Fréttablaðið - 01.05.2005, Síða 25
7
ATVINNA
Starfsmaður
í grænmetisvinnslu
Hollt og Gott ehf. óskar eftir að ráða starfsmann
til starfa í vinnslu fyrirtækisins í Reykjavík.
Vinnutími er frá kl. 04.00 á morgnana til
kl. 12.00 á hádegi.
Nánari upplýsingar veitir Gunnlaugur Reynisson,
framleiðslustjóri í síma 575-6054.
Icelandair er fyrirtæki í forystu á alþjóðamarkaði í ferðaþjónustu.Við erum í öflugri sókn og
sækjumst eftir einstaklingum til að taka þátt í uppbyggingu okkar á komandi árum.
Markaðsstjórar / Sölustjórar
Vilt þú
markaðssetja
Ísland og vaxa
með okkur?
• Icelandair er kraftmikið ferðaþjónustufyrirtæki sem
tekur þátt í harðri samkeppni á alþjóðamarkaði.
• Icelandair er framsækið fyrirtæki, leiðandi í ferða-
þjónustu á Íslandi, leiðandi í markaðssetningu á
Internetinu og í fremstu röð í þróun upplýsinga-
tækni.
• Starfsmenn Icelandair eru lykillinn að velgengni
félagsins. Hjá Icelandair starfa um þúsund manns
af mörgum þjóðernum í tíu löndum.
• Icelandair leggur áherslu á að starfsmenn félagsins
séu þjónustusinnaðir og tilbúnir að takast á við
krefjandi og spennandi verkefni í alþjóðlegu starfs-
umhverfi.
• Icelandair leggur áherslu á þjálfun starfsmanna
og símenntun, hvetur starfsmenn til heilsuræktar
og styður við félagsstarf starfsmanna.
• Icelandair er reyklaust fyrirtæki.
Við leitum að öflugu fólki sem hefur reynslu af markaðs-
og sölumálum og almennum stjórnunarstörfum til starfa
við stjórnunarstörf á Íslandi og erlendis. Nauðsynlegt er
að umsækjendur hafi fullan vilja og getu til að búa og starfa
erlendis til nokkurra ára.
Starfssvið:
• Ábyrgur fyrir greiningu á sölutölum og markaðsupplýsingum
• Þróa markaðsáætlanir og stýra framkvæmd þeirra
• Útbúa markaðs- og söluskýrslur
• Ábyrgur fyrir Internetsölu og markaðssetningu á Internetinu
• Ábyrgur fyrir markaðssamskiptum við viðskiptavini og
samstarfsaðila
• Starfsmannastjórnun
• Útbúa auglýsingaáætlanir
Hæfniskröfur:
Við leitum eftir kraftmiklum og áhugasömum einstaklingum með
háskólamenntun í markaðs- og sölufræðum. Viðkomandi þurfa að
hafa frumkvæði og brennandi áhuga á að ná góðum árangri í starfi.
Hér er um krefjandi og spennandi störf að ræða í heimi ferðamála
og alþjóðlegrar markaðssetningar. Reynsla í markaðs- og
sölumálum er nauðsynleg.
Mjög góð enskukunnátta er skilyrði.
Hér er um framtíðarstörf að ræða og þurfa við-
komandi að geta hafið störf sem fyrst.
Umsækjendur þurfa að vera reiðubúnir að flytjast
milli starfa og vera tilbúnir að starfa um tíma
erlendis hjá Icelandair.
Skriflegar umsóknir óskast sendar inn á veffangi
Icelandair www.icelandair.is/umsokn
eigi síðar en 9. maí.
Heilbrigðisstofnun Austurlands Egilsstöðum
Geislafræðingur óskast til starfa
Frá 01.06.2005 ( eða eftir nánara samkomu-
lagi ) eru staða geislafræðings við Heilbrigð-
isstofnun Austurlands á Egilsstöðum laus til
umsóknar. Einnig vantar geislafræðing til af-
leysinga yfir sumarmánuðina júní til ágúst.
Stofnunin samanstendur af, 2 deildum;
heilsugæslustöð og sjúkradeild, auk heilsu-
gæslusels á Borgarfirði. Heilsugæslan og
sjúkradeildin eru í sömu byggingu.
Þjónustusvæðið, Egilsstaðalæknishérað, er
víðáttumikið og dreifbýlt.
Fjórðungssjúkrahúsið í Neskaupsstað er í um
einnar klukkustundar akstursfjarlægð og þar
er skurðlæknir, lyflæknir og svæfingalæknir.
Umsóknarfrestur er til 15. maí nk. Laun eru
samkvæmt kjarasamningi geislafræðinga
Frekari upplýsingar veita Pétur Heimisson
yfirlæknir og Þórhallur Harðarson rekstrar-
stjóri í síma 471 1400.
Héraðið og Egilsstaðir.
Í læknishéraðinu voru 1. des 2004 tæplega 3200 manns, þar af
ca. 1700 á Egilsstöðum. Veruleg íbúafjölgun er í héraðinu í
tengslum við nýhafnar virkjunar- og stóriðjuframkvæmdir.
Á Egilsstöðum eru leikskólar, deildaskiptur grunnskóli, mennta-
skóli og háskólasetur er nýtekið til starfa. Aðstaða til íþróttaiðk-
unar er góð, einn fullkomnasti frjálsíþróttavöllur landsins, íþrótta-
hús og ný sundlaug, níu holu golfvöllur og stutt í skíðasvæði.
Hestamennska er vaxandi og metnaðarfull uppbygging nýs
svæðis er lokið. Tónlistar- og menningarlíf er öflugt og mjög
góðir tónskólar á Egilsstöðum og nærsveitum.
Á Egilsstöðum eru þrjú hótel þar af eitt IcelandairHotel, mörg öfl-
ug verslunar- og þjónustufyrirtæki og fer þeim fjölgandi. Fullkom-
inn flugvöllur og 3-5 flugferðir til Reykjavíkur alla daga. Til Seyðis-
fjarðar er 20 mínútna akstur, en þaðan siglir ferjan Norræna til
Norðurlanda. Vegasamgöngur í héraðinu og til nágrannabyggða á
fjörðum eru mjög góðar, enda lega Egilsstaða frábær, í miðju
veganeti Austurlands. Ferðamennska er mikil, bæði á sumrum og
vetrum og býður svæðið uppá ótal möguleika til útivistar og
ferðalaga.