Fréttablaðið - 01.05.2005, Qupperneq 56
20 1. maí 2005 SUNNUDAGUR
Súrrealískt ástand
í litlu samfélagi
REYÐARFJÖRÐUR Ástandið í Fjarða-
byggð er óvenjulegt og að mörgu
leyti súrrealískt. Aldrei fyrr
hefur önnur eins uppbygging og
framkvæmdir átt sér stað í Ís-
landssögunni og óvíst er hvort
þetta endurtekur sig nokkurn tím-
ann. Uppi á Kárahnjúkum er
bygging stíflunnar í fullum gangi
og niðri á Reyðarfirði eru fram-
kvæmdir af margvíslegum toga.
Og samt eru framkvæmdirnar við
sjálft álverið bara rétt að hefjast.
Meginþunginn verður í lok þessa
árs og byrjun næsta og þá verða
starfsmennirnir líka flestir.
Það er ekki bara verið að
byggja stærsta álver Íslands,
höfn í Reyðarfirði og jarðgöng til
Fáskrúðsfjarðar heldur er líka
risin ný verslunarmiðstöð með úr-
vali verslana við hafnarsvæðið á
Reyðarfirði; Krónan er komin inn
á matvörumarkaðinn, veiðibúðin
hefur flutt sig um set inn í versl-
unarmiðstöðina og tískuverslunin
Pex hefur verið opnuð en hún er
systurverslun tískuverslunar í
Neskaupstað. Til viðbótar verða
Lyfja og ÁTVR í Molanum auk
þess sem bæjarskrifstofurnar
flytja þangað líka.
Pólverjarnir koma bráðum
Starfsmannaþorpið á Haga, sem
dags daglega gengur undir heitinu
FTV eða Fjardaál Team Village, er
að rísa og hefur risið í grennd við
Reyðarfjörð. Þar búa nú tæplega
300 starfsmenn, þar af um 80-90
prósent Íslendingar. Á næstu
vikum og mánuðum fjölgar starfs-
mönnunum verulega og koma þá til
landsins pólskir byggingamenn. Í
allt er talið að starfsmennirnir
verði um 800 í lok ársins og að
fjöldinn nái hámarki sínu á næsta
ári, fari upp í 1.500-1.800 starfs-
menn.
Framkvæmdirnar við álverið
ganga vel og samkvæmt áætlun.
Jarðvinnan er í fullum gangi, hönn-
un sömuleiðis og verið er að setja
upp undirstöðurnar fyrir álverið
áður en bygging kerskálanna hefst.
Þeir eru tveir, rúmlega tveggja kíló-
metra langir en í allt eru bygging-
arnar 95 þúsund fermetrar undir
þaki. Hönnun og byggingafram-
kvæmdir haldast nánast í hendur en
hönnuðirnir eru aðeins á undan
framkvæmdaliðinu í sinni vinnu.
Á Reyðarfirði er allt fullt af
fólki, bæði innlendu og erlendu, og
peningarnir flæða inn í þjóðfélag-
ið. Eftirspurn er svo mikil eftir
fasteignum til kaups eða leigu að
fasteignaverð hefur hækkað um
100 prósent á tveimur árum og
fasteignagjöldin í samræmi við
það. Guðmundur Bjarnason bæjar-
stjóri segir að margir íbúanna hafi
ekki látið í ljós mikla hrifningu
með það en við því sé ekkert að
gera. Sérstaklega kannast hann við
gagnrýni frá eldra fólki en bendir á
að nú geti menn keypt og selt fast-
eignir sínar, sem ekki hafi verið
hægt áður.
Álverið ekki
draumavinnustaðurinn
Þegar rætt er við íbúana kemur í
ljós að flestir þeirra fagna fram-
kvæmdunum. Gagnrýnisraddirnar
fara ekki hátt en vafalaust eru þær
þó fyrir hendi. Ungviðið sér til
dæmis ekki endilega álverið sem
sinn draumavinnustað, þrátt fyrir
allt. Anna Steinunn Baldvinsdóttir,
15 ára, er þeirrar skoðunar. Hún
segir að framkvæmdirnar séu fín-
ar en telur að það sé örugglega
ekki gaman að vinna í álverinu.
Hún fagnar hins vegar nýju versl-
unarmiðstöðinni og segir það mik-
inn kost að þurfa ekki að fara til
Egilsstaða til að kaupa sér tísku-
fatnað. Anna Steinunn ætlar að
verða hárgreiðslukona þegar hún
er orðin stór.
Vinkona hennar, Guðrún Erla
Víðisdóttir, sem einnig er 15 ára,
telur hins vegar vel koma til greina
að vinna í álverinu þegar hún verð-
ur eldri.
Straumurinn af aðfluttu vinnu-
afli hjá Bechtel og öðrum verktök-
um á svæðinu er frekar einlitur.
Þetta virðast fyrst og fremst vera
einhleypir karlmenn, aðallega í
yngri kantinum, þó að auðvitað sé
eitthvað af konum sem kemur að
framkvæmdunum og þá kannski
fyrst og fremst á aðalskrifstofunni.
Sérstaklega er það meðal erlendu
starfsmannanna hjá hinu alþjóð-
lega verktakafyrirtæki Bechtel.
Afþreyingarstjóri sér um
skemmtunina
Starfsmennirnir láta vel af aðstöð-
unni á svæðinu enda er þarna allt
til alls. Ráðinn hefur verið afþrey-
ingarstjóri, Guðmundur Gíslason
bæjarfulltrúi, og sér hann til þess
að fjölbreytt afþreying sé fyrir
hendi. Mötuneytið er stórt, bjart og
snyrtilegt og maturinn lítur vel út.
Matseðillinn er fjölbreyttur og ætti
hver að finna eitthvað við sitt hæfi,
hvort sem það er fiskur eða kjöt,
pasta eða salat. Og eftirréttirnir
eru ekkert slor.
Vel er búið að þeim sem búa í
starfsmannaþorpinu. Þar verða
nokkrar afþreyingarmiðstöðvar,
ein á hverja 200 íbúa, setustofur í
hverjum skála, góðar sjónvarps-
stofur með fjölbreyttu sjónvarps-
efni, bar og skemmtistaður og lítil
verslun. Munurinn á starfsmanna-
þorpinu við Reyðarfjörð og starfs-
mannabúðunum við Kárahnjúka og
Egilsstaðir er kannski sá að stefnt
er að því að vinna alla uppbygg-
ingu á Reyðarfirði í takt við það
samfélag sem fyrir er. Þannig
verður lítið úrval í versluninni, rétt
brýnustu nauðsynjar, því að ætlast
er til að starfsmennirnir sæki sem
mesta þjónustu inn á Reyðarfjörð.
Starfsmennirnir ættu því að bland-
ast nokkuð vel því samfélagi sem
fyrir er.
Ekki verður betur séð en að
starfsmenn Bechtel séu ánægðir
með aðstöðuna og kostinn. Óvenju-
miklar öryggisráðstafanir eru hjá
Fjarðaáli og Bechtel. Óviðkomandi
fá hvorki að fara um framkvæmda-
svæðið né starfsmannaþorpið án
leyfis og í fylgd stjórnenda, sem er
afar óvenjulegt á Íslandi þar sem
menn eru vanir að geta farið um
frjálsir og að vild. Gestir sem
heimsækja álversstæðið og starfs-
mannaþorpið fá öryggisbúnað:
passa, hjálm, öryggisskó með
stáltá og gult vesti, og eru svo lóðs-
aðir um.
Allt gert fyrir starfsfólkið
Húsin í starfsmannaþorpinu eru
innflutt frá Ungverjalandi; mjög
sterkleg, snyrtileg og góð hús sem
henta vel íslenskum aðstæðum.
Þar er ljóst að ekki er tjaldað til
einnar nætur því Bechtel ætlar
sér ekki að þurfa að bæta húsin
eða breyta þeim þegar reynsla
er komin á starfsemina eins og
MOLINN Árni Magnússon gerði sér ferð
frá Eskifirði til að versla í Krónunni á
Reyðarfirði fyrir helgina. Þetta var í
annað sinn sem hann kom í Molann en
hann var í hópi þeirra sem komu fyrir
rúmlega viku síðan þegar verslunarmið-
stöðin var opnuð. Árna leist mjög vel á
verslun Krónunnar í Molanum, fyrst og
fremst vöruúrvalið og verðið.
„Þetta er gott verð og skemmtileg
verslun,“ sagði hann og taldi tvímæla-
laust að matvöruverðið færi lækkandi
með tilkomu Krónunnar. „Maður vonar
að þetta haldist. Það eru sjálfsagt ein-
hver opnunartilboð í gangi núna en
maður vonar að þetta sé komið til að
vera,“ sagði hann.
Árni átti von á því að versla reglulega
í Molanum en áður hefur hann keyrt í
Bónus á Egilsstöðum til að kaupa inn.
Hann var ánægður með framkvæmd-
irnar fyrir austan. Þungaflutningarnir
trufluðu hann ekkert enda búsettur á
Eskifirði og hann taldi jákvætt að fólki
færi fjölgandi, bæði á Reyðarfirði og
Eskifirði. -ghs
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
ÁRNI MAGNÚSSON FRÁ ESKIFIRÐI Árni Magnússon, íbúi á Eskifirði, gerði sér ferð til
Reyðarfjarðar til að kaupa inn í síðustu viku. Hann var ánægður með vöruúrvalið og verðið.
Viðskiptavinur í Molanum:
Matvöruverðið fer lækkandi
Gríðarleg bjartsýni ríkir í Fjarðabyggð nú þegar
framkvæmdirnar eru þar í fullum gangi en ástandið
er auðvitað ekki „eðlilegt“. Stríður straumur er af
þungavinnuflutningum um bæinn á hverjum degi.
Fasteignaviðskipti hafa aldrei verið blómlegri og
samkeppni er í matvöruverslun.
GOTT AÐ FÁ TÍSKUVERSLUNINA Mæðgurnar Svana Bjarnadóttir og Anna Steinunn Bald-
vinsdóttir með vinkonu Önnu Steinunnar, Guðrúnu Erlu Víðisdóttur. Svana starfar í skólaseli
og er við nám í háskólanum. Hún er ánægð með að fá matvöruverslunina, telur úrvalið
betra og verðið lægra. Anna Steinunn fagnar því að þurfa ekki að fara annað til fatakaupa.
STARFSMANNAÞORPIÐ Á HAGA Húsin í starfsmannaþorpinu eru innflutt, traust og snyrtileg og líta vel út. Á húsunum eru merkingar,
hér er t.d. afþreying fyrir hendi. Á öðrum stað er mötuneytið, kallað Golden Duck, en það nafn kom til þegar erlendur starfsmaður reyndi
að segja Gott kvöld á íslensku.
FRAMKVÆMDIR
Í FJARÐABYGGÐ
Álver í Reyðarfirði
Höfn í Reyðarfirði
Verslunarmiðstöð á Reyðarfirði
Verslun í Neskaupstað
Hitaveita á Eskifirði
Bygging grunnskóla og viðbyggingar
við grunnskóla og leikskóla á Reyðar-
firði, Eskifirði og í Neskaupstað
Útisundlaug og endurbygging
sundlaugar á Norðfirði og Eskifirði
Fjölnota íþróttahús fyrirhugað á
Reyðarfirði
Bíó og veitingastaður í Félagslundi
á Reyðarfirði