- drifnar, eftir að hann tjáði sig í sænska dagblaðinu Dagens Ny- heder um viðbrögð ríkisstjórnar- innar vegna flóðanna í Indlands- hafi. Þetta er í fyrsta sinn sem hann tjáir sig um málið síðan gagnrýni Maritu Ulvskog, ritara Sósíaldemókrata, á Karl Gústaf kom fram. FYRST Í FRÍ Martti Ahtisaari, fyrrum forseti Finnlands, var ný- lega settur formaður rannsóknar- nefndar sem á að skoða viðbrögð Finna við flóðbylgjunni í Asíu. Fyrst fer hann þó í tveggja vikna frí. Eftir því sem fram kemur í Helsingin Sanomat vissi ríkis- stjórnin af fyrirhuguðu fríi, þeg- ar hann var skipaður formaður. Tannhirða fólks á aldrinum 19 til 24 ára: Þriðjungur fer sjaldan til tannlæknis TANNHIRÐA Rúmur þriðjungur fólks á aldrinum 19 til 24 ára fer sjaldan til tannlæknis, meðan 60,8 prósent fara árlega, að því er fram kemur í könnun Tann- lækningastofnunar Háskólans. 2,1 prósent segjast hins vegar aldrei heimsækja tannlækninn. Tæp 10 prósent sögðust síð- ast hafa farið til tannlæknis vegna boðunar í skoðun, en rúm 8 prósent fóru vegna verkja, eymsla eða óþæginda. Athygli vekur að sama hlut- fall og segist aldri fara til tann- læknis, 2,1 prósent, segist sjald- an bursta tennurnar. Rúm 58 prósent bursta hins vegar dag- lega og tæp 40 prósent bursta oft á dag, eftir hverja máltíð. Rúmur helmingur aðspurðra var óánægður með tannlækna- þjónustu síðustu 10 ár og var ástæðan helst sú að hún væri of dýr, en 45,3 prósent báru því við. Aðeins 1,5 prósent kvörtuðu yfir því að erfitt væri að fá tíma hjá tannlækni og 0,9 prósent yfir því að of langt væri til tann- læknis eða enginn slíkur á svæðinu. Könnunin var gerð árið 2000 með pósti og er liður í úttektinni Breytingar á tannheilsu Íslend- inga 1985 til 2000. - óká Fangabúðir á Kúbu: Láti af pynt- ingum KÚVEIT, AP Forystumaður kúveisks þrýstihóps um lausn fanga Bandaríkjahers við Guantana- mo-flóa á Kúbu hvatti í gær Bandaríkjamenn til að láta af pyntingum fanga. Ummælin koma í kjölfar þess að 11 Kúveit- ar sem þar voru í haldi voru sendir heim. Einn mannanna, hinn 27 ára gamli Nasser al-Mutairi, hitti yngri bróður sinn stundarkorn á flugvelli í Kúveit en var síðan fluttur í varðhald þar í landi til yfirheyrslu um veru hans og handtöku í Afganistan. Óljóst er hvenær honum verður sleppt. ■ Í STÓLNUM HJÁ TANNLÆKNINUM Spurningalisti Tannlækningastofnunar HÍ var sendur til 800 manna slembiúrtaks fólks á aldrinum 19 til 24 ára. Svarhlutfall í könnuninni var 42,4 prósent. Í ljós kom að 70 pró- sent þátttakenda höfðu farið til tannlæknis fyrir sex ára aldur. FRÉTTAB LAÐ IÐ /VILH ELM ■ NORÐURLÖND Umferðaróhapp: Lán í óláni RÚTUSLYS Litlu munaði að illa færi á laugardag þegar eitt af aftur- dekkjum stórrar vöruflutninga- bifreiðar hafnaði framan á rútu sem kom úr gagnstæðri átt. Óhappið átti sér stað á Fagradal, milli Reyðarfjarðar og Egilsstaða, en í rútunni var knattspyrnulið Fjarðabyggðar á keppnisferðalagi til Akureyrar. Skemmdist rútan töluvert, og reyndist óökufær, en bílstjóra eða farþega sakaði ekki. Bílstjóri vöruflutningabifreiðar- innar varð ekki var við að dekkið færi undan en hringt var í hann og hann látinn vita. Kalla þurfti til rútu frá Egilsstöðum til að sækja knattspyrnuliðið. - kk Þjóðverjar: Hugsa enn í mörkum MUNCHEN, AP Þremur árum eftir að Þjóðverjar skiptu úr þýskum mörk- um í evrur, telur rúmur helmingur þeirra enn eftirsjá í gömlu mynt- inni, eftir því sem fram kemur í rannsókn sem birt var í Þýskalandi. Um 59 prósent Þjóðverja myndu taka þýsku mörkunum aftur fegins hendi. Aðeins fleiri, eða 61 prósent eru óánægðir með nýju myntina. Einnig kom fram að 68 prósent Þjóðverja umreikna enn verð í mörk. ■

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.