Fréttablaðið - 01.05.2005, Síða 63
SUNNUDAGUR 1. maí 2005 27
Framherjinn MatejaKezman vill komast
burtu frá Chelsea eftir
tímabilið ef fyrirséð er
að hann fái ekki meiri
tækifæri en hann hef-
ur fengið í ár. Þetta
staðfesti hann við fjöl-
miðla í gær. „Ég er ekki tilbúinn að
verma varamannabekkinn enn eitt
árið og mun ræða við eigandann,
Roman Abramovich, um framhald-
ið,“ sagði Kezman og bætti við að
hann vissi að PSV, liðið sem hann
var hjá áður en hann var keyptur til
Chelsea, myndi ávallt bjóða hann
velkominn aftur.
Birgir Leifur Hafþórsson, kylfingurúr GKG, lék á fjórum höggum yfir
pari í gær á Áskorendamóti á Spáni
og er samtals sex höggum yfir pari.
Hann fékk fjóra skolla á síðari 9 hol-
um vallarins eftir að hafa leiki fyrstu
níu holurnar á pari.
Skautafélag Akureyrar varð áföstudag Íslandsmeistari í íshokkí
karla en þá sigraði liðið erkifjendur
sína úr Skautafélagi Reykjavíkur 7-
1 í fjórðu úrslitaviðureign liðanna.
Reykvíkingar komu nokkuð á óvart
með sigri í fyrsta leik rimmunar en
Akureyringar svöruðu með sigri í
þeim 3 næstu og tryggðu sér titilinn.
ÚR SPORTINU
Alan Curbishley, knattspyrnustjóriCharlton, hefur tilkynnt miklar
breytingar á leikmannahópi liðsins
fyrir næsta tímabil og kveðst hann
afar ósáttur við
framgöngu sinna
manna á síðustu
vikum. Charlton
hefur aðeins unnið
einn leik í síðustu
11 leikjum og segir
Curbishley að þetta
sé versti kaflinn á
hans þjálfaraferli hjá Charlton. „Ég
hef verið hér í fjórtán ár og þetta er
verra en þegar við féllum. Það hefur
verið kvalafullt að horfa upp á þetta.
Það er ljóst að við munum reyna að
bæta okkur á öllum vígstöðvum fyrir
næsta ár og ég hef verið að leita að
leikmönnum í allar stöður á vellin-
um,“ sagði Curbishley.
Fernando Hierro, hinn spænskivarnarmaður Bolton og fyrrver-
andi leikmaður Real Madrid, segir
að Chelsea geti ekki borið sig sam-
an við lið Real og að Jose Mour-
inho og félaga vanti
enn töluvert upp á
að ná Real að gæð-
um. „Í fyrra var Real
valið besta lið aldar-
innar. Það eru
nægilega góð rök til
að sýna að Chelsea
á enn nokkuð langt
í land. Félagið er á réttri leið og
með snjallan framkvæmdastjóra. En
fyrir mér er þetta ekki spurning,
Real er betra,“ segir Hierro.
Phoenix Suns virðist óstöðvandi íNBA-boltanum þessa dagana og
í fyrrinótt komst liðið í 3-0 í einvígi
sínu við Memphis. Phoenix sigraði
með tuttugu stig-
um, 110-90, í
Memphis, og réðu
heimamenn ekkert
við Amare Stoude-
mire, miðherja
gestanna, sem
skoraði 30 stig í
leiknum. „Hann er
einfaldlega of grimmur fyrir mína
menn. Við höfum engan til að
stöðva hann,“ sagði Bonzi Wells,
bakvörður Memphis, eftir leikinn.
Enn er óvíst hvort Juan PabloMontoya keppi fyrir McLaren í
Barcelona-kappakstrinum næstu
helgi vegna axlarmeiðslanna sem
hann hlaut fyrir nokkrum vikum.
Montoya sjálfur þrá-
ir ekkert heitara en
að aka en vitað er
að læknar
McLaren-liðsins
munu enga áhættu
taka. „Það er ekki
víst að ég verði í
nógu góðu formi
því að vöðvar í öxlinni hafa rýrnað.
Ákvörðun um málið verður tekin í
miðri viku,“ segir Montoya. Fari svo
að Kólumbíumaðurinn verði fjarver-
andi er líklegast að Alexander Wurz
komi í hans stað.
Rio Ferdinand, leikmaður Man.Utd., kom fram í breskum fjöl-
miðlum í gær til að útkljá endan-
lega þær vangaveltur sem komið
hafa upp að und-
anförnu um framtíð
hans hjá félaginu.
Ferdinand segist
hvergi annars stað-
ar vilja vera en hjá
Man. Utd. og að
hann hafi aldrei
haldið öðru fram.
Hann segir ástæðuna fyrir því að
hann hafi ekki enn skrifað undir nýj-
an samning vera þá að umboðs-
maður hans sé erlendis. „Þetta tek-
ur sinn tíma en um leið og samn-
ingur sem hentar báðum aðilum er
á borðinu mun ég skrifa undir
hann,“ segir Ferdinand.
Spænski miðjumaðurinn hjáBarcelona, Xavi, ætlar ekki að
ræða framtíð sína fyrr en að tímabil-
inu loknu en hann
hefur verið sterk-
lega orðaður við
Chelsea að undan-
förnu. Vitað er að
Jose Mourinho er
mikill aðdáandi
spænska leikstjórn-
andans og vill hann
til sín ef Steven Gerrard ákveður að
vera áfram hjá Liverpool. „Ég hef
hug á því að klára feril minn hjá
Barcelona en sumarið er tíminn til
að líta í kringum sig. Nú vill ég að-
eins hjálpa Barcelona að verða
spænskur meistari,“ segir Xavi.
ÚR SPORTINU Ég stefndi alltaf að þessu
Jón Arnór Stefánsson er enn í skýjunum eftir að hafa orðið Evrópumeistari með liði sínu Dynamo St.
Petersburg á fimmtudaginn. Hann segir að með sigrinum hafi langþráð markmið nást.
KÖRFUBOLTI „Tilfinningin er yndis-
leg. Að vinna Evróputitil er
nokkuð sem allir íþróttamenn í
Evrópu stefna að og það er ótrú-
legt að sá draumur hafi ræst hjá
mér. Alveg frábært,“ sagði Jón
Arnór Stefánsson, sem á fimmtu-
daginn varð fyrsti Íslendingurinn
til að verða Evrópumeistari í
körfubolta. Þrátt fyrir að tveir
dagar væru liðnir frá því að Jón
Arnór og félagar í Dynamo St. Pet-
ersburg tryggðu sér titilinn var
okkar maður ennþá í skýjunum
þegar Fréttablaðið ræddi við hann
í gær. Jón Arnór segir að sigur í
keppninni hafi verið markmið
Dynamo frá því fyrir tímabilið.
„Þetta var alltaf takmark liðs-
ins og einnig mitt persónulega tak-
mark. Við vissum að þetta væri
okkar keppni því í henni getum við
stillt upp okkar allra sterkasta liði
og spilað nákvæmlega eins og við
viljum,“ segir Jón Arnór en í rúss-
nesku deildakeppninni er liðum
skylt að vera ávallt með tvo
heimamenn inni á vellinum og því
fá hinir mörgu öflugu erlendu
leikmenn Dynamo ekki að spila
eins mikið og ef allt væri eðlilegt.
Í Evrópukeppninni eru hins vegar
engar takmarkanir og þegar allur
leikmannahópur Dynamo fær að
njóta sín standast fáir liðinu snún-
ing.
Jón segir að allt hafi orðið vit-
laust eftir að titillinn var í höfn.
„Þetta var alvöru. Þjálfararnir og
stjórnarmennirnir misstu sig
alveg í sigurvímunni, hlupu inn á
völlinn til að samfagna leikmönn-
unum og það voru mikil læti. Þetta
var alveg æðislegt,“ segir Jón
Arnór, sem kveðst ekki hafa verið
nægilega sáttur með sinn leik.
„Þetta var ekki alveg minn
dagur. Ég var ekki að hitta vel en
var staðráðinn í að láta það ekki á
mig fá. Ég spilaði mína vörn og
barðist og hugsaði bara um að
hjálpa liðinu að vinna leikinn,“
segir Jón Arnór en hann skoraði
níu stig á þeim 29 mínútum sem
hann spilaði í leiknum og hitti úr
þremur af 12 skotum sínum í
leiknum.
Aðspurður um spennustigið hjá
sjálfum sér sagðist Jón hafa beðið
eftir leikjunum í marga daga.
„Alveg frá því að við tryggðum
okkur sæti í undanúrslitum hef ég
verið nánast eins og lítill krakki. Ég
var búinn að bíða spenntur eftir
þessari helgi og auðvitað var maður
með smá hnút í maganum. En
þannig á það líka að vera. Ef þessi
hnútur fer getur maður alveg eins
hætt í körfubolta,“ sagði Jón.
Bróðir Jóns Arnórs, handbolta-
maðurinn Ólafur Stefánsson, er
einnig kominn í úrslitaleik Meist-
aradeildar Evrópu í handbolta og
það gæti því vel farið svo að fjöl-
skyldan muni hafa tvo Evrópu-
meistara á sínum snærum næsta
árið. „Já, hann verður að vinna.
Hann má ekki vera minni maður
en ég,“ segir Jón Arnór og hlær.
„Nei, en að öllu gríni slepptu þá
vona ég innilega að hann vinni
titilinn líka. Hann á það skilið.“
vignir@frettabladid.is
DYNAMO ST. PETERSBURG Leikmenn Dynamo fögnuðu ákaft eftir að Evrópumeistaratitillinn var í höfn. Jón Arnór þriðji frá hægri í efri röð.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Arjen Robben var ekki í hópnum gegn Bolton í gær:
Robben kominn í kuldann?
HANDBOLTI Enginn íslenskur
handknattleiksmaður var valinn
í 20 manna úrvalslið þýsku úr-
valsdeildarinnar, sem mætir
þýska landsliðinu í stjörnuleik
þann 31. maí. Fyrir fram var
talið að Guðjón Valur Sigurðs-
son ætti ágætis möguleika á að
komast í liðið en hinir feiki-
öflugu hornamenn Stefan
Kretzschmar úr Magdeburg og
Lars Christiansen úr Flensburg
voru teknir fram yfir Guðjón
Val. Flensburg á flesta leik-
menn í liðinu, fjóra talsins, en
þar á eftir koma Kiel og
Nordhorn með þrjá leikmenn
hvort. ■
STJÖRNULIÐIÐSHÓPURINN:
Leikmenn:
Zoran Djordjic Wallau
Peter Gentzel Nordhorn
Stefan Kretzschmar Magdeburg
Lars Christiansen Flensburg
Goran Sprem N-Lübbecke
Christian Schwarzer Lemgo
Klaus-Dieter Petersen Kiel
Andrej Klimovets Flensburg
Sören Stryger Flensburg
Jan Filip Nordhorn
Johan Pettersson Kiel
Blazenko Lackovic Flensburg
Bruno Souza Göppingen
W. Lochmann Großwallstadt
Nebojsa Golic Wetzlar
Igor Lavrov Wallau
Ljubomir Vranjes Nordhorn
Renato Vugrinec Magdeburg
Roman Pungartnik Kiel
Kyung-Shin Yoon Gummersbach
Þjálfarar:
Noka Serdarusic Kiel
Ola Lindgren Nordhorn
Valið í stjörnuleik:
Enginn
Íslendingur
Íslensku ungmennaliðin í körfubolta á leið á Norðurlandamót í næstu viku:
18 ára landsliðið vann A-landsliðið
KÖRFUBOLTI Fjögur íslensk ung-
lingalandslið eru á leið á Norður-
landamót unglinga í körfubolta í
næstu viku og hafa liðin fjögur
verið að leggja lokahönd á undir-
búning sinn. Meðal þessa hafa
verið æfingaleikir og 18 ára lands-
lið kvenna gerði sér þannig lítið
fyrir og vann A-landsliðið í
æfingaleik í Keflavík í gær, 68-64.
Reyndar eru nokkrir af leik-
mönnum 18 ára landsliðsins þegar
búnir að vinna sér sæti í A-liðinu
en að öðru leyti var þarna saman-
komið A-landslið kvenna sem er á
leiðinni á Smáþjóðaleikana um
næstu mánaðamót.
18 ára landsliðið hafði foryst-
una stærsta hluta leiksins og náði
meðal annars 12 stiga forskoti í lok
fyrri hálfleiks en staðan í hálfleik
var 33-40 fyrir 18 ára liðið.
A-landsliðið tók sig á í seinni
hálfleik og komst meðal annars
yfir í 47-46 en þá svöruðu ungu
stelpurnar með 12 stigum í röð og
unnu að lokum fjögurra stiga sigur
eftir spennandi lokamínútur.
Helena Sverrisdóttir átti mjög
góðan leik hjá 18 ára liðinu, skor-
aði 29 stig, tók 13 fráköst og gaf 6
stoðsendingar, Pálína Gunnlaugs-
dóttir skoraði 13 stig og Bryndís
Guðmundsdóttir var með 10 stig, 6
fráköst og 4 stoðsendingar.
Hjá A-liðinu voru þær Signý
Hermannsdóttir og Birna Val-
garðsdóttir með 14 stig hvor og
Hildur Sigurðardóttir skoraði 13
stig. Signý tók auk þess 11 fráköst
og Hildur var með 10 fráköst (6 í
sókn) og 4 stoðsendingar.
18 ára landsliðið er að stórum
hluta skipað stúlkum sem urðu
Norðurlandameistarar með 16 ára
landsliðinu á síðasta ári en þjálfari
þess er Ágúst Björgvinsson, þjálf-
ari Hauka og þjálfari ársins í 1.
deild kvenna á síðasta tímabili.
ooj@frettabladid.is
UNNU A-LANDSLIÐIÐ Stelpurnar í 18 ára landsliðinu gerðu sér lítið fyrir og unnu A-
landsliðið í æfingaleik í gær.
FÓTBOLTI Breskir fjölmiðlar
greindu í gær frá því að Arjen
Robben og Jose Mourinho hjá
Chelsea hefði lent saman fyrir
helgi vegna þess að sá fyrrnefndi
neitaði að spila frá fyrstu mínútu
í leiknum gegn Liverpool í Meist-
aradeildinni í síðustu viku.
Robben er nýbúinn að ná sér eftir
að hafa verið meiddur nánast
samfellt í rúma þrjá mánuði og
vill að sögn ekki eiga á hættu að
meiðslin taki sig upp.
Samkvæmt fréttum frá Bret-
landi eru það ekki síður leikmenn
Chelsea sem eru ósáttir við fram-
komu Robben og vakti það athygli
að hann var ekki í leikmanna-
hópnum gegn Bolton í gær.
Hvorki Mourinho né aðrir for-
ráðamenn Chelsea fengust til að
tjá sig um málið eftir leikinn í
gær en ekki ber að útiloka þann
möguleika að Robben hafi ein-
faldlega verið hvíldur í gær fyrir
síðari leikinn gegn Liverpool á
þriðjudaginn.
Írski vængmaðurinn Damien
Duff náði ekki að standast læknis-
skoðun fyrir leikinn gegn Liver-
pool í síðustu viku og bjuggust
flestir við því að Robben kæmi
inn í byrjunarliðið beint í hans
stað á vinstri vængnum. Því kom
það talsvert á óvart að sjá Eið
Smára Guðjohnsen í þeirri stöðu.
Talsmaður Chelsea vísaði orð-
rómnum á bug fyrir leikinn gegn
Bolton í gær og sagði hann sam-
band Mourinho og Robben vera
frábært. „Fregnir um að ósætti
hafi komið upp fyrir leikinn gegn
Liverpool eru ósannar,“ bætti tals-
maðurinn við í gær. ■