Fréttablaðið - 01.05.2005, Page 12
Á þessum degi árið 1970 fylktu
Rauðsokkur í skrúðgöngu sem
markaði þar með upphaf kvenna-
baráttunnar hinnar nýju.
Vilborg Dagbjartsdóttir var
einn af brautryðjendum hreyf-
ingarinnar og man vel eftir göng-
unni. „Hugmyndin kviknaði í
aprílbyrjun þetta ár,“ rifjar hún
upp. „Það höfðu borist fréttir frá
Danmörku af hreyfingu sem kall-
aði sig Rauðsokkur. Þær höfðu
gert usla í Kaupmannahöfn. Ég
keypti tímarit þar sem sagt var
frá þessari hreyfingu og sýndi
það ungum konum sem voru að
kenna með mér. Þær töldu að það
gæti orðið gaman að gera eitt-
hvað þessu líkt hér. Þá fékk ég
hugmyndina um að taka þátt í
skrúðgöngunni 1. maí og við töld-
um okkur geta gert verulegt
bimm bamm.“
Vilborg segir að óánægja
meðal kvenna hafi lengi kraumað
undir yfirborðinu og það var ekki
nein tilviljun að þær ákváðu að
minna á réttindi sín hinn 1. maí.
„Við vildum mótmæla því hvern-
ig verkalýðshreyfingin hafði
svikið konur. Verkalýðshreyfing-
in var kynskipt og konur á mun
lægri töxtum en karlar. Giftar
konur voru ekki skattborgarar,
heldur greiddu eiginmenn þeirra
skatt. Það ríkti mikið misrétti og
það var ávallt talað um konur
sem heimavinnandi húsmæður
þótt þær væru á vinnumarkaði.
Það hefði ekki verið hægt að reka
þetta þjóðfélag ef konur hefðu
setið heima.“
Gangan var auglýst í útvarp-
inu og konur hvattar til að mæta
í rauðum sokkum. Viðbrögðin
létu ekki á sér standa og Vilborg
segir það hafa komið sér á óvart
hversu margar konur dreif að. En
það gekk ekki þrautalaust fyrir
sig að fá að þramma með í skrúð-
göngunni. „Nokkrum verkalýðs-
foringjum fannst við vera að
lítilsvirða gönguna með fíflalát-
um og vildu banna okkur að vera
með. Loks samdist okkur um að
við fengjum að reka lestina í
göngunni, sem og við gerðum.“
Í göngunni fylktu femínistar
liði með stóra styttu af Venus í
fararbroddi. Styttuna fengu
rauðsokkur úr Lýsiströtu Aristó-
fanesar sem Brynja Benedikts-
dóttir hafði sett upp fyrr um vet-
urinn í Háskólabíó. Á styttunni
var borði sem á stóð: Manneskja
– ekki markaðsvara. „Þetta vakti
heilmikla athygli og var upphaf
að uppreisn,“ segir Vilborg. „Þó
margt sé enn óunnið vöktum við
rækilega athygli á því að það er
mannréttindabrot að mismuna
fólki eftir kyni.“ ■
12 1. maí 2005 SUNNUDAGUR
JOSEPH HELLER (1923-1999)
fæddist á þessum degi.
TÍMAMÓT: 35 ÁR FRÁ UPPHAFI RAUÐSOKKAHREYFINGARINNAR
Mótmæltum svikum við konur
„Þegar einhver fullyrðir að ég hafi ekki skrif-
að neitt nærri því jafn gott og Catch-22 finnst
mér freistandi að spyrja: Hefur það einhver?“
- Bandaríski rithöfundurinn Joseph Heller er frægastur fyrir bók sína
Catch-22 sem kom út árið 1961. Í enskri tungu er titill bókarinnar
orðinn viðurkennt hugtak yfir að vera á milli steins og sleggju.
timamot@frettabladid.is
ANDLÁT
Jón B. Kristinsson, húsasmíðameistari, Nónvörðu 2, Keflavík, lést fimmtudaginn 28.
apríl.
Snorri Pétursson, Hátúni 10b, lést miðvikudaginn 13. apríl. Útförin fór fram í kyrrþey.
AFMÆLI
Ragnheiður Torfadóttir, fyrrverandi rektor MR, er 69 ára.
Álfheiður Ingadóttir líffræðingur er 54 ára.
Unnur Ólafsdóttir veðurfræðingur er 53 ára.
Ragnheiður Gestsdóttir rithöfundur er 52 ára.
Jón Aðalsteinn Bergsveinsson, blaðamaður og skáld, er 34 ára.
Á þessum degi árið 1941 var kvik-
myndin Citizen Kane eftir Orson
Welles frumsýnd í New York.
Orson Welles fæddist árið 1915 og
ólst upp í Chicago. Faðir hans var
uppfinningamaður og móðir hans
konsertpíanisti. Sjálfur var hann
mikið undrabarn, varð snemma
ljóð- og tónelskur auk þess að
vera góður teiknari. Hann ákvað að
fara ekki í háskóla og ferðaðist
þess í stað um heiminn.
Árið 1931 hóf hann leikferil sinn á
Írlandi. Hann sneri til Bandaríkj-
anna ári síðar en fékk engin hlut-
verk á Broadway. Þá flutti hann til
Spánar og vann meðal annars fyrir
sér sem nautabani. Þegar hann
kom aftur til Banda-
ríkjanna fékk hann
loksins hlutverk í
Rómeó og Júlíu á
Broadway. Árið 1937
stofnaði Welles Merc-
ury-leikhúsið, sem
skyldi einbeita sér að
leikhúsi á sviði og í
útvarpi. Ári síðar flutti
Welles leikritið Innrásin frá Mars í
útvarpi, sem kom honum á spjöld
sögunnar. Flutningur hans þótti
svo raunverulegur að margir hlust-
endur trúðu að geimverur væru í
raun og veru að ráðast á jörðina.
Welles var aðeins 25 ára þegar
hann kvað sér hljóðs á hvíta tjald-
inu. Þá samdi hann, fram-
leiddi, leikstýrði og lék í Cit-
izen Kane. Titilhlutverkið
var byggt á persónu auð-
kýfingsins Williams Rand-
olph Hearst, sem reyndi allt
hvað hann gat til að koma
í veg fyrir sýningu myndar-
innar. Það bar að vissu leyti
árangur því að aðsókn á
myndina var dræm. Citizen Kane
þykir hins vegar marka straum-
hvörf í kvikmyndasögunni hvað
myndatöku og uppbyggingu varðar
og hafði mikil áhrif á yngri kyn-
slóðir kvikmyndagerðarmanna.
Oftar en ekki er hún nefnd til sem
besta kvikmynd fyrr og síðar.
ÚR CITIZEN KANE
ÞETTA GERÐIST MERKISATBURÐIR
1886 Bandarískir verkamenn
hefja verkfall og krefjast
átta stunda vinnudags.
1889 Alþjóðlegur frídagur verka-
manna haldinn hátíðlegur í
fyrsta skipti.
1923 Alþýðusambandið gengst
fyrir hátíðarhöldum og
kröfugöngu í Reykjavík í
fyrsta sinn í tilefni baráttu-
dags verkamanna.
1939 Myndasögurnar um Leður-
blökumanninn koma út í
fyrsta skipti.
1945 Karl Dönitz aðmírall tekur
formlega við völdum í
Þýskalandi í kjölfar andláts
Adolfs Hitler.
1965 Þyrla ferst við Kúagerði,
sunnan Hafnarfjarðar.
Fimm fórust.
1967 Elvis Presley giftist Priscillu.
1997 Tony Blair er kjörinn for-
sætisráðherra Bretlands.
Citizen Kane frumsýnd í New York
VERKALÝÐSDAGURINN 1970 Konur dreif að úr öllum áttum til að taka þátt í göngunni og minna á að það er mannréttindabrot að
mismuna fólki eftir kyni.
VILBORG DAGBJARTSDÓTTIR Taldi sig og sínar geta gert verulegt „bimm bamm“ með mótmælum á verkalýðsdaginn.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
Eiginmaður minn og faðir okkar,
Hjálmar S. Helgason
Holtagerði 84, Kópavogi,
verður jarðsunginn frá Digraneskirkju mánudaginn 2. maí kl. 15.
Þeim sem vilja minnast hans er vinsamlega bent á Hjúkrunarheimilið
Sunnuhlíð.
Kristbjörg Pétursdóttir,
Þórir Hjálmarsson,
Magni Hjálmarsson.
Ástkær fósturfaðir, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Svavar Gíslason
vörubílstjóri, frá Viðey, Traðarlandi 4, Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju mánudaginn 2. maí kl. 15.00.
Ellen Emilsdóttir
Svava Svavarsdóttir
Geir Svavarsson Jóhanna Svavarsdóttir
Jóhannes Svavarsson
Esther Svavarsdóttir Jóhannes Björnsson
afa- og langafabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
Jörundur Kristinsson
skipstjóri, Foldasmára 11, Kópavogi,
sem lést á líknardeild LSH í Kópavogi sunnudaginn 24. apríl sl., verður
jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavík miðvikudaginn 4. maí kl 15.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast
hans er bent á líknarstofnanir.
Auður Waagfjörd Jónsdóttir
Kristinn Jörundsson Steinunn Helgadóttir
Kristín Bára Jörundsdóttir Eiríkur Mikkaelsson
Jón Sævar Jörundsson Rita Sigurgarðsdóttir
Alda Guðrún Jörundsdóttir Jóhann G. Hlöðversson
Anna Sigríður Jörundsdóttir Bjarni Kr. Jóhannsson
Jörundur Jörundsson Áslaug Hreiðarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.