Fréttablaðið - 18.03.2005, Síða 4
KAUP
Gengisvísitala krónunnar
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
USD
GBP
EUR
DKK
NOK
SEK
JPY
XDR
58,31 58,59
112,26 112,80
77,97 78,41
10,47 10,53
9,57 9,63
8,57 8,62
0,56 0,56
89,60 90,14
GENGI GJALDMIÐLA 17.03.2005
GENGIÐ
Heimild: Seðlabanki Íslands
SALA
106,55 -0,42%
4 18. mars 2005 FÖSTUDAGUR
Félagsmálaráðherra hefur kynnt niðurstöðu tekjustofnanefndar á Alþingi:
Sveitarfélögin vildu tveimur milljörðum meira
TEKJUSTOFNANEFND Tekjur sveitar-
félaganna aukast um rúmlega 1,5
milljarða króna á ári samkvæmt
tillögum tekjustofnanefndar. Árni
Magnússon félagsmálaráðherra
sagði á Alþingi í gær að á tímabil-
inu frá 2005 til 2008 næmi tekju-
aukningin alls 9,5 milljörðum
króna.
„Auraleikur,“ segir Lúðvík
Geirsson, einn þriggja fulltrúa
sveitarfélaganna í tekjustofna-
nefnd sem skiluðu séráliti vegna
niðurstöðu nefndarinnar. „Árni tín-
ir saman alla aura, meðal annars þá
sem fara í sameiningarferli sveit-
arfélaga. Niðurstaða tekjustofna-
nefndar er í raun og veru fjárhæð
sem nemur um og yfir fjórum
milljörðum til ársins 2008,“ segir
Lúðvík og nefnir því til samanburð-
ar að árlegur halli sveitarfélag-
anna sé um 3,5 milljarðar króna.
Það sé sú upphæð sem hafi verið
lágmarkskrafa sveitarfélaganna
þegar samningar í tekjustofna-
nefnd hófust. Tveimur milljörðum
muni því á því sem þau vildu fá og
því sem þau fá samkvæmt tillögum
tekjustofnanefndar.
Snarpar umræður urðu um nið-
urstöðu nefndarinnar á Alþingi í
gær. Kristján L. Möller í Samfylk-
ingunni sagði tillögurnar klúður. Siv
Friðleifsdóttir, formaður félags-
málanefndar, benti stjórnarandstöð-
unni á að féð sem rynni til sveitar-
stjórna yrði ekki til í ráðuneytunum
heldur væri um skattgreiðslur
borgaranna að ræða. - gag
LOÐNUVERTÍÐINNI LOKIÐ
Botninn datt úr loðnuveiðum landans í fyrradag
og hefur vart fundist tangur né tetur síðan.
Síldarvinnslan:
Loðnuver-
tíðin á enda
SJÁVARÚTVEGUR „Auðvitað hefur
komið fyrir að loðna hafi veiðst vel
fram í apríl en mig grunar að veið-
unum sé lokið að þessu sinni,“ segir
Björgólfur Jóhannsson, forstjóri
Síldarvinnslunnar í Neskaupstað.
Flestir útgerðarmenn virðast sam-
mála um að botninn sé dottinn úr
loðnuveiðum að þessu sinni.
Björgólfur segist þó ánægður
með að meira hafi veiðst á þessu ári
en á hinu síðasta. „Það er bót í máli
að meira er komið að landi nú og
vertíðin sem slík ekki verið slæm
en ég verð hissa ef það veiðist
meira en orðið er.“ - aöe
Uppgjör hjá VÍS:
Hagnaður
2,5 milljarðar
VIÐSKIPTI Hagnaður Vátrygginga-
félags Íslands í fyrra nam 2,5
milljörðum króna, sem er met-
hagnaður hjá félaginu. Þetta er
tæplega sjötíu prósentum meiri
hagnaður en árið 2003 þegar
félagið skilaði ríflega 1,5 millj-
örðum í hagnað.
Aðalfundur félagsins var hald-
inn í gær og þar var samþykkt að
greiða hundrað prósenta arð, alls
650 milljónir króna.
VÍS var afskráð úr Kauphöll
Íslands í lok síðasta árs. Nú er
félagið í eigu tíu hluthafa.
Á fundinum var kjörin ný
stjórn fyrirtækisins og tóku
þrír nýir menn sæti í stjórninni.
Þeir eru Hreiðar Már Sigurðs-
son, forstjóri KB banka, Erlend-
ur Hjaltason, framkvæmda-
stjóri Meiðs, og Lýður Guð-
mundsson, framkvæmdastjóri
Bakkavarar. - þk
ESA kvartar:
Umdeildum
lögum breytt
HAPPDRÆTTI Dómsmálaráðherra
skoðar að afnema einkaleyfi
Happdrætti Háskóla Íslands til
peningaverðlauna. Hann hefur
kynnt ríkisstjórninni hugmynd-
ir sínar um heildarendurskoðun
á reglum um happdrætti og
hlutaveltur.
Endurskoðun reglnanna kem-
ur í kjölfar kvörtunar ESA,
eftirlitsstofnunar EFTA, sem
telur einkaleyfi Happdrætti Há-
skólans brjóta í bága við reglur
Evrópska efnahagssvæðisins.
Happdrætti Háskólans hefur
greitt um eitt hundrað milljónir
síðustu ár fyrir einkaleyfið sem
það hefur haft í 79 ár.
- gag
Milljarðar í svartri veltu
Veltan í neðanjarðarhagkerfi veitingageirans nemur milljörðum króna.
Formaður Matvís telur að 60-70 prósent starfsmanna á veitingastöðum við
Laugaveg vinni svart. Matvís ætlar í átak gegn svartri atvinnustarfsemi.
VINNUMARKAÐURINN Veltan í
neðanjarðarhagkerfi veitinga-
geirans nemur milljörðum króna
og er tap samfélagsins því gífur-
legt. Þetta er álit Níelsar Sigurð-
ar Olgeirssonar, formanns Mat-
vís, sem segir að þetta hafi lengi
verið gríðarlegt vandamál, ekk-
ert síður hér á landi en á hinum
Norðurlöndunum.
Hann telur að 60-70 prósent
starfsmanna á veitingastöðunum
við Laugaveginn hafi ekki tilskil-
in leyfi eða séu á skrá. Bæði séu
það útlendingar sem hjálpi til við
uppvask og fleiri ófaglærð störf
á veitingastöðunum en einnig sé
mikið um að Íslendingar vinni
svart. „Ég sé og veit að mínir
félagar fá ekki vinnu ef á að gefa
alla vinnu upp. En það þarf tvo til
í öllum tilvikum. Ég sé í gegnum
félagsgjöldin að það eru margir á
lágmarkstaxtanum en það er
langur vegur frá að það sé raun-
in. Í þessum geira vinna menn
mikið og lítið sem ekkert er gefið
upp af þessari vinnu,“ segir
hann.
Matvís ætlar í átak gegn ólög-
legum vinnukröftum og svartri
atvinnustarfsemi og hefur óskað
eftir samstarfi við Eflingu og
Samtök ferðaþjónustunnar. Níels
segir að þetta sé sameiginlegt
vandamál og margir sem vinni á
veitingastöðunum, til dæmis við
uppvask, þurfi atvinnuleyfi og
eigi að vera í Eflingu.
„Við höfum beðið um fund til
að fara yfir það hvað við getum
gert. Stór hluti af starfseminni
fer fram neðanjarðar og er því
ekki uppi á borðinu. Við höfum
annað slagið fengið lista yfir fólk
sem er grunað um að vinna svart
en það er lokað alls staðar á upp-
lýsingastreymi þannig að við
höfum ekki getað fengið upplýs-
ingar, til dæmis frá skattinum,“
segir hann.
Á næstunni verður stefnan
mótuð, kortlagt hvað hægt sé að
gera og ákveðið hvað verður
gert. Til greina kemur að ráða
mann í eftirlit með veitingastöð-
unum en helst vill Níels komast
hjá því. Best sé að fara í mark-
aðssetningu og sjá svo á tölunum
að mikið hafi áunnist.
ghs@frettabladid.is
SVÖRT VINNA Á VEITINGASTÖÐUNUM
Svört vinna er algeng á veitingastöðunum og telur formaður Matvís að 60-70 prósent
starfsmanna á veitingastöðunum við Laugaveginn séu án tilskilinna leyfa. Myndin er ekki
tekin á veitingastað hérlendis.
NÍELS SIGURÐUR OLGEIRSSON
Formaður Matvís segir að í veitinga-
geiranum vinni menn mikið og gefi
ekki alla vinnuna upp. En það þurfi tvo
til í öllum tilvikum.
Stjórnarskrármál:
Málskotsrétt-
urinn haldi sér
STJÓRNSKIPUNARMÁL Í tilefni af því
starfi sem nú er hafið á vegum
stjórnvalda að endurskoðun stjórn-
arskrár lýðveldisins hefur Þjóðar-
hreyfingin – með lýðræði sent frá
sér yfirlýsingu, þar sem tíunduð eru
þau mál sem að mati hreyfingarinn-
ar er mikilvægast að hugað verði að
í þessu sambandi.
Mesta áherslu leggur Þjóðar-
hreyfingin á að þjóðin „njóti áfram
þess málskotsréttar, sem þjóðkjör-
inn forseti fer með samkvæmt 26.
grein stjórnarskrárinnar“ og að sá
réttur verði jafnframt betur tryggð-
ur framvegis. -aa
TILLÖGUR TEKJUSTOFNANEFNDAR:
- Jöfnunarsjóður sveitarfélaga fær 2,1 milljarð
- Ríkið greiðir 1,2 milljarða í fasteignaskatt
- Framlög í varasjóð húsnæðismála aukast um
840 milljónir
- 600 milljónir fara í fráveitumál
- 600 milljónir í breytingar á dagsgreiðslum
fasteignaskatts
Samtals: 5.340 milljónir króna til ársins 2008.
Um 4.215 milljónir króna verða að auki lagð-
ar til vegna lagabreytinga og annarra ástæðna
Heimild: Fjármálaráðuneytið
ÁRNI MAGNÚSSON Á ALÞINGI
Menn eru ekki á einu máli um hvort
niðurstaða tekjustofnanefndar sé
viðunandi eða ekki. Sveitarfélögin fá 1,5
milljarða árlega til ársins 2008.