Fréttablaðið - 01.05.2005, Qupperneq 43
13
TILKYNNINGAR
Auglýsing um inntöku nýnema í Lögregluskóla ríkisins 2006
Ákveðið hefur verið að taka inn a.m.k. 32 nýnema í almennt lögreglunám í Lögregluskóla
ríkisins árið 2006. Námið hefst í byrjun janúar og lýkur með lokaprófum um miðjan desember.
UM NÁMIÐ:
Lögregluskóli ríkisins er sjálfstæð stofnun sem starfar samkvæmt lögreglulögum nr. 90/1996 og reglugerð um
Lögregluskóla ríkisins nr. 490/1997. Grunnnám miðar að því að veita haldgóða fræðslu í almennu lögreglustarfi.
Námið skiptist í þrjár annir. Skólagjöld eru engin. Fyrsta önnin (GD I), sem er ekki launuð en lánshæf námsönn,
stendur fram í maímánuð. Nemarnir teljast ekki til lögreglumanna en þeir sem standast kröfur á önninni fara í
launaða starfsþjálfun (GD II) í lögregluliði á höfuðborgarsvæðinu í fjóra mánuði. Að lokinni starfsþjálfuninni tekur
við launuð þriðja önn (GD III) í Lögregluskólanum sem lýkur með lokaprófum um miðjan desember.
Lögreglunemar klæðast búningi almennra lögreglumanna, sem þeir fá án endurgjalds. Á fyrstu námsönn er bún-
ingurinn án lögreglueinkenna. Lögreglunemar í starfsþjálfun (GD II) stunda vaktavinnu og þá og einnig á þriðju
námsönn í skólanum (GD III) teljast þeir til lögreglumanna og fá greidd laun skv. kjarasamningi Landssambands
lögreglumanna og fjármálaráðherra.
ALMENN SKILYRÐI:
Sérstök valnefnd velur nema í Lögregluskólann úr hópi umsækjenda. Henni ber að velja hæfustu umsækjendurna
til náms og eru ákvarðanir hennar endanlegar.
Í samræmi við það sem fyrir er mælt í lögreglulögum þarf umsækjandi að uppfylla eftirtalin skilyrði:
a) vera íslenskur ríkisborgari, 20-35 ára. Valnefnd getur vikið frá aldurshámarkinu við sérstakar aðstæður,
b) ekki hafa gerst brotlegur við refsilög. Valnefndin getur þó vikið frá þessu ef til álita kemur smávægilegt
brot sem umsækjandi kann að hafa framið eða ef langt er um liðið frá því að það var framið,
c) vera andlega og líkamlega heilbrigður. Umsækjandi þarf að staðfesta það með vottorði læknis síns.
Trúnaðarlæknir skólans leggur sjálfstætt mat á vottorðið og skilar valnefnd áliti sínu,
d) hafa lokið að minnsta kosti tveggja ára almennu framhaldsnámi eða öðru sambærilegu námi með full
nægjandi árangri eða starfsþjálfun sem jafna má til slíks náms,
e) hafa gott vald á íslensku, einu Norðurlandamáli auk ensku eða þýsku,
f) hafa almenn ökuréttindi til bifreiðaaksturs,
g) vera syndur,
h) standast inntökupróf í íslensku og þreki og önnur próf sem valnefnd ákveður, s.s persónuleikapróf eða
sálfræðipróf.
SÉRSTÖK SKILYRÐI:
i) Auk ofangreindra almennra hæfisskilyrða, sem mælt er fyrir um í lögreglulögum hefur valnefndin sett
fram ákveðin viðmið til að starfa eftir og birtast þau í sérstökum verklags- og vinnureglum sem nefndin
styðst við til að tryggja að samræmis gæti við mat á hæfi umsækjenda en markmið nefndarinnar, sam
kvæmt lögreglulögum, er að velja til náms þá sem hún telur vera hæfasta. Nefndin leggur einnig fyrir
próf í tveimur tungumálum og almennri þekkingu.
AÐ HVERJUM ER LEITAÐ?
Leitað er eftir hraustum, duglegum, jákvæðum, kurteisum, reglusömum og liprum körlum og konum sem eiga
auðvelt með mannleg samskipti. Litið er sérstaklega til menntunar og reynslu sem getur nýst umsækjendum í
lögreglustarfinu.
SKIL UMSÓKNA OG ÚRVINNSLA:
Þeir sem uppfylla framangreind skilyrði og ætla að sækja um skólavist við Lögregluskólann, fyrir skólaárið 2006,
skulu skila rétt útfylltum umsóknareyðublöðum ásamt staðfestum afritum af gögnum frá menntastofnun um að
þeir hafi lokið tilskildu framhaldsnámi. Umsóknargögnum, sem verður ekki skilað aftur, skal komið til valnefndar
Lögregluskólans fyrir 5. maí 2005, merkt:
Valnefnd Lögregluskóla ríkisins Krókhálsi 5b 110 Reykjavík.
Eyðublöð fyrir læknisvottorð, (sérstakt form), verða afhent þegar viðtal við umsækjendur fer fram. Ekki dugar að
skila öðrum vottorðum. Tekið skal fram að ekki er hægt að senda umsóknir vélrænt enda verða staðfest afrit
skólaskírteina að fylgja.
Reynt verður að svara öllum umsóknum fyrir 10. júní.
Konur sem uppfylla skilyrðin, og áhuga hafa á lögreglunámi, eru sérstaklega hvattar til að sækja um inngöngu í
skólann.
Þegar umsóknir liggja fyrir fer valnefndin yfir þær. Þeir umsækjendur sem taldir eru hæfir, samkvæmt umsókn og
skila nauðsynlegum fylgiskjölum, verða boðaðir í inntökupróf sem fara fram í Lögregluskólanum dagana 22-26
ágúst. Sjúkrapróf verður aðeins haldið einu sinni og fer fram 5. september. Skilyrði fyrir að mega þreyta það próf
er að umsækjandi hafi sannanlega verið veikur á próftímabilinu og skili sérstöku læknisvottorði. Öðrum gefst ekki
kostur á að þreyta sjúkraprófið. Þeir umsækjendur sem standast inntökupróf verða, að þeim loknum, boðaðir í
viðtal við valnefnd. Viðtölin fara fram í skólanum í september. Stefnt er að því að niðurstöður liggi fyrir í í síðasta
lagi í fyrrihluta október.
Nánari upplýsingar um námið, inntökuprófin, umsóknareyðublöð og handbók valnefndar, er hægt að nálgast á
lögregluvefnum, www.logreglan.is, undir Lögregluskóli ríkisins / inntaka nýnema.
Reykjavík 6. apríl 2005
RÍKISLÖGREGLUSTJÓRINN
Félagsmenn
Matvæla- og veitingasambands Íslands og
Rafiðnaðarsambands Íslands
Til hamingju með daginn.
Tökum þátt í hátíðarhöldum dagssins og mætum síðan
í 1. maí kaffi í félagsmiðstöðinni að Stórhöfða 31.
Stjórnir RSÍ og Matvís
Stendur með þér!
fyrir
1. maí
Félagsmenn
Eflingar-stéttarfélags
Hátíðarhöldin 1. maí hefjast með
kröfugöngu frá Hallgrímskirkju kl. 13.30
Félagar og fjölskyldur – fjölmennum í gönguna
og tökum þátt í útifundinum á Ingólfstorgi.
Hittumst svo í 1. maí kaffi í Kiwanishúsinu við
Engjateig strax að útifundinum loknum.
Mætum öll
Stjórn Eflingar-stéttarfélags
Félagsmenn Trésmiðafélags
Reykjavíkur og Félags veggfóðrara-
og dúklagningasveina.
Mætið í kröfugöngu og á útifund
verkalýðsfélagana í dag.
Að loknum útifundinum er félagsmönnum og fjölskyldum
þeirra boðið í kaffi í Akoges salin að Sóltúni 3.
Trésmiðafélag Reykjavíkur, Félag
veggfóðrara- og dúklagningasveina.
1. maí í Reykjavík
Launafólk!
Kröfuganga dagsins fer frá Skólavörðuholti
Safnast verður saman framan við Hallgrímskirkju kl. 13.00
Gangan leggur af stað kl. 13.30
Lúðrasveit verkalýðsins og Lúðrasveitin Svanur leika fyrir göngu
Útifundurinn hefst á Ingólfstorgi kl. 14.10
Ávarp
Þórunn Sveinbjörnsdóttir, 1. varaformaður Eflingar stéttarfélags.
Tónlist
Hljómsveitin Jagúar.
Ávarp
Ögmundur Jónasson, formaður BSRB.
Gamanmál
Karl Ágúst Úlfsson og Sigurður Sigurjónsson, leikarar.
Ávarp
Hulda Katrín Stefánsdóttir, formaður Iðnnemasambands Íslands.
Tónlist
Hljómsveitin Jagúar.
Fundarstjóri
Súsanna B. Vilhjálmsdóttir, formaður Félags hársnyrtisveina.
Einn réttur – Ekkert svindl !
S t é t t a r f é l ö g i n í R e y k j a v í k
B S R B
B a n d a l a g h á s k ó l a m a n n a
K e n n a r a s a m b a n d Í s l a n d s
I ð n n e m a s a m b a n d Í s l a n d s
Félagsmenn
fjölmennum í kröfugöngu 1. maí!
Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar.