Fréttablaðið


Fréttablaðið - 18.03.2005, Qupperneq 42

Fréttablaðið - 18.03.2005, Qupperneq 42
14 ■■■ { FERMINGAR } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ „Ég fermist af því ég trúi á guð en ég viðurkenni alveg að gjafirnar hafa einhver áhrif. Þær eru þó sannarlega ekki aðalatriði,“ segir Marta, sem þykir fermingarfræðslan skemmtileg og ekki síst að fræðast um konurnar sem fylgdu Jesú. „Þær taka það líka með í Kvennakirkjunni að guð gæti verið kona, sem er hugmynd sem mér líkar vel.“ Marta segist telja sig femínista. „Það hefur gerst smátt og smátt og svo er margt sem má betur fara í jafnréttismálum. Mér finnst til dæmis alveg fáránlegt að konur fái lægri laun en karlar fyrir sömu vinnu. Ég á auðvitað eftir að skoða þessi mál betur og er til dæmis enn ekkert farin að ákveða hvað ég læri í framtíðinni, enda nógur tími til stefnu. Mig langar í augnablikinu að læra dýrafræði, en það kemur allt í ljós.“ Það er enn mánuður í fermingu Mörtu en hún er farin að skipu- leggja daginn ásamt fjölskyldu sinni. „Ég fæ að ráða miklu varð- andi mat og gesti og mig langar að hafa léttar veitingar heima.“ Að- spurð segist hún ekki vita hvort einhver skemmtiatriði verða í veislunni, en hún spilar sjálf á þverflautu og á marga að sem spila á hljóðfæri. „Ég býst að minnsta kosti ekki við að spila sjálf,“ segir hún hlæjandi. Draumafermingargjöfin er iPod sem rúmar mikla tónlist á einum stað. „Mín tónlist er blanda af öllu mögulegu, ég er mikið fyrir góðar klassískar hljómsveitir eins og Bítl- ana og Stones og svo finnst mér líka Quarashi frábærir og allt þar á milli. Það besta við að fermast í Kvennakirkjunni er að fá að ráða einhverju um athöfnina sjálfur. Það eru nokkrir sálmar valdir fyrir okk- ur en svo megum við líka velja tón- list og fá jafnvel einhvern til að syngja í kirkjunni. Ég er ekki búin að ákveða neitt um þetta en finnst samt svo gaman að geta haft eitt- hvað um athöfnina sjálfa að segja.“ Marta segir að flestar vinkonur hennar hafi ákveðið að fermast en þær séu nokkrar sem ekki trúa á guð og fermast ekki. „Þetta er bara val hvers og eins, það kom aldrei annað til greina fyrir mig og ég hlakka mikið til.“ Guð gæti allt eins verið kona Marta Ólafsdóttir er ein af þremur stúlkum sem fermast í Kvennakirkjunni í ár, en hún fermist 16. apríl. Hún hefur alltaf verið ákveðin í að ferm- ast og valdi Kvennakirkjuna af því systir hennar fermdist þar fyrir nokkrum árum og líkaði vel. Í Kvennakirkjunni fermast þrjár stúlkur í ár, en þrátt fyrir nafnið Kvennakirkja eru strákar að sjálf- sögðu velkomnir í kirkjuna. „Þeir mættu gjarnan fermast hér hjá okkur, en hafa ekki enn þekkst boðið,“ segir Auður Eir Vilhjálms- dóttir, prestur Kvennakirkjunnar. Ferming í Kvennakirkjunni er ekki mjög frábrugðin hefðbundn- um fermingum, enda Kvennakirkj- an innan Þjóðkirkjunnar. „Við byggjum auðvitað okkar kirkju á kvennaguðfræði og feminisma og leggjum áherslu á hvað þessar stelpur eru flottar manneskjur. Við fermum líka á laugardögum, sem kemur til af því að við þurfum að fá lánaðar kirkjur til athafnanna. Þetta finnst stelpunum bara skemmtilegt og af því þær eru svo fáar geta þær ráðið meiru um at- höfnina. Í ár fermast þær ein í einu og athöfnin er í samræmi við vilja hverrar og einnar og fjölskyldn- anna.“ Auður Eir með fermingarbörnum sínum í ár, Mörtu, Þorgerði og Erlu. Skraddarasniðnar fermingar Kvennakirkjan fermir í ár þrjár stúlkur sem allar fá að hafa áhrif á sína fermingar- athöfn, enda fermast þær hver í sínu lagi. Strákar eru líka velkomnir í Kvennakirkjuna. Marta Ólafsdóttir fermist í Kvennakirkjunni og er ánægð með að hafa eitthvað um athöfnina sjálfa að segja.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.