Fréttablaðið - 29.05.2005, Blaðsíða 52

Fréttablaðið - 29.05.2005, Blaðsíða 52
24 29. maí 2005 SUNNUDAGUR Tveir fyrir einn til Prag 9. júní frá kr. 19.990 kr. 19.990 í viku Flugsæti með sköttum til Prag, 2 fyrir 1 tilboð, út 9. júní, heim 16. júní. Netverð á mann. Gisting frá kr. 3.400 Netverð á mann í tvíbýli á Hotel Quality, pr. nótt með morgunmat. Völ um góð 3ja og 4 stjörnu hótel. Heimsferðir bjóða ótrúlegt tilboð á síðustu sætunum til Prag þann 9. júní. Þú bókar 2 flugsæti en greiðir aðeins fyrir 1. Nú getur þú kynnst þessari fegurstu borg Evrópu á einstökum kjörum. Þú getur valið um úrval góðra hótel í hjarta Prag og að sjálfsögðu nýtur þú traustrar þjónustu fararstjóra okkar í Prag allan tímann. Síðustu sætin Sjötta hljóðversplata breskuhljómsveitarinnar Oasis,Don’t Believe the Truth, kemur út í dag. Þetta er fyrsta plata þessara bresku ólátabelga í þrjú ár, eða síðan Heathen Chem- istry kom út árið 2002. Oasis var stofnuð í Manchester árið 1992. Upphaflegir meðlimir voru söngvarinn Liam Gallagher, bróðir hans Noel, trommarinn Tony McCarrol, gítarleikarinn Paul „Bonehead“ Arthurs og bassaleikarinn Paul „Guigsy“ McGuigan. Fyrsta plata Oasis, Definitely Maybe, kom út árið 1994 og vakti gríðarlega athygli á sveitinni. Breskir fjölmiðlar töldu að hinir nýju Bítlar væru komnir fram á sjónarsviðið og ef miða á við útlit sveitarinnar og lagasmíðarnar á þessum tíma á þessi samlíking nokkurn rétt á sér. Lögin voru undir sterkum bítlaáhrifum með góðum melódíum en bjuggu jafn- framt yfir ferskum rokkhljómi sem margir áttu eftir að reyna að líkja eftir á komandi árum. Sveit- in hefur samt aldrei komist með tærnar þar sem Bítlarnir höfðu hælana, þrátt fyrir góða spretti. Definitely Maybe var uppfull af slögurum á borð við Live Forever, Supersonic og Rock’n Roll Star og framtíð Oasis var svo sannarlega björt. Oasis lagið heiminn að fótum sér 1995 með plötunni What’s the Story (Morning Glory). Platan fór beint í efsta sæti breska vinsæl- dalistans og seldist hraðar en nokkur önnur plata í Bretlandi síðan Michael Jackson gaf út Bad árið 1987. Þarna var orðið ljóst að sveitin var komin til að vera enda með lög í farteskinu sem áttu eftir að verða ódauðleg, þá sér í lagi Wonderwall. Bræðurnir Liam og Noel áttu þó erfitt með að með- höndla sviðsljósið sem frægðinni fylgdi og um tíma virtist sem Oas- is væri komin á villigötur. Næsta plata sveitarinnar, Be Here Now, kom út 1997 og á henni sáust þreytumerki á sveitinni. Platan fékk slæma útreið gagn- rýnenda og þar var engan alvöru- slagara að finna. Þrjú ár liðu þar til Standing on the Shoulders of Giants kom út og fékk sú plata einnig blendnar viðtökur. Engu að síður þótti hún nokkuð betri en forverinn. Heathen Chemistry kom síðan út fyrir þremur árum og fékk svipaðar viðtökur. Oasis virtist eiga erfitt með að rífa sig upp úr meðalmennskunni en áður en upp- tökur á nýjustu plötunni hófust hét Noel Gallagher því að næsta plata yrði almennileg. Þetta hafði hann að segja um fyrsta smá- skífulag plötunnar, Lyla: „Þetta er stæling á The Who. Við sömdum 66 lög og Lyla var eitt af þeim sem við skoðuðum betur undir það síð- asta og það endaði á plötunni. Ég er ánægður með hvert einasta lag á plötunni,“ sagði hann. Nýja platan hljómar alveg ágætlega og þar má greina nokk- urt afturhvarf til hljómsins sem einkenndi sveitina í upphafi. Þó svo að ekkert nýtt sé á ferðinni sýnir Oasis á Don’t Believe the Truth að hún er ekki dauð úr öll- um æðum. Oasis þykir öflug á sviði og ætlar sveitin að fylgja plötunni eftir með umfangsmikilli tón- leikaferð um heiminn. Hefst hún í Madríd á Spáni þann 1. júní og lýkur í Cleveland í Bandaríkjun- um 30. september. Þegar er orðið uppselt á um það bil helming tón- leikanna. Þrátt fyrir að Oasis hafi kannski ekki náð sömu hæðum og fyrir tíu árum er sveitin vafalítið ein af stærstu rokksveitum heimsins í dag. Plötusala í 39 milljónum ein- taka segir allt sem segja þarf. Meðlimir Oasis eru annálaðir aðdáendur enska fótboltaliðsins Man. City. Því vakti það mikla athygli er þeir ákváðu að slá upp allsherjar fót- boltapartíi fyrir tón- leika sína í London á miðvikudag, sama dag og Liverpool mætti AC Milan í úr- slitum Meistara- deildarinnar. Tónleikarnir áttu upphaflega að hefj- ast klukkan 20.00 en þess í stað var risa- stóru breiðtjaldi komið fyrir á staðn- um svo að tónleika- gestirnir gætu séð leikinn í beinni útsendingu. Oasis neitaði að stíga á svið fyrr en leikurinn væri á enda og þeg- ar að því kom var upphafslag þeirra á tónleikunum Liver- pool-lagið „You’ll Never Walk Alove“ til heiðurs sigur- vegurunum. „Það var uppselt á tónleikana og í stað þess að fá upphitunarband til að spila ákváðum við að fá breiðtjald og skella því upp við mitt sviðið svo allir gætu horft á leikinn,“ sagði Noel Gallagher. „Síðan myndum við spila á eftir og fá skömm í hattinn af yfirvöldum. Það voru allir til í þetta.“ ■ OASIS Hljómsveitin Oasis er að gefa út sína sjöttu hljóðversplötu. Rokksveitin Oasis gefur út n‡ja plötu á morgun sem nefnist Don’t Believe the Truth. Freyr Bjarnason leit yfir feril flessara bresku ólátabelgja, sem spannar nú flrettán ár. HLJÓÐVERSPLÖTUR OASIS: Definitely Maybe (1994) What’s The Story (Morning Glory) (1995) Be Here Now (1997) Standing on the Shoulder of Giants (2000) Heathen Chemistry (2002) GALLAGHER-BRÆÐUR Bræðurnir Liam og Noel Gallagher eru forsprakkar Oasis. Ekki dau›ir úr öllum æ›um OASIS Meðlimir Oasis eru annálaðir aðdáendur Manchester City en vottuðu Liverpool samt virðingu sína á dögunum. Sungu You’ll Never Walk Alone
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.