Fréttablaðið - 18.03.2005, Blaðsíða 78
42
Leikararnir Guðrún Bjarnadóttir og
Martin Compston hlutu í fyrradag
verðlaun fyrir leik sinn í myndinni
Niceland á kvikmyndahátíðinni
Faces of Love sem haldin var í
Moskvu dagana 8.-16. mars. Leikar-
arnir hlutu The Silver Arrow sem
besta rómantíska parið fyrir leik
sinn.
Friðrik Þór Friðriksson tók við
verðlaununum fyrir hönd Guðrúnar
og Martins. Friðrik Þór leikstýrði
myndinni, sem var byggð á handriti
Huldars Breiðfjörð, en það var Zik-
Zak sem framleiddi myndina.
Besta rómantíska parið í Nicelandi
VERÐLAUN TIL NICELANDS Martin Compston hlaut verðlaun fyrir leik sinn í myndinni
Niceland ásamt Guðrúnu Bjarnadóttur. Á myndinni er Martin ásamt leikkonunni Kerry Fox
sem einnig lék í Niceland.
Draugasetrið á Ströndum hyggst á
næstunni senda galdramann til Afr-
íkuríkisins Malaví að kveða þar nið-
ur drauga.
Bingu wa Mutharika, forseti
Malaví, hefur flúið úr 300 herbergja
höll sinni í höfuðborginni Lilongwe
af ótta við draugagang og kemur nú
helst ekki í höllina til að vinna nema
í björtu.
Starfsfólk Draugasetursins
rakst á frétt um þessa reimleika á
vefsíðu BBC-fréttastofunnar og
sendi þegar í stað tölvuskeyti til
Malaví þar sem galdramaður á
Ströndum bauð fram þjónustu sína.
„Við bíðum ennþá eftir svari. Við
förum ekkert fyrr en við erum bún-
ir að semja um greiðslu,“ segir Sig-
urður Atlason hjá Draugasetrinu,
sem reyndar á frekar erfitt með að
muna nafn forsetans í Malaví og
nefnir hann ýmist Bingó, Bongó eða
Bimbó í stuttu spjalli við blaðamann
Fréttablaðsins.
„En við höfum gríðarlega
reynslu hérna í að kveða niður
hvers kyns drauga, sérstaklega
þessi tiltekni galdramaður.“
Galdramaðurinn hefur verið
afar iðinn við að kveða niður drauga
á Ströndum síðustu misserin.
Svo iðinn reyndar að menn eru
farnir að saka hann um að fara
offari.
„Hér fyrir vestan er búið að
kveða niður flesta drauga núorðið,
þannig að það er orðið hálf ein-
manalegt hér um að litast. Þess
vegna langar okkur að taka þessa
útrás og æfa okkur á draugum í öðr-
um ríkjum. Þá getum við haft okkar
til sýnis.“
Þessa dagana er galdramaðurinn
að svipast um eftir réttum náttúru-
efnum sem þarf í galdur af þessu
tagi.
Sumt af því er helst að finna í
fjöru, og hafa menn á Galdrasetrinu
nokkrar áhyggjur af hafísnum sem
gæti gert fjöruferðir dálítið erfiðar.
Galdramaðurinn hefur einnig
svolitlar áhyggjur af því að draug-
arnir í forsetahöllinni í Malaví líkist
sumir hverjir nagdýrum.
Sjálfum er galdramanninum
frekar illa við nagdýr.
„Annars erum við óhræddir að
fást við verkefni af þessu tagi,“ seg-
ir Sigurður, sem hikar þó svolítið
þegar hann er spurður hvort ráða-
menn í Malaví hafi örugglega
húmor fyrir þessu framtaki
Draugasetursins.
„Ég ætla rétt að vona það,“ segir
hann loks. „Annars verðum við bara
að gera okkur ósýnilega, en það
kunnum við nú líka.“ ■
GALDRAMAÐUR Á STRÖNDUM Ætlar að kveða niður drauga í Afríkuríkinu Malaví þar sem forsetinn hefur flúið höll sína vegna reimleika.
GALDRASETRIÐ Á STRÖNDUM: HYGGST SENDA GALDRAMANN TIL MALAVÍ
Draugabani sendur til Afríku
...fær Jónas Kristjánsson fyrir að
setjast aftur í ritstjórastólinn á
DV þar sem hann settist fyrst
fyrir þrjátíu árum.
HRÓSIÐ
Lárétt:
2 verkfæri, 6 tónn, 8 kassi, 9 hrædd, 11 á
fæti, 12 póll, 14 svikull, 16 bardagi, 17 lit-
laus, 18 arinn, 20 til, 21 hluti andlits.
Lóðrétt:
1 kjötkássa, 3 drykkur, 4 eðli, 5 undir-
förul, 7 eiga í útistöðum við, 10 megnaði,
13 sarg, 15 stjórna, 16 ílát, 19 ofn.
Lausn:
Lárétt: 2töng,6as,8lár, 9rög,11tá,12
skaut,14ótrúr, 16at,17grá, 18stó,20
að,21kinn.
Lóðrétt: 1fars,3öl,4náttúra,5grá, 7
sökótti,10gat,13urg,15ráða,16ask,
19ón.
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
[ VEISTU SVARIÐ ]
Svör við spurningum á bls. 8
1
3
2
Paul Wolfowitz.
500.
Tröllabundin.
Er gamli skólinn dottinn út? Karlmenn í dag eru
farnir að láta ganga á eftir sér eins og litlar príma-
donnur. Þeir byrja á því að hita mann upp og
sýna áhuga. Hringja mikið og senda sms-skila-
boð. Það er náttúrulega skilyrði fyrir okkur stelp-
urnar að vera erfiðar til að byrja með. Maður
svarar ekki alltaf sms-unum eða símanum, er
upptekin og lætur ganga svolítið á eftir sér. Þegar
þeir eru orðnir vissir um að áhuginn sé gagn-
kvæmur er það nýjasta nýtt að borga í sömu
mynt og haga sér eins. Þá er víst mest kúl
að svara ekki í símann og senda eins
atkvæðis sms eins og: ok, jebb eða
nóbb. Er þetta alvöru karl-
mennska? Svo ef maður tekur illa í
þetta og hættir að vera í sambandi
þá verða þeir alveg vitlausir, skilja
ekki neitt í neinu og vilja allt fyrir mann gera.
Einn vinur minn var til dæmis heitur fyrir stelpu
sem hann fékk númerið hjá en lét það bíða að
hringja í hana í heilar 2 vikur til að halda örugg-
lega kúlinu og ekki virðast örvæntingarfullur. Svo
þegar honum var virkilega farið að langa að hitta
hana aftur hringdi hann í hana nokkrum sinnum
og fékk aldrei svar. Þá var hann barasta búinn að
missa tækifærið og hún orðin fúl á
móti! Frekar súrt fyrir hann þar sem
hann var ekki með neitt sérstaklega
margar í símaskránni til að hringja í.
Ég er ansi hrædd um að barátta okkar
kvenna fyrir jafnrétti sé farin að skila sér í
þessari mynd. Mér finnst alveg sjálfsagt að
jafnréttið ráði ríkjum. Að við fáum sömu laun og
tækifæri og þeir og að karlmenn fái barneignafrí
og þátttökurétt í kvennahlaupinu. Þetta er samt
einum of langt gengið. Það er svo sjarmerandi
þegar karlmaður opnar fyrir manni hurðina,
býður manni út að borða og fer eftir reglum
gamla skólans. Kaldhæðnin er hins vegar sú að
ef þeir fara of mikið eftir þessum reglum til
dæmis með því að kaupa blóm þegar maður er
rétt að kynnast eða skrifa ljóð þá verður manni
flökurt, maður fær klígju og missir áhugann.
Uppskriftin að því að heilla konu er: mikið af
herramennsku, smá töffaraheit, fullt af næsheit-
um, mjög takmörkuð væmni og láta henni finn-
ast hún vera ótrúlega mikilvæg og ómissandi.
Harmonísering er lykillinn!
REYKJAVÍKURNÆTUR
HARPA PÉTURSDÓTTIR VILL AÐ JAFNRÉTTIÐ RÁÐI RÍKJUM EN...
Nýi skólinn
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
L†
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
R
O
L
26
34
2
0
2/
20
05
» BETRI
SJÓNVARPSDAGSKRÁ
Á FÖSTUDÖGUM