Fréttablaðið - 29.05.2005, Side 24
Dagbók
Gott er að hafa dagbók við höndina í vinnunni og skrá niður verkefni
dagsins og annað sem þarf að muna. Ágæt regla er að skrá í bókina í
lok dags hversu lengi var unnið og nöfn þeirra sem fundað var með.[ ]
Aldrei fyrr jafnmargir á
vegum Nordjobb hér á landi
Nordjobb sækir í sig veðrið og
er von á 80 norrænum ung-
mennum til sumarstarfa á Ís-
landi.
Nordjobb er samnorrænt verk-
efni þar sem ungu, norrænu fólki
á aldrinum 18 til 28 ára gefst
tækifæri til að stunda sumar-
vinnu á einhverju Norðurland-
anna. Markmið verkefnisins er að
auka hreyfanleika ungs fólks milli
Norðurlandanna og stuðla þannig
að aukinni þekkingu á menningu
og samfélagi Norðurlandanna.
Katrín Magnúsdóttir, tóm-
stundafulltrúi hjá Nordjobb á ís-
landi, segir að Nordjobb sé í sókn
og að í sumar sé von á fleiri ung-
mennum hingað til lands en
nokkru sinni fyrr. „Hér verða 80
Nordjobbarar í sumar, flestir frá
Finnlandi og Svíþjóð. Atvinnutil-
boðum fyrir norræna starfsmenn
hefur fjölgað hér á landi undan-
farið en mættu þó vera fleiri. Við
náum eiginlega ekki að anna eftir-
spurninni og vantar enn atvinnu-
rekendur sem eru tilbúnir að taka
til sín Nordjobbara,“ segir hún.
Ungmennin sem koma til Ís-
lands gegna alls konar störfum.
„Flestir þeirra sem eru í Reykja-
vík fást við garðyrkjustörf en úti
á landi eru ýmis önnur störf í
boði, til dæmis vinna á hótelum og
sveitabæjum,“ segir Katrín og
bætir því við að Nordjobb snúist
ekki bara um vinnuna heldur sé
líka heilmikið félagslíf í boði. „Við
erum með tómstundaprógramm
og alls konar félagsstarf þar sem
Nordjobbarar geta hist og
skemmt sér saman. Við bjóðum
líka upp á lengri ferðir út á land
og þá reynum við að gera Nor-
djobburum á landsbyggðinni
kleift að taka þátt. Þeir sem koma
hingað ná því að ferðast svolítið
um og sjá landið.“
Einn af þeim fjölmörgu Nor-
djobburum sem koma hingað í
sumar er Finninn Kari Salo. Hann
hefur verið hér í rúma viku og lík-
ar vel. „Ég ákvað að koma til Ís-
lands því ég hafði aldrei komið
hingað áður og þótti landið fram-
andi,“ segir Kari. Hann viður-
kennir að hafa verið dálítið hissa á
veðrinu enda bjóst hann við meiri
kulda. Kari hefur áður tekið þátt í
norrænu samstarfi en þetta er í
fyrsta skipti sem hann vinnur sem
Nordjobbari. „Þetta er mjög gam-
an og ég mæli hiklaust með þessu
fyrir aðra.“ Kari ætlar að vera hér
fram á sumarið en þá heldur hann
heim til Finnlands þar sem hann
stundar háskólanám.
Þeir Íslendingar sem hafa
áhuga á að eyða sumrinu erlendis
geta enn sótt um Nordjobb en um-
sóknarfresturinn rennur út þann
31. maí.
thorgunnur@frettabladid.is
Kari Salo er frá Finnlandi og vinnur í sumar við garðyrkjustörf í Hljómskálagarðinum.
Ungmenni misnotuð
á atvinnumarkaði
Ný skýrsla sýnir að atvinnu-
leysi ungmenna í heiminum
fer óðum vaxandi, auk þess
sem þau störf sem eru í boði
fela í sér lág laun og slæmar
aðstæður.
Mikið atvinnuleysi er meðal ungs
fólks í heiminum og fer það vax-
andi. Þetta kemur fram í nýrri
skýrslu Alþjóðasambands
frjálsra verkalýðsfélaga, sem birt
var í tilefni af þingi Alþjóða-
vinnumálastofnunarinnar á dög-
unum. Stofnunin áætlar að um 88
milljónir ungmenna um heim all-
an séu án atvinnu, en síðasta ára-
tug hefur atvinnuleit ungmenna
farið vaxandi og mælist atvinnu-
leysi þessa hóps 14,7 prósent. Í
Mið-Austurlöndum og Norður-
Afríku, þar sem ástandið er verst,
nær atvinnuleysi ungs fólks 26
prósentum.
Atvinnuleysi er þó ekki eina
vandamálið heldur einnig hvaða
störf standa ungu fólki til boða
þar sem þau vinna langan vinnu-
tíma fyrir lág laun og óviðunandi
aðstæður. Ungmennin vinna í
óformlega hagkerfinu þar sem
störfin lúta hvorki alþjóðareglum
né eðlilegum ákvæðum kjara-
samninga eins og við þekkjum
þau á Vesturlöndum, og er talið að
um 93% starfa sem ungu fólki
standi til boða í Afríku séu af því
taginu.
Tugir milljóna barna á skóla-
aldri eru neyddir til að vinna í
stað þess að ganga í skóla þar sem
fjölskyldur þeirra eru fátækar og
reiða sig á tekjur barnanna. Ung-
ar stúlkur eiga á hættu að vinnu-
veitendur þeirra misnoti þær
kynferðislega, börn eru reglulega
seld mansali og neydd í vændi eða
hernað. Talið er að 246 milljónir
barna séu við vinnu, og um 70%
þeirra við hrikalegar aðstæður
eins og í námum, með hættuleg
efni eða við vélar. Að mati Al-
þjóðavinnumálastofunarinnar fá
130 milljónir ungra launþega inn-
an við 65 krónur í laun á dag. ■
Börnin í Írak hafa neyðst til að sækja sér vinnu vegna stríðs og fátæktar.
Níu ráð til að vinnusvæði
þitt beri vott um að þú sért
mikilvæg/ur og framtaks-
söm/samur.
Vinnuaðstaða okkar og skipu-
lagning hennar segir talsvert um
okkur og því er gott að leggja
smá hugsun í það hvernig hún er
skipulögð. Hér eftirfarandi eru
nokkrir hlutir sem þarf að hafa í
huga og hjálpa þér að útbúa
vinnusvæði sem þér líður vel í og
gefur öðrum þá mynd að þú sért
mikilvægur og afkastamikill
starfsmaður.
1. Hafðu yfirsýn. Ef þú sérð ekki inn-ganginn á skrifstofunni þinni
skaltu færa þig eða setja spegil við
borðið þitt þannig að þú sjáir hann.
2. Líttu út fyrir að vera skipulagðurog framtakssamur. Hafðu borðið
þitt hreint og snyrtilegt. Hafðu nýjustu
verkefni þín skipulögð í bakka á borð-
inu þínu en annað sem þú notar
sjaldnar ofan í skúffu. Gögn og hlutir
sem þú ert alls ekki að nota skaltu
koma fyrir í möppum eða í geymslu-
pláss.
3. Hafðu plöntur í kringum þig.Plöntur lífga upp á skrifstofuna
og þær veita orku og líf, auk þess sem
þær taka til sín mengun úr andrúms-
loftinu. Rannsóknir hafa jafnvel sýnt að
plöntur draga úr stressi og auka fram-
leiðslu og einbeitingu.
4. Hafðu góða lýsingu. Góð lýsingdregur úr álagi á augun, eykur
orku og lyftir upp skapinu. Ef þú ert að
vinna undir flúorljósi skaltu athuga
hvort þú getur ekki skipt þeim út fyrir
þægilegri lýsingu. Einnig er gott að
notast við borðlamapa því það dregur
úr þreytu í augum.
5. Færðu það sem er úti inn. Sumarskrifstofur eru gluggalausar
þannig að tilvalið er að ramma inn fal-
legar landslagsmyndir eða myndir af
trjám og sólskini, sem kemur í stað
þess að hafa glugga.
6. Forðastu kitsch. Skildu mjúkdýrinog föndrið eftir heima. Hafðu í
huga að þú ert í vinnunni, og flottur
heftari eða stór vasi eða innrömmuð
mynd hentar mun betur. Jafnvel þó að
þetta sé þitt vinnusvæði þá er það
hluti af vinnustað þar sem fagmennska
á að ráða ríkjum.
7. Forðastu að móðga. Passaðu aðþær veggmyndir, skilti eða skjá-
hvíla sem þú ert með móðgi engan
eða stríði gegn siðareglum vinnustað-
arins. Ekki setja upp smekklaus daga-
töl sem gefa í skyn kynþáttafordóma
eða kvenfyrirlitningu.
8. Hafðu persónulegar myndir áskrifborðinu. Settu myndir af fjöl-
skyldunni, vinum þínum eða gæludýri
í ramma. Forðastu að hafa myndirnar
of persónulegar eða myndir af þér að
drekka með félögunum. Myndirnar
eiga að vera smekklegar og líflegar,
bæði þér og öðrum til ánægju.
9. Bættu róandi fylgihlutum í um-hverfi þitt. Skál eða pokar með
ilmjurtum geta haft róandi áhrif á þig
og látið þér líða vel. Ef vinnufélagar
þínir eru viðkvæmir fyrir ilminum
skaltu setja blóm eða jurtir á skjáborð-
ið hjá þér.
Gullnámugröftur er afar mik-
ilvæg atvinnugrein í þróunar-
löndunum sem styrkir og bæt-
ir þjóðfélagið.
Gullnámugröftur er að verða
mikilvægari og mikilvægari at-
vinnugrein fyrir mörg þróunar-
lönd eins og kemur fram í skýrslu
World Gold Council, WGC, eins og
skýrt er frá á fréttasíðu BBC,
bbc.co.uk.
Í skýrslunni, sem heitir A
Touch of Gold, kemur fram að út-
flutningur á gulli frá stórskuldug-
um löndum hefur aukist um 84
prósent á áratugnum frá 1994 til
2004.
Á síðasta ári framleiddu þró-
unarlöndin 72 prósent af gull-
magni í heiminum. Jafnframt
kemur fram í skýrslunni að stór-
skuldug lönd eins og Malí og
Gana treysta nú afar mikið á iðn-
aðinn.
Gulliðnaðurinn styrkir líka
þjóðfélagslega og fjárhagslega
byggingu ríkjanna. Flest gull-
námugreftrunarfyrirtæki reyna
að ráða aðeins innfædda starfs-
menn og birgja og söluprósenta
og skatttekjur iðnaðarins renna
beint í peningakistil hverrar þjóð-
ar fyrir sig. Til dæmis benda
rannsóknir til þess að hver námu-
starfsmaður í Suður-Afríku haldi
uppi allt að tíu manneskjum. ■
M
YN
D
/G
ETTY
Á síðasta ári framleiddu þróunarlöndin
72 prósent af gullmagni í heiminum.
Sannfærandi starfsmaður
Námugröftur mikilvæg-
ur í þriðja heiminum