Fréttablaðið - 03.05.2005, Blaðsíða 2
2 3. maí 2005 ÞRIÐJUDAGUR
Úrvinnsla samræmdra prófa tefst:
Útskrift án
prófskírteina
GRUNNSKÓLARNIR Margir grunn-
skólar landsins útskrifa nemend-
ur sína úr tíunda bekk í vor án
þess að geta afhent þeim prófskír-
teini. Samræmdu prófunum var
seinkað vegna tafa á skólastarfi
sem urðu út af kennaraverkfall-
inu. Sigurgrímur Skúlason, svið-
stjóri prófadeildar Námsmats-
stofnunar, sagði allt líta út fyrir
að hægt væri að skila prófskír-
teinum 6.-8. júní.
En betur má ef duga skal því
skólaslit eru fyrirhuguð í mörgum
grunnskólum fyrir þann tíma.
Þorsteinn Sæberg, skólastjóri Ár-
bæjarskóla, sem ætlar að slíta sín-
um skóla 6. júní, segir að óhjá-
kvæmilega verði skólaslitin með
öðrum blæ en venjulega og þykir
það miður. Honum hefði þótt eðli-
legt ef reynt hefði verið að flýta
yfirferð prófanna til að gera skól-
unum mögulegt að ljúka skóla-
starfi með eðlilegum hætti. Fleiri
stórir skólar eiga að öllum líkind-
um eftir að lenda í sömu vandræð-
um. Það er því ljóst að allstór hluti
tíundubekkinga fer út í sumarið
prófskírteinalaus. - oá
OLÍUFÉLÖGIN Samkvæmt úrskurði
Samkeppnisstofnunar áttu olíu-
félögin að greiða sekt upp á rúm-
lega einn og hálfan milljarð vegna
ólöglegs verðsamráðs. Í gær rann
svo út fresturinn sem þau höfðu
til að standa skil á sínum greiðsl-
um. Aðspurður sagðist Stefán
Kjærnested, varafjársýslustjóri
ríkisins, ekki hafa heimild til að
gefa upp hvort olíufélögin hefðu
innt greiðslur sínar af hendi en
þau hefðu þó frest til klukkan
fimm til að millifæra.
Jónas Guðbjörnsson, fram-
kvæmdastjóri fjármálasviðs Olíu-
félagsins, sagði Olífélagið ekki
ætla að greiða sinn hluta fyrr en
fjármálaráðuneytið hefði svarað
formlega spurningum um banka-
ábyrgð. Þó væri ekki ætlun Olíu-
félagsins að skorast undan því að
greiða sinn hluta, einungis að hafa
allt á hreinu.
Árni Ármann Árnason, fjár-
málastjóri Skeljungs, sagði Skelj-
ung hafa greitt sinn hluta án at-
hugasemda fyrir frestinn enda
væri stefna félagsins að borga
alla reikninga án tafar. Ekki náð-
ist í fjármálastjóra Olís við gerð
þessarar fréttar. - oá
ATVINNUMÁL „Takmarkið er að út-
rýma ólöglegu vinnuafli hér á
landi með öllum þeim ráðum sem
við höfum,“ segir Grétar Þor-
steinsson, forseti Alþýðusam-
bands Íslands. Sambandið hefur í
samstarfi við sín aðildarfélög sett
af stað sérstakt átak, Einn réttur –
ekkert svindl, gegn þeim atvinnu-
rekendum sem misnota erlent
vinnuafl til að skapa sér sam-
keppnisforskot.
Þeim hefur fjölgað til muna
hérlendis sem ráða til margvís-
legra starfa fólk erlendis frá og
oftast nær á mun lægri launakjör-
um en hér tíðkast. Hefur verka-
lýðshreyfingin gagnrýnt stjórn-
völd fyrir hægagang gagnvart
þeim er brjóta lög með þeim hætti
og vonast er til að hugarfars-
breyting verði á æðstu stöðum
með þessu framtaki. Grétar segir
ekki veita af, því það erlenda
vinnuafl sem hér vinnur fyrir
brot af þeim launum sem Íslend-
ingar fá sé ógn við það samfélag
sem landinn býr við.
„Félagsleg undirboð af þessum
toga ógna því samfélagi sem við
höfum barist í áratugi við að koma
á fót og með þessu átaki er ætlun-
in að bregðast við. Það höfum við
verið að gera hingað til en nú
skerum við upp herör gegn starf-
semi af þessu tagi og höfum til að
mynda sérstaklega ráðið tvo aðila
til þess að vinna að átakinu. Þeirra
hlutverk verður fyrst og fremst
kynning og eftirlit en einnig að
uppræta ólöglega atvinnustarf-
semi og félagsleg undirboð með
því að koma upplýsingum um slíkt
á framfæri við stjórnvöld.“
Alþýðusambandið hefur af
þessu tilefni gefið út upplýsinga-
bæklinga fyrir erlent verkafólk
en einnig upplýsingar um erlent
vinnuafl fyrir þá atvinnurekend-
ur sem margir hverjir þekkja
ekki hvaða lög gilda um erlenda
starfsmenn.
Grétar segist vona að átak
sem þetta dugi til að stemma
stigu við þeirri fjölgun ólöglegra
starfsmanna sem raun virðist
vera á hér á landi en ekkert er
vitað um raunverulegt umfang
þess á landsvísu. „Þegar árið er
liðið förum við yfir stöðuna og
hverju átakið hefur skilað og
höldum því áfram ef ástæða þyk-
ir til.“
albert@frettabladid.is
Ungmenni með fíkniefni:
Þrettán ára
í forsvari
LÖGREGLUMÁL Lögreglan á Selfossi
gerði húsleit í Hveragerði um síð-
ustu helgi vegna gruns um að
fíkniefnaneysla væri þar viðhöfð
og reyndist sú raunin. Eigandi
hússins var þó hvergi sjáanlegur
en í hans stað hafði 13 ára drengur
lyklavöldin og umboð húseigand-
ans meðan hann hafði brugðið sér
til mánaðar vinnudvalar.
Lögreglunni hafði tveim dögum
áður borist grunur um að húseig-
andinn veitti ungmennum fíkni-
efni og áfengi í húsi sínu en við
húsleit fundust aðeins tól til fíkni-
efnaneyslu en engin fíkniefni. Í
seinni húsleitinni fundust hinsveg-
ar amfetamín og kannabisefni en
enginn húseigandi.
– jse
Hörmulegt slys:
Hundur
drap stúlku
DANMÖRK Hundur beit átta ára
gamla stúlku í Danmörku til bana
um helgina. Atburðurinn átti sér
stað í bænum Lihme við Limafjörð á
Jótlandi. Hundurinn sem var af teg-
undinni Briard var aflífaður þegar í
stað.
Stúlkan var gestkomandi á heim-
ili vina sinna þegar þetta gerðist en
tveggja ára gamall hundur fjöl-
skyldunnar var bundinn úti í garði.
Hún gekk að honum til að klappa
honum en þá réðst hann skyndilega
á hana og beit hana í hálsinn.
Briard-hundar eða bríi eins og
hann heitir á íslensku eru franskir
að uppruna, á stærð við labrador-
hunda og að öllu jöfnu taldir mein-
lausir. ■
SPURNING DAGSINS
Ögmundur, er ástæða til að
óttast Steingrím J.?
Nei, enda auður hans ekki mikill. Það
þyrfti ekki að jafna kjörin í landinu
mikið til að allir yrðu auðmenn af þess-
ari stærðargráðu.
Ögmundur Jónasson varaði við auðmönnum í 1.
maí ræðu sinni. Steingrímur J. Sigfússon á hluta-
bréf í átta fyrirtækjum.
■ LÖGREGLUFRÉTTIR
Norsk flugvél:
Magalenti í
Hammerfest
NOREGUR Norsk farþegaflugvél
magalenti á flugvellinum í
Hammerfest í Noregi á sunnudag.
Engin alvarleg slys urðu á fólki.
Vélin er af gerðinni Dash-8 og
um borð í henni voru 27 farþegar
og þriggja manna áhöfn. Vélin var
að koma inn til lendingar en vegna
sviptivinda ákvað flugmaðurinn
að hætta við lendingu. Í sama mun
skall sterkur vindsveipur á vél-
inni sem skall harkalega á flug-
brautinni.
Lendingarbúnaður öðru megin
brotnaði og rann vélin stjórnlaust
eftir brautinni. Hún stöðvaðist 20
metrum frá bensíndælum. ■
Sprenging í vopnabúri:
28 biðu bana
KABÚL, AP Að minnsta kosti 28 biðu
bana og 13 særðust þegar vopnabúr
sem geymt var í kjallara á heimili
afgansks stríðsherra sprakk í loft
upp. Atburðurinn átti sér stað í
þorpinu Bashgah, 125 kílómetra
norður af Kabúl. Sprengingin var
svo öflug að hús í nágrenninu stór-
skemmdust, þar á meðal moska
þorpsins.
Allstór hluti landsins er undir
stjórn svonefndra stríðsherra og
einkaherja þeirra. Starfsmenn Sam-
einuðu þjóðanna hafa undanfarin
misseri reynt að fá þá til að skila
vopnum sínum sem mörg hver eru
komin til ára sinna en það hefur
gengið erfiðlega. ■
HVALFJARÐARGÖNGIN LOKUÐUST
Loka varð Hvalfjarðargöngunum
um stuttan tíma um miðjan dag í
gær vegna áreksturs sem þar
varð. Ekki var um meiðsl á fólki
að ræða og komst umferð á að
nýju tíu mínútum seinna.
NÓG KOMIÐ
Eitt skal yfir alla ganga og munu eftirleiðis tveir starfsmenn ASÍ sérstaklega vera á varð-
bergi gagnvart ólöglegu vinnuafli.
VIÐ KÁRAHNJÚKA
Í kjölfar þess að Impregilo notaði erlendar
áhafnarleigur til að verða sér úti um vinnu-
afl hafa íslenskir atvinnurekendur séð sér
leik á borði. Eðli málsins samkvæmt veit
þó enginn hversu margir ólöglegir verka-
menn starfa hér á landi en talið er að þeir
skipti nokkrum tugum ef ekki hundruðum.
Skera upp herör
gegn lögbrjótum
Alþýðusamband Íslands hefur hafið sérstakt átak gegn ólöglegu vinnuafli í
landinu. Átakið Einn réttur – ekkert svindl mun fremur beinast að þeim
atvinnurekendum sem lög brjóta en verkafólkinu sjálfu.
OLÍUTANKAR VIÐ ÖRFIRISEY
Olíufélögin áttu að borga sektirnar í gær.
Olíufélögin borgi sekt sína:
Greiðslufresturinn liðinn
Kjarnavopn:
Sáttmálinn
endurmetinn
SAMEINUÐU ÞJÓÐIRNAR, AP Kofi Ann-
an, framkvæmdastjóri Sameinuðu
þjóðanna, hvatti Bandaríkjamenn
og Rússa í gær
til að skera
k j a r n a v o p n a -
birgðir sínar nið-
ur svo að hvor
þjóð myndi að-
eins hafa yfir
nokkur hundruð
kjarnaoddum að
ráða.
Mánaðarlöng
ráðstefna samtakanna um endur-
skoðun sáttmálans um takmörkun
kjarnavopna hófst í gær en 35 ár
eru síðan hann gekk í gildi. 189
ríki eiga aðild að sáttmálanum.
Norður-Kóreumenn sögðu sig
nýlega frá sáttmálanum og Íranar
eru að reyna að koma sér upp
kjarnavopnum. Því óttast menn að
sáttmálinn geti verið í hættu. ■
ÁRBÆJARSKÓLI
Nemendur Árbæjarskóla fara út í sumarið
án þess að fá einkunnir úr samræmdum
prófum.
KOFI ANNAN