Fréttablaðið - 18.01.2005, Side 40

Fréttablaðið - 18.01.2005, Side 40
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is Dreifing: 585 8330 Auglýsinga- og markaðsdeild: 550 5010 – fax 550 2727, auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000 Með Fréttablaðinu alla fimmtudaga Vi› segjum fréttir Að sjúga upp í nefið Ísvefnrofunum dreymir úthverfa-bússu að John Wayne gangi um göt- una með Bykomálningafötu í hönd. Hann málar vaxhvítan kross á úti- hurðir og merkir flensubælin um leið og hann syngur Fram í heiðanna ró. Hún furðar sig á því hve góður hann er í íslensku, en rumskar svo þegar spúsi ýtir við henni. Viltu sækja vatn fyrir mig? spyr hann brostinni röddu. Ertu galinn, muldrar hún. Ég er með 39,5. Iss, það er ekkert, drafar lífs- förunauturinn. Ég er með 40,1. Topp- aðu það. Sérfræðingar tilkynna í fjöl- miðlum að flensan hafi náð hámarki. Hvaðan kemur hún? Hún kemur frá útlöndum eins og lúsin. Hún mætti með árlegu flugi, FI 112, frá Inflúens- íu. Næst fær hún ekki landvistarleyfi og verður rekin til baka eins og skandinavískur vítisengill. Í MÓKINU gónum við á Íslandsvini sem svara hinni margslungnu spurn- ingu; How do you like Iceland? Allt í einu man maður að vönduð innlend dagskrárgerð er virkilega til og birt- ist í sjónvarpi allra landsmanna. Takk fyrir og meira svona. Við sjúgum upp í nefið og gónum áfram. Það er þó álíka ódannað í útlandinu að sjúga upp í nefið og að reka hraustlega við. En hvað er annað hægt? Þegar við fáum ekki flensuna að utan erum við kvefuð í kulda og trekki hér á norður- hjara. TRYGGLYNDIR VINIR íslenskra lopahausa segja mannskapnum að slaka á og reyna ekki að elta út- dauða stóriðjudrauma fortíðar. Það er einkenni margra sem erfa auðæfi að sólunda þeim í sukk og spilafíkn. Náttúruperlurnar liggja á spilaborð- inu í litlum strigapoka. Við eigum nóg af þessu, segir mörlandinn og sýgur upp í nefið. Hér gildir að hreystimenni moki stærstu skurðina og sprengi heilu fjöllin í tætlur. Flintstónarnir eru sprelllifandi á landinu bláa. Við sjúgum duglega upp í nefið og herðum moksturinn. HÉR ÞARF LÍKA að metta marga, sér í lagi sjö sveltandi ráðherrar frá fyrri tíð, sem ku þurfa að þræla myrkranna á milli. Sautján millur á ári úr eftirlaunasjóði eru ekki upp í nös á ketti. Líkt og einstæðar mæð- ur í tveimur störfum þurfa þessir gömlu ráðherrar að vinna með eftir- launalúsinni – svo sorglegt sem það nú er, og það eru harðbrjósta Frón- verjar sem ekki sjúga upp í nefið yfir því. ■ BAKÞANKAR KRISTÍNAR HELGU GUNNARSDÓTTUR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.