Fréttablaðið - 04.02.2005, Qupperneq 6
Skattsvik:
5 milljóna
króna sekt
DÓMSMÁL Fimmtugur maður hefur
verið dæmdur í fjögurra mánaða
fangelsi og til að greiða 5,1 millj-
ón króna í sekt vegna skattsvika
fyrirtækis sem hann var fram-
kvæmdastjóri hjá. Fyrirtækið hét
Pandíón og rak skemmtistaðinn
Club Vegas.
Hæstiréttur staðfesti þar með
dóm Héraðsdóms Reykjavíkur í
málinu. Fyrirtækið sem maðurinn
var framkvæmdastjóri hjá stóð
hvorki skil á virðisaukaskatti né
opinberum gjöldum. Maðurinn hélt
því fram fyrir dómi að hann hefði
ekki verið framkvæmdastjóri
fyrirtækisins en dómurinn taldi
sannað að hann hefði verið það. Í
sama máli hafði héraðsdómur áður
dæmt annan mann í fjögurra mán-
aða fangelsi og til að greiða sjö
milljóna króna sekt. - th
6 4. febrúar 2005 FÖSTUDAGUR
Nær þrjátíu manns myrtir í fyrrinótt í nýrri árásarhrinu:
Listi al-Sistanis
með yfirburði
ÍRAK, AP Sameinaða íraska banda-
lagið, kosningabandalagið sem
sjíaklerkurinn Ali al-Sistani kom
saman, er langstærsta hreyfingin
á íraska stjórnlagaþinginu sam-
kvæmt fyrstu tölum sem birtast
úr kosningunum um síðustu helgi.
Þó er rétt að taka fram að þar er
aðeins um hluta atkvæða að ræða,
úr sex af átján héruðum landsins.
Sameinaða íraska bandalagið
er þrefalt stærra en næststærsti
listinn, Íraski listinn undir for-
ystu Iyad Allawi. Bandalagið
fékk frá 25 prósentum og upp í
60 prósent í ríkjunum sex og
naut alls staðar mest fylgis. Þar
er þó ekki um endanlegar tölur
að ræða.
Vígamenn hafa hafið árásir af
auknum krafti á ný eftir að lítið
fór fyrir þeim fyrstu dagana eftir
kosningar. Aðfaranótt fimmtu-
dags létust 28 manns í nokkrum
árásum. Tólf þeirra sem létust
voru nýliðar í íraska hernum sem
voru skotnir til bana þar sem þeir
ferðuðust með rútu suður af
Kirkuk. Fimm lögreglumenn og
íraskur herforingi létust þegar
vígamenn gerðu bílalest fyrirsát
og fjórir íraskir starfsmenn
Bandaríkjahers létust í tveimur
árásum. ■
Fjórmenningarnir í Landssímamálinu:
Ákærðir fyrir stórfelld skattsvik
DÓMSMÁL Fjórmenningarnir sem
dæmdir voru fyrir þátt sinn í
Landssímamálinu á síðasta ári
hafa verið ákærðir fyrir umfangs-
mikil brot á skattalögum. Málið
sem tengist fjölbreyttum fyrir-
tækjarekstri félaganna var þing-
fest í Héraðsdómi Reykjavíkur í
gær.
Kristján Ra. Kristjánsson, einn
fjórmenninganna, neitaði í gær
nánast öllum sakargiftum í ákæru
ríkislögreglustjóra en hún er sam-
tvinnuð ákæru á hendur Árna Þór
Vigfússyni, Sveinbirni Kristjáns-
syni og Ragnari Orra Benedikts-
syni, sem allir hlutu dóm í fjár-
dráttarmáli Landssímans. Félag-
arnir eru ákærðir fyrir að skila
ekki sköttum af rekstri Kaffi Le
ehf. að upphæð níu milljónir
króna. Kristján er auk þess
ákærður ásamt fyrrverandi fram-
kvæmdastjóra Japis fyrir að
standa ekki skil á rúmlega 22,5
milljónum króna. Kristján játar
að hafa ekki staðið skil á 19 millj-
ónum af rekstri Lífsstíls og Planet
Reykjavík ehf. Skuldin hafi þó
nánast verið greidd að fullu.
Ákæra á Árna Þór að upphæð
fimm milljónir bíður þar til lög-
fræðingur hans kemur til lands-
ins. Sveinbjörn játar brot sem á
hann eru borin en nefnir að fjár-
hæðin hafi verið greidd.
Heildarupphæð ákærunnar er
ríflega 47,5 milljónir króna. Öll
fyrirtækin sem um ræðir eru
gjaldþrota. - gag
Boðsferðir lækna á
fimmta hundrað
Íslenskir læknar fóru í 469 utanlandsferðir í boði lyfjafyrirtækja í fyrra.
Þingmaður segir reglur skorta um slíkar boðsferðir. Forstjóri Landspítala
segir úrbætur hafa verið gerðar en ástæða sé til að vera á varðbergi.
HEILBRIGÐISMÁL „Það er ótrúlegt að
opinberar stofnanir hafi ekki
fylgst með því hversu mikið
starfsmenn þeirra ferðast á
kostnað hagsmunaaðila,“ segir
Ásta R. Jóhannes-
dóttir alþingis-
maður um svar
hei lbrigðisráð-
herra við fyrir-
spurn hennar um
utanlandsferðir
lækna á kostnað
lyfjafyrirtækja.
Í svarinu kem-
ur fram að íslensk-
ir læknar fóru í
469 utanlandsferð-
ir sem lyfjafyrir-
tæki greiddu fyrir.
Þessar tölur byggja á könnun sem
Lyfjastofnun gerði á meðal lyfja-
fyrirtækja, en í svari heilbrigðis-
ráðherra segir að fæstar heilbrigð-
isstofnanir hefðu áreiðanlegar
upplýsingar um utanlandsferðir
lækna sem stofnunin hefði ekki
kostað. Aðeins fengust upplýsingar
um fjölda ferða, ekki hversu marg-
ir læknar fóru í þær. Þá er tekið
fram að þetta séu lágmarkstölur
þar sem könnunin var gerð fyrir
árslok og eitt lyfjafyrirtæki svar-
aði ekki fyrirspurninni.
Ásta segir það umhugsunar-
vert hversu mikið sé um að lækn-
ar ferðist á vegum fyrirtækja.
„Það fer að meðaltali einn, ef ekki
tveir, á dag í slíkar ferðir á hverju
ári og maður hlýtur að velta því
fyrir sér hvort það sé eðlilegt.
„Það verður að viðurkennast að
þar til nýlega höfum við ekki haft
áreiðanlega skráningu á þessu,“
segir Jóhannes M. Gunnarsson,
forstjóri Landspítala – háskóla-
sjúkrahúss. Læknar Landspítal-
ans fóru í 289 ferðir í boði lyfja-
fyrirtækja í fyrra, en rúmlega
fimm hundruð læknar starfa á
spítalanum. Jóhann bendir á að í
ágúst í fyrra hafi Landspítalinn
sett reglur um samskipti lækna og
söluaðila og fleiri reglur séu í far-
vatninu. „Það er viðhorf sumra
lækna að það komi vinnuveitand-
anum ekki við hvað þeir geri í sín-
um frítíma, en okkar skoðun er að
það sé ástæða til að vera á varð-
bergi gagnvart viðskiptamönnum
spítalans. Í smíðum eru reglur um
risnu starfsmanna spítalans, gjaf-
ir, kostun ferðalaga og ráðstefnu-
gjalda.“
Jóhannes segir að sér sé ekki
kunnugt um að formlegar reglur
um þessi mál séu í gildi á öðrum
heilbrigðisstofnunum en minnir á
samkomulag Læknafélags Íslands
og lyfjafyrirtækja sem sé í svip-
uðum anda og reglur Landspítal-
ans um samskipti lækna og sölu-
aðila.
bergsteinn@frettabladid.is
,,Það verð-
ur að viður-
kennast að
þar til ný-
lega höfum
við ekki
haft áreið-
anlega
skráningu á
þessu.
PÁFI Á BATAVEGI Heilsa Jóhannes-
ar Páls II páfa fer batnandi og
hann hefur ekki átt í vandræðum
með andardrátt eftir að hafa verið
lagður inn á sjúkrahús í Róm að
sögn Vatíkansins. Páfinn verður
nokkra daga enn á sjúkrahúsinu.
LEITA LANGT YFIR SKAMMT Banda-
rískir hermenn á herstöðinni í
Incrilik í Tyrklandi verða að fara
langar leiðir ætli þeir sér að
skemmta sér, matast eða versla
utan herstöðvarinnar. Yfirmenn
þeirra bönnuðu þeim að skipta við
skemmtistaði, veitingahús og búðir
í nágrenni herstöðvarinnar eftir að
sprengja fannst í nágrenninu.
MANNSKÆÐUR ELDSVOÐI Þrír lét-
ust þegar eldur braust út á fjórt-
ándu og fimmtándu hæð íbúða-
byggingar í Stevenage, norður af
London höfuðborg Bretlands. Einn
íbúi og tveir slökkviliðsmenn lét-
ust. Sjö til viðbótar voru lagðir inn
á sjúkrahús.
■ EVRÓPA
Fylgdist þú með Íslensku tón-
listarverðlaununum?
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Telur þú að skipt verði um formann
í Samfylkingunni á þessu ári?
Niðurstöður gærdagsins á visir.is
60,75%
39,25%
Nei
Já
Farðu inn á fréttahluta visir.is
og segðu þína skoðun
KJÖRKASSINN
Höfðabakka 1 - sími 587 50 70
Stór og fallegur
humar
Risarækjurnar
eru komnar aftur!!
Opið laugardaga 10-14:30
BÚIÐ AÐ SÁRUM STÚLKU
Þessi stúlka var eitt sex barna sem særðust lítillega í sprengjuárás á bílalest Bandaríkja-
hers. Bandarískur hermaður bjó um sár hennar.
VIÐ UPPHAF ÞINGFESTINGAR Í GÆR
Vegna fjölda sakborninga í ákæru ríkislögreglustjóra og hóps áhorfenda sem stóðu í
réttarsalnum varð að færa þingfestingu málsins í stærri dómssal.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
AL
LI
UTANLANDSFERÐIR LÆKNA Á
KOSTNAÐ LYFJAFYRIRTÆKJA
ÁRIÐ 2004:
Heildarfjöldi ferða: 469
Læknar frá LSH: 289
Læknar frá öðrum sjúkrahúsum: 51
Læknar á heilsugæslustöðvum: 85
Sérfræðilæknar á öðrum stöðum: 44
ÁSTA R. JÓHANN-
ESDÓTTIR
JÓHANNES M.
GUNNARSSON
Í BOÐI LYFSALANS
Forstjóri Landspitalans segir að því miður hafi spítalinn ekki haldið utan
um upplýsingar um boðsferðir til lækna þar til nýlega en úrbætur hafa
verið gerðar. Ásta R. Jóhannesdóttir segir Íslendinga vera aftarlega á
merinni því hvarvetna á Vesturlöndum sé búið að setja viðeigandi reglur.
06-07 3.2.2005 21:23 Page 2