Fréttablaðið - 18.03.2005, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 18.03.2005, Blaðsíða 8
1Hver verður að öllum líkindum næstibankastjóri Alþjóðabankans? 2Hvað er gert ráð fyrir mörgum nýjumíbúðum við Mýrargötu? 3Hvað heitir ný plata færeysku söng-konunnar Eivarar Pálsdóttur? SVÖRIN ERU Á BLS. 42 VEISTU SVARIÐ? 8 18. mars 2005 FÖSTUDAGUR ALÞINGI Stuðningsmenn skák- meistarans Bobby Fischer áttu fund með allsherjarnefnd Alþing- is í gærmorgun. Þeir lögðu fram upplýsingar um atburðarásina í Japan, viðræður sínar við jap- anska stjórnmála- og embættis- menn og möguleika Fischers á að losna frá Japan. Stuðningsmenn Fischers telja sig hafa sterkar vísbendingar um að Fischer verði sleppt lausum hafi hann íslenskt ríkisfang og honum leyft að fara til Íslands. „Þessar upplýsingar eru ekki staðfestar af stjórnvöldum held- ur er þetta haft eftir samtölum við menn. Nú þurfum við að leggja mat á þessi gögn. Það er spurning hvaða áhrif þau hafa á framvindu málsins,“ segir Bjarni Benediktsson, formaður allsherj- arnefndar, og vill ekkert segja um það hvenær málefni Fischers verði næst tekið fyrir eða líkurn- ar á því að Fischer fái íslenskt ríkisfang. Ákveði allsherjarnefnd að veita Fischer ríkisborgararétt þá segir Bjarni að afgreiðsla málsins taki aðeins örfáa daga. Fischer er nú laus úr einangr- un í innflytjendabúðunum í Jap- an. Hann hringdi til íslenskra vina sinna í gær og sagði að síð- ustu fjórir dagar hefðu verið martröð. - ghs Paul Wolfowitz á að baki langan feril á sviði öryggis- og varnarmála og óhætt er að segja að hann sé einn af haukunum í ríkisstjórn Bush. Fæddur 22. desember 1943. Menntun BS-gráða í stærðfræði frá Cornell-háskóla og doktorsgráða í stjórnmálafræði frá University of Chicago. Starfsferill Á árunum 1970-73 kenndi Wolfowitz við Yale-háskólann og nokkru síðar við Johns Hopkins há- skólann í Washington. 1983 sest hann í stól aðstoðarutanríkisráðherra í mál- efnum A-Asíu og Kyrrahafsríkja. 1986- 1989 gegnir Wolfowitz svo embætti sendiherra Bandaríkjanna í Indónesíu en árin þar á eftir starfar hann í Penta- gon. Frá árinu 2001 hefur Wolfowitz verið aðstoðarlandvarnaráðherra. Skoðanir Paul Wolfowitz er einn helsti hugmyndafræðingur svo- nefndra nýíhaldsmanna (neo- conservatives). Undir lok tíunda ára- tugarins mótaði óformlegur félags- skapur þeirra það sem eftir 11. sept- ember 2001 varð hryggjarstykkið í utanríkisstefnu Bush. Rauði þráður- inn í þeirri stefnu gengur út á að ekki sé nægilegt að halda óvinveittum ríkjum í skefjum með efnahagsþving- unum og slíku heldur sé réttlætan- legt að grípa til árása gegn þeim að fyrra bragði. Írak fékk að kenna á þessari stefnu. Þótt Wolfowitz sé mikill stuðnings- maður Ísraela, enda af gyðingaætt- um, er hann einn fárra nýíhalds- manna sem telja að stofna eigi palestínskt ríki. Ekki eru allir á eitt sáttir um Wolfowitz Tilnefning Paul Wolfowitz í bankastjórastól Alþjóðabankans hefur vakið blendin viðbrögð í heiminum. Leiðtogum Breta og Japana líst vel á manninn en talsmönnum hjálpar- og þróunarstofnana síður. ALÞJÓÐABANKINN Óhætt er að segja að heimsbyggðin skiptist í tvö horn í afstöðu sinni til tilnefn- ingar Paul Wolfowitz í embætti bankastjóra Alþjóðabankans. Þeir sem munu á endanum véla um málið eru þó hlynntir skipan- inni. George W. Bush tilkynnti í fyrradag ákvörðun sína um að til- nefna Paul Wolfowitz aðstoðar- landvarnaráðherra í bankastjóra- embætti Alþjóðabankans. „Wolfo- witz er heiðarlegur og maður sem lætur sér annt um aðra,“ saði forsetinn í samtali við frétamenn. Meginverkefni stofnunarinnar er að ráðast gegn fátækt og byggja upp efnahagslíf þróunar- landanna. Sérsvið Wolfowitz eru hins vegar varnar- og öryggismál. Þegar við bætist að hann var einn helsti skipuleggjandi innrásar- innar í Írak kom engum á óvart að tilnefningin yrði gagnrýnd. Bush upplýsti í gær að hann hefði rætt um tilnefninguna við helstu ráðamenn heimsins, til dæmis Tony Blair, Gerhard Schröder, Jacques Chirac og Junichiro Koizumi, forsætisráð- herra Japans. Í París var stað- fest að tilnefningin „hefði verið meðtekin“ en annars tjáðu ráða- menn sig þar ekki um málið. Koizumi og Jack Straw, utanrík- isráðherra Breta, hafa hins veg- ar báðir lýst yfir ánægju sinni með Wolfowitz. Talsmenn þróunar- og hjálpar- samtaka hafa hins vegar gagn- rýnt tilnefninguna harðlega og jafnvel fordæmt hana. Fjölmiðlar í þriðja heiminum hafa sömu- leiðis látið í ljós tortryggni um að skipan Wolfowitz sé liður í að tryggja viðskipta- og öryggis- hagsmuni Bandaríkja-manna í þróunarlöndunum. Þá hafa fyrrverandi og núverandi starfs- menn Alþjóða-bankans lýst yfir furðu sinni, þar á meðal er Joseph Stiglitz, fyrrverandi bankastjóri og nóbelsverðlaunahafi. Þetta er í annað skiptið á fá- einum vikum sem Bush útnefnir harðlínumann í áhrifastöðu hjá alþjóðastofnun. Á dögunum skip- aði hann John Bolton, fyrrverandi aðstoðarutanríkisráðherra, sem sendiherra Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum. Stjórn bankans tekur lokaá- kvörðun um ráðninguna og þar hafa auðugustu þjóðir heims tögl- in og hagldirnar. Bandaríkjamað- ur situr jafnan í stól bankastjóra Alþjóðabankans á meðan Evrópu- maður veitir Alþjóðagjaldeyris- sjóðnum forstöðu. Bandaríkin beittu neitunarvaldi í fyrra þegar stungið var upp á Þjóðverja sem forstjóra Alþjóðagjaldeyrissjóðs- ins. Gagnrýnendum til huggunar má geta þess að árið 1968 var ekki síður umdeildur maður skip- aður bankastjóri. Það var Robert McNamara, varnarmálaráðherra í ríkisstjórnum John F. Kennedy og Lyndon B. Johnson og helsti arkitekt Víetnamstríðsins. Hann er af mörgum talinn einn farsæl- asti stjórnandi Alþjóðabankans fyrr og síðar. sveinng@frettabladid.is Hæstiréttur: Refsing var þyngd DÓMSMÁL Hæstiréttur þyngdi í gær refsingu síbrotamanns sem dæmdur hafði verið fyrir Héraðs- dómi Reykjavíkur í tveggja ára fangelsi í október síðastliðnum fyrir margvísleg brot. Var það mat dómsins að vegna fyrri saka- ferils væri rétt að bæta sex mán- uðum við dóm héraðsdóms. Maðurinn var sakfelldur í hér- aði fyrir rán, akstur án ökuréttar, ölvunarakstur og að hafa fíkniefni í fórum sínum. Hæstiréttur tók tillit til að um þriðja rán mannsins var að ræða og fannst hæfilegt að dæma viðkomandi í fangelsi í tvö ár og sex mánuði. -aöe HVIÐUR Í VESTMANNAEYJUM Lögregla og björgunarsveitir í Vestmannaeyjum aðstoðuðu fólk við að festa lausamuni þegar verstu vindhviðurnar gengu yfir í gær. Fór vindhraði í 35 vindstig á tímabili en engum varð meint af. FÁIR Á SJÓ Óvenjufá skip voru á sjó í gær. Bræla var sunnanlands og hafís norðanlands og sögðu vaktmenn hjá tilkynningarskyldu skipa að óvenjurólegt væri á vaktinni vegna þessa. Heimdallur um RÚV: Úr kruml- um ríkisins RÍKISÚTVARPIÐ Heimdallur, félag ungra sjálfstæðismanna í Reykja- vík segir að leysa þurfi Ríkis- útvarpið úr „krumlum ríkis- valdsins“ og koma fyrirtækinu á al- mennan markað. Í ályktun sem fé- lagið sendi frá sér í gær segir að nauðsynlegt sé að selja RÚV hið snarasta. „Jafnframt er Heim- dallur andvígur þeim áformum að stofna sameignarfélag um rekst- ur Ríkisútvarpsins. Ástæða þess er sú að ábyrgð ríkisins á rekstrinum mun eftir sem áður vera ótakmörk- uð,“ segir í ályktuninni. „Núverandi fyrirkomulag er með öllu óásættanlegt þar sem brotið er á þeirri grundvallar- reglu að ríkið eigi ekki að vera í samkeppni við einkarekin fyrir- tæki á markaði.“ - sda ■ LÖGREGLUFRÉTTIR ■ KANADA SÆMUNDUR PÁLSSON Sæmundur og fleiri stuðningsmenn Bobby Fischer fóru á fund allsherjarnefndar Al- þingis í gærmorgun og lögðu fram nýjar upplýsingar. Formaður nefndarinnar vill fullvissu fyrir því að þær standist ef Fischer á að fá íslenskan ríkisborgararétt. Paul Wolfowitz: Hugmyndafræðingur haukanna LAGT Á RÁÐIN Paul Wolfowitz og George W. Bush ræddu málin í Hvíta húsinu í fyrradag. Wolfowitz hefur síðastliðin ár verið afar handgenginn forsetanum og mótað mjög utanríkisstefnu hans. M YN D /A P SÝKNAÐIR AF HRYÐJUVERKUM Dómstóll í Kanada hefur sýknað tvo indverska síkha af ákærum um að hafa sprengt upp tvær flugvélar Air India árið 1985 með þeim afleiðingum að 331 fórst. Önnur var á flugvelli í Tókýó, hin á flugi yfir Atlantshafi. Ættingjar fórnarlambanna eru ævareiðir. Stuðningsmenn Bobby Fischer funduðu með allsherjarnefnd: Óvíst hvort Fischer fái ríkisborgararétt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.