Fréttablaðið - 29.05.2005, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 29.05.2005, Blaðsíða 20
Ég er búin að vera í Hlíð síð-an 1948, að ég kom sem að-stoðarstúlka á bæinn hér fyrir ofan. Ég kom úr Húnavatns- sýslu, er fædd á Lækjarmóti og var árum saman með ríka heim- þrá norður,“ segir Hólmfríður Sigurðardóttir, bóndi í Hlíð í Garðabæ. „Maðurinn minn var einkabarn á þessu heimili, en dvölin hér varð örlagaför. Meira en ég ætlaði. Fyrstu árin fannst mér bæði ljótt og leiðinlegt að koma hingað og var illa við að hafa sjóinn heima við tún. Ég hef alltaf verið hrædd við hafið og þá sem eru á sjó, það er eitthvað innbyrgt. Kannski vatnshræðsla,“ segir Hólmfríður og bætir við að áratugi hafi tekið að sætta sig við sjóinn í túninu. Bæði saga og leikrit voru skrifuð af Sigurði Ólafssyni í Hlíð, um eiginmann Hólmfríðar, Kristin Gíslason heitinn, þegar yfir hann flæddi á skeri við bæinn og kall- aðist „Kiddi flæddi á skeri“. „Í dag finnst mér fallegt hér, þótt ég líti sjaldnast á sjóinn. Ég vissi ekki annað en að við Kristinn myndum búa sér þegar ég kæmi hingað, en þetta var alltaf eitt samkrull. Svona var þetta á þeim tíma, fjölskyldur bjuggu saman undir sama þaki, sem er kúnst þegar taka þarf tillit til annarra sem hafa ráðið á bænum alla tíð. Það getur víst aldrei orðið eðli- legt, því konan verður ekki hús- móðir á sínu heimili, eins og ég ímynda mér að sé búi maður einn með maka sínum og börnum,“ segir Hólmfríður sem eignaðist góða vini í tengdaforeldrum sín- um sem bæði dóu í hárri elli heima í Hlíð. „Kristinn dó fyrir rúmum þrettán árum, en hann fékk Park- insonveiki. Ég er hjartabiluð og var viss um að ég færi á undan honum, en þakka nú Guði fyrir að hafa lifað hann því hann mátti ekki af mér sjá og enginn mátti hjálpa honum nema ég.“ Maður Hólmfríðar var með- hjálpari í Garðakirkju í þrettán ár og sjálf var Hólmfríður í sóknar- nefnd hátt í tuttugu ár. „Ég unni þessari kirkju eins heitt og leið alltaf svo vel í henni, jafnvel þótt ég væri ein. Beinin mun ég bera í kirkjugarðinum við hlið mannsins míns þegar þar að kemur,“ segir Hólmfríður, en Garðakirkja átti jörðina Hlíð eins og aðrar í sveitinni. „Garðabær hirti þær allar á bak við okkur því auðvitað áttum við fyrsta kauprétt. Vitaskuld urð- um við sár og ég vildi að stofnuð yrðu samtök til að sporna á móti þessu, en það kom aldrei til. Þetta var búið og gert. Ég hef verið svo heppin að yngri sonur minn hefur gert mér kleift að vera hérna, hann hefur átt alla sína ævi í Hlíð og heldur því áfram þótt við séum bara tvö í heimili. Hann hefur sagt að ég fari aldrei á elliheimili, þótt ég hafi sjálf lagt til að hann fyndi sér konu og byggi hér án mín, en honum finnst það ekki koma til greina. Það er ósköp in- dælt að vita af þessum hlýja hug, en þetta er fórn hjá honum.“ Í Hlíð eru enn nokkrar kindur sem Hólmfríður rýr sjálf og hirð- ir daglega, og nú sér hún fram á lok sauðburðar. „Geti maður stillt sig inn á að fylgjast með skepnum þannig að hvert dýr hafi sitt einkenni, og unnið vináttu þeirra, þá er það ekki eins lítilfjörlegt og mörgum finnst. Skepnur hafa tilfinningu fyrir því hvernig komið er fram við þær. Í dag er stefnt að því að minnka fjáreign á Íslandi, en ég veit ekki hvar á að taka gjaldeyri þegar kaupa þarf kjöt frá útlönd- um né hvaða sjúkdómar koma með því,“ segir Hólmfríður hugsi og bætir við að hún sé nú fjórum sinnum lengur að vinna verkin en áður. „Þetta er tómur roluskapur í mér og dagurinn fer í ekki neitt. Það er aldrei frídagur þegar mað- ur er með skepnur. Ég er aldrei einmana og langsáttust við að vera hér áfram, þótt gott sé að vera annað slagið innan um fólk. Ég er í eðli mínu félagsvera, en samt hlédræg. Þrjósk við sjálfa mig og viðkvæm sál. Það er öllum frjálsara að vera út af fyrir sig,“ segir Hólmfríður, sem getur ekki hugsað sér að fá byggðina nær en nú er. „Burtséð frá því að ég hrekk bráðum upp af og kemur þetta ekki við, þá er þetta eina græna svæðið frá Kjós á Kjalarnesi og syðst suður á Reykjanesi. Hér vil ég sjá fallegt útivistar- svæði með golfvelli eða öðru sem nútíminn krefst, auk þess sem nauðsynlegt er fyrir ungdóminn að vita að hér í Garðabæ var eitt sinn búskapur og allt annað líf en nú tíðkast.“ 20 29. maí 2005 SUNNUDAGUR Vitaskuld ur›um vi› sár Bærinn Hlí› í Gar›abæ er eitt af sí›ustu kotun- um í sveitinni milli Hafn- arfjar›ar og Álftaness. Ábúandinn Hólmfrí›ur Sigur›ardóttir féll óvænt fyrir einkasyninum í Hlí› flegar hún kom í vist á næsta bæ ári› 1948. Nú b‡r hún ein me› fá- einum kindum, ungri tík og hjálpsömum syni sín- um. fiórdís Lilja Gunn- arsdóttir naut fuglasöngs og fri›sældar á hla›inu austan vi› Hafnarfjör›. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M HÓLMFRÍÐUR SIGURÐARDÓTTIR, BÓNDI Í HLÍÐ Í GARÐABÆ „Geti maður stillt sig inn á að fylgjast með skepnum þannig að hvert dýr hafi sitt einkenni, og unnið vináttu þeirra, þá er það ekki eins lítilfjörlegt og mörgum finnst. Skepnur hafa tilfinningu fyrir því hvernig komið er fram við þær.“ SÁTT VIÐ SJÓINN Í TÚNINU „Ég hef alltaf verið hrædd við hafið og þá sem eru á sjó, það er eitthvað innbyrgt. Kannski vatnshræðsla.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.