Fréttablaðið - 29.05.2005, Blaðsíða 60
29. maí 2005 SUNNUDAGUR32
fiór›ur Gu›jónsson, leikma›ur Stoke, segir fullkomna óvissu ríkja me› nán-
ustu framtí› klúbbsins. Tony Pulis knattspyrnustjóri er ekki viss hvort hann
haldi áfram og Gunnar Gíslason stjórnarforma›ur vill ólmur selja félagi›.
Fullkomin óvissa
ríkir hjá Stoke City
FÓTBOLTI „Ég hef ekki hugmynd
um hvað er að gerast í þessum
klúbbi,“ sagði Þórður Guðjónsson
við Fréttablaðið og átti þar við sitt
félag, Stoke City. „Það virðist eng-
inn vita hvert klúbburinn er að
fara og meira að segja ríkir óvissa
um hver verði þar sem stjóri. Mér
skilst á Tony Pulis sjálfum að það
sé engan veginn víst að hann haldi
áfram.“
Þórður á eitt ár eftir af samn-
ingi sínum hjá Stoke. „Ég hef ekki
farið fram á að félagið leysi mig
undan samningnum en ef þeir
vilja mig ekki geta þeir borgað
mér út og ég get þá farið ef því er
að skipta. Að öðru leyti er ekkert
annað en að bíða og sjá hvað ger-
ist.“
Guðjón vill fá Þórð
Fréttablaðið hefur heimildir
fyrir því að Guðjón Þórðarson,
stjóri Notts County og faðir Þórð-
ar, vilji fá hann til liðs við sig í
sumar. En Þórður segir það útilok-
að. „Ég efast ekki um að hann
myndi vilja fá mig ef það væri
hægt en það kemur ekki til
greina.“
Guðjón hefur þegar misst einn
af betri leikmönnum Notts
County, miðvallarleikmanninn
Stefan Oakes, en hann samdi við
Wycombe Wanderers sem leikur í
sömu deild. Guðjón veitti því ekki
af liðsstyrknum en honum er
frekar þröngur stakkur sniðinn í
fjármálum og með öllu ólíklegt að
hann geti mætt launakröfum son-
ar síns.
Erfitt hjá Þórði
En það er annað mál að Þórður
Guðjónsson hefur ekki fest sig í
sessi með félagsliði undanfarin
fimm keppnistímabil. Hann fór
frá Genk í Belgíu árið 2000, á há-
tindi ferils síns þar sem hann
hafði á þremur árum leikið 94
deildarleiki, skorað í þeim 28
mörk og varð þar að auki belgísk-
ur deildar- og bikarmeistari.
Á þessum fimm árum hefur
hann verið samningsbundinn Las
Palmas (Spáni), Bochum (Þýska-
landi) og Stoke og verið í láni í
stuttan tíma hjá Derby og Preston
North End á Englandi. Með þess-
um fimm liðum hefur hann leikið
65 leiki, þorrann sem varamaður,
og skorað fimm mörk.
En ef svo vill til að Þórður
ákveði að fara til föður síns yrði
það fyrst og fremst til að fá að
njóta sín sem knattspyrnumaður.
Það gæti líka orðið ágætur
stökkpallur fyrir hann því hann
hefur lítið sem ekkert fengið að
auglýsa sig undanfarin fimm ár.
Hann gæti einnig átt upp á pall-
borðið hjá landsliðsþjálfurunum
en þrátt fyrir allt hefur ferill hans
í landsliðinu frá því að hann fór
frá Belgíu verið ágætur – hann
hefur leikið 17 leiki, þar af 14 í
byrjunarliðinu og skorað tvö
mörk. Þórður verður 32 ára á ár-
inu.
Gunnar Gíslason, stjórnarfor-
maður Stoke, hefur áður lýst því
yfir að félagið sé til sölu. „Ég býst
við að það verði selt á næstu leik-
tíð en þangað til munum við gæta
hagsmuna okkar og stýra liðinu
eins og við best getum,“ sagði
hann við Fréttablaðið í gær.
eirikurst@frettabladid.is
PUNKTAÐU
NIÐUR
FERÐA-
LAGIÐ
KR-FH KL. 20 Í KVÖLD.
Fjölskyldustemning
í KR-heimilinu frá
kl. 18 og fram að leik.
Kvöldverður fyrir alla
fjölskylduna.
Matur 500 krónur
fyrir fullorðna og
frítt fyrir börn.
Kaffiveitingar
í hálfleik.
Heimir Ríkarðsson:
Gaf Gróttu
neitun
HANDBOLTI Heimir Ríkarðsson
handknattleiksþjálfari hafnaði í
gær tilboði frá Gróttu um fimm
ára samning. Kristján Guðlaugs-
son, formaður handknattleiks-
deildar félagsins, staðfesti þetta
þegar Fréttablaðið hafði samband
við hann í gær. Heimir, sem var
rekinn frá Fram í apríl, er í við-
ræðum við Fylki um að taka að
sér stöðu hjá félaginu og aðstoða
við að smíða alvöru handboltalið í
Árbænum.
„Það eru náttúrlega vonbrigði
að fá neitun frá jafn færum þjálf-
ara og Heimir er. Við ætlum í upp-
byggingu og leggja áherslu á
yngri flokka en erum komnir í
viðræður við aðra aðila eftir svar
Heimis. Það hefði náttúrlega ver-
ið frábært að fá hann til okkar en
maður fær ekki allt sem maður
vill,“ sagði Kristján, sem segist
vera í viðræðum við einn til tvo.
„Mín vinnuregla er að vera ekki í
viðræðum við mjög marga í einu,
heldur sýna frekar þolinmæði og
leggja áherslu á þann sem efstur
er á blaði.“ - egm
HEIMIR RÍKARÐSSON Ekki á leið á Nesið. SMICER Sendur burt frá Liverpool?
Tékkinn Vladimir Smicer:
Aftur til
Frakklands?
FÓTBOLTI Vladimir Smicer, leik-
maður Liverpool, gæti verið á leið
aftur í franska fótboltann en þar
hefur Bordeaux mikinn áhuga á
kappanum. Samningur Smicer við
enska liðið rennur út í næsta mán-
uði en hann gæti ekki hvatt félag-
ið með betri hætti, hann skoraði
annað mark Liverpool í sigrinum
á AC Milan í úrslitaleik Meistara-
deildinnar og skoraði einnig í víta-
spyrnukeppninni.
Strax eftir leikinn fékk um-
boðsmaður Smicers símtal frá
Bordeaux þar sem franska félagið
tilkynnti að það vildi fá tékkneska
landsliðsmanninn og það helst í
gær. - egm
FÓTBOLTI Leikmenn Glasgow Celtic
sáu til þess að Martin O’Neill,
stjóri liðsins, gæti kvatt félagið
með titli en liðið missti deildartit-
ilinn frá sér á síðustu stundu í
lokaumferðinni um síðustu helgi.
Celtic sigraði Dundee United, 1–0,
í úrslitaleik skosku bikarkeppn-
innar með marki Alans Thompson
á 11. mínútu leiksins.
„Þetta var frábært hjá strákun-
um,“ sagði O’Neill kampakátur í
leikslok. „Við áttum skilið að sigra
en eins og í síðustu viku gátum við
ekki gert algerlega út um leik-
inn.“ - esá
Skoska bikarkeppnin:
O’Neill kve›-
ur me› sigri
KVADDI MEÐ TITLI Martin O’Neill stýrði
Celtic til sigurs í síðasta leiknum.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTYIMAGES
TONY PULIS Virðist lítinn áhuga hafa fyrir Þórði Guðjónssyni og reyndar er með öllu óvíst
hvort hann haldi áfram að stýra liði Stoke City. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTYIMAGES
Á HÁTINDI FERILSINS Þórður Guðjónsson
fagnar með Rúnari Kristinssyni og Birki
Kristinssyni jafnteflinu gegn Frökkum á
Laugardalsvelli haustið 1998.
Kylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson í ágætum málum á móti í Marokkó:
Er í basli me› Bermúda-grasi›
GOLF Birgir Leifur Hafþórsson er
í 23.-31. sæti á móti í Marokkó
þegar aðeins á eftir að leika einn
hring en þetta mót er liður í
áskorendamótaröð Evrópu. Birg-
ir Leifur lék á 68 höggum í gær
eða þrem undir pari en hann er
sex undir pari samtals. Það hefur
verið fínn stígandi í leik Birgis
en hann lék fyrsta hringinn á 73
höggum, annan á 66 höggum og
svo fór hann á 68 höggum í gær.
„Ég hef verið að spila mjög
vel undanfarið og því átti ég von
á því að vera með efstu mönnum
á þessu móti,“ sagði Birgir Leif-
ur í samtali við Fréttablaðið í
gær en veðrið í Marokkó er
þægilegt þessa dagana – 25 stiga
hiti og smá gola.
„Ég er reyndar ekkert nógu
sáttur við minn leik á þessu
móti. Ég hef verið í vandræðum
með púttin enda er Bermúda-
gras á flötunum og ég á svolítið
erfitt með að reikna þau út. Ann-
ars er ég í fínu formi og þetta
hefði getað verið mikið mun
betra.“
Birgir Leifur segist taka það
jákvæða með sér á næstu mót
þar sem hann er bjartsýnn á gott
gengi.
„Ég á helling inni á næstu
mótum. Ég hef verið að æfa vel
og spila vel, betur en ég hef í
raun gert á þessu móti. Þetta er
samt allt á réttri leið og ég get
ekki verið annað en bjartsýnn.“
- hbg
BIRGIR LEIFUR HAFÞÓRSSON Er að gera fína hluti í Marokkó en hefur lent í vandræðum
með Bermúda-grasið sem er á flötunum. FRÉTTABLAÐIÐ/EIRÍKUR