Fréttablaðið - 04.02.2005, Qupperneq 10
10 4. febrúar 2005 FÖSTUDAGUR
ALÞINGI „Við leggjum áherslu á að
það sé engin leynd yfir þessum
málum því það ýtir bara undir
tortryggni almennings gagnvart
stjórnsýslunni,“ segir Jóhanna
Sigurðardóttir, þingmaður Sam-
fylkingarinnar, sem ásamt öðr-
um þingmönnum úr öllum flokk-
um stendur að frumvarpi sem
kveður á um að það verði gert
opinbert hverjir sitja í nefndum,
ráðum og stjórnum á vegum rík-
isins.
Jóhanna segir að hún hafi
spurst fyrir um nefndarlaun hjá
hinu opinbera og komist að því
að um háar upphæðir væri að
ræða. Seinna hafi fjölmiðlar ósk-
að eftir upplýsingum yfir hverjir
hafa setið í nefndum á vegum
hins opinbera en verið synjað á
þeim forsendum að það mætti
ekki upplýsa fjárhagsleg málefni
einstaklinga. Þetta pukur sé ekki
sæmandi heilbrigðri stjórnsýslu:
„Það er réttur almennings að vita
hversu miklu fé er varið til
nefndarstarfa á vegum hins op-
inbera og ég held að hann gangi
framar hagsmunum þeirra sem
sitja nefndunum,“ segir Jóhanna.
Jóhanna segir að það sé breið-
ur stuðningur um þetta mál sem
geri það líklegra en ella til að
verða samþykkt.
- bs
ÚR SLÁTURHÚSI
Afskurður af kjöti, sem flutt er á Japansmarkað og aðra staði, er fluttur til Rússlands.
LANDBÚNAÐUR Útflutningur ís-
lensks hrossakjöts til Rússlands
hefur aukist síðan fyrst var farið
að flytja kjöt þangað fyrir um
fjórum árum að sögn Erlends Á.
Garðarssonar, framkvæmda-
stjóra Kjötframleiðenda.
„Molar eru líka brauð,“ segir
Erlendur. „Við erum að flytja út
allan afskurðinn af því sem við
vinnum fyrir til dæmis Japans-
markað. Þetta eru til dæmis síð-
urnar sem eru ósöluhæfar víðast
hvar. Í staðinn fyrir að henda
þessu og borga tíu krónur á kílóið
fyrir það flytjum við þetta út og
fáum 40 krónur fyrir kílóið.“
Erlendur segir að kjötið sé flutt
til Pétursborgar með flutninga-
skipi. Nú sé svo komið að um átta-
tíu tonn séu flutt út á hverju ári.
„Rússarnir kunna að meta
þessa vöru og eftirspurnin hefur
aukist. Megnið af þessu kjöti fer í
vinnslu þar sem unnar eru alls
konar pylsur og bjúgur úr því.
Hrossakjöt þykir mjög gott í slíka
vinnslu og er meðal annars notað í
ýmiss konar pylsur hérlendis.“
- th
Græðarar vilja fá starfsfrið
Græðarar vilja starfsfrið, segir formaður Bandalags íslenskra græðara. Stéttin er orðin fjölmenn hér á
landi og sífellt fleiri leita svokallaðra „óhefðbundinna“ lækninga. Frumvarp liggur fyrir Alþingi um
starfsemi græðara.
ATVINNUMÁL „Við viljum fyrst og
fremst fá frið til að starfa,“ sagði
Sigrún Sól Sólmundardóttir for-
maður Bandalags
íslenskra græð-
ara. Hún sagði að
græðarar vildu fá
v i ð u r k e n n i n g u
sem starfsstétt og
gætu fengið þau
aðföng og annað
sem þeir þyrftu
til síns starfs. Það
væri alltaf verið
að stöðva inn-
flutning á þeim,
meðal annars af hálfu Lyfja-
eftirlitsins.
Talsverð hreyfing
hefur verið á málefn-
um græðara, nú
síðast þegar
Jón Krist-
jánsson heilbrigðisráðherra lagði
fram á Alþingi frumvarp um
starfsemi þeirra. Markmið þess
er að stuðla að öryggi þeirra sem
leita eftir heilsutengdri þjónustu
græðara og verði í þeim tilgangi
komið á fót frjálsu skráningar-
kerfi fyrir græðara í umsjá
Bandalags íslenskra græðara.
Sjúkratryggingar muni ekki koma
til með að greiða eða taka þátt í
kostnaði einstaklinga sem leita
eftir heilsutengdri þjónustu
græðara, að því er fram kemur í
frumvarpinu. Það gerir ráð fyrir
lítilsháttar eftirliti með umsýslu
af hálfu landlæknis og heilbrigð-
isyfirvalda en kostnaður ríkis-
sjóðs vegna þeirrar vinnu er
óverulegur. Málið er nú statt í
heilbrigðis- og tryggingamála-
nefnd.
„Þarna er verið
að búa til lagara-
mma um þessar
„óhefðbundnu“
greinar en fram
til þessa hefur
hann ekki verið
til,“ sagði Sigrún
Sól. „Við fáum þó
ekki löggildingu,
heldur annars
konar viðurkenn-
ingu stjórnvalda,
að því er okkur
hefur verið tjáð.
Svo á eftir að
koma í ljós hvað
það þýðir. Við vitum að heilbrigð-
is- og tryggingamálaráðuneytið
verður okkar ráðuneyti. En nú
erum við í biðstöðu meðan málið
er í þingnefnd.
Sigrún Sól sagði að græðarar
vildu fyrst og fremst fá viður-
kenningu á því að þeir ynnu for-
varnarstarf. Óskastaðan væri að
þeir fengju aðstöðu inni á Reykja-
lundi, á heilsustofnuninni í Hvera-
gerði og á öðrum uppbyggingar-
stöðum, svo og á vinnustöðum.
„Við viljum starfsleyfi í raun-
inni,“ sagði Sigrún Sól og bætti
við að græðarar væru orðin fjöl-
menn stétt. Í bandalaginu væru
átta aðildarfélög með um 500 fé-
lagsmönnum, sem hefðu 2–5 ára
nám á bak við sitt starf. Þeir vildu
fyrst og fremst viðurkenningu á
því.
jss@frettabladid.is
Allsherjarnefnd:
Umsókn
frestað
ALÞINGI Umsókn Bobby Fischer
skákmeistara um íslenskan ríkis-
borgararétt var frestað í allsherj-
arnefnd Alþingis í gær.
Bjarni Benediktsson, formaður
nefndarinnar, segir að ekki liggi
fyrir með skýrum hætti að for-
sendur umsóknarinnar standist og
Fischer losni úr prísundinni í
Japan þó að hann fái íslenskan
ríkisborgararétt. Því hafi verið
ákveðið að kanna hvort hægt sé að
fá frekari upplýsingar svo heildar-
yfirsýn fáist yfir málið.
Fundur verður í allsherjarnefnd í
næstu viku og býst Bjarni við að þá
verði aftur fjallað um málið. - ghs
Tillaga þingsmanns:
Læknar fái
að auglýsa
HEILBRIGÐISMÁL Auglýsingabann í
heilbrigðisþjónustu verði afnumið
og læknar, tannlæknar og aðrar
heilbrigðisstéttir fái að auglýsa
þjónustu sína, segir í tillögu sem
lögð hefur verið fram á Alþingi.
Flutningsmaður hennar er Ágúst
Ólafur Ágústsson, alþingismaður
Samfylkingarinnar.
Ágúst Ólafur kveðst telja að
með gildandi auglýsingabanni sé
komið í veg fyrir að almenningur
geti fengið
nauðsynlegar
upplýs ingar
um heilbrigð-
i s þ j ó n u s t u .
S j ú k l i n g a r
verða því að
treysta á um-
tal, ímynd og
orðróm þar að
lútandi. Al-
m e n n i n g u r
eigi oft fjölbreytilega valkosti
milli lækna og heilbrigðisstofn-
ana. Enn ríkari ástæður eru fyrir
því að afnema auglýsingabann hjá
tannlæknum þar sem þeir hafa
frjálsa gjaldskrá.
Auglýsingar um heilbrigðis-
þjónustu munu að sjálfsögðu vera
bundnar reglum samkeppnislaga
sem komi í veg fyrir rangar, ófull-
nægjandi eða villandi upplýsing-
ar. Siðareglur fagfélaga leggja
sömuleiðis ýmsar kröfur á sína fé-
lagsmenn. -jss
,,Í banda-
lagi græð-
ara eru átta
aðildar-
félög með
um 500 fé-
lagsmenn.
Íbúar flóðasvæðanna:
Geta þjáðst
í mörg ár
TAÍLAND, AP Svo getur farið að níu
af hverjum tíu sem eiga um sárt
að binda af völdum flóðbylgjunn-
ar á annan í jólum þurfi að takast
á við sálræn eftirköst um mörg
ókomin ár.
Um 200 sérfræðingar í sálræn-
um áföllum eru samankomnir í
Bangkok til að fjalla um sálræn
áhrif hamfaranna á fólkið sem
lenti í þeim. Einn þeirra er Jon-
athan Davidson, yfirmaður kvíða-
og áfalladeildar Duke-háskóla í
Bandaríkjunum. „Við getum búist
við því að helmingur til 90 prósent
fólksins stríði við eftirköst og
þunglyndi í mörg ár ef fólkið fær
ekki aðstoð,“ sagði hann. ■
HJÓ HÖFUÐIÐ AF DÓTTURINNI
Karlmaður í Hong Kong myrti
sautján ára dóttur sína með því
að höggva höfuðið af henni með
exi eftir að þau höfðu rifist um
peninga. Maðurinn réðst einnig á
tvítugan son sinn, sá slapp lifandi
en sár.
FLEIRI GLÆPAMENN Meðlimum
japönsku mafíunnar fjölgaði á
síðasta ári þrátt fyrir harða at-
lögu lögreglunnar. Lögreglan tel-
ur að nú séu meðlimir mafíunnar
87 þúsund talsins og hafi fjölgað
um 1.200 í fyrra. Þetta er níunda
árið í röð sem mafíósum fjölgar.
■ ASÍA
– hefur þú séð DV í dag?
Jón Trausti Lúthersson liggur
á hjarta- og lungnaskurðdeild:
Stunginn í hjartastað
er hann bjargaði lífi
einstæðrar móður Aukning í sölu kjöts til Rússlands:Afgangshrossakjöt
flutt til Rússlands
ÁGÚST ÓLAFUR
ÁGÚSTSSON
JÓHANNA SIGURÐARDÓTTIR
Segir rétt almennings á að vita hversu
miklu fé er varið til nefndarstarfa ganga
framar hagsmunum þeirra sem sitja í
nefndum.
Þingmenn allra flokka á Alþingi:
Burt með nefndapukrið
MARGAR GREINAR
Græðarar fást meðal
annars við nálastungu-
meðferðir, nudd, smá-
skammtalækningar og
svæðameðferðir.
FÉLÖG Á VEGUM GRÆÐARA:
Acupunktafélag Íslands
Cranio sacral félag Íslands
Höfuðbeina- og spjaldhryggjajafnarar
Félag íslenskra heilsunuddara
Félag lithimnufræðinga
Organon félag hómópata
Samband svæða- og viðbragðsfræðinga
Svæðameðferðarfélag Íslands
1Hver segist sáttur við olíuverð, þráttfyrir samráð?
2Hvað fékk Mugison mörg tónlistar-verðlaun?
3Hvað er reiknað með að Íslendingarborði margar bollur á mánudag?
SVÖRIN ERU Á BLS. 34
VEISTU SVARIÐ?
10-11 3.2.2005 22.37 Page 2