Fréttablaðið - 18.03.2005, Blaðsíða 80
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000
Besti
vinurinn
Léttur öllari
Slímseta
guðanna
Það er ekki einleikið hvað mann-kynið er þróunarfatlað, þótt við
höfum eytt þúsundum ára í að
þróa endalaus kerfi sem eiga að
tryggja réttindi lýðsins. Við höfum
skáldað hugtök eins og lýðræði,
almannaheill, samhjálp, jafnrétti
og hvað það allt heitir, en þegar
upp er staðið erum við á sama stað
og við vorum á þjóðveldisöld,
sama stað og fyrstu hundrað árin
eftir að land byggðist, sama stað
og í norrænni goðafræði, sama
stað og í grískri goðafræði og ef-
laust væri hægt að leita enn aftar.
En þetta dugar.
Í ÖLLUM goðafræðum heimsins
eru guðir sem hafa fátt þarfara að
bardúsa en að ástunda valdníðslu á
dauðlegum mönnum. Skella á
hörmungum eins og uppskeru-
bresti, aflaleysi, farsóttum og
hentisemidauða þegar þeim sýnist.
Umbuna og refsa að eigin geðþótta
og án þess að nokkurt mannlegt afl
fái rönd við reist. Hér á landi urðu
strax til goðorð. Þeir sem voru
ofan á í tilverunni skipuðu sér þar
með í guðatölu og léku sín hlut-
verk samkvæmt því. Og þótt við
eigum elsta Alþingi í heimi er það
bara brandari. Hvað gerðist þar?
JÚ, þegar þjóðin var kristnuð
lagðist eitt erfðagoðið undir feld
og ákvað að þjóðin skyldi kristn-
ast. Dálítið gerræðislegt athæfi.
Svona er þetta enn í dag. Slímseta
ríkisstjórnarinnar hefur rænt hana
raunveruleikaskyni. Meðlimir
hennar virðast halda að þeir séu
ódauðlegir. Þeir setja á nýja skatta
að geðþótta sem valda uppskeru-
bresti í pyngjum lýðsins (nefskatt-
ur), umbuna meðaljónum og van-
hæfum vinum sínum með stöðu-
veitingum (fréttastjóri) og refsa
þeim sem ekki skjalla þá í verkum
sínum (þrælsjóaðir fréttamenn).
Þeir rústa skólakerfinu, sem sést
best á því hversu valbrautum í
framhaldsskólum hefur fækkað á
síðastliðnum áratug, sem og heil-
brigðiskerfinu, sem sést á því
hversu mikið hlutur sjúklinga í
sjúkra- og lyfjakostnaði hefur auk-
ist á sama tíma.
ÍSLAND er eitt af ríkustu löndum
heims. En á kostnað hvers? Þjóðin
verður veikari, þjakaðri og píndari
með hverjum deginum sem líður.
Í þágu hverra vinnur þessi guð?
SÚSÖNNU SVAVARSDÓTTUR
BAKÞANKAR