Fréttablaðið - 04.02.2005, Blaðsíða 4
SKOÐANAKÖNNUN Framsóknarmenn
myndu missa sjö þingmenn, yrði
kosið nú, samkvæmt nýrri skoð-
anakönnun Fréttablaðsins. Fylgi
framsóknarmanna hefur ekki
mælst þetta lítið í skoðanakönnun
Fréttablaðsins síðan í júní og júlí
á síðasta ári. Á öðrum tímum hef-
ur flokkurinn alltaf mælst með
fylgi yfir tíu prósentum.
Mikill munur er á fylgi flokks-
ins á landsbyggðinni og á höfuð-
borgarsvæðinu. Um 12,8 prósent
fólks á landsbyggðinni segjast
styðja Framsóknarflokkinn en
einungis 4,8 prósent á höfuðborg-
arsvæðinu. Þetta er mun meiri
munur en mældist í könnun blaðs-
ins í nóvember, þegar 14,8 prósent
fólks á landsbyggðinni sögðust
styðja Framsóknarflokkinn en
10,4 prósent fólks á höfuðborgar-
svæðinu.
Sjálfstæðisflokkurinn eykur
fylgi sitt nokkuð síðan í nóvember
á síðasta ári þegar fylgið mældist
með rétt rúm 30 prósent. Nú
segjast 35 prósent kjósenda
myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn
yrði boðað til kosninga í dag.
Flokkurinn hefur mun meiri
stuðning á höfuðborgarsvæðinu
en á landsbyggðinni og segjast
38,9 prósent íbúa á höfuðborgar-
svæðinu styðja Sjálfstæðisflokk-
inn en 29,1 prósent kjósenda á
landsbyggðinni. Samfylkingin
mælist aftur sá flokkur sem mest
hefur fylgið, en rúm 35,2 prósent
segjast myndu kjósa Samfylking-
una. Munurinn á milli fylgi Sjálf-
stæðisflokks og Samfylkingar er
þó óverulegur og ekki tölfræði-
lega marktækur. Samkvæmt
þessu myndu báðir flokkar fá 23
þingmenn. Fylgi Vinstri-grænna
hefur aðeins dalað frá síðustu
könnun blaðsins í nóvember, eða
úr 18,2 prósentum í 14,4 prósent.
Fylgi flokksins mælist þó meira
en í síðustu kosningum og myndi
flokkurinn bæta við sig fjórum
þingmönnum yrði kosið nú. Fylgi
Frjálslynda flokksins mælist nú
6,7 prósent, sem er aðeins minna
en í flokkurinn hlaut í kosningum,
en er um tvöfalt fylgi flokksins í
síðustu könnun blaðsins.
Hringt var í 800 manns 1. febr-
úar, sem skiptust jafnt milli kynja
og hlutfallslega eftir kjördæmum.
Spurt var: Hvaða lista myndir þú
kjósa yrði gengið til þingkosninga
nú? 56,1 prósent tók afstöðu til
spurningarinnar.
svanborg@frettabladid.is
KAUP
Gengisvísitala krónunnar
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
USD
GBP
EUR
DKK
NOK
SEK
JPY
XDR
61,76 62,06
116,71 117,27
80,46 80,92
10,81 10,87
9,73 9,79
8,88 8,93
0,59 0,60
93,84 94,40
GENGI GJALDMIÐLA 03.02.2005
GENGIÐ
Heimild: Seðlabanki Íslands
SALA
110,71 +0,41%
4 4. febrúar 2005 FÖSTUDAGUR
Geir H. Haarde fjármálaráðherra:
Skattsvik verður að uppræta
ALÞINGI „Það er eðlilegt að einstak-
lingar og fyrirtæki nýti sér þær
leiðir sem löglegar eru til að lág-
marka skattgreiðslur sínar, en
skattsvik má ekki umbera. Skatt-
svik misbjóða réttlætiskennd fólks
og þau verður að uppræta.“ Þetta
sagði Geir H. Haarde fjármálaráð-
herra á Alþingi í gær er hann ræddi
um skýrslu starfshóps um umfang
skattsvika á Íslandi. Í skýrslunni,
sem birt var í desember, kom fram
að skattsvik á Íslandi nema allt að
35 milljörðum króna.
Jóhanna Sigurðardóttir, þing-
maður Samfylkingarinnar, benti á
að upphæðin væri stærri en sú
sem fer í að reka allt skólakerfið á
Íslandi, grunnskóla, framhalds-
skóla og háskóla.
Hún gagnrýndi fjármálaráð-
herra fyrir að koma ekki með
skýr svör við því hvaða aðgerða
grípa ætti til svo sporna mætti við
skattsvikum.
Geir sagði að í skýrslunni væru
margar góðar tillögur sem myndu
nýtast við þróun og úrbætur á
skattkerfinu. „Munu þær án efa
nýtast við þá
fjölbreytilegu
vinnu sem
fram fer í fjár-
málaráðuneyt-
inu á sviði
skattamála, við
tillögugerð í
lagasetningu, þróun skattfram-
kvæmdar og alþjóðastarf á sviði
skattamála,“ sagði hann. - sda
Framsókn myndi
missa sjö þingmenn
Fylgi Framsóknarflokksins dalar verulega samkvæmt nýrri skoðanakönnun
Fréttablaðsins. Fylgi Sjálfstæðisflokksins eykst frá síðustu könnun. Sjálfstæðis-
flokkurinn og Samfylkingin eru nú svo gott sem jafnstórir flokkar.
Vilja ekki slökkva:
Dregið fyrir
stjörnurnar
BORGARMÁL Borgaryfirvöld hafa
hafnað hugmynd menningar- og
ferðamálasviðs borgarinnar um
að slökkva tímabundið á götulýs-
ingu í Reykjavík.
Fjallað var um málið í borgar-
ráði í gær. Hugmynd menningar-
og ferðamálasviðs snerist um að
krydda mannlífið í höfuðborginni
og opna borgarbúum sýn til
stjörnuhiminsins með því að
slökkva á götulýsingu. Í bókun
borgarráðs er þakkað fyrir hug-
myndina en sagt að götuljós séu
öryggistæki og sjái borgarráð sér
ekki fært að svo stöddu að hrinda
hugmyndinni í framkvæmd. -th
Sjálfstæðisflokkurinn:
Getum gert
betur
SKOÐANAKÖNNUN „Ég er þeirrar
skoðunar að við sjálfstæðismenn
getum gert okkur vonir um betri
niðurstöðu en þessi skoðanakönn-
un gefur til kynna,“ segir Birgir
Ármannsson, þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins. „Stefna og verk
stjórnarinnar gefa fullt tilefni til
þess. Þegar fólk sér áhrif skatta-
lagabreytinganna mun fylgi
flokksins aukast. Þá mun fólk
finna það á eigin buddu að Sjálf-
stæðisflokkurinn er að hrinda í
framkvæmd þeim loforðum sem
gefin voru fyrir kosningar. Þessi
skoðanakönnun sýnir Sjálfstæðis-
flokkinn svolítið yfir kjörfylgi í
síðustu kosningum, en ég er á því
að flokkurinn eigi að geta og muni
gera betur þegar gengið verður
næst að kjörborðinu.“ - ss
Framsóknarflokkur:
Flokkurinn
réttir úr sér
SKOÐANAKÖNNUN „Flokkurinn hef-
ur legið nokkuð lágt í skoðana-
könnunum að undanförnu,“ segir
Magnús Stefánsson, varaformað-
ur þingflokks Framsóknarflokks-
ins. „Ég hef svo sem engar skýr-
ingar á því. Það er staðreynd að
meðan flokkurinn er í ríkisstjórn
er tiltölulega gott gengi á flestum
hlutum í þjóðfélaginu. Ég er sann-
færður um að flokkurinn muni
rétta úr sér. Það getur verið að
umfjöllunin að undanförnu, meðal
annars í Fréttablaðinu um innri
mál flokksins, hafi eitthvað að
segja, en ég get svo sem ekki
dæmt um það í sjálfu sér. Því er
ekki að neita að mér finnst fjöl-
miðlar hafa dregið upp einhverja
mynd um að það sé eitthvað að í
flokknum og ef almenningur trúir
því getur það haft einhver áhrif.“
-ss
Samfylkingin:
Ákall á
jafnaðarstjórn
SKOÐANAKÖNNUN „Þessi könnun
staðfestir góða stöðu flokksins, eins
og aðrar kannanir að undanförnu
hafa sýnt,“ segir Kristján L. Möller,
varaformaður þingflokks Samfylk-
ingarinnar. „Kjósendur meta störf
okkar og málflutning og málefna-
lega stjórnarandstöðu. Þetta sýnir
að hægri stjórn Halldórs og Davíðs
er þreytt og rúin trausti og fólk er
dauðþreytt á henni. Þetta er ákall
þjóðarinnar á stjórn jafnaðar-
manna.“ - ss
Vinstri-grænir:
Auka fylgið
SKOÐANAKÖNNUN „Það sem ég
staldra fyrst við er sú staðreynd
að samkvæmt þessari könnun
gæti stjórnarandstaðan myndað
ríkisstjórn með bærilegum meiri-
hluta ef þetta væru úrslit í kosn-
ingum,“ segir Ögmundur Jónas-
son, formaður þingflokks Vinstri-
grænna. „VG eykur samkvæmt
þessari könnun fylgi sitt frá síð-
ustu kosningum. En á hinn bóginn
dölum við heldur sé litið til síð-
ustu skoðanakönnunar Frétta-
blaðsins. En við látum það ekki slá
okkur út af laginu.“ ■
FYLGI STJÓRN-
MÁLAFLOKKANNA
Taflan sýnir þróun
fylgis stjórnmála-
flokkanna frá
kosningum 2003
til dagsins í dag
samkvæmt
könnunum
Fréttablaðsins.
B D F S U
12
5
23
22
20
54
4
23
9
FJÖLDI ÞINGMANNA
Í síðustu kosningum og samkvæmt
könnun 1. febrúar 2005.
Skv. könnun 01.02.2005
Eftir kosningar 2003
GEIR H. HAARDE Á
ALÞINGI Í GÆR:
„Skattsvik misbjóða
réttlætiskennd fólks
og þau verður að
uppræta.“
ÁÆTLAÐAR TAPAÐAR SKATTTEKJUR RÍKIS OG SVEITARFÉ-
LAGA 2003 VEGNA SKATTSVIKA Í MILLJÖRÐUM KRÓNA:
Svört atvinnustarfsemi og aðrar vanframtaldar tekjur 18-24
Bókhalds- og framtalssvik 4,5-6
Skattsvik í gegnum erlend samskipti 3-4,5
Samtals 25,5-34,5
Guðjón A. Kristjánsson:
Ánægjuleg
tíðindi
SKOÐANAKÖNNUN „Við erum mjög
ánægð með það þegar við mælumst
vel í skoðanakönnunum og höfum
orðið vör við stuðning fólks við
okkar málefni,“ segir Guðjón Arn-
ar Kristjánsson, formaður Frjáls-
lynda flokksins, um niðurstöður
könnunarinnar. Flokkurinn bætir
lítillega við sig frá síðustu könnun
en er rétt undir kjörfylgi.“ - bs
04-05 3.2.2005 22.03 Page 2