Fréttablaðið - 29.05.2005, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 29.05.2005, Blaðsíða 4
4 29. maí 2005 SUNNUDAGUR Frakkar kjósa um stjórnarskrá Evrópusambandsins í dag: Örlíti› fleiri segjast kjósa á móti FRAKKLAND, AP Mjög mjótt er á mununum fyrir þjóðaratkvæða- greiðsluna um stjórnarskrá Evr- ópusambandsins samkvæmt síð- ustu skoðanakönnun sem birt var í gær. Samkvæmt henni segja 52 prósent Frakka nei við stjórnarskránni en 48 prósent já. Allar skoðanakannanir sem birtar hafa verið að undanförnu gefa til kynna að Frakkar hafni stjórnarskrársáttmálanum. Öll 25 aðildarríki Evrópusambands- ins þurfa að staðfesta sáttmál- ann til að hann taki gildi. Frakkar eru ekki einir um að stefna samþykkt stjórnarskrár- sáttmálans í hættu. Á miðviku- dag greiða Hollendingar at- kvæði um sáttmálann, skoðana- kannanir þar sýna að þrír af hverjum fimm landsmönnum séu andvígir honum. „Ef Frakkar segja nei, sem er alvarleg höfnun, og Hollending- ar fylgja í kjölfarið, held ég að sáttmálinn heyri í raun sögunni til,“ sagði John Palmer, sérfræð- ingur í Evrópumálum. ■ Bæta flarf samskipti fljó›arflokkanna Kofi Annan segir a› enn flurfi a› bæta a›stö›u fólks í Darfur flrátt fyrir a› líf fless hafi batna› a› undanförnu. Hann kom til héra›sins í gær til a› kynna sér a›stæ›ur og ræ›a vi› rá›amenn. SÚDAN Ástandið í Darfur hefur batnað en stjórnvöld á svæðinu þurfa að gera meira til að bæta aðstöðu þeirra hundruð þúsunda einstaklinga sem hafa flúið of- beldi í héraðinu. Þetta sagði Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sam- einuðu þjóðanna, þegar hann kom í dagslanga heimsókn til Darfur- héraðs í Súdan í gær. Annan ræddi við Al-Haj Atal- mannan Idris héraðsstjóra sem sagði honum hvernig reynt væri að bæta samskipti þjóðflokkanna sem byggja Darfur. Þannig væri leitast við að gera svæðið frið- vænlegra og líf íbúanna betra en áður. Annan tók undir með hér- aðsstjóranum að ástandið hefði batnað en sagði þörf á að gera meira svo ástandið gæti talist eðlilegt. „Við ræddum þörfina á að gera allt sem í okkar valdi stend- ur til að koma á friði í Darfur og tryggja að bændur geti snúið aftur til jarða sinna, gróðursett, ræktað og uppskorið. Annars horfum við fram á neyðaraðstoð sem á eftir að reyna mjög á getu alþjóðasamfélagsins til að bregð- ast við,“ sagði Annan að fundin- um loknum. Síðasta fimmtudag var haldin ráðstefna í Addis Ababa, höfuð- borg Eþíópíu, og var markmið hennar að safna fé til friðar- gæslu í héraðinu. Þrátt fyrir ein- dregin bænarorð Kofi Annan, að- alritara Sameinuðu Þjóðanna, söfnuðust aðeins um 13 milljarð- ar íslenskra króna. Þar af komu 8,5 milljarðar frá Kanada. Sam- tök Afríkuríkja töldu að alls þyrftu að safnast tæpir 30 millj- arðar, en samtökin sjá um friðar- gæsluna í héraðinu. Charles Snyder, fulltrúi Bandaríkjanna á ráðstefnunni, sagði að til að ljúka átökunum þyrfti Atlantshafs- bandalagið að styðja við bakið á samtökunum. Hann taldi að þau hefðu í raun verið að leita eftir utanaðkomandi stuðningi. Fram- kvæmdastjóri Atlantshafsbanda- lagsins sagði bandalagið á fund- inum tilbúið að veita alla þá að- stoð sem óskað væri eftir. „En Samtök afríkuríkja verða að halda um stýrið.“ ■ Flugslysaæfing: Gekk vel fyrir sig AKUREYRI Flugslysaæfing var hald- in á Akureyrarflugvelli um helg- ina. Yfir þrjú hundruð manns tóku þátt í æfingunni og voru heil- brigðisstarfsfólk, björgunarsveit- ir, lögreglan, slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn, að ógleymdum miklum fjölda fólks sem lék slasaða, í aðalhlutverk- um. Að sögn Árna Birgissonar, æf- ingastjóra hjá Flugmálastjórn Ís- lands, gekk æfingin nokkuð vel. „Það komu upp örlitlir hnökrar í kringum fjarskipti, en að öðru leyti gekk þetta alveg ágætlega,“ sagði Árni. - mh Impregilo: Borgi fyrir yfirvinnu DÓMSMÁL Impregilo var dæmt til að greiða Austfjarðaleið 122 þúsund krónur auk dráttarvaxta fyrir ógreidda yfirvinnu bílstjóra. Að auki þarf Impregilo að greiða Aust- fjarðaleið 100 þúsund krónur í máls- kostnað. Impregilo hefur þegar greitt rúmar 5,6 milljónir af rúmum 5,7 milljónum sem Austfjarðaleið taldi sig eiga inni hjá fyrirtækinu. Hlífar Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Austfjarðaleiðar, segir þetta alls ekki hafa komið sér á óvart. „Þetta var alveg ljóst af okkur hálfu, þarna var einfaldlega ekki búið að ljúka greiðslum fyrir umsamda þjón- ustu,“ sagði Hlífar. - mh TEKINN Á 150 Lögreglan í Stykk- ishólmi stoppaði tvo ökumenn á ofsahraða á Snæfellsnesi um helgina. Annar var á rúmlega 150 kílómetra hraða en hinn á rúm- lega 140. Mögnuð saga edda.is Komin í kilju „Ævar Örn skrifar afar lipran texta, samtölin eru þjál og spennufléttan haganlega samansett.“ - Silja Björk Huldudóttir, Mbl. „Bók sem unnendur íslensku spennusögunnar mega ekki láta fram hjá sér fara.“ - Ingibjörg Rögnvaldsdóttir, bokmenntir.is LÖGREGLUFRÉTTIR TÉKKLAND MIÐ-AUSTURLÖND FÍKNIEFNAMÁL VEÐRIÐ Í DAG HANDTEKNIR TVISVAR Í SÖMU VIKUNNI Tveir karlmenn á Sel- fossi hafa verið handteknir tvisvar síðustu daga fyrir að hafa ólögleg fíkniefni undir höndum. Þeir voru handteknir á laugardag eftir að tíu til fimmtán grömm af kannabisefnum fundust í fórum þeirra. Þá var einnig handtekin kona sem var hjá þeim og ætlaði að kaupa efni af þeim. GEISLAVIRKT VATN LAK ÚT Um 3.000 lítrar af geislavirku vatni láku úr tékknesku kjarnorkuveri nærri landamærunum að Austur- ríki. Talsmaður kjarnorkuversins sagði þó að hvorki umhverfinu né starfsmönnum versins stafaði hætta af lekanum. ÞJÁLFA FLEIRI LÖGREGLUMENN Palestínska heimastjórnin ætlar að ráða 5.000 manns til starfa í örygg- issveitir sínar til að tryggja öryggi meðan Ísraelar hverfa frá land- nemabyggðum á Gazasvæðinu. Þetta er gert vegna skorts á sam- hæfingu við Ísraelsstjórn um brott- hvarfið. KJÓSA UM FANGA Ísraelska stjórnin greiðir í dag atkvæði um hvort sleppa eigi 400 palestínskum föng- um úr fangelsi. Fangarnir eru með- al þeirra sem Ariel Sharon forsætis- ráðherra hét að veita frelsi þegar samið var vopnahlé milli Ísraela og Palestínumanna. KOSNINGAAUGLÝSINGAR SKOÐAÐAR Búist er við að stjórnarskránni verði hafn- að í Frakklandi í dag og Hollandi á mið- vikudag. KAUP Gengisvísitala krónunnar Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR USD GBP EUR DKK NOK SEK JPY XDR 64,60 64,90 117,69 118,27 80,88 81,34 10,87 10,93 10,12 10,18 8,79 8,85 0,60 0,60 95,84 96,42 GENGI GJALDMIÐLA 27.05.2005 GENGIÐ HEIMILD: Seðlabanki Íslands SALA 112,50 -0,01% RAFRÆN KOSNINGAKERFI Mælt er með að rafrænum kosningakerfum verði hent í Bandaríkjunum en þau verða notuð í Frakklandi í dag. Miami-Dade: Vill henda tölvunum BANDARÍKIN, AP Best væri að henda rafrænum kosningakerfum sem keypt voru eftir forsetakosning- arnar árið 2000 og kaupa í þeirra stað skanna sem flokka og telja at- kvæðaseðla. Þetta er mat Lester Sola, yfirmanns kosningakerfis- ins í Miami-Dade-sýslu, sem var í brennidepli vegna talningar at- kvæða í kosningabaráttu George W. Bush og Al Gore. Sola segir almenning hafa svo litla trú á rafræna kosningakerf- inu að besta leiðin til að auka til- trú fólks á kosningakerfinu sé að henda kerfinu sem kostaði and- virði 1,6 milljarða króna. ■ KOFI ANNAN Í SÚDAN Framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna hefur ferðast um Afríku síðustu daga til að ræða um og kynna sér ástandið í hinu stríðshrjáða héraði Darfur. M YN D /A P
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.