Fréttablaðið - 01.05.2005, Side 59
FÓTBOLTI Það á ekki af Liverpool að
ganga í ensku úrvalsdeildinni og í
gær kastaði liðið svo gott sem frá
sér möguleikanum á fjórða sæti
deildarinnar með því að ná aðeins
jafntefli gegn Middlesbrough á
heimavelli, 1-1.
Liverpool byrjaði leikinn
skelfilega og á 4. mínútu skoraði
Szilard Nemeth eftir hörmulegan
varnarleik frá Mauricio Pelle-
grino, sem heldur Sami Hyypiä út
úr liðinu þrátt fyrir skelfilega
frammistöðu hverja vikuna á eftir
annarri. Liðið tók sig á í síðari
hálfleik og uppskar eitt af mörk-
um ársins þegar Steven Gerrard
þandi netið en þegar yfir lauk
höfðu leikmenn Liverpool ekki
náð að finna fleiri glufur á sterkri
vörn gestanna.
Rafael Benitez, stjóri Liver-
pool, var öskureiður í leikslok.
„Við spiluðum af eðlilegri getu í
20 mínútur í síðari hálfleik. Ann-
ars var þetta skítabolti allan leik-
inn og við að eyða tíma með því að
tefja, gefa aukaspyrnur og ná
okkur í spjöld. Þetta var ömur-
legt,“ sagði Benitez eftir leikinn
en hann þarf að rífa sína menn
upp úr öldudalnum og það fljótt,
því á þriðjudag fer fram síðari
leikurinn gegn Chelsea í Meist-
aradeildinni.
„Ég get lofað því að þar verður
allt önnur frammistaða á boðstól-
um. Við erum alltaf svona lélegir í
deildinni eftir að hafa keppt í
Meistaradeildinni vikuna áður og
það er nokkuð sem verður að
breytast í framtíðinni,“ bætti
Benitez við.
Þó að Chelsea hafi tryggt sér
sjálfan meistaratitilinn er enn
með öllu óljóst hvað lið munu
falla en Southampton komst upp
úr fallsæti með frábærum sigri á
Norwich í spennuþrungnum leik.
Harry Redknapp, stjóri Sout-
hampton, tók áhættu undir lokin
með því að setja framherjann
Henri Camara inn á og átti það
eftir að borga sig – Senegalinn
skoraði sigurmarkið þremur
mínútum fyrir leikslok og gaf
Dýrðlingunum þrjú dýrmæt stig
sem gætu farið langt með að
bjarga liðinu frá falli, enn eitt
árið.
„Þetta var spurning um heppni
en ekki klæki,“ sagði Redknapp
eftir leikinn. „Staðan var jöfn og
við þurftum að sigra. Hvað átti ég
að gera annað? Auðvitað set ég
annan framherja inn á til að reyna
að vinna leikinn. Og það heppnað-
ist.“ -vig
SUNNUDAGUR 1. maí 2005 23
Fjölmargir leikir voru á dagskrá í ensku úrvalsdeildinni í gær:
Ekkert gengur hjá Liverpool
STEVEN GERRARD Skoraði stórkostlegt mark í gær gegn Middlesbrough og á þessari
mynd fagnar hann því. Því miður náði Liverpool ekki að fylgja eftir með öðru marki.