Tíminn - 22.07.1975, Blaðsíða 16
16
TÍMINN
Þriöjudagur 22. júli 1975.
Umsjón: Sigmundur ó. Steinarsson .
EKKI
YFIR
SAMA ORYGGIÐ
AKRANES-LIÐINU
— varð að láta sér nægja annað
stigið gegn Víkingum, sem léku
án Guðge irs Leifssonar
EKKI er gott að segja, nema Vik-
ingar heföu hirt bæöi stigin af
toppliðinu Akranesi, ef Guögeirs
Leifssonar heföi notið viö, en
Guðgeir var fjarri góöu gamni,
þegar Vikingar léku gegn Akra-
nesi á sunnudagskvöld og geröu
jafntefli 2:2. Guðgeir er, sem
kunnugt cr, i Belgiu i boöi at-
vinnumannaliös þar, sem gert
hefur honum tilboö.
Það var ekki sama öryggið yfir
Akranes-liðinu i þessum leik og
undanförnum leikjum. Og eftir
þennan leik endurskoða sjálfsagt
einhverjir spá sina um öruggan
sigur Skagamanna i mótinu.
Sannleikurinn er sá, að svo fá stig
skilja á milli fjögurra efstu lið-
anna, að litið sem ekkert má bera
út af hjá efstu liðunum til að þau
missi forskotið.
Laugardalsvöllurinn var ekki i
sem beztu ásigkomulagi til knatt-
spyrnukeppni á sunnudagskvöld-
ið eftir rigningar. Vikingar voru
fyrri til að skora, en Gunnar örn
Kristjánsson skoraði 1:0 með
föstu skoti á 10. min. leiksins. En
á 17. minútu jafnaði Teitur Þórð-
arson fyrir Akranes, 1:1.
Yfirleitt voru sóknarlotur Vik-
inga hættulegri i fyrri hálfleikn-
um, þótt Skagamenn hafi leikið
meira með knöttinn. T.d. munaði
ekki nema hársbreidd, að Viking-
ar skoruðu á 15, minútu, þegar
skot Gunnars Arnar lenti i varn-
armanni Akraness og i þverslá.
A 15. minútu siðari hálfleiks
fékk Jón Gunnlaugsson óvænt
gott marktækifæri og skoraði 2:1
fyrir Akranes. Þarna var Vik-
ingsvörnin illa á verði.
Talsverð harka færðist i leikinn
eftir mark Skagamanna, og áttu
Vikingar sök á henni. Þeir lögðu
meira upp úr langspyrnum og
pressu að Akranes-markinu.
Hvað, sem um þess konar leikað-
ferð má segja. uppskáru Vikingar
jöfnunarmark sitt upp úr einni
slikri sóknarlotu og var Gunn-
laugur Kristvinsson þar að verki.
Stefán Halldórsson var mjög
virkur i sókninni og átti hættuleg
marktækifæri, sem ekki nýttust.
Segja má, að jafntefli hafi verið
mjög sanngjörn úrslit. Skaga-
menn sýndu að visu betri knatt-
spyrnu, en á móti sýndu Vikingar
meiri baráttuvilja. Beztir hjá
Viking voru þeir Stefán og óskar.
Sömuleiðis stóð Diðrik sig vel i
markinu, einkum i slðari hálfleik.
Hjá Akranesi voru beztir, eins
og fyrri daginn, Jón Alfreðsson,
Jón Gunnlaugsson og Matthias
Hallgrimsson.
Dómari i leiknum var Magnús
V. Pétursson og féll i þá gryfju að
beita sentimetra-málbandi og
A þessari mynd sést Jón Gunnlaugsson skora annaö mark Akraness ileiknum gegn Vikingi á sunnudagskvöld.
Enginn stórmeistara
blær yfir leik FH og
ÞAD var enginn stórmeistara-
blær yfir leik FII og IBV i 1. deild
á laugardaginn, þegar liðin skildu
jöfn i markalausum leik á Kapla-
krikavelli. Þarna glötuöu Eyja-
menn góðu tækifæri tii aö lyfta
sér upp af hotninum. Þeir voru
sterkari aöilinn i leiknum, en
misnotuðu góð markatækifæri.
Og ckki bætti úr skák, aö dómari
leiksins, Eysteinn Guðmundsson,
sleppti augljósri vitaspyrnu á FH.
örn Óskarsson ógnaði marki
FH og átti aðeins eftir að komast
framhjá Ómari markverði, sem
hindraði hann með þeim afleið-
ingum, að marktækifærið rann út
i sandinn Þarna lokaði dómarinn
báðum augum, en að öðru leyti
dæmdi Eysteinn vel.
Svo virðist sem Eyjamönnum
ætli ekki að takast að hrista af sér
slenið. Liðið er skipað sterkum
einstaklingum með yfirleitt mikla
reynslu að baki. 1 rauninni er það
óskiljanlegt hve illa liðinu hefur
vegnað. En ekki er öll nótt úti
tafði þess vegna leikinn með ó-
þarfa smámunasemi.
Jón er fyrir miöri mynd
(Timamynd Róbert).
ÍBV
enn.
FH-ingum er helzt áfátt i leik-
tækni, en þeir bæta sér það upp
með góðu keppnisskapi. Baráttu
vilji FH-inga er ódrepandi og þeir
eru ekki á þeim buxunum að
missa 1. deildar sætið. Aberandi
beztu menn liðsins eru Janus og
Ólafur Danivalsson.
Hörð barátta
í 2. deild
KEPPNIN i 2. deild i lslands-
mótinu I knattspvrnu er geysi-
hörö og erfitt aö spá um úrslit.
Um helgina fóru fram þrir leikir
og uröu úrslit þeirra þessi:
Armann—V'ikingur Ó. 1:0
Selfoss—Völsungur 4:j
Þróttur—Reynir A. 4:2
i gærkvöldi áttu Breiöablik og
llaukar aö leika, en fyrir þann
leik er staöan i 2. deild þessi:
Þróttur
Breiöablik
Armann
Selfoss
ilaukar
Reynir A
Völsungur
VTkingur ó
9 7 1 1 20:8 15
8 7 0 1 32:6 14
9 5 2 2 15:8 12
8 12 2 18:11 10
8 3 14 13:14 7
9 3 0 6 11:23 6
9 1 2 6 6:20 4
8 0 0 8 4:29 0
BOÐSKEPPNI
í GOLFI
ÞEIM golfiðkendum, 'frá öllum
klúbbum, sem hafa forgjöf 13 eða
lægri, er boðin þátttaka i hinni ár-
legu AMBASSADOR—M ARL-
BORO boðskeppni, sem haldin er
á Nesvelli hinn 26. júli.
Mótið, sem er 18 holu keppni
með og án forgjaíar, hefst ki. 9
f.h. og kl. 13. e.h.
tslenzk-Ameriska verzlunarfé-
lagið h/f, sér um boðskeppni
þessa. Unglingum undir 18 ára
aldri mun óheimil þátttaka.
Stefáni mistókst
í stanqarstökkinu
og það hafði afdrifaríkar afleiðingar. ísland lenti í 7. og neðsta sæti í sínum
riðli í Evrópukeppninni í tugþraut
SA, sem mestar vonir voru
bundnar við i islenzka tug-
þrautarlandsliðinu, Stefán
Hallgrimsson, brást illilega
meö þvl að fara ekki yfir byrj-
unarhæöina i stangarstökki,
3.70 m, en þaö er hæö, sem>
Valbjörn — tókst ekki aö slá
öldungametið.
hann á yfirleitt létt með aö
stökkva. Fyrir bragöiö lenti
tsland I neösta og 7. sæti I riöli
sinum I Evrópukeppninni, en
heföi að öörum kosti lent I 5.
sæti á undan Spánverjum og
Engiendingum. Sigurvegari I
riölinum varð Austur-Þýzka-
land, sem hlaut samanlagt
22969 stig. í öðru sæti uröu
Frakkar meö 22689 stig. Halda
þessar tvær þjóöir áfram I
keppninni.
t þriðja sæti urðu Belgíu-
menn með 21696. Svisslend-
ingar urðu I fjóröa sæti meö
21310 stig. Spánverjar urðu I
fimmta sæti með 20573 stig og
Englendingar i sjötta sæti meö
20314. i sjöunda og siöasta sæti
urðu tslendingar mcð 19766
slig. Keppnin I riðlinum fór
fram á Spáni.
Af islenzku keppendunum
náði Elias Sveinsson beztum
árangri, 6920 stigum. Stefán
hlaut 6660 stig. Og Hafstcinn
Jóhannsson hlaut 6185 stig.
Valbjörn Þorláksson haföi
möguleika á aö slá „öldunga-
heimsmetiö” I tugþraut, sem
Bandarikjamenn eiga. En
hann átti i erfiðleikum I spjót-
kastinu og náöi aöeins 5904
stigum. Metiö er hins vegar
6600 stig.
STEFAN Hallgrimsson
stökki.
mistókst viö byrjunarhæöina I stangar-