Fréttablaðið - 01.05.2005, Side 4
4 1. maí 2005 SUNNUDAGUR
Árásir í Kaíró:
Sprengt og skotið á
ferðamannasvæðum
KAÍRÓ, AP Tvennt lést og að
minnsta kosti tíu særðust í gær í
tveim árásum á vinsælum ferða-
mannastöðum í Kaíró í Egypta-
landi. Talið er að hin látnu hafi
bæði verið árásarfólk. Sam-
kvæmt heimildum AP-fréttastof-
unnar er talið að árásirnar séu
tengdar.
Í fyrra tilvikinu stökk maður
fram af brú í miðborg Kaíró með
sprengju innanklæða með þeim
afleiðingum að sprengjumaður-
inn lést og þrír Egyptar og fjórir
ferðamenn særðust; ísraelsk
hjón, sænskur maður og ítölsk
kona. Sár þeirra eru ekki talin
alvarleg.
Að sögn innanríkisráðuneytis-
ins í Egyptalandi var lögreglan
að elta manninn þegar hann
stökk og sprengdi sprengjunna.
Hann var grunaður um aðild að
sprengjuárás á markaði þann 7.
apríl þar sem tveir Frakkar og
Bandaríkjamaður létust.
Um tveimur klukkustundum
síðar hófu tvær konur skothríð í
ferðamannarútu í gamla hluta
borgarinnar. Önnur þeirra lést
og talið er að hin hafi særst
þegar lögreglusveitir skutu á
móti. Tveir Egyptar til viðbótar
særðust í árásinni, en allir ferða-
mennirnir í rútunni eru taldir
heilir á húfi. ■
Utangarðsmenn til
höfuðs leiðindunum
Alls kyns utangarðsframboð lífga upp á annars spennulitla kosninga-
baráttuna fyrir þingkosningarnar í Bretlandi á fimmtudaginn.
BRETLAND, AP Þingkosningar fara
fram í Bretlandi á fimmtudag-
inn. Mörgum hefur þó þótt
skorta á spennu í kosningabar-
áttuna enda benda allar skoðana-
kannanir til að Verkamanna-
flokkur Blairs forsætisráðherra
fái endurnýjað umboð til að
halda um stjórnartaumana þriðja
kjörtímabilið í röð. Þeim til upp-
lyftingar sem þykir svo spennu-
laus kosningabarátta leiðinleg
vill til að upp á hana lífga menn
eins og „gólandi lávarðurinn“
Alan Hope, Biro lávarður og
Kapteinn Beany.
Allt í allt eru um 3.500 manns
í framboði fyrir meira en 100
flokka í 646 kjördæmum Stóra-
Bretlands. Þessir frambjóðendur
spanna allt litróf stjórnmálanna,
frá harðlínukommúnistum til
hægriöfgamanna. Sumir vonast
til að athyglin sem þeir fá sem
frambjóðendur nýtist til að vekja
athygli á einstökum málum, svo
sem Íraksstríðinu eða lögleið-
ingu hassneyslu.
Aðrir eru einfaldlega sérvitr-
ingar: Flokkur herskáu Elvis-
kirkjunnar og Nýi þúsaldar-
baunaflokkurinn eru dæmi um
slík framboð.
„Ég veit að ég mun ekki
sigra,“ segir Alan „gólandi
lávarður“ Hope, glaðsinna leið-
togi Opinbera skrímslis-
hringlandi-brjálæðinga-flokks-
ins (The Official Monster Raving
Loony Party). „Það eina sem ég
vil er að fá kannski fimm til sex
þúsund atkvæði, bara til að koma
hinum flokkunum til að hugsa:
hvað erum við að gera rangt?“
Flokkur Hopes hefur verið
kallaður „guðfaðir“ slíkra sprell-
framboða í Bretlandi enda stofn-
aður fyrir 41 ári. Kosningamottó
hans hefur frá upphafi verið
„Kjósið brjálað; þið vitið að það
er vit í því“. Sporgönguflokkarn-
ir eru nú orðnir margir. Þar á
meðal er Nýi þúsaldar-bauna-
flokkurinn, en fyrir honum fer
Kapteinn Beany, sjálfskipuð
ofurhetja sem baðar sig í bökuð-
um baunum, og Flokkur herskáu
Elvis-kirkjunnar, sem Biro
lávarður, einlægur aðdáandi
rokkkóngsins, fer fyrir. Flokkur
Biros berst meðal annars fyrir
því að bannað verði að auglýsa
ruslfæði í skólum og á sjúkra-
húsum, vegna þess að „Elvis var
fíkinn í ruslfæði og við vitum öll
hvað það gerði honum“. - aa
Bæjarstjórinn í Fjarðabyggð:
Húsin tengd
hitaveitu í júní
HITAVEITA Verið er að leggja hita-
veitu á Eskifirði og verða fyrstu
húsin tengd í júní. „Farið var í
skipulega leit í Fjarðabyggð eftir
sameiningu sveitarfélagsins og er
hitaveitan á Eskifirði niðurstaðan
af því,“ segir Guðmundur Bjarna-
son, bæjarstjóri í Fjarðabyggð.
Leitað er að heitu vatni á Reyð-
arfirði og í Norðfirði en áður voru
firðirnir alltaf taldir köld svæði.
Leitin er lengra komin á Reyðar-
firði; þar hafa fundist „góðar vís-
bendingar“ en ekki er búið að
staðsetja tilraunaholur. - ghs
Eiturlyf á Akureyri:
Með hassið
í hárinu
DÓMSMÁL Maður og kona hlutu á
föstudag dóm í Héraðsdómi Norður-
lands eystra fyrir að hafa í fyrra í
tvígang reynt að smygla lítilræði af
hassi inn í fangelsið á Akureyri.
Fyrst reyndi konan að smygla
efninu í hárinu og svo í bréfum sem
hún kom með í fangelsið. Þá hlaut
maðurinn dóm fyrir að hafa ölvaður
og próflaus endað ökuferð utan veg-
ar. Konan var sektuð um 30 þúsund
krónur en maðurinn dæmdur til
fjögurra mánaða fangelsisvistar.
Þá var maður dæmdur í fjögurra
mánaða fangelsi fyrir tæp tvö
grömm af amfetamíni og 16 e-töflur
sem hann var með á sér inni á
skemmtistaðnum Sjallanum á Akur-
eyri. - óká
■ LÖGREGLUFRÉTTIR
KAUP
Gengisvísitala krónunnar
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
USD
GBP
EUR
DKK
NOK
SEK
JPY
XDR
63,12 63,42
120,7 121,28
81,75 82,21
10,978 11,042
10,033 10,093
8,913 8,965
0,6001 0,6037
95,68 96,26
GENGI GJALDMIÐLA 29.04.2005
GENGIÐ
Heimild: Seðlabanki Íslands
SALA
112,91
Veltur á vegum:
Vagn og velta
SLYS Bílvelta varð á sveitaveginum í
Breiðdal um tíuleytið í gærmorgun.
Að sögn lögreglunar á Fáskrúðsfirði
er vegur þarna mjór og erfiður og
þegar mikil vindkviða skall á bíln-
um valt hann á hliðina. Ökumann og
farþega sakaði ekki og er bíllinn
lítið skemmdur.
Um níuleytið í fyrrakvöld valt
svo tengivagn flutningabíls við
þjóðveginn í grennd við Kirkjubæj-
arklaustur. Lögreglan á Vík fékk
aðstoð frá Björgunarsveit Kirkju-
bæjarklausturs við að koma vagnin-
um aftur á hjól og var því lokið rétt
fyrir miðnætti. - jse
ENDUR Í KEA-HRETINU Á ÓLAFSFIRÐI
Það er trú margra Norðlendinga að það
snjói alltaf þegar KEA heldur vorfund.
Þessar endur voru skelkaðar í hretinu og
virðast því ekki hafa vitað af fundinum.
Snjór fyrir norðan og austan:
Árlegt
KEA-hret
VEÐURFAR „Þetta er bara hið árlega
KEA-hret,“ sagði lögreglan á Ólafs-
firði um snjóinn sem kyngdi niður í
gær. Til frekari útskýringa standa
margir Norðlendingar í þeirri trú
að það snjói alltaf þegar KEA
heldur vorfund sinn. „Ég held þeir
hafi verið að funda í gær og það fór
bara allt á kaf,“ sagði einn viðmæl-
andi Fréttablaðsins fyrir norðan.
Á Austfjörðum lentu nokkrir bíl-
stjórar í vandræðum í snjónum þar
sem flestir voru komnir á sumar-
dekk eins og lög gera ráð fyrir. – jse
„BRJÁLÆÐINGARNIR“
Alan „gólandi lávarður“ Hope ásamt fleiri virkum flokksmönnum The Official Monster
Raving Loony Party.
SKJÓTUM UPP FÁNA
Fáni Opinbera skrímslis-hringlandi-brjál-
æðinga-flokksins, „guðföður“ breskra
sprellframboða.
SPRENGJUMAÐUR LÁTINN
Þau sem létust í árásum í Kaíró í gær voru bæði árásarfólk.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
P
ÓLÆTI Í SUMARBÚSTAÐ Sumarbú-
staðapartí sem tíu ungmenni efndu
til í grennd við Kirkjubæjarklaust-
ur í fyrrinótt fór á verri veg þegar
slagsmál og óspektir upphófust.
Lögreglan á Vík var kölluð á svæð-
ið um klukkan þrjú til að skakka
leikinn og fékk einn partígestanna
að sofa úr sér í fangageymslu. Að
sögn lögreglunnar virðist of mikil
áfengisneysla hafa valdið.