Tíminn - 13.06.1975, Blaðsíða 20
Föstudagur 13. júnl 1975
Nútíma búskapur þarfnast
HKVER
haugSugu
Guöbjörn
Guöjónsson
Viðsjdr í indverskum stjórnmdlum:
Kong ress-f lokku ri n n
bíður mikinn hnekki
Indira Gandhi forsætisrdðherra dæmd fyrir kosningamisferli
og flokkurinn geldur afhroð í fylkiskosningum
fyrirgóéan mat
^ KJÖTIÐNAÐARSTÖÐ SAMBANDSINS
Ný stjórn tekur við
stjórnartaumunum
í Finnlandi í dag:
Sorsa sat í
1012 daga
NTB-Helsinki. Rlkisstjórn
Kalevi Sorsa I Finnlandi lætur
væntanlega af störfum I dag
og við tekur stjórn embættis-
manna. Stjórn Sorsa hefur þá
setið að vöidum i 1012 daga,
eða lengur, en nokkur önnur
finnsk ríkisstjórn eftir siðari
heimsstyrjöldina.
Nýjar þingkosningar fara
sem kunnugt er fram I Finn-
landi dagana 21. og 22.
september n.k. Þangað til fer
embættismannastjórn með
völd f landinu — að sjálfsögðu
undir handleiðslu Urho
Kekkonens Finnlandsforseta,
en forsetinn hefur meiri völd
að finnskum lögum en gerist
t.d. hér á landi.
NTB/Reuter—Nýju-Delhi — Kon-
gress-fiokkurinn — stjórnarflokk-
urinn á Indlandi — lýsti I gær yfir
fullum stuðningi við Indiru
Gandhi forsætisráðherra. Aöur
hafði hæstiréttur i fylkinu Uttar
Pradesh fundið Gandhi seka um
kosninga misferli og dæmt hana
frá opinberu embætti I sex ár.
Gandhi er staðráðin I að áfrýja
dómnum til hæstaréttar Indlands.
Gandhi hefur og fengið leyfi til að
gegna áfram embætti forsætis-
ráðherra unz endanlegur dómur
fellur i hæstarétti.
Gandhi var fundin sek um mis-
ferli I sambandi við þingkosning-
ar þær, er fram fóru á árinu 1971.
M.a. á hún að hafa — ef marka
má niðurstöður dómsins — beitt
opinberum embættismönnum I
kosningabaráttunni. Aftur á móti
var hún sýknuð af ákærum um að
hafa notað trúartákn I kosninga-
áróðrinum og eytt óhóflega miklu
fé til að standa straum af kosn-
ingaundirbúningi.
I fyrradag — áöur en dómurinn
yfir Gandhi var kveðinn upp —
fóru fram kosningar til fylkis-
þings I fylkinu Gujarat. Talning
atkvæða hófst I gærmorgun i höf-
uðborginni Ahmedabad. Fyrstu
tölur bentu til fylgishruns Kon-
gress-flokksins er hafði forystu I
aðeins 15 kjördæmum af 37. Jan-
atafylkingin —■ sem er samfylking
fimm stjórnarandstöðuflokka —
hafði forystu I hinum 22 kjördæm-
unum.
Arið 1972 fóru siðast fram kosn-
ingar til fylkisþings I Gujarat. Þá
vann Kongress-flokkurinn mikinn
sigur og hlaut 140 af 168 fulltrúum
á fylkisþinginu.
Þessar fyrstu atkvæðatölur —
svo og dómurinn yfir Gandhi —
eru hnefahögg I andlit leiðtoga
Kongress-flokksins, er haldið hef-
ur um stjórnartaumana á Ind-
landi siðan það varð sjálfstætt
riki árið 1950. í marz á næsta ári
fara fram þingkosningar i
landinu, og útlitið er þvi ekki sem
bezt fyrir valdhafana i Nýju-Del-
hi.
StÐUSTU FRÉTTIR:
Leiðtogar stjórnarandstöðunn-
ar hafa iagt fast að Gandhi að
segja af sér, en hún lýsti yfir —
frammi fyrir mannfjöida, er
safnazt hafði saman úti fyrir
heimili hennar I Nýju-Delhi — að
hún ætlaði sér að gegna embætti
áfram með styrk fólksins.
Gandhi: Fiokkur hennar styður hana, þrátt fyrir allt.
Belgíska stjórnin
sigraði naumlega
— í atkvæðagreiðslu á þingi vegna
kaupanna ó bandarískum orrustuþotum
Portúgalstjórn berst gegn kynþóttamisrétti:
Boðar til leiðtoga-
fundar
NTB/Reuter-Brussel. Belgisla
þingið lýsti I gær yfir trausti á
rikisstjórn landsins fyrir þá
ákvörðun hennar að festa kaup á
bandariskum orrustuþotum istað
franskra þota. Þvi er stjórnar-
kreppu bægt frá I Beigiu — a.m.k.
I bili.
Harðar deilur urðu á þingi, er
rætt var um þotukaupin. Belgiska
stjórnin var lika lengi i vafa um,
hvorn kostinn hún ætti að taka, en
að lokum urðu bandarisku þot-
urnar ofan á, einkum vegna þess
að hin NATO-rikin þrjú, er höfðu
hug á þotukaupum — Danmörk,
Holland og Noregur — ákváðu að
festa kaup á þeim bandarisku.
Flokkur frönskumælandi sam-
bandssinna — sem á aðild að
belgisku stjórninni — hafa hótað
að greiða atkvæði gegn stjórn-
inni, ef til atkvæðagreiðslu kæmi
vegna þotukaupanna. Á siðustu
stundu snerist hinum þrettán
þingmönnum flokksins þó hugur
— að sögn leiðtoga þeirra vegna
fyrirheita Leo Tindemans for-
sætisráðherra — og stjórnin hélt
naumlega velli: 112 þingmenn
greiddu henni atkvæði, 91 greiddi
atkvæði á móti, en 3 sátu hjá.
Reuter—Lissabon — Portúgals-
stjórn og leiðtogar hinna þriggja
þjóðfreisishreyfinga I Angóla
halda á næstunni fund, þar sem
reynt verður að koma á friði I
hinni fornu nýiendu Portúgala,
sem hlýtur fullt sjálfstæði innan
skamms. Þá hcfur Portúgals-
stjórn ákveðið að berjast gegn
hvers kyns kynþáttamisrétti I
framtiðinni.
Ernesto Melo Antunes utanrik-
isráðherra skýrði svo frá I gær, að
Portúgalsstjórn hefði boðað þjóð-
frelsisleiðtogaiAngóla til sérstaks
fundar I beinu framhaldi af fundi
þeirra, er haldinn verður i Kenya
um næstu helgi. Antunes sagði, að
stjórn sin hefði forðazt að taka af-
stöðu i deilum frelsishreyfing-
anna — hins vegar hefðu öfl utan
Angóla reynt að hafa áhrif á gang
mála i landinu.
Asiðustu fjórum mánuðum hef-
ur rikt skálmöld i Angóla, og
a.m.k. eitt þúsund manns hafa
týnt Hfi í innbyrðis átökum frels-
ishreyfinganna. Jorge Correia
Jesuino upplýsingaráðherra
skýrði fréttamönnum svo frá i
gær, að 500 hvitir menn færu frá
Angóla á degi hverjum, og á að
gizka 200 þúsund til viðbótar
hefðu sýnt áhuga á að komast
brott. Siðustu atburðir I Angóla —
er skýrt var frá I Timanum I gær
— hafa ýtt á eftir mönnum að
flýja land.
í gær hófst I Lissabon fundur
sérstakrar nefndar á vegum
Sameinuðu þjóöanna, er fjallar
um kynþáttamisrétti og skyld
mál. Þetta er i fyrsta sinn, að
nefndin, er I sitja 24 fulltrúar,
heldur fundi I Evrópu.
I ávarpi I fundarbyrjun sagði
Vasco Goncalves forsætisráð-
herra, að stjórn sin hefði ákveðið
að gera baráttu gegn hvers kyns
kynþáttamisrétti að hornsteini i
utanrikisstefnu sinni. Hann fagn-
aði sérstaklega þeirri ákvörðun
nefndarinnar að halda fund sinn i
Portúgal, og votta með þvi þá
stefnubreytingu, frá þvl byltingin
var gerð I landinu I fyrra.
Kissinger að loknum viðræðum Fords og Rabins:
Möguleiki á nýjum
samningaviðræðum
Bretar selja Egyptum vopn fyrir 157,5 milljarða íslenzkra króna
NTB /Reuter-Washington/Lon-
don. Þeir Gerald Ford Banda-
rikjaforseti og Yitzhak Rabin,
forsætisráðherra Israels, iuku
tveggja daga löngum viðræðum
sinum I gær. Viðræðurnar voru aö
sögn gagniegar þótt ekkert bendi
til, að þjóðarleiðtogarnir hafi orð-
ið ásáttir um leiðir til að koma á
friði i Miðjaröarhafslöndum.
Henry Kissinger utanrikisráð-
herra hélt fund með fréttamönn-
um að viðræðunum loknum. Kiss-
inger sagði, aö hugsanlegt væri,
að Egyptar og Israelsmenn hæfu
að nýju samningaviðræður um
nýtt samkomulag um skipan
mála á Sinaí-skaga. Og sömu-
leiðis væri mögulegt, að hann færi
sjálfur til Miðjarðarhafslanda og
tæki upp þráðinn, þar sem frá var
horfið i marz s.l., er upp úr samn-
ir.gaumleitunum slitnaði.
Kissinger varaðist hins vegar að
fullyrða neitt I þessu sambandi og
kvaö Ford forseta eiga eftir að
draga lokaályktanir af viðræðum
sinum við þá Rabin og Anwar
Sadat Egyptalandsforseta. Utan-
rikisráðherrann sagði, að Banda-
rlkjastjóm myndi standa i sam-
bandi við báða deiluaðila og
reyna af fremsta megni að fá þá
til að setjast að samningaborði.
Að undanförnu hefur Ismail
Fahmi, utanrikisráðherra
Egyptalands, rætt við brezka
ráðamenn i London. í gærkvöldi
upplýsti egypzkur embættisjnað-
ur, aö Bretar hefðu fallizt á að
selja Egyptum vopn fyrir 450
milljón pund (u.þ.b. 157,5
milljarða Islenzkra króna).
byggingaþjón
íious^
VORU
SÝNINGAR
SALUR
Húsbyggjendur
A'LLT
Á EINUM STAÐ