Fréttablaðið - 04.02.2005, Síða 46
34 4. febrúar 2005 FÖSTUDAGUR
Lárétt: 1 skinnpoki, 6 líkamshluta, 7
fljót, 8 hljóm, 9 á húsi, 10 hestur, 12 hag,
14 ger, 15 tvíhljóði, 16 tónn, 17 stríðni,
18 lengra frá.
Lóðrétt: 1 ragn, 2 gufu, 3 í röð, 4 bar
úr býtum, 5 blóm, 9 bandaríkin, 11
taugaáfall, 13 hnífur, 14 stúlka, 17 ekki.
Lausn.
1
6 7
98
10
12 13
1514
16
18
17
11
2 3 4 5
Fókus fylgi
r
DV í dag
Rekin úr I
dol og
ráðin á Po
ppTíví
Rekin úr
Idol og
ráðin á
PoppTíví
Elma Dögg
Gonzales
Breski tónlistarvefurinn
Drowned in Sound spáir því að
íslenska sveitin Jan Mayen eigi
eftir að gera góða hluti á árinu.
Rokksveitin gaf út fyrstu breið-
skífu sína hjá Smekkleysu fyrir
jól.
Fyrst byrjar höfundur grein-
arinnar á því að stæra sig af því
að vefurinn hafi bent á sveitina
Bloc Pary fyrstur allra en sú
sveit var að tryggja sér útgáfu-
samning við einn af plöturisun-
um. Næst líkir hann sveitinni
við fyrstu verk Weezer og Ash.
Segir plötuna sérstaklega
ferska og að tilraunamennska
sveitarinnar minni sig á Pixies.
Það verður gaman að fylgjast
með gangi mála hjá Jan Mayen
en plata þeirra kemur út í Bret-
landi í gegnum Smekkleysu 7.
mars næstkomandi.
Jan Mayen heldur tónleika í
London ásamt Skátum og hljóm-
sveitinni Reykjavík þann 21.
febrúar í Leicester Square
Marquee Club. Það er útvarps-
maðurinn John Kennedy hjá
XFM sem heldur tónleikana. ■
Jan Mayen vekur áhuga í Bretlandi
JAN MAYEN Gæti gert góða hluti í Bretlandi miðað við grein breska tónlistarvefsins
Drowned in Sound. Sveitin er á leið til Noregs í tónleikaferðalag og svo tekur Bretland við.
[ VEISTU SVARIÐ ]
Svör við spurningum á bls. 8
1
3
2
Loftur Árnason.
Fern.
600 þúsund.
Þemað í Idol stjörnuleit í kvöld er
Keflavík eða lög eftir tónlistar-
menn frá Bítlabænum sjálfum.
Gestadómari kvöldsins verður
enginn annar en Rúnar Júlíusson.
Mörgum þótti krakkarnir eiga
erfitt með lög Sálarinnar í síðasta
þætti svo það verður spennandi að
sjá hvernig þeim tekst að fara
með Keflavíkursmellina.
Mér líst ágætlega á þessi lög
og þau ættu að ná þeim flestum,“
segir Jóhann Helgason höfundur
tveggja laga sem tekin verða í
kvöld og fyrrverandi meðlimur
dúettsins Þú og Ég. „Þetta er samt
mjög viðkvæmt mál því ef söngv-
ari velur vitlaust lag þá virkar það
ekki, sama hversu góður söngvar-
inn er. Það er flestum ómögulegt
að fara út fyrir sitt sérsvið og
ekkert skrítið að fólk sem er að
byrja í tónlist hafi ekki þroska til
þess að átta sig á því hvað passar.
Þetta er eins og að velja sér föt; þó
þau sýnist vera flott þá þarf ekk-
ert að vera að þau passi á mann-
eskjuna,“ segir Jóhann sem veitti
því athygli hversu illa keppendum
gekk í síðasta þætti að fara með
lög Sálarinnar.
„Já, þetta sást greinilega í síð-
asta þætti. Stebbi er náttúrlega
mjög góður söngvari og getur
sungið bæði niðri og hátt uppi.
Það eru ansi fáir sem ná háu tón-
unum og því voru mörg lögin of
djúp. Það er lykilatriði fyrir
söngvara að velja rétt lag því ann-
ars getur hinn fínasti söngvari
eða jafnvel sá besti sungið sig út
úr keppninni. Það er samt eitt-
hvað af hæfileikaríku fólki þarna
og þau ættu vel að geta ráðið við
þessi lög,“ segir Jóhann bjartsýnn
fyrir hönd keppenda.
hilda@frettabladid.is
IDOL-STJÖRNULEIT: SJÖ MANNA ÚRSLIT ERU Í KVÖLD
Keflavíkurbærinn í Stjörnuleit
Síðir eyrnalokkar eru hrikalega heitir þessa dagana. Þettasést hjá leikkonum í Hollívúdd sem og í tískublöðum. Ekki
þarf þetta þó að vera endalaust bling í eyrnasneplunum held-
ur bara frekar smekklegir eyrnalokkar með fallegum steinum.
Þeir mega jafnvel lafa langleiðina niður á axlir. En alls ekki
mikið lengra en það.
Góðir inniskór. Það er fátt betra en að eyðasunnudagsmorgnum í bókalestur á náttföt-
unum. Þá er ekki slæmt að eiga svona hlýja
og notalega inniskó til þess að ilja fótunum.
Sitja svo í sófanum með tebolla í hönd og
hlusta á rólegan djass. Yndislegt.
Aðsniðin pils. Ekki stutt pilssem rétt hylja rasskinnarnar og ekki síð risapils sem
maður stígur á þegar labbað er upp stiga. Aðsniðin, hnésíð
pils er málið, í öllum litum og með alls konar munstrum.
Þetta kallast „pencil skirt“ á enskunni og er óskaplega glæsi-
legt og elegant.
Raunveruleikaþættir. Er þetta ekki orðið alveggott? Magnið af lélegum raunveruleikaþáttum
eykst með hverjum deginum. Fólk virðist gera hvað
sem er til þess að komast í sjónvarpið, borðar pödd-
ur, sveltir sig, fer í lýtaaðgerðir í beinni og meira að
segja syngur þó að hæfileikinn sé enginn. Þetta er
orðið hálfsjúkt þegar vandaðir, leiknir þættir fá að
víkja af dagskránni fyrir lélegum raunveruleikaþáttum.
Stuttermabolir með lélegum texta. Það er eitt-hvað hrikalega hallærislegt við að sjá stelpu í
stuttermabol sem á stendur „Babe“, „Cutie“,
„Beautiful girl on board“ eða eitthvað álíka
lummulegt. „I’m with stupid“ og ör sem bendir til
hliðar er heldur ekki fyndið lengur!
Útvíðar buxur eða „bootcut“ eins og kanarnir kalla þær. Hippa-tímabilið er búið og ykkur er óhætt að leggja útvíðu buxunum
og Lennon-gleraugunum í leiðinni. Núna eiga buxurnar annað
hvort að vera beinar eða þröngar niður.
INNI ÚTI
...fær Helga Ingólfsdóttir sembal-
leikari sem hlaut heiðursverð-
laun á Íslensku tónlistarverð-
laununum.
HRÓSIÐ
Lárétt: 1 belgur, 6lim, 7pó, 8óm, 9
ups, 10ess, 12akk, 14mor, 15au, 16es,
17ert, 18ytri.
Lóðrétt: 1blót, 2eim, 3lm, 4uppskar, 5
rós, 9usa, 11lost, 13kuti, 14mey, 17ei.
Hildur: Er hann birtist eftir Gunnar
Þórðarson. Hljómar og Shady Owens
fluttu upphaflega. s: 900-2007, sms:
1918 Idol 7
Helgi: Gaggó Vest eftir Gunnar Þórðar-
son sem Eiríkur Hauksson flutti upphaf-
lega. s: 900-2004, sms: 1918 Idol 4
Davíð: Lítill drengur eftir Magnús Kjart-
ansson og Vilhjálmur Vilhjálmsson flutti
upphaflega. s: 900-2005, sms: 1918
Idol 5
Brynja: Don’t Try to Fool Me eftir Jó-
hann G. Jóhannsson sem flutti það
einnig. s: 900-2006, sms: 1918 Idol 6
Ylfa: Ég gef þér allt mitt líf eftir Jóhann
Helgason sem Björgvin Halldórsson og
Ragnheiður Gísladóttir fluttu upphaf-
lega. s: 900-2003, sms:1918 Idol 3
Heiða: Himinn og jörð eftir Gunnar
Þórðarson sem Björgvin Halldórsson
flutti upphaflega. s: 900-2002 , sms:
1918 Idol 2
Lísa: Reykjavíkurborg eftir Jóhann
Helgason. Þú og Ég fluttu lagið upphaf-
lega. s: 900-2001, sms: 1918 Idol 1
JÓHANN HELGASON Hann segist búast við því að keppendur eigi auðveldara með lög
Keflavíkur í kvöld heldur en Sálarlögin í síðasta þætti.
»
FA
S
T
U
R
» PUNKTUR
46-47 (34-35) aftasta 3.2.2005 21:26 Page 2