Tíminn - 22.07.1975, Page 20
Þriðjudagur 22. júll 1975.
r '
Nútíma búskapur þarfnast
BHUER
haugsugu
Guöbjörn
Guöjónsson
Heildverzlun Síöumúla
Símar 85694 & 85295
SÍS-FÓIXJK
SUNDAHÖFN
fyrir góöan mai
^ KJÖTIÐNAÐARSTÖÐ SAMBANDSINS
-
Stjórnmálaöngþveitið í Portúgal:
SOSIALISTAR VILJA KOMA
GONCALVES FRÁ VÖLDUM
en hann situr sem fastast
NTB/Reuter-Lissabon. Portú-
galskir sósialistar leggja nú alla
áherzlu á að koma Vasco Gon-
calves forsætisráðherra frá völd-
um. Ráðherrann virðist hins veg-
ar staðráðinn að gegna embætti
áfram.
I gær lýsti Goncalves þeim vilja
sinum, að þegar i stað yrði bund-
inn endi á það stjórnmálaöng-
þveiti, er nú rikir i Portúgal. Þá
sagði hann, að ný rikisstjórn — án
þátttöku stjórnmálamanna —
tæki liklegast við völdum i viku-
lok.
Francisco Costa Gomes forseti
hvarf i gær af fundi Byltingar-
ráðsins, meðán það ræddi stjórn-
málaástandið i landinu. Ástæðan
var sú, að forsetinn hafði boðað
Mario Soares, leiðtoga sósialista,
og Antonio Cardoso, leiðtoga
þeirra á stjórnlagaþinginu, til á-
ríðandi fundar, Ekki er ljóst,
hvað þeim fór á milli.
Geimferð Bandaríkjamanna og
Sovétmanna:
Soyuz lenti mjúklega
NTB-Moskvu. Mikið rykský
þyrlaðist upp af steppunum i
Kazakhistan, er Soyuz 19 lenti
mjúklega — eftir sögulega
ferð.
Geimfararnir — Alexei Leo-
nov og Valery Kubasov —
lýstu þvi yfir að lendingu lok-
inni, að þeim liði i alla staði
vel.
Milljónir sjónvarpsáhorf-
enda innan Sovétrikjanna sem
utan fylgdust með lendingu
Soyuzar i gær. Bandarisku
geimfararnir — sem enn
hringsóla umhverfis jörðu —
sendu sovézkum kollegumsin-
um heillaskeyti i tilefni dags-
ins. (Apollo á að lenda á
fimmtudag á Kyrrahafi).
Öryggismólaróðstefna Evrópu:
Uppkastið loks tilbúið
Indverska þingið fjallar um um-
deilda ákvörðun Indlandsstjórnar:
Líklega staðfest í dag
NTB-Genf t gær var lögð siðasta
hönd á uppkastið að ályktun
þeirr.i, er Evrópulciðtogar eiga að
skrifa undir á fundinum i Helsinki
— fundinum, er markar lok
öryggismálaráðstefnu Evrópu.
t gær var strax byrjað að
prenta uppkastið, sem er alls 30
þúsund orð. Leggja verður bók-
staflega nótt við dag, til að það
verði tilbúið til undirskriftar þann
30. júli nk.
Reuter-Nýju Delhi. Indlands-
stjórn hefur nú lagt fyrir ind-
verska þingið til staðfestingar þá
ákvörðun sina að lýsa yfir neyð-
arástandi i landinu. Búizt er við,
að þingið veiti stjórninni form-
Skýrsla OECD:
Atvinnuleysi helzt óbreytt
— verðbólga minnkar —
framleiðsla eykst lítillega
lega heimild til þess i dag að
stjórna með tilákipunum,—ef þörf
krefur — næsta ár.
Þingræðisvenjur voru ekki i há-
vegum hafðar, þegar þingið kom
saman i gær til viku þinghalds.
Kongress-flokkurinn — flokkur
Indiru Gandhi — hefur hreinan
meirihluta i báðum deildum
þingsins og beitti flokkurinn þeim
meirihluta, til að fá samþykkta
tillögu þess efnis, að þá viku, er
þing stendur, skuli aðeins ræða
mikilvæg stjórnarfrumvörp. Með
þvi móti falla allar fyrirspurnir
frá einstökum þingmönnum nið-
ur, svo og önnur málaleitan af
þeirra hálfu. (Handtökur fjölda
stjórnarandstöðuþingmanna ber
þvi ekki á góma — að sinni).
Stjórnarandstæðingum tókst að
koma i veg fyrir —meðmálþófi,að
Gandhi: Þingræðisvenjur ekki I
hávegum hafðar.
neðri deild þingsins legði blessun
sina yfir ákvörðun stjórnarinnar
þegar i gær. En fréttaskýrendur i
Nýju Delhi álita, að bæði neðri og
efri deild þingsins staðfesti á-
kvörðunina i dag.
NTB-Brussel. Skýrsla Efnahags-
og framfarastofnunarinnar
(OECD) fyrir fyrri hluta árs 1975
er komin út. 1 skýrslunni er að
finna mikinn fróðleik um stöðu al-
þjóða efnahagsmála, svo og efna-
hagsútlit I heiminum I dag.
1 skýrslunni er áætlað, að at-
vinnuleysi i vestrænum iðnrikjum
haldizt — I bezta lagi—óbreytt á
næsta ári. En allt eins getur ver-
ið, að atvinnuleysingjum f j ölgi á
næstunni.
OECD spáir óverulegri fram-
leiðsluaukningu i aðildarrikjum
stofnunarinnar — samfara
nokkru minni verðbólgu. I þessu
sambandi er rétt að athuga, að á
fyrstu þremur mánuðum þessa
árs dróst iðnframleiðsla saman
um 20% i Japan, 10—15% i Banda-
rikjunum, Frakklandi, Italiu og
Vestur-Þýzkalandi og 5% i Bret-
landi.
Efnahagsörðugleikar siðustu
mánaða hafa hægt á verðbólg-
unni. Á siðustu sex mánuðum
(desember 1974 — mai 1975)
hækkaði verðlagið i aðildarrikj-
KRFFIÐ
frá Brasiliu
um OECDum 10% að meðaltali —
boriðsaman við 15% á sama tima
I fyrra. Búizt er við, að verðbólga
verði að meðaltali 8% (á árs-
grundvelli) á þessu ári.
Þá er áætlað, að viðskiptajöfn-
uður OECD-rikjanna gagnvart
umheiminum haldi áfram að vera
óhagstæður — verði m.a.s. enn ó-
hagstæðari á næstunni. Ástæð-
urnar eru einkum tvær: 1 fyrsta
lagi auka iðnrikin (sem flest eru i
OECD) nú innflutning frá þróun-
arrikjunum, m.a. til ,,að fylla
tóma lagera” — og i öðru lagi
benda likur til! að þróunarrikin
dragi heldur úr innflutningi.
Sérfræðingar OECD benda loks
á, að i spám sinum reikni þeir
með svo til óbreyttu verði á oliu.
Fari aftur á móti svo, að oliuverð
hækki verulega, verður slikt til
þess að verðbólga eykst að nýju.
FORD HEIMSÆKIR
4 EVRÓPULÖND
— á leið sinni til og frá Helsinki, þar
sem Kann situr fund Evrópuleiðtoga
Reuter-Washington. Tilkynnt var
i Hvlta húsinu I gær, að Gerald
Ford Bandarikjaforseti færi I tiu
daga heimsókn til Evrópu þann
26. júli nk. Áður hafði verið til-
kynnt, að hann ætlaði að sækja
fund Evrópulciðtoga, er hefst i
Heisinki þann 30. júli.
A leið sinni til og frá Helsinki
mun Ford koma við i fjórum lönd-
um: Vestur-Þýzkalandi, Pól-
landi, Rúmeniu og Júgóslaviu.
Talsmaður vestur-þýzku stjórn-
arinnar i Bonn sagði i gær, að
aðalumræðuefnið á fundi Fords
og Helmut Schmidts kanslara
yrði efnahags- og gjaldeyrismál.
Athyglisvert er, að Ford sækir
heim þrjú austantjaldslönd i
Evrópuförinni.^Af þeim hafa að
undanförnu tvo — Júgóslavia og
Rúmenía — fylgt sjálfstæðri ut-
anrikisstefnu, nánast óháðri
stefnu Sovétrikjanna.
Schmidt og Ford: Ræðast viö dagana 26.-28. júií — aðaliega um efna-
hags- og gjaldeyrismál.
ÓDÝRAR
Spánarferðir
Féröamiðstööin hf.
Aðalstræti 9 Símar 11 255 og 12940