Fréttablaðið


Fréttablaðið - 18.01.2005, Qupperneq 30

Fréttablaðið - 18.01.2005, Qupperneq 30
22 18. janúar 2005 ÞRIÐJUDAGUR Við hrósum... ... Geir Sveinssyni fyrir að þora að segja sínar skoðanir á málefnum handboltalandsins umbúðalaust. Það hefur oft viljað brenna við að menn, sem tengjast handboltanum, hafa ekki þorað að segja sitt álit af ótta við að styggja þá sem að liðinu koma. Geir er greinilega ekki einn af þeim! „Ef satt skal segja þá mun ég koma með mína eigin vínflösku þegar ég heimsæki hann næst því vínið sem við drukkum var mjög vont.“ Jose Mourinho var ekki sáttur við vínið sem Alex Ferguson bauð upp á á Old Trafford enda væntanlega af ódýrari gerðinni hjá Skotanum sigursæla.sport@frettabladid.is HVAÐ? HVENÆR? HVAR? 21 22 23 24 25 26 27 Laugardagur SEPTEMBER HANDBOLTI „Ég er ekki ýkja bjart- sýnn fyrir hönd landsliðsins fyrir mótið í Túnis og finnst ólíklegt að við komumst langt á því móti,“ segir Geir Sveinsson, fyrrverandi fyrirliði íslenska landsliðsins í handbolta, um möguleika Íslend- inga á Heimsmeistaramótinu í Túnis sem hefst um helgina. Geir hefur marga fjöruna sop- ið í handboltanum og eru þeir fáir sem þekkja íslenskan handbolta eða handboltamenn betur en hann. Segir Geir að ýmislegt ætti að hjálpa landsliðinu í Túnis en kalt mat á stöðunni sé að á bratt- ann verði að sækja fyrir landann. „Það jákvæða er að þarna erum við að mæta til leiks með nýjan hóp og nýjan þjálfara og það er að mínu viti lítil sem engin pressa á liðinu. Það munar miklu fyrir marga af þessum nýju strák- um að geta spilað án þess að hafa áhyggjur af miklum væntingum. Þannig er nokk sama hvernig fer að landsliðsþjálfarinn getur alltaf gripið til þeirra skýringa að liðið sé nýtt og tíma taki að þjappa slík- um hóp saman.“ Þrátt fyrir þessa annmarka hefur Viggó Sigurðsson landsliðs- þjálfari látið hafa eftir sér að tak- mark íslenska liðsins sé að ná einu af efstu sex sætunum á mótinu. Geir telur líkurnar á því litlar sem engar. „Mín tilfinning er sú að við komumst ekki í hóp sex efstu mið- að við þá andstæðinga sem við erum að takast á við. Til að ná sjötta sætinu þurfum við að vera í einu af þremur efstu sætunum í milliriðli og það aftur þýðir að við þurfum helst að sigra okkar eigin riðil og það er aðeins meira en að segja það.“ Í B riðli eru auk Íslands, Sló- venía, Rússland, Alsír, Tékkland og Kúveit en takist Íslendingum að klára riðilinn í fyrsta eða öðru sæti taka ekki við auðveldari lið í milliriðlum eða Frakkar og Danir. „Sé miðað við hversu sterkar þessar þjóðir eru þá held ég að óhætt sé að slá því föstu að við náum ekki sjötta sæti, hvað þá að vera ofar en það.“ albert@frettabladid.is ENGAR VÆNTINGAR Geir Sveinsson segir enga pressu vera á íslenska landsliðinu í handbolta en það hjálpi þó lítið til þegar á hólminn er komið. Fréttablaðið/E.Ól Verðum ekki með sex efstu í Túnis Geir Sveinsson, sem lengi spilaði stóra rullu fyrir íslenska landsliðið í hand- bolta, er ekki bjartsýnn á gott gengi landsliðsins á HM í Túnis. Hann dregur mjög í efa að Ísland verði meðal sex efstu eins og Viggó Sigurðsson vonar. ■ ■ LEIKIR  19.30 ÍS og Stjarnan mætast í Kennaraháskólanum í 1. deild karla í körfubolta. ■ ■ SJÓNVARP  17.45 Olíssport á Sýn.  19.00 Fótbolti um víða veröld á Sýn.  19.35 Enski bikarinn á Sýn. Bein útsending frá leik Burnley og Liverpool í ensku bikarkeppninni í fótbolta.  22.00 Olíssport á Sýn.  23.15 World Supercross á Sýn. BORGARTÚN 3 • 105 REYKJAVÍK • SÍMI 563 2600 • MYNDSENDIR 562 3219 Reykjavíkurborg Skipulags- og byggingarsvið Álftamýri 1-5 og 7-9 deiliskipulagsbreyting FUNDARBOÐ Til þeirra er málið varðar. Tillaga að breytingu á deiliskipulagi lóðar við Álftamýri 1- 9 var í auglýsingu 22. okt. til 3. des. Auglýsingatíminn var 6 vikur og á þeim tíma gafst íbúum tækifæri á að koma með athugasemdir. Athugasemdabréf bárust frá T.ark, dags. 04.11.04 ásamt uppdrætti og Sigrúnu S. Hafstein f.h. íbúa við Álftamýri 15-27, dags. 03.12.04. Skipulagsfulltrúinn í Reykjavík og Hverfisráð Háaleitis hafa ákveðið að halda sérstakan kynningarfund með íbúum, á fyrirliggjandi deiliskipulagstillögu ásamt athuga- semdum sem bárust. Fundarstaður: Álftamýraskóli. Fundartími: Miðvikudagur 19. janúar 2005 kl. 20:00 Fundarefni: Kynning á breytingu á deiliskipulagi lóða við Álftamýri 1-5, 7-9. 2. deildin í körfubolta: Ljónin tam- in í Hafnar- firði KÖRFUBOLTI 2. deildarlið Ljónanna mátti sætta sig við sitt fyrsta deildartap á tímabilinu þegar þeir steinlágu með 17 stigum., 70-87, fyrir b-liði Haukanna á Ásvöllum um helgina. Ljónin höfðu unnið átta fyrstu deildarleiki sína í sex mánaða sögu félagsins en liðið var einnig mjög nálægt því að slá út úrvalsdeildarlið Skallagríms í 16 liða úrslitum bikarkeppninnar fyrr í vetur. Haukar byrjuðu vet- urinn ekki vel en hafa bætt sig með hverjum leik og unnu þarna sinn fimmta leik í röð. Haukar komust í 25-7 og komust mest í 23 stiga forustu í leiknum en Ljónin náðu muninum niður í fimm stig í seinni hálfleik. Ottó Þórisson skoraði 22 stig fyrir Hauka og þeir Þorsteinn Gunnlaugsson og Kristján Sveinsson skoruðu 17 stig hvor. Ragnar Ragnarsson skoraði mest 14 stig fyrir Ljónin en þjálfari þeirra Jón Júlíus Árna- son var rekinn út úr húsi fyrir mótmæli við dómara leiksins. ■ Stjörnuleikur Körfuknattleikssam- bands Íslands fór fram í Valsheimilinu á laugardaginn var. Þar mættust tvö úr- valslið, erlendir leikmenn annars vegar og íslenskir hins vegar. Leikurinn var í takt við það sem gerist annars staðar í heiminum (t.d. í NBA-boltanum), til- þrifin í fyrirrúmi hvort sem var í formi troðslu eða sendinga í skrautlegri kant- inum auk þess sem að dágóður bunki af þriggja stiga skotum fékk að líta dagsins ljós. Mikið var í boði fyrir aug- að og leikurinn hin besta skemmtun fyrir þá sem hafa gaman af slíku. Stjörnuleikir gefa hins vegar oft mjög falska mynd af dæmigerðum körfuboltaleik. Eftir að hafa horft á fjöl- marga NBA-stjörnuleiki, séð sýningar- lið á borð við Harlem Globetrotters og And-1, þá er þetta eitthvað sem heillar ekki svo glatt lengur. Það mætti alveg velta vöngum yfir því hvort að slíkur körfubolti sé íþróttinni til góðs þegar á heildina er litið. Ekki ber mikið á varn- arleiknum, sem að menn þurfa að öllu jöfnu að leggja mikinn metnað í – ætli þeir sér langt í íþróttinni. Stigaskorið er hátt, mistökin eru mörg, mikið af ótímabærum skotum o.s.frv. Útkoman verður með þeim hætti að tilþrifin verða meiri en góðu hófi gegnir og augað þreytist fljótt. Þegar öllu er á botninn hvolft vill maður helst sjá ag- aðan, kraftmikinn og árangursríkan körfubolta sem er afar sjalfgæft í leikj- um sem þessum. Ætlunin með þessum skrifum er ekki að gera lítið úr Stjörnuleik KKÍ né þeim sem tóku þátt eða stóðu að hon- um, heldur einfaldlega að velta upp þeirri spurningu hvort eitthvað mætti betur fara til að laða fleira fólk að íþróttinni? Er hugsanlegt að leikurinn yrði skemmtilegri ef liðin færu milli- veginn, þ.e.a.s. leyfðu sér að bregða á leik á köflum en spila agað þess á milli? Myndu ekki fleiri vilja sjá baráttu- leik milli þessara liða heldur en ein- hvern skrípaleik? Á hinn bóginn má velta því upp hvort þessi leikur eigi ekki fullan rétt á sér í þeirri mynd sem hann þekkist í dag. Eiga leikmenn kannski fullan rétt á að sprella út í eitt einu sinni á ári milli þess sem að baráttan er í al- gleymingi í deildinni þar sem allir sem einn eru alvaran uppmáluð? Ég hallast frekar að því að gæði íþróttarinnar sjálfrar ættu að vera í fyr- irrúmi og verð því að gefa millivegin- um mitt atkvæði. Hitt er einfaldlega allt of þreytandi til lengdar. smari@frettabladid.is Gefur Stjörnuleikurinn falska mynd af körfunni? SMÁRI JÓSEPSSON ÍÞRÓTTAFRÉTTAMAÐUR UTAN VALLAR STJÖRNULEIKURINN Í KÖRFUBOLTA NIGEL QUASHIE Harry Redknapp, knattspyrnustjóri Southampton hefur mikið álit á Quashie og var fljótur að kaupa kappann frá Portsmouth. Southampton: Redknapp kaupir Quashie FÓTBOLTI Harry Redknapp, nýráð- inn framkvæmdastjóri Sout- hampton í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, festi í gær kaup á hinum 26 ára gamla Nigel Quashie frá Portsmouth. Quashie hittir þar fyrir fyrrverandi þjálfara sinn því Redknapp var sem kunnugt er sagt upp störfum hjá Portsmouth fyrir skömmu. Samningur leik- mannsins er til þriggja og hálfs árs og er andvirði samningsins um 2,1 milljón punda. Koma Skotans unga til Sout- hampton er liður í uppbyggingu Redknapps á liðinu og hefur hann nýverið fengið nokkra leikmenn til liðs við félagið í þeirri mein- ingu að bjarga því frá falli úr úr- valsdeildinni. „Ég er mjög ánægður með að vera kominn til Southampton og ég er viss um að liðið nær að halda sér uppi þótt það verði ekki auð- velt. Ég hlakka líka mikið til að fara að vinna með Redknapp aft- ur,“ sagði Quashie. ■

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.