Fréttablaðið - 18.01.2005, Síða 32

Fréttablaðið - 18.01.2005, Síða 32
18. janúar 2005 ÞRIÐJUDAGUR Það þótti heims- frétt þegar leik- arahjónin Brad Pitt og Jennifer Aniston til- kynntu það á dögunum að þau væru skilin að borði og sæng. 21. öldin er varla byrjuð en þó mætti halda að skilnaður aldarinn- ar væri þegar orðinn að veruleika en þegar haft er í huga að skilnað- ir hjóna eru daglegt brauð og í raun eina heilbrigða lausnin á þeirri hugsunarvillu sem hjóna- bönd eru er taugaveiklunin í kringum þennan tiltekna skilnað auðvitað galin. Rót vandans er sú að við viljum elska bæði Pitt og Aniston en vest- ræn tvíhyggja krefst þess í svona tilfellum að annar aðilinn sé góður og hinn vondur. Við viljum hins vegar ekki trúa neinu illu upp á þetta sómafólk og höfum því sam- einast um að kenna kynþokka- fyllstu konu allra tíma, Angelinu Jolie, um ósköpin. Angelina hefur yfirbragð tál- kvendisins, hjónadjöfulsins sem í svart/hvítum reyfurum getur fengið menn til að fremja morð og önnur heimskupör með loðnum loforðum um kynlíf á heimsmæli- kvarða. Daðurmáttur Angelinu er orðinn slíkur að nú mega ekki spyrjast út brestir í stjörnuhjóna- böndum í Hollywood án þess að reynt sé að blanda henni í málið og gera hana seka um villuráf frægra eiginmanna. Þetta er auðvitað í meira lagi ósanngjarnt og til þess eins fallið að firra karlana ábyrgð gerða sinna. Þetta eru svo sem engin ný vísindi og voru markaðs- sett snilldarlega í karlremburitinu Biblíunni þar sem öll ógæfa mann- kyns er skrifuð á konuna eftir að Eva vélar einfeldninginn Adam til að bíta í eplið. Mergurinn málsins er sá að Adam hefði getað afþakk- að og ef Pitt er svo blindaður af fegurð Angelinu að hann getur ekki haldið trú við eiginkonu sína þá er það vandamál þeirra hjóna. Bitinn stendur þá í Pitt en ekki Angelinu sem er bara Angelina og getur ekkert gert að því. ■ STUÐ MILLI STRÍÐA ÞÓRARINN ÞÓRARINSSON VER HEIÐUR ANGELINU JOLIE. Koss köngulóarkonunnar M YN D : H EL G I S IG U RÐ SS O N flugfelag.is ÍSAFJARÐAR 5.700 kr. Flug aðra leiðina. Bara á www.flugfelag.is Takmarkað sætaframboð! Milli Reykjavíkur og AKUREYRAR 5.700kr. Flug aðra leiðina. Bara á www.flugfelag.is Takmarkað sætaframboð! Milli Reykjavíkur og flugfelag.is 19. - 25. janúar EGILSSTAÐA 6.300 Flug aðra leiðina. Bara á www.flugfelag.is Takmarkað sætaframboð! Milli Reykjavíkur og kr. ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N E H F. /S IA .I S F LU 2 70 91 01 /2 00 5 Börn, 2ja–12 ára, í fylgd með fullorðnum, greiða 1.940 kr. aðra leiðina. Eftir Patrick McDonnell ■ PONDUS ■ GELGJAN ■ KJÖLTURAKKAR ■ BARNALÁN ■ PÚ OG PA Eftir SÖB Eftir Kirkman/Scott Eftir Jerry Scott & Jim Borgman Eftir Frode Överli Ég sé ljósið...ég svíf út úr líkamanum... Mamma... pabbi... ..viljið þið gera mér greiða? Þetta er svo sem ekkert merkilegt... ..en þið ætlið að lána mér tuttugu þúsund kall svo ég og Stanislaw getum keypt okkur gamalt rúgbrauð og gert gangfært, þannig að við getum ferðast um Evrópu og unnið hér og þar og búið á farfugla- heimilum, þegar við erum orðnir átján. Jæja! Hvað sögðu þau? Ææi.. Farið þið inn á völlinn og spiliði smá stund og svo megið þið fá smá snakk! Þjálfun er eins og foreldra- hlutverkið – bara með flautu! Varstu að tala við okkur? Halló! Hlustið á mig! Látið ekki sem þið sjáið mig ekki!! Af hverju er eng- inn að hlusta á mig! Fríið er búið! Ég held að þau séu að ræða málin. Þetta eru enda- lokin....þetta er kveðjustundin... Mér ...mér er svo kalt, mamma.... Inflúensa! Láttu mig þekkja það!

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.