Fréttablaðið - 01.05.2005, Blaðsíða 10
Við kaup KB banka á Sing-
er&Friedlander verður til
banki með eigið fé upp á
200 milljarða og eignir upp
á 2.000 milljarða. KB banki
hefur með yfirtöku og innri
vexti nær tífaldast að
stærð á tveggja ára tíma-
bili. Kaupin í Bretlandi nú
eru enginn endapunktur á
vaxtarskeiði bankans.
Hafliði Helgason fjallar um
vöxtinn og kaupin á S&F.
Fyrir réttum tveimur árum síðan
birti Kaupþing banki uppgjör sitt.
Forstjóri bankans, Hreiðar Már
Sigurðsson, var sáttur við rekstr-
arárangurinn. Hagnaðurinn á
fyrsta ársfjórðungi 2003 nam 800
milljónum og heildareignirnar
228 milljörðum.
Tveimur árum síðar er sami
forstjóri einnig sáttur við upp-
gjör fyrstu þriggja mánaða árs-
ins. Hagnaðurinn er ellefu millj-
arðar og heildareignirnar tæpir
1.700 milljarðar króna. Samhliða
uppgjörinu er upplýst að stjórn
breska bankans Singer&Fried-
lander mæli með yfirtökutilboði
KB banka í breska bankann. Eftir
þá yfirtöku er KB banki um það
bil níu til tíu sinnum stærri en
hann var fyrir tveimur árum.
Eftir innlimun S&F verða heildar
eignir bankans yfir tvö þúsund
milljarðar og eigið fé yfir tvö
hundruð milljarðar króna. Mark-
aðsvirði bankans er yfir 350
milljarðar króna, sem gerir KB
banka sjöunda stærsta banka
Norðurlanda og áttunda stærsta
fjármálafyrirtækið. Þetta eru
miklar breytingar á tveimur
árum og áfram verður stefnt að
vexti.
Með þriðjung í Carnegie
Miðað við kauptilboð KB banka í
S&F er breski bankinn metinn á um
64 milljarða króna, þar af á KB
banki fyrir tæp 20 prósent. Það
væri synd að segja að kaupin nú
kæmu á óvart. Allt frá því að KB
banki keypti tæplega tíu prósenta
hlut í S&F í nóvember 2003 hafa
flestir verið þeirrar skoðunar að
KB banki ætlaði sér að kaupa
breska bankann. Þegar fyrstu
kaupin voru gerð átti S&F 35
prósenta hlut í Carnegie sem var
seldur skömmu eftir kaup KB
banka. Var talið að Svíarnir hefðu
þrýst á um að S&F seldi hlut sinn,
af ótta við að KB banki stefndi að
yfirtöku á Carnegie. Það mun þó
ekki hafa verið meiningin á þeim
tíma, en nú er Burðarás stærsti
hluthafinn í Carnegie. Fyrir réttu
ári jók KB banki hlut sinn í S&F í
tæplega 20 prósent og þeir fáu sem
velkst höfðu í vafa um fyrirætlanir
KB banka voru nú sannfærðir. Yfir
þetta tímabil hafa fjölmargir ís-
lenskir fjárfestar veðjað á yfirtöku
og keypt hlut í breska bankanum.
Burðarás keypti tæplega tíu pró-
senta hlut og varð það til þess að
gengið hækkaði. Margir eru þeirr-
ar skoðunar að kaup Burðaráss
hafi seinkað því að KB banki lét til
skara skríða.
Fleiri stoðir í Bretlandi
Kaupin nú eiga sér langan aðdrag-
anda og að sögn Hreiðars Más eru
þrjú ár síðan byrjað var að skoða
bankann. KB banki hefur átt
menn í stjórn bankans og sam-
vinna verið á milli bankanna. KB
banki gaf sér því góðan tíma í að
kynnast lykilstarfsmönnum bank-
ans. Efti langt tilhugalíf virðast
stjórnendur Singer& Friedlander
una glaðir við að fá nýjan eiganda.
Sigurður Einarsson, stjórnar-
formaður KB banka, og Hreiðar
Már hafa margsinnis lýst mark-
miðum bankans í útrásinni, sem
eru að starfa á sem flestum svið-
um bankastarfsemi í öllum Norð-
urlöndunum og í Bretlandi. Með
kaupunum á Singer er KB banki
búinn að koma upp öflugri starf-
semi á öllum sviðum bankastarf-
semi, nema í verðbréfamiðlun.
Líklegt er að bankinn muni á
næstunni annað hvort kaupa verð-
bréfamiðlun eða stofna sína eigin.
Finnland og Noregur eftir
Sigurður Einarsson hefur lýst því
yfir að bankinn sé nokkuð sáttur
við núverandi starfsemi bankans í
Svíþjóð og Danmörku. Bretland
hefur nú bæst í þann hóp, en
bankinn horfir til þess að bæta
fleiri stoðum við starfsemi sína í
Noregi og Finnlandi. Bankinn
hefur skilgreint Norðurlöndin og
Bretland sem kjarnamarkað sinn,
en á aðalfundi bankans sagði Sig-
urður að horft yrði til tækifæra í
nágrannalöndum kjarnamarkað-
ar. Margir telja líklegt að bankinn
horfi til fjármálafyrirtækja sem
komið hafa upp starfsemi í
Eystrasaltsríkjunum. Íslenskir
fjárfestar eru meðal þeirra sem
fjárfest hafa á þeim slóðum og
norrænir bankar hafa verið að
koma þar upp starfsstöðvum.
Stjórnarformaður bankans hafði í
fyrri ræðum og kynningum á
bankanum látið kjarnamarkaðinn
duga þegar stefnu bankans var
lýst. Í orð hans á aðalfundinum
má því lesa að hann hafi talið
tímabært að opna á fleiri svæði.
Hvergi nærri hættir
Fjármálafyrirtæki í Mið- og Norð-
ur-Evrópu gætu því verið til skoð-
unar í bankanum. Stærð bankans
gerir það að verkum að nú er úr
mun meiri flóru að velja. Kaup á
Singer&Friedlander hefðu verið
stór biti fyrir KB banka fyrir að-
eins nokkrum misserum. Nú er bit-
inn vel viðráðanlegur. KB banki er
orðinn verðmætara fyrirtæki en
Skandia, sem einhvern tímann
hefðu þótt tíðindi. Næsti banki til
að vaxa yfir er bankinn og trygg-
ingafélagið Sampo í Finnlandi.
Sú stefna sem nú er að skila
KB banka í hóp sjö stærstu banka
Norðurlanda var mörkuð fyrir
nokkrum árum. Kaupþing ætlaði
sér þá að verða leiðandi fjárfest-
ingarbanki á Norðurlöndum. Þá
þótti mörgum það harla ólíkleg
framtíðarsýn. Nú er staðan sú að
miðað við hvernig til hefur tekist
síðustu örfá árin er markmiðið
síður en svo fjarlægt og líkurnar á
að staðar verði numið engar. ■
ÞEKKJAST VEL Sigurður Einarsson og samstarfsfólk hans hófu að kynna sér breska bankann Singer&Friedlander fyrir þremur árum. Hann
og Tony Shearer, forstjóri S&F, þekkjast því vel nú þegar stjórn breska bankans hefur mælt með því við hluthafa að þeir taki tilboði KB banka.
10 1. maí 2005 SUNNUDAGUR
vidskipti@frettabladid.is nánar á visir.is
Stærð bankans gerir það að verkum að nú er úr mun meiri flóru að velja. Kaup á Singer&Fried-
lander hefðu verið stór biti fyrir KB banka fyrir aðeins nokkrum misserum. Nú er bitinn vel við-
ráðanlegur. KB banki er orðinn verðmætara fyrirtæki en Skandia, sem einhverntímann hefðu
þótt tíðindi. Næsti banki til að vaxa yfir er bankinn og tryggingafélagið Sampo í Finnlandi.
HELSTU STÆRÐIR SAMEINAÐS BANKA UM ÁRAMÓT 2004
– Í MILLJÖRÐUM KRÓNA*
KB banki Singer & Friedlander Sameinaður banki
Rekstur:
Hreinar vaxtatekjur 18,9 10,7 29,6
Hreinar þóknanatekjur 13,3 4,5 17,8
Rekstrartekjur samtals 48,6 15,6 64,2
Hagnaður 15,8 3,2 19,0
Efnahagur*:
Heildareignir 1675,6 334,8 2010,5
Útlán 1188,6 192,6 1381,2
Innlán 226,1 182,8 408,9
Eigið fé 157,3 43 200,3
Eignir í stýringu 508,0 449 957,0
*Miðað er við áramótauppgjör hjá S&F en uppgjör fyrsta ársfjórðungs hjá KB banka.
YFIRTÖKUR KAUPÞINGS Á
FJÁRMÁLAFYRIRTÆKJUM
2001 Sofi Finnland
2002 JP. Nordiska Svíþjóð
2003 Búnaðarbankinn Ísland
2003 Norvestia Finnland
2004 A Sundvall Noregur
2004 FIH Danmörk
2005 Singer& Friedlander Bretland
Tífaldast á tveimur árum