Fréttablaðið - 03.05.2005, Blaðsíða 28
Leonardo da Vinci starfsmennta-
áætlun Evrópusambandsins hóf
göngu sína fyrir tíu árum á Ís-
landi og hefur veitt styrki til fjöl-
margra einstaklinga og verkefna
á þeim tíma. „Áætlunin er liður í
því að taka þátt með virkum
hætti í Evrópusamstarfi og hefur
gengið mjög vel,“ segir Ágúst H.
Ingþórsson forstöðumaður
Landsskrifstofu Leonardó á Ís-
landi. Áætlunin er tvíþætt, ann-
ars vegar tilrauna- og þróunar-
verkefni og hins vegar manna-
skiptaverkefni þar sem fólk get-
ur farið í styttri eða lengri ferðir
erlendis í starfsþjálfun.
„1800 manns hafa fengið
styrki frá okkur og á hverjum
tíma eru í gangi 5 til 10 evrópsk
tilraunaverkefni undir íslenskri
verkefnastjórn,“ segir Ágúst sem
telur þennan aðgang íslensks
starfsmenntakerfis að þróunar-
verkefnum mjög verðmætan.
Ágúst telur að áætlunin hafi
opnað íslenskt menntakerfi, hins
vegar hafi það ekki haft mikil
kerfisáhrif. Starfsmenntun eigi
ennþá undir högg að sækja, og
ennþá sé meiri áhersla lögð á
bóknám. Það verði því að bæta
starfsnám enn meira og gera það
vinsælla.
Haldið verður upp á tíu ára af-
mæli áætlunarinnar þann 19, maí
í Ráðhúsi Reykjavíkur. „Við verð-
um með afmælispartí en ekki
hefðbundna ráðstefnu,“ segir
Ágúst en í tilefni afmælisins er
efnt til samkeppni um útfærslu á
hugmynd eftir Leonardo da
Vinci. Einungis nemendur mega
taka þátt í samkeppninni og má
efniviður og vinna vera í hvaða
formi sem er, til dæmis grafísk
hönnun, smíðisgripur, hlutur úr
súkkulaði, hárgreiðsla eða marg-
miðlunarverk. Ágúst segir nokkr-
ar tillögur þegar komnar inn en
skilafrestur er til 10. maí. Hann
vonast þó sérstaklega eftir því að
fá súkkulaðiskúlptúr.
Í verðlaun fyrir bestu útfærsl-
una er ferð til Parísar fyrir tvo og
dagskort í Louvre safnið þar sem
meðal annars er að finna Monu
Lisu, frægasta verk listamanns-
ins.
20 3. maí 2005 ÞRIÐJUDAGUR
THOMAS HOOD
(1799-1845)
Starfsnám á ennþá
undir högg að sækja
TÍMAMÓT: LEONARDÓ STARFSMENNTAÁÆTLUNIN 10 ÁRA
Að reyna að veita montnu fólki ráð,
er eins og að flauta upp í vindinn.
Thomas Hood var breskt ljóðskáld sem
þekktastur var fyrir gamansamar vísur.
timamot@frettabladid.is
ÁGÚST H. INGÞÓRSSON Forstöðumaður Landsskrifstofu Leonardó á Íslandi. Ætlar að
halda upp á afmæli áætlunarinnar í Ráðhúsi Reykjavíkur þar sem verðlaun verða veitt fyrir
útfærslu á hugmynd eftir Leonardo da Vinci.
Íslenska þjóðin sat með öndina í hálsinum fyrir
framan sjónvarpsskjái sína þann 3. maí árið 1986.
Nú átti að taka söngvakeppni evrópskra sjón-
varpsstöðva með trompi með fyrsta framlagi Ís-
lendinga í keppninni, Gleðibankanum. Í mörg ár
höfðu Íslendingar lifað í þeirri trú að loks þegar
þeir tækju þátt í Evróvisjón væri nánast forms-
atriði að vinna.
Skilyrði fyrir þátttöku var að viðkomandi land væri
í gervihnattasambandi við umheiminn. Árið 1986
var komið að því að hægt var að sýna keppnina í
beinni útsendingu.
Forkeppnin var haldin í sjónvarpinu og hafði lag
Magnúsar Eiríkssonar sigur úr býtum en hann
hafði þá um skeið verið einn vinsælasti dægur-
lagahöfundur landsins. Allt var gert til að búa lag-
ið sem glæsilegast. Þrír vinsælir söngvarar fluttu
lagið. Þau Helga Möller, Pálmi Gunnarsson og Ei-
ríkur Hauksson
og kölluðu sig
Icy af því tilefni.
Gífurlegur áhugi
var á keppninni
hér heima og
sást varla hræða
á ferli meðan á
keppninni stóð.
Víða voru haldin samkvæmi til að fylgjast með
sigurgöngu Gleðibankans.
Vonbrigði íslensku þjóðarinnar urðu því gífurleg
þegar lagið lenti í 16. sæti. Þrátt fyrir útreiðina
sem lagið hlaut voru landsmenn fljótir að ná sér
og hafa æ síðan verið bjartsýnir um sigur á hverju
ári. Sextánda sætið fylgdi landinu næstu tvö árin
á eftir og má segja að það hafi unnið sér ákveð-
inn stað í hjörtum Íslendinga.
3. MAÍ 1986
ÞETTA GERÐIST MERKISATBURÐIR
1943 Fjórtán bandarískir her-
menn farast er flugvél af
gerðinni Boeing 24 brot-
lendir á Fagradalsfjalli á
Reykjanesi. Meðal þeirra er
yfirmaður alls herafla
Bandaríkjanna í Evrópu.
1968 Fyrsta hjartaígræðslan í
Bretlandi er framkvæmd.
Hjartaþeginn dó 46 dög-
um síðar.
1970 Álver Íslenska álfélagsins
hf. í Straumsvík er formlega
tekið í notkun, en fram-
leiðsla hófst árið áður.
1974 Menntamálaráðuneytið
birtir auglýsingu um
greinamerkjasetningu, þar
sem kommum er fækkað,
og aðra um stafsetningu.
Á sextánda sætið stefnum við
Dóttir mín,
Sólveig Eiríksdóttir
síðast til heimilis á Fellsenda í Dölum,
andaðist á Sjúkrahúsinu á Akranesi laugardaginn 30. apríl.
Fyrir hönd aðstandenda,
Bryndís Tómasdóttir.
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
Hörður F. Tryggvason
Ytri-Varðgjá, Eyjafjarðarsveit,
lést á hjúkrunarheimilinu Seli laugardaginn 23. apríl.
Útför hans hefur farið fram í kyrrþey, að ósk hins látna.
Sérstakar þakkir til starfsfólksins í Seli fyrir frábæra hjúkrun.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á að láta hjúkrunarheimilið
Sel njóta þess.
Elínborg Einarsdóttir, börn og fjölskyldur þeirra.
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
Jörundur Kristinsson
skipstjóri, Foldasmára 11, Kópavogi,
sem lést á líknardeild LSH í Kópavogi sunnudaginn 24. apríl sl., verður
jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavík miðvikudaginn 4. maí kl 15.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast
hans er bent á líknarstofnanir.
Auður Waagfjörd Jónsdóttir
Kristinn Jörundsson Steinunn Helgadóttir
Kristín Bára Jörundsdóttir Eiríkur Mikkaelsson
Jón Sævar Jörundsson Rita Sigurgarðsdóttir
Alda Guðrún Jörundsdóttir Jóhann G. Hlöðversson
Anna Sigríður Jörundsdóttir Bjarni Kr. Jóhannsson
Jörundur Jörundsson Áslaug Hreiðarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Opnuð hefur verið heimasíða forseta
Íslands á slóðinni forseti.is. Á síð-
unni eru margvíslegar upplýsingar
um forsetann og verkefni hans, dag-
skrá, ræður og fleira. Þá er sagt frá
samtökum sem forsetinn er verndari
fyrir, fjallað um fálkaorðuna, fyrri
forseta og Bessastaði.
Níu ár eru liðin síðan Ólafur
Ragnar Grímsson talaði um að opna
heimasíðu forsetaembættisins og
var lénið forseti.is pantað í lok júlí
1996. Nú, tæpum níu árum síðar, er
síðan orðin að veruleika.
Meðal þess sem lesa má um á síð-
unni er að í dag flytur forsetinn
ræðu á fundi í Walbrook Club í Lund-
únum. Nefnist hún: How to Succeed
in Modern Business: Lessons from
the Icelandic Voyage sem þýða má:
Hvernig á að ná árangri í nútímavið-
skiptum: Íslenska leiðin.
Forsetahjónin verða svo heiðurs-
gestir í hátíðarkvöldverði Walbrook
Club annað kvöld.
Einnig má sjá að forsetinn er
verndari þrettán félaga og samtaka
og veitir hann reglulega níu verð-
laun og viðurkenningar. ■
Forsetavefurinn opnaður
FORSETI.IS Á forsetavefnum má sjá að
forsetinn flytur ræðu í Lundúnum í dag
um velgengni Íslendinga í viðskiptum.
ANDLÁT
Ingólfur Pálsson, rafvirkjameistari,
Réttarheiði 4, Hveragerði, lést á Hjúkr-
unarheimilinu Ási í Hveragerði laugar-
daginn 30. apríl.
Sólveig Eiríksdóttir, síðast til heimilis á
Fellsenda í Dölum, andaðist á Sjúkra-
húsinu á Akranesi laugardaginn 30.
apríl.
Sigríður Magnúsdóttir, frá Bæ í Króks-
firði, lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni í
Reykjavík föstudaginn 29. apríl.
Kristín María Hafsteinsdóttir, kennari,
lést á heimili sínu laugardaginn 30.
apríl.
Unnur Guðmundsdóttir, Stað, Reyk-
hólasveit, lést þriðjudaginn 26. apríl.
JARÐARFARIR
13:00 Andrea Guðmundsdóttir, frá
Drangavík, Túni, Borgarbyggð,
verður jarðsungin frá
Fossvogskirkju.
13:00 Oddgeir Jóhannsson skipstjóri,
Þrastarnesi 22, Garðabæ, verður
jarðsunginn frá Dómkirkjunni.
13:30 Anna Sigríður Björnsdóttir,
Skólastíg 11, Akureyri, verður
jarðsungin frá Akureyrarkirkju.
13:30 Guðrún Sigurbjörg Sigurðar-
dóttir, Möðrufelli 11, Reykjavík.
Útförin fer fram frá Safnaðar-
heimilinu í Sandgerði.
14.00 Eyjólfur Bjarnason, frá Kyljuholti,
verður jarðsunginn frá
Hafnarfjarðarkirkju.
www.hjarta.is • 535 1800
Minningarkort
535 1825