Fréttablaðið - 18.03.2005, Blaðsíða 67
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
15 16 17 18 19 20 21
Föstudagur
MARS
■ ■ LEIKIR
19.00 Keflavík og Þróttur mætast í
Reykjaneshöllinni í 2. riðli A-deildar
deildarbikars karla í fótbolta.
19.15 Völsungur og FH mætast í
Boganum í 2. riðli A-deildar
deildarbikars karla í fótbolta.
19.15 Stjarnan og Selfoss mætast
í Ásgarði í 1. deild karla í handbolta.
19.15 Fram og FH mætast í
Framhúsinu í 1. deild karla í
handbolta.
19.15 Afturelding og Grótta/KR
mætast á Varmá í 1. deild karla í
handbolta.
20.30 Höttur og Stjarnan mætast
á Egilsstöðum í úrslitakeppni 1.
deildar karla í körfubolta.
20.30 Valur og Breiðablik mætast
í Valsheimilinu í úrslitakeppni 1.
deildar karla í körfubolta.
21.00 Breiðablik og FH mætast í
Fífunni í A-deild deildarbikars kvenna
í fótbolta.
■ ■ SJÓNVARP
17.15 Þú ert í beinni! á Sýn.
18.00 Upphitun á Skjá einum.
18.15 Olíssport á Sýn.
19.30 Meistaradeildin í fótbolta á
Sýn. Fréttaþáttur um
Meistaradeildina í fótbolta.
20.00 World Series of Poker á
Sýn.
21.30 Barist fyrir gott málefni á
Sýn. Bein útsending frá
hnefaleikaveislu á Broadway.
00.30 NBA-boltinn á Sýn. Bein
útsending frá leik Indiana Pacers og
Los Angeles Lakers í NBA-deildinni
í körfubolta.
FÖSTUDAGUR 18. mars 2005 31
Utah Jazz tapaðisjöunda leik sín-
um í röð þegar liðið
sótti Indiana Pacers
heim í NBA-körfu-
boltanum í fyrrinótt.
Stephen Jackson var
stigahæstur heima-
manna með 28 stig
og lokatölur urðu 103-84. Pacers
berst nú fyrir sæti í úrslitakeppninni
en liðið er sem stendur í sjöunda
sæti Austurdeildarinnar, sextán og
hálfum sigurleik á eftir Miami Heat
sem situr sem fastast í efsta sætinu.
Jacques Villeneuve,ökumaður hjá
Sauber í Formúlu 1
kappakstrinum,
kannast ekki við að
tilraunaökumaðurinn
Anthony Davidson
eigi að taka sæti sitt
í liðinu eftir slakan
árangur í fyrstu keppni tímabilsins
sem fram fór í Melbourne í Ástralíu
fyrir hálfum mánuði síðan. „Hef
ekki lesið það né séð það og er al-
veg sama,“ sagði Villeneuve sem
varð 13. í mark í Melbourne. Næsta
keppni fer fram í Kúala Lúmpúr í
Malasíu um helgina.
Forráðamenn Orlando Magic íNBA-körfuboltanum ákváðu í vik-
unni að reka þjálfarann Johnny
Davis eftir sjötta tapleik liðsins í
röð. Ron Ekker, aðstoðarþjálfari
liðsins, hefur verið ráðinn í hans
stað. „Okkur fannst þörf á nýjum
leiðtoga og nýrri stefnu hjá liðinu,“
sagði John Weisbrod, fram-
kvæmdastjóri Magic.
Ole Gunnar Solskjær, leikmaðurManchester United, er vongóð-
ur um að snúa aftur
á völlinn í haust.
Solskjaer, sem er
32 ára að aldri, hef-
ur ekkert leikið með
United í vetur eftir
aðgerð á hné. Norð-
maðurinn knái full-
yrti að endurhæfing-
in væri á góðri leið.
„Ég finn ekkert til þegar ég skokka
en hins vegar kemur smávægilegur
verkur þegar ég bæti við hraðann,“
sagði Solskjaer.
ÚR ÍÞRÓTTAHEIMINUM
FÓTBOLTI Dregið verður í 8-liða úr-
slitum Meistaradeildar Evrópu í
knattspyrnu í dag en athygli vakti
að Arsenal og Manchester United
duttu út í 16-liða úrslitum á meðan
Chelsea og Liverpool tryggðu sér
áframhaldandi þátttökurétt í
keppninni.
Chelsea var reyndar með bakið
upp við vegg eftir fyrri viðureign
liðsins við Barcelona sem fór 2-1
fyrir Börsungum. Jose Mourinho
og lærisveinar hans voru ekki af
baki dottnir og unnu seinni leikinn
á Stamford Bridge 4-2 og slógu
þar með Barcelona úr leik. Mour-
inho olli töluverðu fjaðrafoki inn-
an UEFA, Knattspyrnusambands
Evrópu, og var kallaður „óvinur
fótboltans“ af Volker Roth, yfir-
manni dómaramála hjá UEFA.
Liverpool vann báða leikina
gegn þýska liðinu Bayer Leverku-
sen 3-1 og samanlagt 6-2. „Það var
ánægjulegt að komast áfram því
við vitum hvað þessi keppni er
mikilvæg aðdáendum liðsins,“
sagði Rafael Benitez, knatt-
spyrnustjóri Liverpool.
Önnur lið í pottinum ásamt
Liverpool og Chelsea eru Bayern
Munchen, Juventus, PSV Eind-
hoven, AC Milan, Lyon og Inter
Milan.
RAFAEL BENITEZ KNATTSPYRNU-
STJÓRI LIVERPOOL Segir árangur liðsins
í Meistaradeildinni mikilvægan fyrir stuðn-
ingsmenn liðsins.
Drátturinn í Meistaradeild Evrópu fer fram í dag og Liverpool er annað enskra liða sem er í pottinum:
Mjög mikilvæg keppni fyrir stuðningsmenn Liverpool