Fréttablaðið - 04.02.2005, Qupperneq 48
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000
2. sýning 13.feb. kl. 19.00 – ÖRFÁ SÆTI LAUS
3. sýning 18.feb. kl 20.00 - ÖRFÁ SÆTI LAUS
4. sýning 20. feb. kl. 19.00 – 5. sýning 25. febrúar kl. 20.00 – 6. sýning
27. febrúar kl. 19.00 – 7. sýning 4. mars kl. 20.00
8. sýning 6. mars kl. 19.00 – 9. sýning 12. mars kl. 19.00
Miðasala á netinu: www. opera.is
Miðasalan er opin kl. 14-18 virka daga, kl. 13-18 lau. og sun. og fram að sýningu sýningardaga. Símasala frá kl. 10 virka daga.
Frumsýning 11. febrúar kl. 20 – UPPSELT
Ráðþrota gegn
sjálfum sér
Íslendingar eru um margt sérstakir.Það erum við öll sammála um. Sum-
ir segja okkur hafa annað göngulag en
aðrar þjóðir, vinna meira en aðrir,
byrja fyrr að stunda kynlíf og fleira er
talið til. Svo sem fríðar konur og
hraustir menn. En þetta er ekki allt.
Það er annað sem Íslendingar búa ein-
ir að, allavega ef horft er til okkar
næstu nágranna. Sem við gerum jú
oftast í leit að samanburði.
HÆTTA Á SPILLINGU sagði hinn
ágæti þingmaður Sjálfstæðisflokksins,
Pétur Blöndal, þegar hann var að
verja sérstöðu Íslendinga meðal þjóð-
anna um að ekki eru lög um fjárreiður
stjórnmálaflokka á Íslandi, eins og er í
öllum öðrum alvöru ríkjum. Hann
sagði að ef sett verði lög á stjórnmála-
flokka á Íslandi væri það ávísun á
spillingu. Nefndi hrakfarir Þjóðverja
sem hann sagði hafa sett lög um
hvernig stjórnmálaflokkar höguðu sín-
um fjármálum. Þarlendir stjórnmála-
menn fundu víst fljótt leiðir framhjá
lögunum og spillingin blómstrar sem
aldrei fyrr, sagði Pétur.
UPPGJÖF STJÓRNMÁLA-
MANNA virðist algjör. Þeir treysta
sér ekki að setja lög sem þeir geta
ekki farið á svig við. Það getur verið
allt í lagi að gefast upp, en ekki í
þessu máli. Þingmenn verða að gjöra
svo vel og gera betur. Nú segjast þeir
hafa gefist upp í eftirlaunaforréttinda-
málinu. Segjast ætla að breyta lögum
sem færa fyrrverandi ráðherrum sem
enn starfa fyrir ríkið á fínustu laun-
um, hæstu eftirlaun til viðbótar, sem
flestum þykja nóg. Það voru ekki
stjórnmálamenn sem bentu á hversu
galin lögin um eftirlaunin eru. Það var
Fréttablaðið sem sótti upplýsingarnar,
en fékk ekki allar, en nóg til þess að
ýta við forréttindunum. Blaðið fékk
ekki að vita hverjir þiggja launin og
hverjir ekki.
NÚ STANDA lagasmiðirnir undr-
andi og segjast verða að redda málinu.
Þeir verða líka að setja lög sem myndi
koma í veg fyrir að bílasaga Fram-
sóknar endurtaki sig. Flokkurinn fékk
bíl á sérkjörum, forstjóri bílaumboðs-
ins vill ekki segja hver þau eru, ekki
flokkurinn og ekki heldur hvað ein af
vonarstjörnum flokksins borgaði loks
fyrir bílinn sem er ekki lengur flokks-
ins, heldur vonarstjörnurnar. Ráðherr-
ar flokksins hafa síðan keypt rándýra
bíla af sama umboði. Pétur Blöndal
segir að lög um flokkanna kalli á spill-
ingu, sem er þá engin fyrir, eða hvað?
BAKÞANKAR
SIGURJÓNS M.
EGILSSONAR
48 bak 3.2.2005 19:09 Page 2