Fréttablaðið - 29.05.2005, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 29.05.2005, Blaðsíða 6
6 29. maí 2005 SUNNUDAGUR Kosningar hefjast í Líbanon, þær fyrstu eftir að Sýrlendingar fóru frá landinu: Kosi› um arfleif› Hariri LÍBANON, AP Líbanar ganga í dag að kjörborðinu og kjósa sér nýtt þing í fyrsta sinn eftir að Sýrlendingar hurfu frá landinu með hermenn sína og leyniþjónustu. Kosningarnar eru haldnar í skugga morðsins á Rafik Hariri, fyrrum forsætisráðherra Líbanons, sem var ráðinn af dögum í febrúar. Ganga sumir svo langt að segja að kosningarnar snúist í raun um arf- leifð forsætisráðherrans fyrrver- andi. Stór veggspjöld með myndum af Hariri víða í höfuðborginni styrkja þetta viðhorf. Afstaðan til samskipta Líbanons við Sýrland hafa einnig mikið að segja um úrslitin. Í höfuðborginni er meiri andstaða við Sýrlendinga en í suðurhluta landsins þar sem Hezbollahskæruliðar eru áhrifa- miklir, þeir hafa notið stuðnings Sýrlendinga. Fleira hefur þó áhrif einkum og sér í lagi ætterni og fjöl- skyldutengsl sem hafa mikið að segja í líbönskum stjórnmálum. ■ Úrskurður vegna Upplýsingamiðstöðvar ferðamála: Reykjavíkurborg fær engan frest SAMKEPPNISRÁÐ Áfrýjunarnefnd samkeppnismála felldi úr gildi frest sem samkeppnisráð hafði veitt Reykjavíkurborg til að skipta upp starfsemi Upplýsinga- miðstöðvar ferðamála og bjóða hluta af starfseminni út. Að öðru leyti staðfesti áfrýjunarnefndin úrskurð samkeppnisráðs. Áfrýjandi var Ferðaþjónusta Reykjavíkur ehf. sem vildi meina að Upplýsingamiðstöð ferðamála nyti ólöglegrar samkeppnisstöðu um bókanir á gistingu og þjón- ustu vegna opinberra styrkja frá Reykjavíkurborg. Samkeppnis- ráð féllst á rökstuðninginn og gerði Höfuðborgarstofu að bjóða út rekstur bókunarþjónustunnar. Borgin fór fram á frest til 1. októ- ber á grundvelli þess að vont væri að gera skipulagsbreyting- ar á háannatíma ferðaþjónust- unnar. Samkeppnisráð veitti frestinn. Ferðaþjónusta Reykjavíkur ehf. áfrýjaði sem fyrr segir þeim úrskurði til áfrýjunarnefndar samkeppnismála sem felldi frest- inn úr gildi og því ber Höfuð- borgarstofu að hlíta úrskurði samkeppnisráðs að fullu fyrir 1. júlí og skilja að fullu á milli bók- unarþjónustu og annarrar þjón- ustu. -oá Segir samfélagi› framlei›a öryrkja Gó› menntun, há laun, glæsilegt útlit og lífsgæ›i eru kröfur samfélagsins. fieir sem ekki standa undir fleim lenda utan gar›s og enda sem öryrkjar. Úrræ›i skort- ir og yfiri›jufljálfi á ge›svi›i Landspítalans segir starfsfólk vera a› gefast upp. HEILBRIGÐISMÁL „Samfélagið er að búa til öryrkja,“ segir Sylviane Pét- ursson yfiriðjuþjálfi á Landspítala háskólasjúkrahúsi. Hún hefur starf- að við iðjuþjálfum á geðsviði Landspítalans síðastliðin 24 ár. Hún gagnrýnir stjórnvöld harðlega fyrir þá stöðu sem skapast hefur hér á landi. Samkvæmt tölum Hagfræði- stofnunar Háskóla Íslands fjölgaði öryrkjum hér um fjörutíu prósent á árunum 1998 til 2003. „Umræðan um að fólk sé að svíkja út örorkubætur er byggð á misskilningi,“ segir Sylviane. „Kröfur okkar samfélags nú eru að fólk hafi góða menntun, há laun, sé glæsilegt og vel klætt. Stórt hlutfall unglinga flosnar upp eftir grunn- skólann og fer ekki í framhalds- menntun. Þeim sem ekki ná að vera innan þessa ramma sem velferðar- þjóðfélagið setur, fer að líða illa. Af- leiðingarnar eru í fyrstu minnimátt- arkennd og vanlíðan sem síðan get- ur þróast í streitueinkenni. Viðkom- andi endar hjá lækni, sem með- höndlar vandann sem sjúkdóm í stað þess að skoða umhverfisþætti. Þarna þyrfti að grípa strax inn í og hjálpa fólki til að greina orsakir vandans og vinna sig út úr honum. En það eru engin úrræði til staðar, ekki fyrr en fólk þarf að sækja að- stoð á geðsvið LSH, jafnvel á bráða- deild, þá orðið verulega veikt.“ „Tvö síðastliðin ár höfum við staðið frammi fyrir því að geta ekki meðhöndlað allan þann fjölda fólks sem þarf endurhæfingu. Við erum að gefast upp. Ung börn eru að bíða mánuðum, jafnvel árum saman, eft- ir því að fá mat og greiningu á barna- og unglingageðdeild LSH. Stór hluti unglinga sem flosnar upp úr námi er framtíðaröryrkjar.“ Sylviane segir, að 25 manns séu nú á biðlista eftir þjónustu á göngu- deild geðsviðsins. Þeir komist ekki að fyrr en um áramót. Um helming- ur þeirra sé fæddur 1980 til 1985. Verið sé að taka inn fólk sem hafi beðið síðan í janúar. „Þeir sem á þurfa að halda fá endurhæfingarbætur í 18 mánuði,“ segir hún. „Sá tími er stundum út- runninn áður en meðferðinni er lok- ið, því biðlistar eru svo langir. Bæt- urnar geta því fokið fyrir ekki neitt á meðan fólkið verður veikara og veikara. Auka þarf úrræði til starfsendurhæfingar, þannig að hægt sé að grípa strax inn í þegar fólk er að flosna upp úr vinnu eða skóla. Með því má koma í veg fyrir að það komi illa veikt inn á bráða- deildirnar. „Yfirvöld félagsmála, mennta- mála og heilbrigðismála verða að at- huga þennan mikla og vaxandi vanda frá rótum og gera ráðstafan- ir til að snúa þessari þróun við“ jss@frettabladid.is Ungir framsóknarmenn: Vilja halda í vaxtabæturnar STJÓRNMÁL Ungir framsóknarmenn leggjast gegn því að vaxtabóta- kerfið verði afnumið. Stjórn Sambands ungra fram- sóknarmanna segir í ályktun að vaxtabætur séu eitt besta tækifæri sem stjórnvöld hafa til að hjálpa fólki við að koma sér þaki yfir höf- uðið. Þá segja þeir að ekki megi koma í bakið á því unga fólkið sem hefur stofnað til skulda vegna íbúðakaupa og tekið vaxtabætur með í reikninginn við ákvörðun um húsnæðiskaup. Geir H. Haarde fjármálaráð- herra hefur sagt að til greina komi að afnema vaxtabótakerfið. - bþg Greiðslur til friðargæsluliða: Enginn misskilningur FRIÐARGÆSLUSTÖRF Vegna ummæla Steinars Arnar Magnússonar friðargæsluliða um að misskiln- ingur milli stofnana hefði valdið því að friðargæsluliðar hefðu ekki fengið bætur frá Trygging- arstofnun vill Karl Steinar Guðnason, forstjóri Tryggingar- stofnunar, árétta að einskis misskilnings hafi gætt af hálfu Tryggingastofnunar. Hann segir svör utanríkis- ráðuneytisins við beinum spurn- ingum hafa verið á þá lund að friðargæsluliðarnir hefðu ekki verið í vinnu þegar að slysið átti sér stað. Síðar komu fram nýjar upp- lýsingar frá utanríkisráðuneyt- inu og var þá fyrri ákvörðun endurskoðuð. -jse Á að reisa íbúðabyggð í Viðey, Engey, Akurey og Geldinga- nesi? SPURNING DAGSINS Í DAG: Eiga Skorrdælingar að sameinast nágrannasveitarfélögum sínum? Niðurstöður gærdagsins á visir.is 46,8% 53,2% Nei Já Farðu inn á fréttahluta visir.is og segðu þína skoðun KJÖRKASSINN GÓÐ GJÖF Lionsmenn í Nirði og starfs- menn á Landspítala Grensási þegar gjöfin var afhent. Lionsmenn í Nirði: Gáfu flrettán sjónvörp FÉLAGSMÁL Lionsmenn komu fær- andi hendi á Grensás fyrr í þessari viku þegar þeir afhentu þrettán sjónvarpstæki sem þeir höfðu safn- að fyrir. Það voru félagar í Lionsklúbbn- um Nirði sem færðu deild R-3 að Grensási að gjöf þrettán sjónvarps- tæki með innbyggðum DVD-spilara ásamt festingum á veggi. Formaður Lionsklúbbsins Njarðar, Hörður Sigurjónsson, afhenti gjöfina í at- höfn í skála á deildinni. Með gjöf Lionsmanna verða komin sjónvarpstæki á allar sjúkra- stofur deildarinnar. Við þetta tæki- færi söng Gerðubergskórinn nokk- ur lög og færði deildinni að gjöf fjóra geisladiska. Ingibjörg S. Kol- beins hjúkrunardeildarstjóri á R-3 veitti gjöfunum viðtöku. -jss UPPLÝSINGAMIÐSTÖÐ FERÐAMÁLA Áfrýjunarnefnd samkeppnismála felldi úr gildi fresti sem Reykjavíkurborg hafði fengið til að fara að fyrirmælum ráðsins. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA SYLVIANE PÉTURSSON „Velferðarkerfið get- ur ekki staðið undir þeim mikla vanda, sem vaxandi örorka leiðir af sér, til lengd- ar, segir Sylviane Pétursson, yfiriðjuþjálfi á Landspítala - háskólasjúkrahúsi. KOSNINGARNAR UNDIRBÚNAR Embættismenn undirbjuggu kosningarnar í gær. Hér sjást nokkrir þeirra bera atkvæðaseðla inn á kjörstað. LOTTÓ ENGINN MEÐ FIMM RÉTTA Fyrsti vinningur í Lottóinu gekk ekki út í gærkvöldi. Fyrsti vinningur verður því þrefaldur í næstu viku, hann var rúmar sex milljón- ir í gær. Fjórir voru með fjórar tölur réttar og bónustöluna að auki og fær hver og einn 136 þús- und krónur. Tölur kvöldsins eru 7, 21, 22, 24 og 28, bónustalan 29.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.