Fréttablaðið - 01.05.2005, Side 62
26 1. maí 2005 SUNNUDAGUR
Flokkur Innlausnartímabil Innlausnarverð*
1995 1.fl. B 10 ár 2.5.2005 139.001kr.
Auglýsing um innlausnarverð
verðtryggðra spariskírteina ríkissjóðs
Innlausnarverð er höfuðstóll og verðbætur.*
Reykjavík, 29. apríl 2005
Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram hjá Lánasýslu ríkisins, Borgartúni 21, 2. hæð,
hjá Seðlabanka Íslands, Kalkofnsvegi 1 Reykjavík, og bönkum og sparisjóðum um land allt.
1995 1.fl. B 10 ár 2.5.2005 69.500kr.
1995 1.fl. B 10 ár 2.5.2005 1.390.006kr.
Greiðslumiði
nafnverð
100.000
50.000
1.000.000
kr.
kr.
kr.
Diego Armando Maradona að léttast:
Boca Juniors vill fá
Maradona sem þjálfara
FÓTBOLTI Knattspyrnugoðsögninni
Diego Maradona hefur verið boð-
in staða yfirþjálfara unglinga hjá
sínu fyrrum liði, Boca Juniors í
Argentínu. Þetta staðfesti forseti
félagsins, Mauricio Macri, á
blaðamannafundi í gær, en bætti
við að Maradona ætti enn eftir að
gefa svar við starfstilboðinu.
Það nýjasta sem er að frétta af
Maradona er að nú hefur hann
misst rúmlega 30 kíló síðan hann
fór í magaaðgerð fyrir nokkrum
vikum. Að sögn vina Argentínu-
mannsins eru allir ólmir í að
hjálpa honum að komast á rétt ról
og er það að bjóða honum atvinnu
hluti af því. Maradona er talinn
dýrðlingur hjá Boca Juniors eftir
að hafa alist upp hjá félaginu áður
en hann sannaði sig sem besti
knattspyrnumaður allra tíma.
Þykir nafn hans líklegt til að
trekkja til Boca efnilegustu knatt-
spyrnumenn Argentínu. ■
DIEGO MARADONA Var orðinn
lífshættulega feitur á tímabili.
DHL-deild karla í hand-
bolta fyrsti úrslitaleikur
HAUKAR–ÍBV 31–30 (15–14)
Mörk Hauka: Vignir Svavarsson 6 (6 skot), Þórir
Ólafsson 6 (8/1), Jón Karl Björnsson 6/2 (11/2),
Andri Stefan 6 (12, 7 stoðsendingar), Halldór
Ingólfsson 4 (7, 4 stoðsendingar), Ásgeir Örn
Hallgrímsson 3 (6, 5 stoðsendingar).
Varin skot: Birkir Ívar Guðmundsson 20/1 (af
47/3, 43%), Jónas Stefánsson 3 (af 6, 50%).
Mörk ÍBV: Tite Kalandadze 10 (17, allt langskot),
Svavar Vignisson 7 (9, 4 mörk á fyrstu 6
mínútum leiksins), Robert Bognar 5 (6), Zoltan
Belányi 3/1 (4/1), Samúel Ívar Árnason 3/1
(7/2), Sigurður Ari Stefánsson 2 (8, 8
stoðsendingar þar af 6 inn á línu).
Varin skot: Roland Valur Eradze 11/1 (35/3,
31%, varði 7 af fyrstu 14 skotum Hauka), Jóhann
Ingi Guðmundsson 5 (af 12, 42%).
Deildabikar kvenna
BREIÐABLIK–KR 2–2 (3–5 í vítak.)
Mörk Hauka: VignÓlína Guðbjörg Viðarsdóttir
(60.), Lára Hafliðadóttir (112.) – Ásgerður
Ingibergsdóttir (26.), Hrefna Huld Jóhannesdóttir
(115.). Petra Fanney Bragadóttir, markvörður
KR varði eina af vítaspyrnum Blika á sama tíma
og KR nýtti allar fimm vítaspyrnur sínar. KR mætir
annaðhvort Val eða ÍBV í úrslitaleiknum.
Enska 1. deildin
BURNLEY–PLYMOUTH 2–0
Bjarni Guðjónsson sat allan leikinn á
varamannabekk Plymouth.
COVENTRY–DERBY 6–2
GILLINGHAM–CARDIFF 1–1
IPSWICH–CREWE 5–1
PRESTON–WIGAN 1–1
QPR–NOTTINGHAM FOREST 2–1
READING–WOLVES 1–2
Ívar Ingimarsson hóf leikinn á bekknum fyrir
Reading en kom inn á á 62. mínútu.
ROTHERDAM–BRIGHTON 0–1
SHEFFIELD UTD–MILLWALL 0–1
STOKE–WATFORD 0–1
Heiðar Helguson skoraði mark Watford á 51.
mínútu en Brynjar Björn Gunnarsson lék ekki
með vegna meiðsla. Þórður Guðjónsson var
ekki í leikmannahópi Stoke.
Þýska Bundeslígan
M´GLADBACH–STUTTGART 2–0
1–0 Oliver Neuville (16.), 2–0 Vaclav Sverkos
(24.).
FREIBURG–B. DORTMUND 2–2
1–0 Wilfried Sanou (11.), 1–1 Ewerthon (37.),
1–2 Jan Koller (40.), 2–2 Ismail Coulibaly (83.).
HANSA ROSTOCK–H. BERLIN 2–1
1–0 Tim Sebastian (45.), 2–0 Jari Litmanen (71.),
2–1 Yildray Basturk (74.).
KAISERSLAUTERN–B. MÜNCHEN 0–4
0–1 Michael Ballack (19.), 0–2 Roy Makaay
(35.), 0–3 Roy Makaay (48.), 0–4 Roy Makaay
(67.).
SCHALKE–B. LEVERKUSEN 3–3
0–1 Paul Frier (23.), 1–1 Lincoln (30.), 2–1
Lincoln (37.), 3–1 Ebbe Sand (41.), 3–2 Dimitar
Berbatov (56.), 3–3 Andrej Voronin (64.).
BOCHUM–MAINZ 2–6
0–1 Benjamin Auer (6.), 1–1 Vratislav Lokvenc
(26.), 1–2 Michael Thurk (60.), 1–3 Fabian
Gerber (65.), 1–4 Antonio Da Silva (68.), 1–5
Benjamin Weigelt (77.), 1–6 Conor Casey (84.),
2–6 Tommy Bechmann (87.).
W. BREMEN–A. BIELEFELD 3–0
1–0 Ludovic Magnin (43.), 2–0 Tim Borowski
(53.), 3–0 Miroslav Klose (79.).
STAÐA EFSTU LIÐA
B. MÜNCHEN 31 21 5 5 62–27 68
SCHALKE 31 18 3 10 50–42 57
STUTTGART 31 16 7 8 52–35 55
W.BREMEN 31 16 5 10 62–34 53
H.BERLIN 31 14 11 6 56–30 53
LEIKIR GÆRDAGSINS Haukasigur með minnsta mun
Haukar unnu fyrsta úrslitaleikinn gegn ÍBV í handbolta karla með minnsta mögulega mun, 31-30, og
það stefnir í jafnt og spennandi úrslitaeinvígi sem fer næst til Eyja á þriðjudaginn.
HANDBOLTI Haukar unnu fyrsta úr-
slitaleikinn gegn ÍBV með
minnsta mun, 31-30, í DHL-deild
karla í handbolta en hann fór fram
á Ásvöllum í gær. Haukar eru því
enn taplausir í úrslitakeppninni í
ár en fara næst til Eyja þar sem
heimamenn hafa unnið alla fjóra
leiki sína í úrslitakepppninni í ár.
ÍBV byrjaði betur og náði mest
þriggja marka forskoti, 7-10, í
fyrri hálfleik en Haukar komust
yfir fyrir hlé, ekki síst þökk sé
góðri markvörslu Birkis Ívars
Guðmundssonar á lokamínútum
hálfleiksins en hann varði þá úr
þremur dauðafærum og einu víti.
Haukar héldu frumkvæðinu síðan
út leikinn en það var Jónas Stef-
ánsson varamarkvörður sem gull-
tryggði sigurinn með því að verja
þrumuskot Tite Kalandaze sjö
sekúndum fyrir leikslok. Tite var
annars nánast óstöðvandi með tíu
glæsileg mörk úr langskotum en
Eyjaliðið sárvantaði framlag frá
fleirum og Roland varði aðeins 1
af 10 skotum í seinni hálfleik áður
en honum var skipt út af. Hauka-
liðið náði að vinna leikinn þrátt
fyrir að stjörnuleikmaður þess,
Ásgeir Örn Hallgrímsson, næði
sér ekki á strik. Vignir Svavars-
son stígur ekki feilspor þessa dag-
anna og það var ótrúlegt að fylgj-
ast með fyrirliða Hauka leiða sína
menn til sigurs.
Við vorum ekki sannfærandi
„Nú erum við að spila um doll-
una, þessa sem við höfum verið að
æfa fyrir, og þá er ekkert gefið
eftir. Sóknin og vörnin voru bæði
ágæt en mér fannst við ósannfær-
andi á báðum sviðum. Þeir eru
alltaf í hælunum á okkur allan
leikinn og við náum aldrei að slá
þá í burtu. Ég bíð spenntur eftir
öðrum leiknum í Eyjum og von-
andi mætir fullt af fólki og býr til
mikla stemmningu. Það verður
erfitt, þeir unnu fyrstu tvo leikina
á móti okkur í vetur og áttu alveg
jafn mikið skilið að vinna þennan
leik. Þetta var sigur en ekki sann-
færandi sigur,“ sagði Vignir í
leikslok.
Brennan er búin
Erlingur Richardsson, þjálfari
ÍBV, sá björtu hliðarnar þrátt
fyrir tap. „Þetta var skemmtileg
viðureign og þá sérstaklega seinni
hluta leiksins. Þetta er rosalega
gaman og þótt við séum hundfúlir
með það að tapa þessum leik ætl-
um við að skemmta okkur í þess-
um úrslitaleikjum og nú er bara
að halda áfram. Ég er ósáttur með
að við erum bara að fá svona 50%
út úr mannskapnum og það eru
fjórir leikmenn í liðinu sem ekki
ná sér á strik. Við eigum helling
inni, við setjumst bara niður á
morgun og skoðum þetta. Það má
segja að brennan sé búin á þjóð-
hátíðinni, nú ætlum við að bjóða
upp á aðra dagskrá. Þetta eru jöfn
lið og ég býst bara við áframhald-
andi skemmtun,“ sagði Erlingur
eftir leikinn.
Mjög jöfn lið
Andri Stefan og Halldór Ing-
ólfsson þurftu að taka af skarið
þegar Ásgeir Örn Hallgrímsson
var klipptur út á hægri vængnum.
„Við vorum kannski svolítið
taugaspenntir enda rosalega mik-
ið undir í fyrsta leik. Við vorum
ekki að spila illa en þetta eru tvö
mjög góð og jöfn lið og ég held að
allir þessir leikir eigi eftir að vera
svona spennandi. Við eigum alveg
að geta leyst sóknarleikinn en ég
hef mestar áhyggjur af því hvað
við komum til með að gera í vörn-
inni. Við töpuðum stórt í Eyjum í
vetur, það verður örugglega fullt
hús enda fyrsti úrslitaleikurinn
hjá þeim þannig ég býst ekki við
öðru en rosa partíi þar. Við erum
komnir 1-0 yfir. Ég er kannski
ekki jafnpottþéttur á að við vinn-
um þetta í þremur leikjum eins og
í fyrra en við ætlum að reyna
það,“ sagði Andri Stefan eftir leik.
ooj@frettabladid.is
HANDBOLTI Barcelona hefur væn-
lega stöðu fyrir síðari leikinn í
úrsliteinvígi Meistarakeppni
Evrópu í handbolta gegn Ólafi
Stefánssyni og félögum í Ciudad
Real eftir aðeins eins marks tap í
Madríd í gær.
Lokatölur urðu 28-27 í frábær-
um handboltaleik en síðari leik-
urinn fer fram í Barcelona að
viku liðinni. Heimavöllur liðsins
er gríðarlega öflugur og tapar
liðið venjulega ekki þar jafnvel
þó að andstæðingarnir séu firna-
sterkt lið á borð við Ciudad. Hins
vegar ber að geta að Ciudad vann
Barcelona á útivelli í spænsku
deildinni um síðustu helgi með
tveimur mörkum og það er ekk-
ert sem mælir gegn því að liðið
geti endurtekið leikinn.
Ólafur Stefánsson hefur oft
leikið betur með Ciudad en í gær,
en hann skoraði þrjú mörk og þar
af kom eitt þeirra úr víti.
Hussein Zagi var markahæstur
Ciudad með fimm mörk en hjá
Barcelona var spænski landsliðs-
maðurinn Iker Romero atkvæða-
mestur með sjö mörk.
Þá var einnig leikið í úrslitum
EHF-keppninnar í handbolta þar
sem Íslendingaliðin Magdeburg
og Essen áttust við. Það er
skemmst frá því að segja að
Magdeburg, undir stjórn Alfreðs
Gíslasonar, vann öruggan átta
marka sigur, 30-22, á heimavelli
sínum og þarf mikið að gerast til
að liðið missi niður þetta forskot
í síðari leiknum sem fram fer í
Essen um næstu helgi.
Sigfús Sigurðsson skoraði tvö
mörk fyrir Magdeburg en hann
lék að mestu aðeins í vörninni.
Arnór Atlason komst ekki á blað
en markahæstur var Karol Biel-
ecki með 10 mörk. Guðjón Valur
Sigurðsson átti ágætis dag fyrir
Essen og skoraði fjögur mörk. ■
Barcelona með yfirhöndina gegn Ciudad
Fyrri úrslitaleikirnir í Evrópukeppnunum í handbolta fóru fram í gær:
ÞRJÚ MÖRK Ólafur Stefánsson skoraði
3 mörk fyrir Ciudad Real í gær.
ANDRI GÓÐUR Í SEINNI HÁLFLEIK Andri Stefan tók af skarið í seinni hállfeik og kom
þá að átta mörkum, skoraði þrjú sjálfur og átti að auki fimm stoðsendingar.
FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.