Tíminn - 10.01.1975, Page 1
Sandersonl
lyftarínn
kominn
HF HÖRÐUR GUNNARSSON
SKÚLATÚNI 6 - SÍMI (91)19460
7. tölublað — Föstudagur 10. janúar 1975 — 59. árgangur
Landvélarhf
Vestf jarðamið:
Brezkir
togarar
ágengir
— segja sjómenn
gébé- Reykjavlk. — Brezku
togararnir eru farnir aö gerast
heldur a&sópsmiklir á Vest-
fjarðamiðum. Þeir hafa hvað
eftir annað togað þvert á lfnur
. Vestfjarðabáta undanfarna daga
og stórskemmt veiöarfæri.
Bjarni Kjartansson, skipstjóri
á Kristjáni Guðmundssyni frá
Súgandafirði, sagði I samtali við
blaðið, að Bretarnir gerðu það sér
að leik að toga yfir llnur bátanna
hvaðeftir annað. „Viðhöfum einu
sinni orðið fyrir barðinu á þeim.
Það var á laugardaginn var, að
brezkur togari togaði yfir linuna
hjá okkur, enda þótt hún væri vel
merkt, bæöi með baujum og
ljósum. Hann togaði þrisvar
sinnum þvert á linuna, svo dró
hann upp og fór. Við týndum um
helmingi af lóðunum og urðum að
fara án þess að finna þær aftur,
þar sem veður var orðið afleitt.
Lóðirnar fundum við svo aftur
eftir helgina, sagði Bjarni.
Margir fleiri Vestfjarðabátar
hafa lent I svipuðu og eru að
vonum gramir yfir þessum trufl-
unum. Hafa margir þeirra tapað
veiðarfærum, auk þess sem mikið
hefur skemmzt hjá þeim.
Varðskip, sem er á þessum
slóðum, hefur haft samband við
brezka eftirlitsskipið Miranda, að
beiðni bátanna. Útvarpaði varös-
kipið I gær til brezku togaranna
staðarákvörðun bátanna og hvar
þeir hefðu lagt veiðarfæri sín.
Tóku Bretarnir þessu vel og
lofuðu bót og betrun. Jafnframt
fóru þeir fram á, að bátarnir létu
vita af sér áfram og hvar þeir
Framhald á 7. slðu.
Skorið aftan
úr v-þýzkum
BH—Reykjavlk.— Um átta leytið
I gærkvöldi skar varðskip aftan
úr vestur-þýzka togaranum Hus-
um SK102, þar sem togarinn var
að veiðum 22 sjómílur innan fisk-
veiðimarkanna suður af Hvalbak.
Litla flugvélin Cessna 150, skammt frá þeim stað.þarsem húnnauölenti á Reykjanesbrautinni. X M Gunnar.
„Lentum næstum
því ofan á bíl"
— flugvél með tveim í nauðlenfi á Reykjanesbraut
Gsal—Reykjavlk — Lltil eins
hreyfils fiugvéi frá Flugstnðinni
h.f. nauðlenti I gærdag stuttu eftir
hádegi á Reykjanesbraut,
skammt nor&an við Kúagerði.
Tveir menn voru I vélinni og
sluppu þeir báöir ómeiddir.
Flugvélin, sem bar einkennis-
stafina TF-OII, haföi nokkrum
minútum áður hafið sig til flugs
frá Reykjavlkurfiugveiii og var
hún i kennsluflugi.
Timinn hitti Jóhann Georgsson
að máli stuttu eftir nauðleng-
inguna I gærdag, en Jóhann er
flugnemi og var i slnum tiunda
flugtima, þegar óhappið varð.
— Við höfum sennilega verið
búnir að fljúga I 3-4 minútur,
þegar vélin datt niður og missti
svo að segja allan kraft. Við
ákváðum strax að nauðlenda á
veginum og sem betur fór var
lltil umferð um þetta leyti. Að
vísu vorum við næstum búnir að
lenda ofan á einum bíl, sem var I
sömu stefnu og við, en flugum
fram úr honum og lendingin tókst
með afbrigðum vél. Hins vegar
held ég, að ökumanni bilsins hafi
brugðiö talsvert, þegar hann sá
flugvélahjól rétt fyrir ofan sig.
Jóhann sagði, að þeir hefðu
slöan dregið vélina út af veginum
og við athugun hefði komið i ljós
að ísing hefði verið á leiðslum I
vél og þvi hefði benzinið ekki
getað runnið nógu greiðlega til
vélarinnar.
Til álita kom að fljúga vélinni
til Reykjavtkur aftur að viðgerð
lokinni, en horfið var frá þeirri
ráöagerð og ákveðið að fá bil til
að flytja hana.
Nýjar
viðræður
í Bonn?
RÍKISSTJÓRN
Vestur-Þýzkalands I Bonn
hefur farið þess á leit, að
Einar Ágústsson utanrikis-
ráðherra komi þangað til
viðræöna um landhelgismál-
ið. Eins og kunnugt er hafa
viðræöur um það legið niöri
um skeið.
Utanríkisráðuneytið hér
hefur staðfest þessa frétt.
Aftur á móti er allt óráðið
um för Einars, enda hefur
rikisstjórn íslands ekki enn
unnizt timi til þess að fjalla
um málið.
„Þvottavélin bezta
A I • A *| • • I f
velin i skipinu
— segja skipverjar á Júní, sem legið hefur við
bryggju vegna galla í vélum um langan tíma
Setja þarf nýjar .iegur I bóðar a&alvélar skuttogarans, og er von á þeim
frá Þýzkalandi innan skamms. 1 vélarrúmi skipsins voru menn að
bjástra við þessar gölluðu vélar. Timamynd: Gunnar.
Gsal-Reykjavik. — ,,Það má
nærriþvifuliyrða.aðbezta vélin I
skipinu sé þvottavélin”, sögðu
skipverjar en Timamenn iitu I
gærdag um borð i hafnfirzka
skuttogarann Júni, en hann hefur
legið við bryggju I Hafnarfirði frá
þvi 7. desember s.l., og frá þvi I
byrjun ágúst og fram i október
var skuttogarinn I viðgerð I
Þýzkalandi.
— Það má svo sem til sanns
vegar færa, að þetta sé spánska
veikin. Astæðan fyrir landlegu
skipsins núna er, sú, að skipta
þarf um allar legur i báðum
vélum skipsins, og varahlutirnir
eru enn ekki komnir, — en eru
væntanlegir I dag. Hvað skipið
verður lengi enn við bryggju, er
ekki gott að segja, þar sem ekki
hefur verið ákveðið, hvort
einhverjar breytingar verða
gerðar samfara viðgerðinni. En
alla vega mánaðartima I viðbót.
Skipverjar voru á einu máli um
það, að ókostir skipsins væru
mjög margir og bentu á máli sinu
til staðfestingar að á þeim nitján
mánuðum, sem liðnir væru frá
afhendingu skipsins, hefðu fimm
mánuðir farið algjörlega til
ónýtis vegna viðgerðar á skipinu.
24 manna áhöfn er á Júni og
var helming áhafnarinnar sagt
upp, þegar landlegan hófst, þar
sem strax var augljóst, að
viðgerð á skipinu tæki nokkuð
langan tima.
— Um miöjan ágúst fórum við i
viögerð með skipið til Þýzkalands
og létum þá skipta um legur I véi-
unum, — og núna þarf aftur að
gera það sama. Það hefur komið I
Ijós að ein af ástæðunum fyrir
þessari viðgerö er sú að
frágangur Þjóðverjanna var alls
ómöglegur.
Einn skipverjanna sagðist hafa
heyrt, aö Spánverjar hefðu gefið
þá skýringu á bilununum I
Framhald á .6. siðu.
llafnfirzki togarinn Júni kom til landsins 3. júni 1973, og frá þeim tima
hefur togarinn legiö við bryggjur I viðgerðum I fimm mánuði. Hér sést
togarinn við bryggju I Hafnarfirði í einni landlegu sinni. Tlmamynd:
Gunnar.