Tíminn - 07.03.1975, Síða 5
Föstudagur 7. marz 1975
TÍMINN
5
Rætt við Seppo Saarlund, blaðafulltrúa finnska
AAiðflokksins:
Fylgi Miðflokksins
vaxandi
„Finnlandísering" einungis til sem
vopn í innanríkispólitík annara landa
Kjördæmis-
samband
Framsóknar-
manna í Norður-
landskjördæmi
eystra efnir til
Rínarlandaferðar
Auk þingfulltrúa og starfsliös
þingsins var mikill grúi frétta-
manna á þingi Noröurlandaráös á
dögunum. 1 þeim hópi var Finn-
inn Seppo Saarlund, sem er
blaöafulltrúi finnska Miöflokks-
ins, og hefur um margra ára
skeiö gegnt ýmsum trúnaöar-
störfum fyrir flokkinn.
— Égbyrjaði sem blaöamaður i
lok sjötta áratugsins, sagöi Saar-
lund i viötali viö Timann. Siöan
varö ég ritari þingflokksins um
sjö ára skeið á sjöunda áratugn-
um, en um þær mundir var Miö-
flokkurinn stærsti stjórnmála-
flokkur Finnlands.
Þegar ég lét af ritarastarfinu
tók ég viö starfi ritstjóra dag-
blaðs flokksins og gegndi þvi i tvö
ár og undanfarin þrjú ár hef ég
veriö blaöafulltrúi flokksins.
— Hefur Miöflokknum oröiö vel
ágengt i baráttunni um hylli kjós-
enda aö undanförnu?
— Já, kjósendum fer fjölgandi.
Eins og ég sagði áöan var Mið-
flokkurinn um skeið stærsti flokk-
ur landsins. Hann hefur ætið átt
mikil itök i sveitunum, þess
vegna dró nokkuð úr fylgi hans
um skeið vegna þeirra fólksflutn-
inga úr sveitunum til borganna,
sem átt hafa sér stað i Finnlandi
eins og viöast hvar annars staðar.
I kosningunum 1962 fékk Miö-
flokkurinn þannig 23% atkvæöa,
en 1966 minnkaöi fylgið um rösk
þrjú prósent og 1970 féll það niður
i 17%. Nú fer fylgi okkar hins veg-
ar vaxandi á nýjan leik. 1 siðustu
kosningum i landinu, þ.e. bæja og
sveitastjórnakosningunum 1972
fékk flokkurinn 18% atkvæða og
skoðanakannanir hafa sýnt, að nú
myndu 19,1% kjósenda greiða
honum atkvæði.
— Hver hyggur þú, að sé
skýringin á þvi aö fylgi flokksins
sé aö aukast?
— Ég held, að hún sé að miklu
leyti fólgin i þvi, að fólk er að gera
sér ljóst, að ekki er allt fengið
með efnahagslegum gæðum, og
Miðflokkurinn leggur einmitt
áherzluá það, að þótt efnaleg vel-
ferð sé mikils virði má ekki
gleyma manninum sjálfum'i allri
velferðinni. A s.l. ártug var
margt ungt fólk mjög vinstri
sinnað, en nú virðist það allt að
þvi vera i tizku meðal ungs fólks i
Finnlandi að fylgja Miðflokknum
að málum. Menn eru orðnir
þreyttir á eintómum material-
isma. —
Fylgi okkar fer lika vaxandi i
þéttbýli og ekki sizt meðal verka-
fólks, þótt enn sé flesta kjósendur
flokksins að finna i sveitunum.
Ekki mun fjarri lagi, að 60% kjós-
enda okkar séu I sveitunum, 20%
verkamenn og 20% millistéttafólk
s.k.
En viö erum vongóðir, og ég tel
ekki óliklegt, að i næstu kosning-
um fáum við þingmann i Helsinki,
sém við höfum ekki haft til þessa.
— Hérlendis hafa átt sér staö
miklar og haröar umræöur um
þaö hvort okkur væri ekki hoilast
aö iáta bandariska herliöiö fara
af landi brott. Þeir, sem vildu
halda i bandariska herliöiö töluöu
mikiö um s.k. Finnlandlseringu —
sögöu Finna vera um flest háöa
Sovétrikjunum og héldu þvi fram
aö örlög okkar yröu svipuö, ef
herinn yröi látinn fara. Hvaö get-
ur þú sagt okkur um þessa s.k.
Finnlandiseringu?
-r- Allt tal um það, að við verð-
um að sitja og standa eins og
Sovétmönnum þóknist er tilhæfu-
laust með öllu. Við viljum eiga
vinsamleg skipti við Sovétrikin
eins og önnur grannriki — það er
allt og sumt. Finnlandisering er
ekki til nema sem vopn i innan-
rikispólitik annarra landa, t.d. V-
Þýzkalands, sagði Saarlund að
lokum. HHJ
Seppo Saarlund, biaöafulitrúi finnska Miöflokksins.
Timamynd Gunnar
FYRIR nokkrum árum gekkst
Kjördæmissamband Framsókn-
armanna i Norðurlandskjördæmi
eystra fyrir hópferð til Noröur-
landa. Þátttaka I þeirri ferð var
mjög góö, og þótti ferðin takast
með miklum ágætum.
Nú hefur kjördæmissambandið
ákveðið að gangast fyrir annarri
hópferð. í þetta sinn er ráögert að
fljúga beint til Hamborgar. Það-
an verður ekið til Hollands, þar
sem varið verður þremur dögum.
Frá Hollandi verður ekið i gegn-
um Belgiu tilParisar, þar em gist
veröur i fjórar nætur. I Paris
verður skoðað allt það markverð-
asta, sem borgin hefur upp á að
bjóða, en þaðan haldið um
Luxemborg til Rinardalsins, og
gist 1 hinum margrómaða vin- og
gleðibæ, Rudesheim, þar sem
stanzað verður I fjóra daga. Það-
an verður ekið um Bonn til Kölnar
og áfram i gegnum Ruhr-héruðin
til Schelle, þar sem gist veröur
siöustu nóttina. Siðasta daginn
verður ekið til Hamborgar, og
flogiö þaðan samdægurs til Kefla-
vikur.
Þessi ferðatilhögun, sem að
framan greinir, er ekki endanleg,
og kann eitthvað að breytast, en
ekki I verulegum atriðum. Þá
hefur ekki tekizt, m.a. vegna ó-
vissu i gjaldeyrismálum að fá
fast verötilboð I ferðina, en það er
væntanlegt mjög bráðlega. Ferð-
in tekur fimmtán daga, og brott-
för verður fyrri hluta júnimánað-
Opið til kl. 7 á föstudögum — Lokað á laugardögum
m
SOFASETTIN
eru aftur fyrirliggjandi
í fjölbreyttu úrvali
áklæða - m. a. í leðri
Hringbraut 121
28-600 Byggingavörukjördeild 28-602 Raftækjadeild
28-601 Húsgagnadeild 28-603 Teppadeild
húsið
Nánari upplýsingar liggja fyrir
á skrifstofu kjördæmissambands-
ins á Akureyri, simi 2-11-80, og
hjá formanni þess, Hilmari Ðaní-
elssyni, Dalvik, simi 6-13-18.
Með hliðsjón af vinsældum fyrri
ferðar kjördæmissambandsins er
búizt við mikilli þátttöku, og eru
þeir, sem áhuga hafa, hvattir til
þess að snúa sér strax tii framan-
greindra aðila.
VERZLIÐ NUNA —
Forðist verðhækkani
Athugið! Getum
boðið nokkur
sófasett af
þessari gerð á
hagstæðu verði