Fréttablaðið - 27.05.2005, Blaðsíða 28
Smáauglýsingar
byrja í dag á bls. 4
Flokkar
Bílar & farartæki
Keypt & selt
Þjónusta
Heilsa
Skólar & námskeið
Heimilið
Tómstundir & ferðir
Húsnæði
Atvinna
Tilkynningar
Góðan dag!
Í dag er föstudagur 27. maí,
147. dagur ársins 2005.
REYKJAVÍK 3.36 13.25 23.16
AKUREYRI 2.52 13.10 23.30
Heimild: Almanak Háskólans
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Atli Heimir Sveinsson tónskáld elskar
allar tegundir af fiski þótt hann borði
stundum kjöt til hátíðabrigða.
„Þú mátt alveg skrifa að ég sé lítið fyrir
uppskriftir, en þú mátt alls ekki skrifa að ég
sé góður kokkur,“ segir Atli Heimir, og
þvertekur fyrir að upplýsingar um snilld
hans í eldhúsinu séu á rökum reistar. „Ég er
harðánægður ef einhver fær hjá mér góðan
mat, en það er þá fisksalanum að þakka.“
Atli Heimir segist helst ekkert vilja
nema fisk og grænmeti og ef hann eldar,
sem hann gerir þó sjaldan, gufusýður hann
fisk.
„Ég vil hafa þetta allt einfaldara með
aldrinum og bý í mesta lagi til grískt salat
og sýð hrísgrjón með. Það verða þó að vera
hýðishrísgrjón, það er ekkert varið í þessi
amerísku hvítu.“
Tónskáldið er mjög meðvitað um matar-
æði og segir það hafa breyst með árunum.
„Mér verður bara betra af léttum mat,
líkaminn er greinilega að segja mér eitt-
hvað. Offitan er líka að verða meiriháttar
heilbrigðisvandamál, miklu meira en
hermannaveikin sem allir eru að skrifa um
núna. Við borðum allt of mikið og hreyfum
okkur of lítið. Það er ekkert flóknara.“
Atli Heimir, sem ólst upp á miðstéttar-
heimili í Vesturbænum, fékk eins og aðrir
af hans kynslóð fisk oft í viku. „Það var
helst eitthvert kjöt á sunnudögum. Þetta
var ágætlega hollur matur nema hvað
grænmetið var heldur fábreytt. En krakkar
voru ekki keyrðir í skólann og svo var auð-
vitað ekkert sjónvarp. Sjónvarp er svolítið
mannskemmandi, en aðallega leiðinlegt. Ég
horfi lítið á það.“
Hvað gerirðu í staðinn?
„Hvernig spyrðu, kona? Það er hægt að
gera svo margt annað. Ég les og finnst í
99% tilfella betra að sitja með bók en að
horfa á sjónvarpið. Svo fer ég í gönguferð-
ir og okkur hjónunum finnst gaman að
skreppa í bíó annað slagið.“
Atli Heimir gerir ekki upp á milli fisk-
tegunda og segist ekki eyða allt of miklu
púðri í eldamennskuna. „Ég á þessa líka
fínu bambuspotta svo ég get slegið tvær
flugur í einu höggi og soðið fiskinn í efri
pottinum og grænmetið í þeim neðri. Í
gríska salatið? Jú, það eru bara agúrkur,
tómatar og fetaostur og einhver olía
kannski. Allt eftir hendinni og þetta er
komið.“ edda@frettabladid.is
Við borðum of mikið
– það er ekkert flóknara
tilbod@frettabladid.is
BT við Reykjavíkurveg í Hafn-
arfirði er með góð tilboð á
tækum á borð við sjónvörp,
tölvur og prentara, svo og fylgi-
hlutum með þeim. 20% afslátt-
ur er af DVD-myndum og hið
sama gildir um alla tölvuleiki.
Samsung-sjónvarpstæki lækkar
úr 99.999 í 69.999 og Toshiba-
ferðatölva um sléttan hundrað
þúsund kall, úr 269.000 í
169.000. Til-
boðin gilda
einungis í BT á
Reykjavíkurvegi
í nokkra daga
því þann 4.
júní flyst
búðin í
Fjörð.
Gönguskór fyrir konur í flokki
B, sem henta fyrir lengri göng-
ur og bakpokaferðalög eru á
tilboði í versluninni Útilífi. Þeir
eru úr svokölluðu Nubuk-leðri,
með vönduðum sóla og
goritex-vatnsvörn. Skórnir fást
núna á 14.990 en fyrir lækkun
kostuðu þeir 17.990. Útilíf er til
húsa í Glæsibæ, Smáralind og
Kringlunni. Tilboðið gildir til 10.
júní.
Bakki, rúlla og pensill eru
saman á 990 krónur í
versluninni Harðviðarval
á Krókhálsi 4. Áður
kostaði þessi heilaga
þrenning 1.990
krónur þannig
að um rúmlega
helmingsaf-
slátt er að
ræða og
hlýtur það
að koma sér vel fyrir margan
því nú er málningartíminn. Til-
boðið gildir til 6. júní.
Rósir eru á 30% af-
slætti í blómabúð-
inni Holtablóminu á
Langholtsvegi 126. Sem
dæmi má nefna að 70 cm rósir
kosta nú 390 en voru áður á
560 krónur og nú er upplagt
að koma elskunni á óvart.
LIGGUR Í LOFTINU
í tilboðum
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR ATVINNA BRÚÐKAUP FJÁRMÁL TILBOÐ o.fl.
KRÍLIN
Ég fæddist til þess að
einhver myndi passa í
gömlu fötin hans stóra
bróður!
Gaman hjá kylfingum
BLS. 5
][
SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
SMÁAUGLÝSINGAR
Á 995 KR.
ÞÚ GETUR PANTAÐ
ÞÆR Á visir.is
Bambuspottar Atla Heimis gera soðninguna einfalda og fljótlega.
Just-eat.is er tiltölulega ný
vefsíða en hún gengur út á að
viðskiptavinur getur pantað
sér máltíð og fengið hana
senda heim – eða sótt án þess
að lyfta símtólinu. Þröstur
Már Sveinsson, annar um-
sjónarmanna vefsíðunnar,
segir viðtökurnar hafa verið
mjög góðar og að þegar hafi
um 2.500 máltíðir verið pant-
aðar í gegnum vefsíðuna.
„Íslendingar eru greini-
lega að átta sig á þægindun-
um sem fylgja því að versla á
netinu. Fleiri og fleiri nýta
sér einnig þann möguleika að
greiða með kreditkorti beint
í gegnum netið og sleppa
þannig við að þurfa að hafa
peninga við hendina þegar
maturinn er sendur heim,“
segir Þröstur og bætir við að
þægindin við just.eat.is felist
einkum í því að fólk getur
skoðað matseðla mismunandi
veitingahúsa í rólegheitun-
um og valið sér máltíð. „Þetta
er mjög auðveld og þægileg
leið til að panta mat.“
Vefsíðan www.just-eat.is
er eina matartorgið af þessu
tagi hérlendis en vefsíðan er
byggð á danskri fyrirmynd.
Vefsíðan er í samstarfi við
Coca-Cola og í sumar geta
notendur síðunnar tekið þátt
í leik og unnið meðal annars
Sony heimabíó. Allar nánari
upplýsingar um síðuna er að
finna á just-eat.is.
Á þriðja þúsund
máltíðir pantaðar
Just-eat.is slær í gegn á Íslandi eins og hjá frænd-
um okkar Dönum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/T
EI
TU
R
Þröstur Már Sveinsson er annar
umsjónarmanna vefsíðunnar.