Fréttablaðið - 29.05.2005, Page 12
Ekkert var sparað við byggingu
Austurbæjarskóla þegar hann var
reistur fyrir 75 árum. „Hann var
byggður af miklum metnaði og
öllu til tjaldað, svo að byggingin
gæti orðið sem glæsilegust,“ segir
Pétur Ármannsson arkitekt. Bygg-
ingin þótti ein allra glæsilegasta
skólastofnun á Norðurlöndum á
sínum tíma.
Áform voru uppi um að byggja
upp háborg menningar á Skóla-
vörðuholtinu en þær hugmyndir
urðu aldrei að veruleika. Austur-
bæjarskóli átti að vera hluti af
þessum kjarna og sker sig því tals-
vert úr öðrum arkitektúr í grennd-
inni. „Byggingin er fulltrúi fyrir
ákveðna stílgerð sem var algeng á
Norðurlöndunum á árunum 1915
til 1925. Stíllinn einkennist af því
að vera strangur, agaður og klass-
ískur, en víðsvegar annars staðar
var rómantísk stefna ríkjandi,“
segir Pétur.
Spurður að því hvort byggingin
líði nokkuð fyrir það að hafa aldrei
staðið í því umhverfi sem henni
var upphaflega ætlað, segir Pétur
ekki svo vera. „Skólinn stendur al-
veg fyrir sínu, þótt hluti í hans
nánasta umhverfi hefði mátt út-
færa betur. Þetta er mikil bæjar-
prýði þessi bygging og afmæli
skólans er stórt afmæli í bygging-
arsögu borgarinnar,“ segir Pétur.
Guðmundur Sighvatsson,
skólastjóri Austurbæjarskóla,
segir bygginguna hafa mikinn
sjarma. „Þetta er virkilega falleg
bygging, jafnt að innan sem utan,“
segir Guðmundur stoltur.
Að innan er þó margt sem
mætti vera öðruvísi, enda þarfirn-
ar breyst mikið síðan 1930. „Stof-
urnar eru heldur litlar og svo
vantar opið rými innan skólans.
Þetta er þó ekkert sem mér finnst
vera verulega mikill galli,“ segir
Guðmundur og bætir við að það sé
ánægjulegt hversu sterkar tilfinn-
ingar Reykvíkingar beri til skól-
ans.
Austurbæjarskóli er þó farinn
að láta örlítið á sjá og segir Guð-
mundur það orðið mikilvægt að
lagfæra múrskemmdir á húsinu
áður en langt um líður. ■
12 29. maí 2005 SUNNUDAGUR
JEFF BUCKLEY
(1966-1997) lést þennan dag.
Arkitektúr sem er
borginni til mikils sóma
TÍMAMÓT: AUSTURBÆJARSKÓLI 75 ÁRA
„Kysstu af þrá, en ekki af huggun.“
Bandaríski tónlistarmaðurinn Jeff Buckley féll frá með
sviplegum hætti þegar hann drukknaði í Mississippi-
ánni. Hann sendi einungis frá sér eina breiðskífu, Grace,
en hún gerði hann að goðsögn í tónlistarsögunni.
timamot@frettabladid.is
Stuttu fyrir upphaf úrslitaleiks í
Brussel milli fótboltaliðanna
Juventus og Liverpool í Evrópu-
keppni meistaraliða upphófust
miklar óeirðir. Hópur æstra fót-
boltabullna úr röðum Liverpool-
áhangenda ruddist í gegnum ör-
yggisgæslu til að lumbra á stuðn-
ingsmönnum Juventus. Þegar
þeir flúðu í ofboði undan bullun-
um hrundi veggur vegna álagsins
og lentu margir undir honum.
Mikil skelfing greip um sig og
tróðust margir undir í ofboðinu.
39 manns létust og 350 særðust.
Lögreglan á staðnum náði eng-
um tökum á uppþotinu og var
óeirðalögregla kölluð til. Þegar
umfang harmleiksins varð ljóst
kom Rauði krossinn á staðinn og
gerði að sárum fólks í tjöldum
við leikvanginn.
Þrátt fyrir mótmæli beggja liða
var leiknum haldið áfram og lauk
honum með 1-0 sigri Juventus.
Innan nokkurra daga var ákveðið
að ensk fótboltalið fengju ekki
að spila fótbolta í Evrópu næstu
fimm árin. Liverpool fékk enn
lengra bann, sex ár. Ákvörðunin
var tekin af Alþjóðaknattspyrnu-
sambandinu og studd af forsæt-
isráðherra Breta, Margréti
Thatcher.
Ofbeldi á fótboltaleikjum er nú
haldið í skefjum með því að hafa
áhangendur liðanna aðskilda í
áhorfendastúkum og með banni
á áfengi.
29. MAÍ 1985 Um 60 þúsund
manns voru staddir á úrslitaleiknum.
ÞETTA GERÐIST MERKISATBURÐIR
1942 Gyðingar í París eru neyddir
til að sauma gula Davíðs-
stjörnu í föt sín.
1947 Flugvél rekst á Hestfjall við
Héðinsfjörð og 25 manns
farast. Þetta er mesta flug-
slys á Íslandi. Vélin var á
leið frá Reykjavík til Akur-
eyrar.
1953 Edmund Hillary og sjerpinn
Tenzing Norgay komast
fyrstir allra á topp Everest-
fjalls.
1968 Slysavarðsstofan er flutt úr
Heilsuverndarstöðinni í
Reykjavík í Borgarspítalann.
1999 Ísland nær öðru sæti í
söngvakeppni evrópskra
sjónvarpsstöðva með lag-
inu All Out of Luck, fluttu
af Selmu Björnsdóttur.
Harmleikur í úrslitaleik
Elskulegur unnusti, faðir, sonur, tengdasonur og
bróðir,
Ágúst Þórður Stefánsson
Öldugötu 31, Hafnarfirði,
sem lést á gjörgæsludeild Landspítalans, Fossvogi, sunnudaginn 22.
maí, verður jarðsunginn frá Seljakirkju mánudaginn 30. maí kl. 13.00.
Maríam Siv Vahabzadeh, Nadía Líf Ágústsdóttir
María Alexandersdóttir, Jón Björnsson
Lilja Ingvarsdóttir, Smári Brynjarsson
og systkini.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir
og afi,
Sigurjón G. Sigurjónsson
Birkigrund 71, Kópavogi,
verður jarðsunginn frá Digraneskirkju þriðjudaginn 31. maí kl. 15.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Heimahlynningu Krabbameinsfélagsins.
Anna Ásgeirsdóttir
Freyja Sigurjónsdóttir Þórir Sigurgeirsson
Ásgeir Sigurjónsson Silja Sverrisdóttir
Drífa Sigurjónsdóttir Ólafur Baldursson
og barnabörn.
Elskuleg móðir okkar og tengdamóðir,
Jakobína H. Schröder
til heimilis að Fannborg 8,
áður Birkihlíð við Nýbýlaveg, Kópavogi,
andaðist á Landspítalanum við Hringbraut miðvikudaginn 25. maí.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Erna María Jóhannsdóttir, Ásvaldur Andrésson,
Baldur Schröder, Naomi Herlita
og aðrir aðstandendur.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og vinar-
hug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu
og langömmu,
Jóhönnu Guðmundsdóttur
Hrafnistu, Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Hrafnistu, Hafnarfirði, og
starfsfólki á deild 12E á Landspítala, Hringbraut.
Jóna Sigrún Harðardóttir Arilíus Harðarson
Halldór Sigþór Harðarson Hólmfríður Alda Sigurjónsdóttir
Sigurður Páll Guðjónsson
Hanna Björk Guðjónsdóttir Ólafur Guðjónsson
Hörður Jóhann Halldórsson Sigrún Birna Magnúsdóttir
Sigríður Hrönn Halldórsdóttir Sigmar Karl Stefánsson
og langömmubörn.
ANDLÁT
Dagbjört Guðjónsdóttir, Selvogsgrunni
11, lést þriðjudaginn 24. maí.
Jakobína H. Schröder, til heimilis í
Fannborg 8, áður Birkihlíð við Ný-
býlaveg, Kópavogi, lést miðviku-
daginn 25. maí.
AFMÆLI
Bjarni Dagur Jónsson, markaðsstjóri og
fyrrverandi útvarpsmaður, er 55 ára.
Margrét Frímannsdóttir þingmaður er
51 árs.
Magnús Þór Hafsteinsson þingmaður
er 41 árs.
Gísli Pétur Hinriksson leikari er 26 ára.
SUNDLAUGIN Í upphafi þóttu það mikil
flottheit að hafa sundlaug í skólanum.
Tilkynningar um merkisatbur›i,
stórafmæli, andlát og jar›arfarir
í smáletursdálkinn má senda á net-
fangi› timamot@frettabladid.is.
Augl‡singar á a› senda á
auglysingar@frettabladid.is e›a
hringja í síma 550 5000.
GUÐMUNDUR SIGHVATSSON SKÓLASTJÓRI AUSTURBÆJARSKÓLA
Byggingin hefur mikið sögulegt gildi fyrir Reykjavík, en skólinn þótti ein glæsilegasta
skólastofnun Norðurlandanna á sínum tíma.