Fréttablaðið - 01.05.2005, Blaðsíða 30
12
ATVINNA
Hjúkrunarfræðingar, sjúkra-
liðar og hjúkrunarnemar
óskast í fastar stöður og til sumarafleysinga
á eftirfarandi deildir á öldrunarsviði:
• Hjúkrunar- og hvíldarinnlagnadeild K-2 Landakoti sem
er deild fyrir aldraða sem bíða eftir langtímaúrræðum á
öldrunarstofnunum og aldraða sem búa í heimahúsum og
þarfnast skammtíma- eða hvíldarinnlagna.
Upplýsingar veitir Guðbjörg Jóna Hermannsdóttir, deildar-
stjóri, í síma 543 9898
• Öldrunarlækningadeild K-1 Landakoti sem er deild fyrir
aldraða sem þarfnast almennrar endurhæfingar annars
vegar og lungnaendurhæfingar hins vegar.
Upplýsingar veitir Ingveldur Haraldsdóttir, deildarstjóri, í
síma 543 9915.
• Öldrunarlækningadeild B-4 í Fossvogi sem er bráða-
öldrunarlækningadeild og þangað koma flestir beint frá
bráðamóttöku eða gæsludeild.
Upplýsingar veitir Sigrún Lind Egilsdóttir, deildarstjóri, í
síma 543 9400.
Vinnutími og starfshlutfall samkomulag.
Umsóknir skulu berast fyrir 15. maí nk. til Hlífar Guð-
mundsdóttur, verkefnastjóra Landakoti, sími 824 5831,
netfang hlifgud@landspitali.is og veitir hún jafnframt
upplýsingar.
Laun samkvæmt gildandi samningi viðkomandi stéttarfélags og
fjármálaráðherra. Umsóknareyðublöð fást í upplýsingum Fossvogi
og Hringbraut, skrifstofu starfsmannamála Eiríksgötu 5, á
heimasíðu www.landspitali.is
Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar í störf á
Landspítala – háskólasjúkrahúsi.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu
hefur verið tekin.
Á Selfossi eru til sölu í samþykktu 8920 m2
deiliskipulagi: 8 einbýlishúsalóðir, ein lóð fyrir 10
bíla geymslu, deiliskipulag lóðar og arkitekta-
teikningar. Lóðirnar eru á bakka Ölfusár í fallegu
hæðóttu umhverfi með góðu útsýni yfir ána og
byggðina. Eitt hús hefur þegar verið byggt og selt.
Lóðirnar verða seldar í einu lagi, ef viðunandi
tilboð fæst.
VERKTAKAR - FJÁRFESTAR
Fasteignasala Lögmanna Suðurlandi
Austurvegi 3, 800 Selfoss 480 2900 - log.is
Löggiltir fasteignasalar:
Ólafur Björnsson hrl. & Sigurður Sigurjónsson hrl.
Dvalar- og hjúkrunarheimilið
Hornbrekka Ólafsfirði
Hjúkrunarfræðingur
óskast
til starfa á Dvalar- og hjúkrunarheimilið
Hornbrekku Ólafsfirði.
Starfshlutfall 60 –100 %.
Umsóknarfrestur er til 20. maí 2005.
Ennig vantar hjúkrunarfræðing til starfa tímabundið
frá 15.06.2005 – 31.12.2005.
Starfshlutfall 60 –100 %.
Umsóknarfrestur er til 20. maí 2005.
Nánari upplýsingar veitir Rut María Pálsdóttir, hjúkrunar-
forstjóri í síma 466-4060;
netfang: rut@hgolafsfjardar.is
Hefur þú ánægju af að
elda góðan mat ?
Svæðisskrifstofa Reykjaness leitar að stuðnings-
fulltrúa í 50% starf á meðferðarheimili fyrir ungt
fólk í Dimmuhvarfi í Kópavogi. Um er að ræða
matseld, innkaup og fleira. Vinnutími er frá kl.
16:00 – 20:00 alla virka daga. Tilvalið fyrir þá sem
eru að leita sér að starfi í heimabæ sínum og
finnst gaman að elda góðan mat.
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofutíma í
síma 525-0900 og á heimasíðu okkar
www.smfr.is.
TILKYNNINGAR