Fréttablaðið - 18.03.2005, Side 30
2 ■■■ { FERMINGAR } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
SÚKKULAÐI/MÖNDLUKAKA
175 g möndluflögur
120 g kakó
90 g hveiti
300 g smjör
440 g sykur
5 egg
Ristið möndlurnar í ofninum.
Setjið möndlur, hveiti og kakó í
blandara í 15 til 20 sekúndur.
Hrærið smjör og sykur þar til létt
og ljóst, bætið eggjum saman við
í skömmtum. Hrærið vel á milli.
Blandið möndlusalla saman við.
Sett í 30 sentímetra form. Bakið
við 175˚C í 35 til 38 mínútur
(miðað við blástursofn).
SÚKKULAÐISMJÖRKREM
175 g suðusúkkulaði
2 eggjahvítur
1 bolli sykur
1/3 bolli vatn
200 g smjör, mjúkt
Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði.
Setjið sykur og vatn í pott, hrærið
þar til sykurinn hefur jafnast
vatninu, ekki hræra eftir það. Lát-
ið krauma við vægan hita í 8 til
12 mínútur, eða þar til sykurmæl-
ir sýnir 120˚C. Þeytið hvíturnar
þar til þær verða hvítar en ekki
stífar. Hellið sírópinu í mjórri
bunu út í hvíturnar og hrærið
stöðugt en hægt á meðan. Þeytið
í 5 til 8 mínútur. Setjið smjörið í
litlum bitum út í og þeytið vel.
Bætið súkkulaðinu að síðustu
saman við. Smyrjið á kökuna og
kælið.
SÚKKULAÐIHJÚPUR
250 g suðusúkkulaði, saxað
1 bolli rjómi
2 msk. pönnukökusíróp
Hitið rjóma og sýróp að suðu,
bætið súkkulaði út í og hjúpið
kökuna.
NÚGGATTERTA
120 g eggjahvíta
50 g sykur
1/4 tsk. kanill
1/4 tsk. vanillusykur
1 msk. sítrónusafi
80 g heslihnetuflögur
20 g hveiti
100 g sykur
Þeytið eggjahvítur og blandið
sykri saman við (50 g) ásamt
kanil, vanillusykri og sítrónuberki.
Þeytið þar til vel stíft. Bætið sykri
(100 g), hveiti og hnetum saman
við með sleikju. Bakið við 170˚C í
um það bil 30 til 35 mínútur.
RJÓMAKREM
500 g rjómi
120 g suðusúkkulaði
40 g núggat
Hitið rjómann að suðu og hellið
yfir saxað súkkulaðið og núggatið.
Látið kólna. Þeytið eins og rjóma.
Smyrjið á milli botnanna.
HJÚPUR
5 eggjarauður
40 g flórsykur
40 g suðusúkkulaði
20 g núggat
1/8 dl matarolía
Bræðið súkkulaði, núggat og mat-
arolíu yfir vatnsbaði. Þeytið
eggjarauður og flórsykur þar til
létt og ljóst. Blandið síðan
súkkulaðiblöndunni saman við
eggjahræruna og hellið yfir efsta
botn tertunnar.
SÆLAN
4 egg
360 g sykur
140 g kókosmjöl
200 g döðlur (brytjaðar)
100 g hveiti
1 tsk. ger
150 g suðusúkkulaði
Egg og sykur þeytt saman, rest
blandað varlega við. Bakað í
tveimur 30 sentímetra formum
við 180˚C í 25 mínútur.
KREM
1/2 l rjómi
4 Pipp súkkulaði (brytjað)
Rjómi þeyttur og Pipp súkkulaði
blandað saman við, sett á milli
botna (þessi kaka er mjög góð
þegar búið er að frysta hana,
jafnvel betri).
KORNFLEKS-MARENS
4 eggjahvítur
460 g sykur
40 g hveiti
2 tsk. lyftiduft
70 g konfleks
Sykur og egg þeytt saman, hveiti,
lyftidufti og kornfleksi blandað
varlega við. Sett á tvo hringi á
smjörpappír. Bakað í 150˚C í 60
mín.
KREM
1/2 l rjómi
4 bananar
Rjómi þeyttur og banani stappað-
ur saman við. Sett á milli botna
degi áður en kakan er á boðstóln-
um.
KRANSAKÖKUTOPPAR
3 eggjahvítur
300 g strásykur
500 g kransakökumassi
Allt hrært lengi saman, um það bil
15 mínútur. Sprautað í toppa á
smjörpappír. Sett inn í 200˚C
heitan ofn, lækkað niður í 160˚C
þegar kökurnar eru settar inn og
bakað í 16 til 20 mínútur (eftir
stærð toppa).
„Ég hlakka auðvitað til fermingar-
innar en það verður ekki mikið til-
stand í kringum þetta. Við erum
fjórir krakkar sem fermumst saman
en alls hafa tólf krakkar verið í
fermingarfræðslunni í vetur. Hinir
ætla að láta ferma sig á Íslandi,“
segir Kristín Björg en hún fermist
þann 15. maí næstkomandi. Séra
Þórir Jökull Þorsteinsson, sendi-
ráðsprestur í Kaupmannahöfn,
fermir krakkana og hefur annast
fermingarfræðsluna í vetur.
Að sögn Kristínar Bjargar eru
fermingarbörnin búsett vítt og
breitt um borgina. Hún þekkti ekk-
ert þeirra áður en segir þau hafa
kynnst ágætlega í fermingarfræðsl-
unni. „Við höfum sótt tíma í hverri
viku í Jónshúsi og það hefur verið
mjög ánægjulegt. Svo hef ég farið
nokkrum sinnum í messu hjá séra
Þóri.“
Kristín Björg á von á góðum
gestum í ferminguna. „Ömmur
mínar og afar í báðar ættir ætla að
koma í ferminguna og svo frænd-
fólk úr föðurfjölskyldunni. Við
erum búin að leigja pínulítinn sal
og ætlum að halda smáveislu fyrir
fjölskyldu og vini. Þetta verður allt
fremur látlaust en vonandi mjög
skemmtilegt. Svo er stefnan að
halda aðra veislu á Íslandi í sumar.
Þá ætla ég að bjóða allri fjölskyld-
unni og vinum og kunningjum á Ís-
landi,“ segir Kristín Björg.
Miklar annir eru í skólanum hjá
Kristínu Björgu og hún er enn ekki
farin að spá í fatnað og hárgreiðslu.
Hún er þó búin að ákveða að vera í
pilsi. Hvað gjafirnar varðar þá seg-
ist hún ekki vera með óskalista á
takteinum. „Ég er ekki með neinn
óskalista – enda skemmtilegast
þegar gjafirnar koma á óvart.“
Heldur veislu í
tveimur löndum
Kristín Björg Björnsdóttir fermist ásamt þremur löndum
sínum í St. Pauls kirkju í Kaupmannahöfn um miðjan maí.
Hún á von á góðum gestum að heiman.
Fáar en fallegar tertur
Álfheiður Pálsdóttir á Te og kaffi er mikill áhugamaður um bakstur og veit nákvæmlega
hvernig hún vill hafa veisluborðið í fermingarveislum.
„Ég skreyti ekki kökur þegar ég er
með veislu. Ég vil frekar að borðið
sé fallega skreytt en kökurnar
fallegar. Ég vil helst hafa þær eins
og þær koma úr forminu. Þá losnar
maður við að vera þreyttur yfir
rjómasprautunni og losnar við
vandræðin þegar eitthvað fer úr-
skeiðis við kökuskreytingar. Það er
miklu minna mál að skreyta borðið
fallega og þá er minna stress fyrir
fermingarveisluna,“ segir Álfheiður.
Álfheiður leggur ríka áherslu á
að gott hráefni sé notað í bakstur-
inn. „Gott hráefni er númer eitt, tvö
og þrjú og ég vil líka að kökur séu
bakaðar of stutt frekar en of lengi.
Ég vil hafa fáar tertur á veisluborð-
inu og hafa þær frekar góðar. Mér
finnst rosalega leiðinlegt að fara í
boð þar sem er yfirhlaðið af kökum.
Þá er ekki hægt að smakka allt og
stundum getur fólk hreinlega misst
matarlystina af öllu úrvalinu,“ segir
Álfheiður, sem hvetur fólk til að
baka langt fram í tímann fyrir
fermingar. „Marga botna er hægt
að baka og frysta langt fram í tím-
ann. Marengsbotn er til dæmis betri
þegar hann er frystur. Síðan eru
botnarnir teknir úr frystinum ein-
um eða tveimur dögum fyrir veislu,
jafnvel sama dag, og skellt ofan á
þá.“
„Annað stórt atriði í sambandi
við tertuveislur er gott kaffi. Það er
ekki nærri því eins gaman að borða
góðar tertur þegar vont kaffi er bor-
ið fram með þeim. Hráefni í kaffinu
þarf líka að vera fyrsta flokks og ég
mæli eindregið með Hátíðarkaffinu
frá Te og kaffi. Það hentar mjög vel
með kökum,“ segir Álfheiður, sem
gæti ekki hugsað sér annað starf en
baksturinn. „Ég er rosalega áhuga-
söm um bakstur enda finnst mér
rosalega gaman að baka. Ég hlakka
til að fara í vinnuna á hverjum
morgni til að baka dýrindis tertur
og þegar ég kem heim þá baka ég.“
Kristín Björg fermist í St. Pauls kirkju í Kaupmannahöfn ásamt þremur öðrum frá Íslandi.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
Álfheiður elskar að baka og hér heldur hún á núggattertu sem er hennar besta terta..