Fréttablaðið - 01.05.2005, Page 2
2 1. maí 2005 SUNNUDAGUR
Reyna að komast hjá sorpgjaldi:
Urðað fyrir utan Sorpustöð
UMHVERFISMÁL „Við erum að finna
allt mögulegt fyrir utan stöðina
þegar við komum í vinnuna,“
segir Andrés Garðarsson, starfs-
maður Sorpustöðvarinnar í Selja-
hverfi. Þegar hann kom til vinnu
sinnar í fyrradag beið hans þrjú-
hundruð fermetra teppi sem
óprúttnir menn höfðu skilið þar
eftir til að komast hjá útgjöldum.
Þannig spöruðu þeir sér fimmtán-
hundruð krónur en starfsmenn
Sorpu áttu í miklu basli með að
koma teppinu í gám.
Starfsmennirnir eru þó ýmsu
vanir því ekki er óvanalegt að þeir
finni þvottavélar, ísskápa og elda-
vélar fyrir utan stöðina. „Maður
kemur til vinnu með hnút í mag-
anum og spyr bara hvað bíði
manns í dag,“ bætir Andrés við.
Endrum og sinnum kemur það
líka fyrir að viðskiptavinir hreyti
ónotum í starfsmenn og jafnvel
hótunum. Þessu hefur Sorpa
brugðist við með því að bjóða
starfsmönnum sínum upp á nám-
skeið hjá sálfræðingi. „Þetta er
eins konar áfallahjálp,“ segir
Andrés, sem segir viðskiptavini
Sorpu þó almennt góða. „Þetta er
enginn ruslaralýður,“ bætir hann
við og hlær. – jse
STYKTARSÖFNUN „Ég er hvergi
banginn þótt illa hafi farið síðast,“
segir Kjartan Jakob Hauksson,
sem hyggst nú klára siglingu sína
umhverfis landið. Fyrir tveimur
árum gerði hann síðustu tilraun,
sem lauk með brotlendingu í
Rekavík norður af Bolungarvík en
þá hafði hann siglt frá Reykjavík.
Á sjómannadaginn, 5. júní, ætlar
hann að taka upp þráðinn aftur og
leggja af stað frá Bolungarvík,
sigla þrjú þúsund kílómetra leið
til Reykjavíkur og loka þar með
hringnum. Hann áætlar að ferðin
taki sex til átta vikur.
„Nú verð ég á mun hraðskreið-
ari bát sem getur brotið öldurnar
svo ég fái ekki brimið á mig og
brjóti bátinn líkt og gerðist síð-
ast,“ segir kappinn. Einnig er lík-
legt að veðrið muni verða hag-
stæðara að þessu sinni en síðast
hófst ferðin í lok ágúst og var
haustlægðin komin á kreik.
Á meðan á ferðinni stendur mun
Sjálfsbjörg safna fjármagni í svo-
kallaðan Hjálparliðasjóð en félagið
vill vekja athygli á möguleikum
hreyfihamlaðra við þetta tækifæri.
-jse
Fækkað um helming
í hernum á 15 árum
Jafnt og þétt hefur dregið úr umsvifum varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli
undanfarin ár. Hermönnum hefur fækkað um helming á 15 árum og íslensk-
um starfsmönnum um tæp 40 af hundraði.
VARNARLIÐIÐ Hermönnum á Kefla-
víkurflugvelli hefur fækkað um
ríflega helming frá 1990. Þá voru
tæplega 3.300 hermenn hérlendis
en þeir voru um 1.450 í byrjun
þessa árs. Íslenskum starfsmönn-
um varnarliðsins fækkaði um 38
af hundraði á sama tíma, úr 1.086
í 674.
Þrátt fyrir þessa fækkun eru
umsvif varnarliðsins enn veruleg
hérlendis og fjárhagsleg áhrif af
veru þess umtalsverð. Þannig námu
heildargreiðslur til íslenskra aðila
á vegum varnarliðsins árið 2003
samtals tæpum tólf milljörðum
króna á árinu 2003. Að launakostn-
aði frátöldum skiptast greiðslur
fyrir verktöku og kaup á vörum og
þjónustu þannig að fyrirtæki og
stofnanir á Suðurnesjum fengu ríf-
lega tvo og hálfan milljarð í sinn
hlut en fyrirtæki og stofnanir á
höfuðborgarsvæðinu og í öðrum
landshlutum samtals tæpa fimm
milljarða króna. Sjötíu af hundraði
þeirra sem starfa fyrir varnarliðið
eru búsettir á Suðurnesjum.
Nettótekjur íslenska hagkerf-
isins á síðasta ári af viðskiptum
og þjónustu við varnarliðið, áður-
greindir tólf milljarðar, samsvara
einu og hálfu prósenti af vergri
landsframleiðslu en til saman-
burðar námu fjárhagsleg umsvif
varnarliðsins 2,6 prósentum af
vergri landsframleiðslu árið 1990.
Til hliðsjónar kostaði rekstur
varnarliðsins á síðasta ári um 18
milljarða króna; um 250 milljónir
dollara.
Tölur um fjölda hermanna
segja ekki alla söguna um fjölda
þeirra sem hér dvelja í tengslum
við varnarliðið. Þær tölur eru
mun hærri þegar fjölskyldur her-
manna eru reiknaðar með. Heild-
arfjöldi þeirra sem hér dvöldu á
vegum hersins árið 1990 var
þannig um fimm þúsund manns
en var liðlega 3.330 í upphafi
þessa árs. - ssal
Þýskt fyrirtæki:
Íranar fá
upplýsingar
FRANKFURT, AP Þýsku tímaritin Der
Spiegel og Focus sögðu í gær að
þýskt fyrirtæki lægi nú undir
grun um að selja hergögn til Íran.
Der Spiegel segir að fyrirtækið sé
grunað um að hafa allt frá 2002
selt Írönum tækni til að byggja
eldflaugar. Focus segir að fyrir-
tækið heiti Tira, og að sendingar
þess til Íran hafi verið stöðvaðar
af vinveittum njósnurum í Dubai
síðla árs 2004.
Bæði tímaritin segja að tæknin
sem seld var hafi verið notuð til
að byggja upp meðaldrægar eld-
flaugar sem geti borið kjarna-
vopn. Ísrael og ýmsar herstöðvar
Bandaríkjanna eru innan þess
svæðis sem eldflaugarnar ná til. ■
■ SÝRLAND
AFTUR VINIR ÍRAKA Utanríkisráð-
herra Sýrlendinga, Farouk al-
Sharaa, sagði á laugardag að land
sitt væri að endurreisa stjórn-
málasamband við Írak eftir rúm-
lega tveggja áratuga kulda. Sam-
skipti á milli landana tveggja
versnuðu eftir að Sýrlendingar
stilltu sér upp við hlið Írana í
Írak-Íran stríðinu 1980. Stjórn-
málasambandi var slitið árið 1982.
■ LÖGREGLUFRÉTTIR
BÍLVELTA Ökumaður missti stjórn
á bifreið sinni á þjóðveginum rétt
við Ingólfshvol um fimmleytið
síðdegis í gær með þeim afleið-
ingum að bifreiðin fór út af veg-
inum og valt nokkrar veltur. Öku-
maðurinn hlaut höfuðáverka og
var sendur á sjúkrahús í Reykja-
vík til rannsóknar. Bíllinn er
ónýtur, að sögn lögreglunnar á
Selfossi.
TEKIN MEÐ FÍKNIEFNI Þrjú ung-
menni voru tekin með lítilræði af
kannabisefnum í Hveragerði í
fyrrinótt. Voru þau undir áhrif-
um áfengis og fíkniefna og vakti
hegðan þeirra grunsemdir lög-
reglunnar á Selfossi. Þau gistu
fangageymslur lögreglunnar í
fyrrinótt en voru svo yfirheyrð í
gær og sleppt að því loknu.
Óðs manns æði:
Tekinn á 180
UMFERÐARMÁL Lögreglan í Reykja-
vík stöðvaði í fyrrinótt ökumann á
bifhjóli þar sem hann ók á 180 kíló-
metra hraða eftir Kringlumýrar-
braut en þar er leyfilegur hámarks-
hraði 80 kílómetrar á klukkustund.
Hann má búast við ökuleyfissvipt-
ingu og háum sektum.
Lögreglan segir að með þessu
athæfi hafi maðurinn stefnt sjálf-
um sér og samborgurum sínum í
hættu þar sem hann hefði ekki
getað brugðist við neinu óvæntu
frá öðrum ökumönnum og því hafi
þetta verið óðs manns æði. - jse
Holtasmára 1 • 201 Kópavogur
Sími: 5 100 300 • Símbréf: 5 100 309
Netfang: langferdir@langferdir.is
Heimasiða: www.apollo.is
Opnunartímar alla virka daga frá 10:00-17:00
Öll verðdæmi í tvíbýli með öllu!
Nánari upplýsingar á
www.apollo.is
Spánnýir sólarsmellir í júní
- og Kaupmannahöfn í kaupbæti
68.990 kr.
Kanaríeyjar
64.990 kr.
Djerba í Túnis
64.990 kr.
Sharm el Sheikh
í Egyptalndi
draCretsaM
udnuM
!aninusívá
aðref
64.990 kr.
Cesme í Tyrklandi
frá 59.990 kr.
Krít, Kos, Ródos, Samos og
Zakynhtos í Grikklandi
SPURNING DAGSINS
Steinunn, hvenær hefst svo til-
tektin innanhúss?
„Ég er búin að gera hreint fyrir mínum
dyrum.“
Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri tók til
fyrir utan Ráðhúsið á föstudag en þá hófst hreins-
unarátak Reykjavíkurborgar.
Formaður Vinstri grænna:
Átti hlut í átta
fyrirtækjum
STJÓRNMÁL Þingmenn Vinstri
grænna hafa birt lista yfir eignir
sínar. Þrír
þeirra eiga
h l u t a b r é f ;
Steingrímur J.
Sigfússon for-
maður, Jón
B j a r n a s o n ,
N o r ð u r l a n d i
vestra, og Ög-
mundur Jónas-
son, Reykjavík.
Steingrímur
átti hlutabréf í átta fyrirtækjum
um áramót, mest í Hraðfrystistöð
Þórshafnar en líka í Efnalaug Suð-
urlands, Fjallalambi, Seljalaxi, Ís-
landsbanka, Landssímanum, Marel
og Sparisjóði Þórshafnar og ná-
grennis.
Jón átti hlut í Hólalaxi og Stofn-
sjóði Kaupfélags Skagfirðinga og
Ögmundur átti hlut í Landsbankan-
um. - ghs
ANDRÉS GARÐARSSON
Starfsmenn Sorpu finna allt mögu-
legt fyrir utan stöðina þegar þeir
koma til vinnu. Í fyrradag beið þeirra
þetta þrjúhundruð fermetra teppi.
KJARTAN J. HAUKSSON
Kjartan er hvergi banginn og ætlar að klára hringferðina sem hófst fyrir tveimur árum en
fyrri hálfleik lauk með brotlendingu norður af Bolungarvík. Hann fékk í gær nýjan bát til
fararinnar.
Rær í kringum landið í þágu hreyfihamlaðra:
Sjóbrotsmaður klárar túrinn
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N
K
AR
LS
SO
N
HEILDARGREIÐSLUR TIL
ÍSLENSKRA AÐILA VEGNA
VARNARLIÐSINS ÁRIÐ 2003
(í milljörðum króna)
Laun og launatengd gjöld
4.293.591.297
Verklegar framkvæmdir
2.730.713.641
Vörukaup, hiti og rafmagn
1.169.597.679
Þjónustusamningar þar með taldir
við Ratsjárstofnun, lögreglu og tollgæslu
3.018.933.893
Ferðakostnaður og tómstundaiðja
85.359.026
Póstur, pökkun og vöruflutningar
581.852.216
Einkaneysla 1.322.082
Samtals kr. 11.881.369.834
VARNARLIÐIÐ
Verulega hefur fækkað í sveitum
Bandaríkjahers á Keflavíkurflugvelli
undanfarin ár.
STEINGRIMUR J.
SIGFÚSSON.