Fréttablaðið - 04.02.2005, Blaðsíða 23
5FÖSTUDAGUR 4. febrúar 2005
Í útivistar-
ferðirnar og
samkvæmin
Verslunin Caro í Hraunbæ er
með vænan afslátt á vörum
sínum.
Nærfatnaður, bolir, náttföt og
toppar eru á útsölu í versluninni
Caro sem er í Ásnum í Hraun-
bæ 119 í Reykjavík. Þetta er
vandaður fatnaður fyrir herra
og dömur á öllum aldri, sem
sagt bæði fullorðna og börn.
Þarna eru hlýrabolir, stutterma-
og langermabolir, síðar nær-
buxur og stuttar úr þægilegum
efnum eins og microfiber, ull,
silki og bómull. Kvenbolirnir og
topparnir eru bæði með og án
blúndu og henta hvort sem er í
útvistarferðirnar eða sam-
kvæmin. Afsláttur nemur frá
20-70%. ■
Barnaúlpur eru á 1.990 kr. á útsölunni í
Útivist & Sport.
Ódýrar
barnaúlpur
Útsölulok í Útivist & Sport.
Verðhrun og útsölulok eru hjá
Útivist & Sport sem selur
Regatta útivistarfatnað fyrir
alla fjölskylduna. Verðhrun er
mikið og má sem dæmi nefna að
barnaúlpur eru á 1.990 kr. sem
áður voru á 7.990 kr. og
barnaflíspeysur á 990 kr. sem
áður voru á 3.990 kr. Isotex-úlp-
ur og jakkar, flíspeysur og fleira
eru á útsölunni fyrir fullorðna
og ætti að vera hægt að gera
mjög góð kaup. Verslanir Útivist
& Sport eru í Faxafeni í Reykja-
vík, Strandgötu á Akureyri og
Hafnargötu í Keflavík. ■
Tanni með
lagerútsölu
Fatnaður, töskur og hand-
klæði.
Lagerútsalan stendur nú sem
hæst hjá Tanna, Höfðabakka 9.
Þar er meðal annars hægt að fá
flíspeysur, háskólapeysur og
svuntur fyrir mötuneyti fyrir 500
krónur og kuldagalla, skyrtur,
jakka og samfestinga á 1.000
krónur. Mikið úrval af töskum,
handklæðum, íþróttafatnaði, húf-
um og handklæðum.
Lagersalan er opin virka daga
frá klukkan 9-17 og laugardaga
klukkan 11-17. ■
Götumarkaðir og
langur laugardagur
Útsölulok eru víða í verslunum nú um helgina
Götumarkaðsstemning er í stór-
um verslunarmiðstöðvum á
höfuðborgarsvæðinu nú um
helgina. Verslanir eru komnar
með útsöluvarning sinn út á
ganga stórhýsanna og breiða
þar úr honum. Þetta á að
minnsta kosti við í Kringlunni í
Reykjavík, Smáralind í Kópa-
vogi og Firðinum í Hafnarfirði.
Verðið á vörunni lækkar líka
niður úr öllu valdi og sums stað-
ar er hægt að prútta. Verslanir
Kringlunnar og Smáralindar
eru opnar til kl. 19 í kvöld og 18
annað kvöld. Á sunnudaginn er
svo opið til 17 í Kringlunni en 18
í Smáralind. Langur laugardag-
ur er einnig í miðborginni, á hin-
um einu og sönnu verslunargöt-
um svo búast má við líflegri
verslun og fjöri víða. ■
Eflaust verður handagangur í
öskjunni á götumörkuðum og
útsölum alla helgina.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
22-23 (04-05) Allt tilboð 3.2.2005 18:51 Page 3