Fréttablaðið - 18.03.2005, Side 32

Fréttablaðið - 18.03.2005, Side 32
4 ■■■ { FERMINGAR } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■  Bauðstu öllum sem þú ætlaðir að bjóða? Það er ekkert að því að hringja í fólkið sem gleymdist.  Athugaðu stöðuna á blómavösum á heimilinu. Er nóg til?  Hvar á að setja gjafirnar?  Áttu nóg af bollum, glösum, hnífapörum, diskum, fötum, spöð- um?  Veit fermingarbarnið af hverju það er að fermast?  Er búið að skrautskrifa í gesta- bókina?  Hver ætlar að gæta barna sem eru of ung til að hægt sé að hafa þau með í kirkj- unni?  Á öll fjölskyldan hrein og straujuð spariföt fyrir daginn?  Er búið að útnefna ljósmynd- ara til að festa atburðinn á spjöld fjölskyldu- sögunnar?  Hvar á að geyma yfirhafnir?  Er búið að útnefna skrásetjara gjafa (gjarna yngra systkini eða frændfólk)?  Er búið að panta köku?  Hver ætlar að sækja hana?  Er nóg pláss í ísskápnum fyrir veitingar?  En í eldhúsinu?  Er búið að hugsa út í borð- skreytingar? Servíettur? Kerti?  Er nóg af stólum?  En borðum sem hægt er að borða við?  Hvar eiga gestir á barnsaldri að vera þannig að þeir skemmti sér en trufli ekki hina full- orðnu?  Hvar verða gæludýrin? Vinkonurnar Sigrún Sesselja Berg- þórsdóttir og Gígja Hilmarsdóttur fermast saman í Fríkirkjunni í Hafnarfirði 15. maí. Af því tilefni hitti blaðamaður þær vinkonurnar heima hjá Gígju í miðbæ Hafnar- fjarðar og mæður þeirra, þær Helga Guðlaug Einarsdóttir kennari, mamma Sigrúnar, og Sóley Elías- dóttir leikkona, mamma Gígju, sem einnig eru vinkonur eru líka við- loðandi spjallið að hluta. Sigrún og Gígja hafa verið í fermingarfræðslu í vetur og hafa líka mætt í messur. Þær segja að rætt hafi verið um lífið og tilveruna í fermingarfræðslunni, til dæmis hafi komið hjúkrunarfræðingur og frætt þau um alnæmi. Fermingar- barnahópurinn styrkti líka ind- verskan dreng til náms við góðar undirtektir. „Það gáfu allir peninga í þetta,“ segir Gígja. Stelpurnar eru báðar farnar að undirbúa ferminguna heima fyrir. Sigrún er búin að fá fötin, fallegan hvítan kjól og forláta kúrekastígvél. Gígja er ekki búin að fá sér fötin enn þá en segist samt vera búin að ákveða hvernig þau eiga að vera. „Ég ætla að fermast í kúrekastígvél- um, ég er alla vega búin að ákveða það,“ segir hún. Ekki stendur á svari þegar stelp- urnar eru spurðar hvað þeim finnist skemmtilegast við fermingarundir- búninginn. „Kaupa fötin og skipu- leggja veisluna, skrautið og matinn,“ segir Sigrún. „Það er skemmtilegast að fá föt,“ segir Gígja. Þær hafa miklar skoðanir á matnum í veislunni. Gígja ætlar að hafa hádegismat og Sigrún ætlar líka að hafa mat. „Samt verður ör- ugglega hellingur af kökum,“ segir hún og Gígja tekur undir: „Ég vil bara ekki hafa snittur og ekki lúðusalat. Ég vil bara hafa það sem mér finnst gott.“ Sigrún segir að ekki sé búið að ákveða hvort fermingarveislan hennar verði heima eða í sal. Hana langi meira að vera í sal en mamma hennar vilji hafa fermingarveisluna heima. Hins vegar er ákveðið að fermingarveisla Gígju verði haldin heima og þannig vill hún hafa það sjálf. „Mér finnst skemmtilegra í þannig veislum,“ segir Gígja. Á mæðrunum er að heyra að þeim finnist mesta stemmningin vera að halda fermingarveislu heima, að undirbúa heimilið undir að taka á móti mörgum gestum og líka að standa sjálfur að veitingum með góðri aðstoð fjölskyldu og vina. Þær Helga og Sóley ætla til dæmis að hjálpast að með ákveðna hluti þannig að hvor um sig útbúi veit- ingar fyrir báðar veislurnar. „Ég vil bjóða meira en hundrað manns en mamma vill minnka þetta,“ segir Sigrún og kímir og Gígja segir að það verði frekar fjölmennt hjá sér en örugglega ekki hundrað manns. Stelpurnar eru sammála um að peningar séu góðar fermingargjafir og greinir þar nokkuð á við mæður sínar sem nefna til sögunnar alls kyns nytsamlega hluti sem sniðugt gæti verið að fá. Þær fallast þó á að orðabækur gætu komið að góðu gagni, sömuleiðis eru þær sammála um að rúm sé góð gjöf en það eigi helst að vera vel stórt. Þeim þykir hins vegar lítið til þess koma að fá svefnpoka, sem veldur furðu bæði mæðra og blaðamanns. Fermingarfræðslunni er lokið og stelpurnar eru spurðar að því hvað þeim finnist standa upp úr eftir veturinn. Enn stendur ekki á svari og nú hjálpast þær að við að segja frá því þeim er niðri fyrir. „Það var þegar okkur var skipt upp í stóra og litla hópa og þau sem voru í litlum hópi fengu margar fullar skálar af poppi en við vorum mjög mörg saman í hóp og fengum eina litla bastskál með pínulitlu poppi og átt- um að skipta því á milli okkar. Það var verið að sýna okkur misskipt- inguna í heiminum.“ Skemmtilegast að velja fötin Um miðjan maí fermast þær Sigrún Sesselja og Gígja í Fríkirkjunni í Hafnarfirði. Þær hlakka til og undirbúningurinn er í fullum gangi. Gígja Hilmarsdóttir og Sigrún Bergþórsdóttir fermast í Fríkirkjunni í Hafnarfirði í maí. Hér eru nokkur atriði sem gætu gleymst. Klippið þennan lista út og hengið á ísskápinn. Krossið svo út eða skrifið athugasemdir eftir því sem við á: Gátlisti fyrir ferminguna „Ég ætla að fermast í kúrekastígvélum, ég er alla vega búin að ákveða það,“ Fjöldi fermingarskeyta var í eina tíð fastur liður á hátíðardegi ferm- ingarbarnsins, og börnin oft tilbúin með þar til gerðar möppur undir skeytin. Enn er nokkuð um að fólk sendi símskeyti, en með nýrri tækni hefur þó heldur dregið úr skeyta- sendingum og kveðjur með tölvu- pósti og SMS-skilaboðum hafa komið í staðinn. Þeir sem vilja senda skeyti upp á gamla mátann geta enn hringt í rit- símann í síma 1446 og sent skeyti þaðan. Ritsíminn býður líka upp á þjónustu á netinu, á siminn.is, og þar er hægt að sjá hvaða myndir eru í boði. Hægt er að velja á milli 26 skeyta og kennir margra grasa. Myndirnar geta verið þjóðlegar, með fallegum landslagsmyndum, íslenska fánanum eða Bessastöð- um, en fyrir þá sem vilja bregða á leik eru skeyti með mynd af „Strák- unum“ skemmtilegur kostur. Skeyti í gegnum ritsímann kostar 730 krónur, en í gegnum netið 830 krónur. Skátarnir bjóða enn upp á skeytasendingar en samkvæmt upplýsingum frá þeim hefur dregið úr notkun þjónustunnar nema úti á landi þar sem hefðin er sterk. Þar er þá hringt í viðkomandi skátafélag, sem sér um þjónustuna. BÍS hefur í nokkur ár boðið til sölu þrjár gerð- ir af skátaskeytum og er um tvenns konar þjónustu að ræða. Hægt er að hafa samband í síma 550-9800 við skrifstofu BÍS, sem sér síðan um að senda skeytið til viðtakanda í pósti. Skeytin eru póstlögð næsta virka dag eftir að þau eru pöntuð. Sending á einu skeyti kostar 700 krónur. Þá er hægt að fara inn á vef Bandalags íslenskra skáta og senda skeytið þaðan. Fallegt að senda skeyti Skeytasendingum hefur fækkað en enn er þó talsvert úrval af fermingarskeytum fyrir þá sem vilja halda í hefðina. Úr mörgum myndum er að velja hjá rit- símanum.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.