Tíminn - 17.06.1975, Side 14
14
TÍMINN
Þriðjudagur 17.júni 1975
Höfundur: David Morrell
Blóðugur
hildarleikur
47
aði í liðamótin. Þetta tók of langan tíma. Hann vissi, að
þeir gætu ekki borið hann mikið lengur. Þeir urðu að
komast upp á hrygginn. Þegar Ward rann til og hrasaði,
þá munaði minnstu, að Teasle missti tak sitt á Orval.
Þeir duttu kylliflatir í brekkunni. Straumurinn hreif þá
með sér svolítinn spöl. Þeir börðust við að halda í Orval.
Enn voru þeir með hann. Þeir reyndu að komast hærra
upp í brekkuna. En þeir komust aldrei lengra með hann.
Skyndilega hrópaði Singleton upp yfir sig. Svo féll hann
fram hjá Orval, og skall á brjósti Teasles. Þeir runnu
aftur á bak. Teasle missti tak sitt á Orval. í næstu andrá
lá hann á bakinu neðst í brekkunni. Vatnið fossaði yfir
hann og hann fann til sársauka er steinar rákust utan í
hann.
— Ég gat ekki að þessu gert, hrópaði Singleton. —
Steinninn rann undan mér.
— Orval. Straumurinn hefur hrifið hann.
Teasle buslaði í átt að klettabrúninni. Hann strauk
vatnið frá augunum með handleggnum, deplaði augun-
um og reyndi að rýna gegnum regnið. Hann mátti ekki
hætta sér of nærri brúninni. Straumurinn var of sterkur
þar. En Guð á himnum, hann varð að stöðva Orval. Hann
fór sér ögn hægar, mjakaði sér nær og strauk vatnið frá
augunum. Elding leiftraði. Þá sá hann greinilega upp-
Ijómaðan líkama Orvals, sem kastaðist fram af brún-
inni... Svo sortnaði yf ir öllu á ný. Þá kastaði Teasle upp.
Heit tár blönduðust köldu regninu á andliti hans. Hann
veinaði þar til hálsinn lokaðist.
— Andskotinn hirði þessa djöfuls hunda. Ég skal
drepa þá fyrir að neita um aðstoðina.
Singleton birtist skyndilega við hlið hans. — Sérðu
Orval nokkurs staðar?
Teasle fór f ram hjá honum og stefndi að hryggnum. —
Ég skal drepa þá. Hann greip eftir handfestu og tosaði
sig upp á við, smeygði fæti aftan við stein og m jakaði sér
upp. Hann gróf og klóraði eftir handfestu á meðan hann
barðist upp á móti vatnselgnum. Skyndilega var hann
kominn upp á hrygginn og sökk inn í skóginn. Þar var
gnýrinn ærandi. Vindurinn sveigði trén.dundi inn milli
greinanna. Elding leiftraði rétt hjá þeim og laust svo
niður í trjábol, sem klofnaði að endilöngu.
Tré skall niður fyrir f raman Teasle, sem hoppaði yf ir
það.
— Foringi, hrópaði einhver. — Hér er ég, foringi.
Hann sá ekki andlitið — 'aðeins mannslíkama, sem
hniprapi sig saman upp við tré.
— Ég er hér, foringi. Maðurinn baðaði út höndunum í
miklum ákafa.
Teasle æddi í átt að honum og þreif um skyrtubrjóst
hans... Þetta var Mitch.
— Hvað ertu að gera? Hvað er að þér? sagði
Mitch. — Honum skolaði fram af, sagði Teasle. Hanr
kreppti hnefann og sló Mitch í andlitið, hratt honum upp
að trénu og niður í forina.
— Jesús, sagði Mitch. Hann hristi höfuðið ruglaður,
tvisvar sinnum.Hann stundi og hélt um blóðugan munn-
inn. — Jesús... hvað er að þér? öskraði hann. — Lester
hljópst á brott með hinum. Ég varð eftir í stað þess að
yfirgefa þig.
ELLEFTI KAFLI
Teasle hlaut nú að vera kominn inn í skóginn. Rambo
var þess fullviss. óveðursþunginn var mikill og veðrið
haf ði geisað svo lengi, að útilokað var að Teasle og menn
hans gætu hírzt lengur á opinni klettasyllunni. Regnið
var svo þétt, að hann sá ekki til að skjóta þá. Þeir hlutu
að hafa gripið tækifærið og farið upp hrygginn, inn á
milli trjánna. Það var í lagi. Þeir myndu ekki komast
langt. Hann hafði margoft lent í slíkri aðstöðu í rigningu.
Hann vissi nákvæmlega hvernig bezt var að elta menn
uppi við slík skilyrði.
Rambo hljóp fram úr runnunum og skjóli trjánna.
Hannstefndi íátttil klettarótanna, sem hann hafði kom-
ið niður. Óveðrið hafði komið svo miklum ruglingi á allt,
að hann gat auðveldlega flúið í hina áttina, langt inn í
skóginn — ef hann vildi. Ef dæma mátti eftir stórum
þéttum skýjaflákunum, þá gat hann verið kominn
margra klukkustunda og mílna ferð á burt, áður en
storminn lægði svo, að Teasle gæti aftur hafið eftirför.
Hann gat raunar komizt svo langt undan, að Teasle gæti
aldrei framar náð honum. Eftir launsátrið var jafnvel
mögulegt, að Teasle hef ði misst allan áhuga á því að elta
hann uppi. En það skipti ekki máli. Á þessari stundu var
hann staðráðinn í því, að flýja ekki meira. Hvort sem
hann var eltur eða ekki. Hann hafði legið í skjóli runn-
anna og fylgzt með klettabrúninni. Þá hugleiddi hann
hvernig Teasle hafði nú orðið til þess, að hann var enn
eini sinni orðinn manndrápari, og það eftirlýstur morð-
Á meðan teiknar
llllflllllll
Þriðjudagur
17. júni
Þjóðhátlðardagur tslendinga
10.10 Veðurfregnir
10.30 Frá þjóðhátið I Reykja-
vfk. a. Hátiðarathöfn á
Austurvelli. Lúðrasveit
Reykjavikur leikur ætt-
jarðarlög. Már Gunnarsson
formaður þjóðhátiðar-
nefndar setur hátiðina For-
seti íslands, dr. Kristján
Eldjárn, leggur blómsveig
að fótstalla Jóns Sigurðs-
sonar. Geir Hallgrimsson
forsætisráðherra flytur
ávarp. Þá er ávarp Fjall-
konunnar, kvæði eftir
Stephan G. Stephansson.
Karlakór Reykjavikur
syngur þjóðsönginn og ætt-
jarðarlög milli atriða. Páll
P. Pálsson stjórnar. —
Kynnir: Ólafur Ragnars-
son. b. 11.15. Guðsþjónusta i
Dómkirkjunni. Séra Ingvi
Þórir Árnason frá prest-
bakka messar. Magnús
Jónsson og Dómkórinn
syngja. Organleikari:
Ragnar Björnsson.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar. Tónleikar.
13.40 Harmonikulög. örvar
Kristjánsson leikur.
14.00 Ashild ar m ý ra r-
samþykkt 1496. Björn Þor-
16.15 Veðurfregnir. Frá
þjóðhátið i Reykjavlk 1974.
Dr. Gunnar Thoroddsen
flytur erindi: „Aldar-
minning stjórnar-
skrárinnar.” Vilhjálmur Þ.
Gislason fyrrum útvarps-
stjóri talar fyrir minni
Reykjavikur. Einsöngvara-
kvartettinn syngur. Árni
Óla flytur frumort kvæði.
Kynnir: Guðmundur Jóns-
son.
17.00 Barnatimi: Soffia
Jakobsdóttir stjórnar.
17.30 Sagan: „Prakkarinn”
eftir Sterling North.
18.00 Stundarkorn með Birni
Ólafssyni f iðluleik ara .
Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki.
Tilkynningar.
9.35 „Dagur, ei meir”.
Matthias Johannesson skáld
les úr nýrri ljóðabók sinni
við undirleik. Jóhann
Hjálmarsson og Gunnar
Stefánsson ræða um
bókina..
20.10 Frá tónleikum Kammer-
sveitar Reykjavikur i
hátiðarsal Menntask. við
Hamrahiið 9. febrúar s.l.
Oktett i F-dúr op. 166 eftir
Schubert.
21.05 Hallveig Eyrarsól. Guð-
mundur G. Hagalin rit-
höfundur les frumsaminn
söguþátt.
21.35 Hásk.kórinn syngur i út
varpssal.Stjornandi: Rut L.
Magnússon.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Dansiög.
þ.á.m. leikur hljómsveit
Guðjóns Matthiassonar i
u.þ.b. hálfa klukkustund.
(23.55 Fréttir istuttu máli.
01.00 Veðurfregnir.)
02.00 Dagskrárlok.
Miðvikudagur
18. júni
7.00Morgunútvarp. Veður-
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan: „A
vigaslóð” eftir James
Hilton. Axel Thorsteinsson
les þýðingu sina (21)
15.00 Miðdegistónleikar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar
(16.15 Veðurfregnir)
16.25 Popphorn.
17.10 Tónleikar.
17.30 Smásaga „Ljós I
myrkri” cftir Sigriði
Björnsdóttur frá Miklabæ.
Olga Sigurðardóttir les.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki.