Fréttablaðið - 18.03.2005, Síða 59
Ég fyrir mitt leyti
efast um að starfs-
umsókn sem ýkir starfs-
reynslu umsækjandans jafn
augljóslega sé gild.
Ein fjöður verður að hænu
Ráðning Auðuns Georgs Ólafsson-
ar sem fréttastjóra Útvarpsins
hefur vakið upp harðar deilur,
bæði innan Útvarpsins og utan
þess. Enda ekki von á öðru. Fólki
er ekki sama um fréttastofuna,
hvorki innanbúðarmönnum né
utan. Deginum ljósara er að sá um-
sækjandi sem síst er hæfur var
valinn til starfans. Síðan standa
allir og benda hver á annan og
reyna að koma sökinni af sér.
Meirihluti útvarpsráðs og útvarps-
stjóri benda á minnihluta ráðsins
og segja hann geta sjálfum sér um
kennt að hafa ekki bent á annan
kost. Eins og þegar nauðgari kenn-
ir fórnarlambinu um.
Það sem ótrúlegast er í þessu
máli öllu er samt framganga
manna við að verja ráðninguna.
Nú er komið í ljós að reynsla Auð-
uns í fréttamennsku var stórlega
ýkt í umsögn um hann og þá vænt-
anlega einnig í umsókninni. Þar
var hann sagður með 6 ára reynslu
að baki í fréttamennsku. Megnið
af þeim tíma var hann fréttaritari
Bylgjunnar í Danmörku og í Jap-
an. Gaman væri að vita hve mörg-
um fréttum á mánuði hann skilaði
af sér þaðan. Það sem eftir stend-
ur var afleysingavinna á frétta-
stofu Bylgjunnar með námi.
Þá reyna menn að verja ákvarð-
anir sínar með því að vísa til yfir-
burðareynslu Auðuns af stjórnun
og rekstri. Þar hljóta menn að eiga
við mannaforráð og peninga-
stjórnun. Því miður fyrir Auðun og
hans málsvara virðist sú reynsla
vera jafn orðum aukin og reynsla
hans af fjölmiðlum, því í ljós er
komið að hann var sölumaður án
mannaforráða og hefur litla sem
enga reynslu af fyrirtækjarekstri
(sjá Fréttablaðið 16. mars sl.). Ein-
hvern veginn hefur sem sé tekist
að gera þá fjöður sem Auðun gat
skreytt sig með að heilli hænu,
hokinni af reynslu.
Þar sem útvarpsstjóri, Markús
Örn Antonsson, fór ótrúlegum orð-
um um starfsmenn Útvarpsins í
Kastljósþætti laug hann sem sé
blákalt að áhorfendum þegar hann
sagði reynslu Auðuns á þessu sviði
vera mun meiri en nokkurra ann-
arra umsækjenda. Það sama gerði
Pétur Gunnarsson, útvarpsráðs-
maður, á sama vettvangi. Þriðji
maðurinn, Gunnlaugur Sævar
Gunnlaugsson, formaður útvarps-
ráðs, viðhafði sömu lygi í viðtali
við fréttastofu Útvarpsins. Allir
fullyrtu þeir að þeir hefðu full-
vissu fyrir yfirburðareynslu Auð-
uns af rekstri.
Ég fyrir mitt leyti efast um að
starfsumsókn sem ýkir starfs-
reynslu umsækjandans jafn aug-
ljóslega sé gild. Hitt er ekkert
vafamál í mínum huga. Maður sem
sendir slíka umsókn frá sér hefur
hvorki trúverðugleika né heiðar-
leika til að stjórna fréttastofu
Útvarpsins.
Höfundur hefur starfað sem
fréttamaður RÚV í þrettán ár.
(Ekki í hlutastarfi). ■
23FÖSTUDAGUR 18. mars 2005
Að biðjast afsökunar
Fátt lýsir betur hugsunarhætti bresku
ríkisstjórnarinnar en sú yfirlýsing Gord-
ons Brown fjármálaráðherra á dögun-
um að Bretar eigi að „hætta að biðjast
afsökunar“ á því að hafa verið nýlendu-
veldi. Það sem einkum er athugavert við
þessi ummæli er að Bretar hafa aldrei
beðist afsökunar á einu né neinu í sam-
bandi við nýlendustjórn sína.
Sverrir Jakobsson á murinn.is
Þetta er spilling
Á fréttastofu sjónvarps er ráðinn frétta-
stjóri sem er pólitískur vildarvinur æðstu
forystu Sjálfstæðisflokksins. Til endur-
gjalds fær Framsóknarflokkurinn að
ráða fréttastjóra á útvarpið sem er for-
ystu þess flokks þóknanlegur. Þetta er
spilling, og ekkert annað. Það var svo
dapurlegt að sjá útvarpsstjóra koma og
lýsa því bláeygan að auðvitað hefði eng-
inn talað við hann um að ráða Fram-
sóknardrenginn frá Marel. Það glitti í
svarta tungu og stækkandi nef, svo ekki
sé meira sagt.
Össur Skarphéðinsson á ossur.hex-
ia.net
Ber Framsókn ábyrgðina?
Það heyrir orðið til undantekninga ef
ráðningar til RÚV ganga snurðulaust
fyrir sig. Oftar en ekki verður hvellur þar
sem harðri gagnrýni er haldið á lofti
vegna þeirra sem ekki voru ráðnir. Mál
fréttastjórans er núna í brennidepli og
svo um munar. Athygli mína vekur að
spjótin beinast að Framsóknarflokkn-
um. Nokkrir fréttamenn hafa beinlínis
sakað flokkinn í heild sinni um pólitíska
spillingu fyrir ráðningu Auðuns Georgs
Ólafssonar í starf fréttastjóra. Rétt eins
og sá flokkur beri einn alla ábyrgð á
ráðningunnni umdeildu. En er það svo?
Hjálmar Árnason á althingi.is/hjalm-
ara
Ungt fólk og stjórnmál
Hefur ungt fólk almennt áhuga á stjórn-
málum eða stendur minni kynslóð bara
á sama? Ástæðan fyrir þessum vanga-
veltum er að ég sá um daginn innskot
hjá Íslandi í dag þar sem var tekin smá
könnun á því hvort að unga fólkið
þekkti ráðherrana í ríkisstjórninni. Í
huga mínum efaðist ég aldrei um að
það myndu nú allir vita hverjir ráðherr-
arnir okkar væru en það var svo sannar-
lega ekki raunin. Ég komst að þeirri leið-
inlegu staðreynd, fyrir framan sjónvarp-
ið, að það vita bara ekki allir hver Hall-
dór Ásgrímsson er þó svo hann sé for-
sætisráðherra okkar Íslendinga. Ungu
viðmælendurnir vissu eiginlega ekki
hver neinn ráðherrana var né hvað hann
gerði.
Stefanía Sigurðardóttir á deiglan.com
Ánægjulegur dómur
Þann 1. þ.m. kvað Hæstiréttur Banda-
ríkjanna upp dóm í málinu Roper v.
Simmons þar sem rétturinn komst að
þeirri niðurstöðu að áttundi viðauki
bandarísku stjórnarskrárinnar, sem
kveður á um bann við ómannúðlegum
refsingum (cruel and unusual punish-
ment), bannaði aftökur afbrotamanna
sem voru innan við 18 ára þegar þeir
frömdu glæp sinn. Dómur þessi ætti að
vera gleðiefni öllum þeim sem andvígir
eru dauðarefsingum og er undirritaður
svo sannarlega þar á meðal.
Vífill Harðarson á sus.is
ADOLF INGI ERLINGSSON
ÍÞRÓTTAFRÉTTAMAÐUR
UMRÆÐAN
RÁÐNING FRÉTTA-
STJÓRA RÚV
,,
AF NETINU